Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1991, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991
5
Fréttir
Gengi dollars
fellur að líkindum
í 52 krónur
Gengi Bandaríkjadollars var í gær
um 54,7 krónur. Það hefur auðvitað
verið sveiflukennt eins og lögmál
markaðarins bjóða. En Bandaríkja-
dollar hefur yflrleitt verið að falla á
mörkuðum heimsins síðan um ára-
mót. Vextir lækkuðu í Bandaríkjun-
um en hækkuðu í Þýzkalandi í byij-
un þessa mánaðar. Þetta þýðir, að
fjármagnið flytzt milli landa og leitar
til þess lands, sem hefur hærri vext-
ina og hærri ávöxtunina. Þetta þýddi,
að gengi Bandaríkjadals gagnvart
þýzka markinu varð lægra en það
hefur nokkru sinni verið. Banda-
ríkjadollar fór þannig niður í 1,46
þýzk mörk. Sterlingspundið komst
einnig í tvo dali, og hefur gengi
pundsins gagnvart dollar ekki verið
hærra í áratug, samkvæmt tímarit-
inu Vísbending.
Lággengisferill út árið?
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verzlunarráðs sagði í
viðtali við DV í gær, að Bandaríkja-
dollar mundi að líkindum halda
áfram lággengisferli sínum út þetta
áriö. Gengið gæti þó sveiflazt tals-
vert. Það kynni að fara niður í 52-53
krónur, en það yrði magnað, ef það
færi niður fyrir 50 krónur.
Sölugengi dollarans hérlendis var
fyrir rúmri viku þrettán prósent
lægra en það var í ársbyrjun. Gengi
dollars fór að lækka um mitt síðast-
liðið sumar vegna líkinda á efna-
hagslegum samdrætti í Bandaríkjun-
um. Vextir þarlendis höfðu þá farið
lækkandi og hkur taldar á frekari
vaxtalækkun eins og varð. Síðan
hefur gengi dollars lækkað nær sam-
fellt. Þó hætti dollar að falla um sinn,
eftir að írakar réðust inn í Kúvæt.
Margir fluttu þá fé sitt yflr í Banda-
ríkjadollar, sem þykir traustur gjald-
miðill á óróatímum. í annað sinn
hætti gengisfall dollars, þegar frest-
Sjónarhom
Haukur Helgason
urinn var að renna út, sem Samein-
uðu þjóðirnar gáfu írökum til að fara
frá Kúvæt. En eftir að fréttist, að
fyrstu lotárásirnar á írak hefðu
tekizt giftusamlega, önduðu menn
léttar, gengi dollars féll aö nýju, því
að menn töldu sig ekki þurfa að flýja
yfir til dollarans vegna óróans.
Þveröfugar skoðanir
Hér hefur verið gengið út frá þeim
kenningum, að gengi dollars muni
fara lækkandi á næstunni. En vissu-
lega fyrirfinnast í heiminum hag-
fræðingar, sem halda þveröfugri
skoðun fram af mikilli hörku og
sannfæringarkraftí.
Þeir segja, að gengi dollars muni
hækka mikið á næstunni.
Þessir hagfræðingar benda á, að
kaupmáttur dollarans sé meiri í New
York en kaupmáttur dollars er til
dæmis í London eða Tokyo. Það skal
ekki rakið frekar, en þessi munur á
kaupmætti dollars í Bandaríkjunum
og annars staðar þýðir, að gengi doll-
ars se ot tagt sxrao i Lonaon og
Tokyo. Þarna gæti munað tuttugu
eða jafnvel þrjátíu prósentum. Því
ætti gengi dollars að hækka, jafnvel
um mjög mörg prósent.
Þeir sem nú virðast hafa vinning-
inn í umræðunni benda hins vegar á
innra ósamræmi í efnahagslífi
Bandaríkjanna. Þeir minna á stöðug-
an fjárlagahalla og stöðugan við-
skiptahalla í Bandaríkjunum. Því,
segja þeir, mun gengi dollarans enn
falla.
Tímaritið Vísbending fjallar ekki
um þessar mismunandi kenningar,
heldur hallast að því, að dollargengið
muni enn lækka. Þar er lögð þung
áherzla á, hvernig vextir hafa lækk-
að í Bandaríkjunum en til dæmis
hækkað í ríkjum eins og Þýzkalandi.
Þær vaxtabreytingar komu flestum
á óvart.
Framhald gæti orðið á þess konar
breytingum á vöxtum, sem mundu
herða á flutningi ijármagnsins, í
þessu tilviki frá Bandaríkjunum til
annarra landa.
Brezka blaðið Financial Times seg-
ir, að miðað við mun á vöxtum í
Bandaríkjunum og Þýzkalandi sé
eðhlegt, að gengi dollars falli í 1,4
þýzk mörk á næstunni. Það yrði þá
nálægt 52 íslenzkum krónum.
Eitt af sjö menningartrjáin eftir Pétur Tryggva sem afhent verða menn-
ingarverðlaunahöfum í hádeginu á fimmtudag.
Menningarverölaun D V:
Hugmynd að verðlauna-
gripum sótt í Hávamál
Pétur Tryggvi Hjálmarsson gull-
smiður hefur nú lokið við að gera
þá sjö menningarverðlaunagripi
sem afhentir verða þeim sem til
þess hafa verið útnefndir í veislu-
salnum Þingholti á Hótel Holti
fimmtudaginn 21. febrúar. Gripirn-
ir eru unnir úr steypu, járni og
gleri og sækir Pétur Tryggvi hug-
myndir sínar að menningartré til
Hávamála. Til útskýringar gripun-
um segir Pétur Tryggvi:
„Sameiginleg þörf manns og
menningar er aðhlynning. í Háva-
málum er dregin upp mynd af tré
sem stendur í eyðimörk, til saman-
burðar við mann sem enginn ann:
Hrörnar þöll,
sú er stendr þorpi á,
hlýrat henni börkr né barr;
svá er maðr,
sá er manngi ann;
hvat skal hann lengi lifa?
Aðhlynning og stuðningur við
menningartréð er forsenda þess að
það dafni.
Glerið táknar þann brothætta
hluta sem tréð ber uppi. Ferning-
arnir tákna þann ramma sem
menningu og listum er settur, til
dæmis bók, málverk, leiksvið, dag-
blað, sjónvarp o.s.frv....“ -HK
(c qardaqurtil W
... í bílaviðskiptum
FYLGSTU MEÐ!