Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1991, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991.
17
DV
jnina sem hefst á Ítalíu 13. mars. Hér á
i sér að nýju í landsliðið. DV-mynd GS
ppnina á Ítalíu:
aðná
ippni
iðsþjálfari
með sæti í B-keppninni,“ sagði Gústaf
Björnsson.
-VS
• Gústaf Björnsson landsliðsþjálfari:
„Er með besta mannskapinn sem völ
er á.“
anmerkur?
mihjálFHelsingör
rm sterki hjá Val, er undir smásjánni hjá
Umboðsmaður félagsins setti sig í sam-
itali við DV sagði Einar að málin myndu
umar en sú breyting verður á keppnis-
ídi keppnistímabili að stofnuð hefur ver-
örku og hafa því forráðamenn Helsingör
úrvalsdeildina og leita því sterkara leik-
-GH
íþróttir
Þór kastaði
fra ser sign
- gegn Grindvikingum í gær og tapaði, 71-70
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Það var mjög svekkjandi að tapa
þessum leik enda fengum við gott
tækifæri til að gera út um leikinn
undir lokin. Láðið sýndi það þó í
kvöld að það getur staðið í hvaða liði
sem er og getur leikið vel,“ sagði
Sturla Örlygsson.-þjálfari og leik-
maður Þórs, eftir að Grindavík haíði
unnið Þór, 71-70, í æsispenndi leik í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
Grindavík í gærkvöldi.
Það stefndi allt í stórsigur heima-
manna. Eftir 6 mínútna leik var stað-
an orðin 17-6. Þegar fór á líða á hálf-
leikinn náðu Þórsarar að rétta sinn
hlut og með mikilli baráttu höfðu
norðanmenn náð yfirhöndinni og í
leikhléi var staöan 40-42.
í síðari hálfleik skoruðu Þórsarar
5 fyrstu stigin en næstu 13 stig voru
Grindvíkinga og þá var staðan 53-47.
Þórsar náðu að jafna leikinn á ný og
höfðu undirtökin á lokakafla leiks-
ins. Þegar ein og hálf mínúta var eft-
ir var staðan 64-70 fyrir Þór. Þórsar-
ar vofu miklir klaufar að gera ekki
út um leikinn en Grindvíkingar
gengu á lagið og þegar 12 sekúndur
voru eftir skoraði Jóhannes Krist-
bjömsson sigurkörfu Grindvíkinga.
Þórsarar áttu skot á körfuna á síð-
ustu sekúndunni en skotið geigaði.
Grindavíkurliðið hóf leikinn vel en
síðan brotnaði liðið nokkuð niður og
það má segja að heppnin hafl verið
með liðinu undir lokin. Dan Krebbs
átti góðan leik, var sérstaklega drjúg-
ur undir lokin, og þeir Guðmundur
Bragason og Jóhannes Kristbjöms-
son áttu ágætan leik.
Þórsliðið var óheppið að vinna ekki
leikinn og er það ekki í fyrsta sinn í
vetur sem liðið gloprar niður unnum
leik. Liðið sýndi það og sannaði aö
það getur leikið vel. Bestu menn liðs-
ins voru Dan Kennard og þeir Kon-
ráð, Helgi, Sturla og Jón Örn léku
vel.
Stig UMFG: Dan Krebbs 23, Guð-
mundur Bragason 12, Jóhannes
Kristbjörnsson 11, Steinþór Helgason
10, Rúnar Árnason 6, Sveinbjörn Sig-
urösson 4, Ellert Magnússon 2, Marel
Guðlaugsson 1.
Stig Þórs: Dan Kennard 22, Konráð
Óskarsson 13, Sturla Örlygsson 12,
Helgi Jóhannesson 10, Jón Örn Guð-
mundsson 9, Björn Sveinsson 4.
Dómarar voru Kristján Möller og
Kristinn Óskarsson og þeir eiga hrós
skilið fyrir góða frammistöðu.
„Verðum að ná toppleik“
- ef viö eigum að vinna Viking, segir Viggó Sigurðsson
0 ^ IX Körfiibolti
Úrvalsdeild
Tindastóll-Valur..........95-83
Grindavík-Þór.............71-70
A-riðill:
Njarðvík.....22 18 4 2096-1677 36
KR.........,.22 14 8 1850-1769 28
Haukar......22 11 11 1859-1869 22
Snæfell......22 5 17 1711-1952 10
ÍR...........21 4 17 1699-1968 8
B-riðill:
Keflavík....22 16 6 2172-2021 32
Grindavik...23 16 7 1977-1877 32
Tindastóll... 23 15 8 2162-2072 30
Valur.......23 7 16 1896-2116 14
Þór.........22 5 17 2077-2118 10
• Einn leikur var í bikarkeppni
kvenna í körfuknattleik. Þá áttust
við í Stykkishólmi Snæfell og ÍR
og sigraðu ÍR-ingar, 25-75, og
mætir liðið Haukum í næstu um-
ferð.
Undanúrslitaleikirnir í bikar-
keppni HSÍ verða háðir í kvöld.
Haukar úr Hafnarfirði mæta Víking-
um í íþróttahúsinu við Strandgötu
og í Vestmannaeyjum leika heima-
menn í ÍBV gegn FH. Báöir leikirnir
hcfjast klukkan 20 en úrslitaleikur-
inn sjálfur verður í Laugardalshöll-
inni laugardaginn 2. mars.
„Það er alltaf gaman að svona leikj-
um. Það er hins vegar alveg ljóst að
við verðum að eiga toppleik til að
vinna og Víkingar að sama skapi lé-
legan. Það er mikið í húfl hjá báðum
liðum og leikurinn mun mótast af
því. Ég á von á jöfnum og spennandi
leik og allir leikmenn mínir ganga
heilir til skógar," sagði Viggó Sig-
urðsson, þjálfari Hauka, í samtali við
DV í gær.
„Leikurinn gegn Haukum í kvöld
verður án efa erfiður. Bikarleikir er
allt öðruvísi en deildarleikir og þetta
mun því verða hörkuleikur. Meiðsli
hafa sett strik í leik okkar í síðustu
leikjum en ég held að menn séu að
skríða saman og vonandi getum við
stillt upp sterkasta liði okkar í kvöld.
Ekkert annað en sigur kemur til
greina,“ sagði Bjarki Sigurðsson,
hinn snjalli hornamaður Víkings-
liðsins, í samtali við DV í gær.
„Við lítum á alla leiki eftir þetta
sem bónus. Auðvitað verður stefnan
tekin á sigur og það er mikil stemn-
ing fyrir leiknum innan liösins og
eins á meðal Eyjamanna sjálfra. Við
eigum von á góðum stuðningi og
verður örugglega fullt út úr dyrum.
FH-ingar munu mæta mjög grimmir
til leiks og þeir vita alveg hvað bíður
þeirra hér í Eyjum,“ sagði Sigurður
Gunnarsson, þjálfari og leikmaður
ÍBV, í samtali við DV í gær.
„Við mætum að sjálfsögðu grimmir
til leiks og erum ákveðnir í að hrista
af okkur slenið. Einbeitingin hefur
ekki verið sem skyldi í síðustu leikj-
um en það er að duga eða drepast í
kvöld. Það er til mikils að vinna og
það verður uppbót á frekar lélegt
gengi undanfarið að komast í úrslit-
in,“ sagði Guðjón Árnason, fyrirliði
FH, í samtali við DV.
-JKS/GH
HK sigraði í 2. deildinni í handknattleik
• HK úr Kópavogi hefur tryggt sér sigur í 2. deild karla í handknattleik þó nokkrum leikjum sé enn ólokið í deild-
inni. HK fer því með 4 stig i úrslitakeppni sex efstu liða 2. deildar sem berjast um tvö sæti í 1. deild næsta vetur.
HK vann ÍH, 30-14, í lokaleik sinum á laugardaginn og fékk þá afhent sigurlaunin í 2. deild. Á myndinni eru
meistararnir ásamt formanni HSÍ, Jóni Hjaltalín Magnússyni, sem færði þeim 2. deildar bikarinn.
Sport-
stúfar
Meistarar Detroit Pist-
ons komust í hann
krappan í fyrrinótt
þegar þeir mættu Se-
attle Supersonics í bandarísku
NBA-deildinni í körfuknattleik.
Jœ Dumars tx-yggði Detroit
uauman sigur, 85-83, þegar hann
skoraði sigurkörfuna tveimur
sekúndum fyrir leikslok. Þá er
Ijóst að hinn snjalli Isiah Thomas
leikur ekki meira með Ðetroit í
vetur en hann þurfti að gangast
undir aðgerðir á hönd og ökkla.
Úrslit.í fyrrinótt urðu þessi:
Cleveland - Chicago...95-110
Detroit-Seattle..... 85-83
Minnesota - Denver....128-114
Utah-SASpurs.........104-81
Golden State - Dallas.101-107
Opið unglingamót
i badminton
Badmintondeild KR
heldur opið unglinga-
mót, Hljómbær/Pione-
er-mótíð, í TBR-húsinu
dagana 22. og 23. febrúar. Keppni
hefst á íostudagskvöldiö 22. fe-
brúar klukkan 19 og heldur
áfram morguninn eftir. Búist er
við mikilli þátttöku víðs vegar af
landinu.
Víðavangshlaup
Kópavogs á laugardag
Næstkomandi laugar-
dag mun fijálsíþrótta-
deild Breiðabliks
standa fyrir hinu ár-
lega víðavangshlaupi Kópavogs
og er hlaupið innan stigakeppni
FRÍ. Hlaupið hefst við Vallar-
gerðisvöll kl. 14 og verður keppt
í karla-, kvenna og drengjaflokki.
í karlaílokki verða hlaupnir ca. 6
km en 1 kvenna- og drengjaflokki
ca. 3,5 km. Keppt verður um far-
andbikar í öllum flokkum. Skrán-
ing keppenda fer fram á staðnum
frá kl. 13 og em keppendur beðn-
ir um að mæta tímanlega til
skráningar. Þátttökugjaid er kr.
300. Nánari upplýsingar veitír
Böðvar Bjarnason í síma 689145.
Herrakvöld FH
á laugardaginn
Herrakvöld FH verður haldið á
laugardaginn í hirrni glæsilegu
félagsaðstöðu í Kaplakrika. Borð-
hald hefst kl. 19 og verður margt
til skemmtunar. Ræðumaður
kvöldsins verður Ellert Schram.
AUir FH ingar og velunnarar fé-
lagsins eru hvattir til að mæta
og er miðaverð kr. 2000.
Þorvaldur enn
í kuldanum
Þorvaldur Örlygsson, leikmaður
Nottingham Forest, er enn úti í
kuldanura hjá Brian Clough,
framkvæmdasijóra félagsins.
Þorvaldur hefur ekkert ieikið
með liðinu á þessu keppnistíma-
bili og í samtali við DV i gær ít-
rekaði hann þaö sem áður hefur
komið fram í blaðinu, að hugur
hans stefnir frá félaginu þó svo
að eitt ár sé eftir af samningi
hans viö það. Þorvaldur Iék með
varaliði Forest gegn Aston Villa
í fyrrakvöld og fóru Þorvaldur
og félagar með sigur af hólmi, 0-1.
„Faðirsundsins“ í
Þýskalandi aliur
Georg Zorowka, sem
átti stóran þátt í því að
gera Austur-Þýska-
land aö stórveldi í
sundi, lést um helgina úr hjarta-
slagi í Mtinchen, 64 ára að aldri,
en hann átti við krankleika að
stríöa á síðustu misserum.
Zorowka var formaður austur-
þýska sambandsins um tuttuga
ára skeið en lét af störfum eftir
breytingarnar i stjórnarfari á síð-
asta ári. Zorowka var einmg einn
af varaforsetum alþjóöa sund-
sambandsins (FINA) áður en til
sameiningar þýsku rikjanna kom
í lok ársins 1989.