Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1991, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991.
25
Sviðsljós
Steingrímur ráðfærir sig við Jón
Baldursson, stigahæsta bridgespil-
ara okkar íslendinga.
Omar Sharif spáir í spilin.
Forsætisráðherrann og leikarinn takast í hendur eftir ágætis spil.
DV-myndir E.J.
Bridgehátíð Flugleiða
Bridgespilarar á Islandi halda
mikla hátíð í febrúar á hverju ári.
Til hátíðarinnar er iðulega boðið
heimsfrægum spilurum sem mikla
leikni hafa sýnt viö spilaborðið.
Gestalistinn í ár var óvenju glæsileg-
ur og ber þar helst að nefna leikar-
ann fræga Omar Sharif.
Sharif er 59 ára gamall og hefur
lengi verið mikill áhugamaður um
bridge og hefur hann meðal annars
spilað með landsliði Egypta. Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra spilaði á móti Sharif í fyrsta
spili mótsins og fylgdist fjöldi áhorf-
enda með af miklum áhuga.
Ljósmyndari okkar var á staðnum
og tók meðfylgjandi myndir við þetta
tækifæri.
Ástin og stríðið
Það er sjálfsagt ekki öfundsvert að
búa í stríðshrjáðu landi en það er
kostur sem margir þurfa að sætta sig
við um þessar mundir. En þrátt fyrir
hörmungar og óvissu virðist mann-
skepnan vera þeim eiginleikum búin
að geta lagað sig ákaflega fljótt að
aðstæðum hverju sinni. Þannig hafa
birst myndir frá írak þar sem ungt
fólk var að ganga í hjónaband með
tilheyrandi hátíðarhöldum og fagn-
aðarlátum ættingja og vina. Parið á
meðfylgjandi mynd virðist heldur
ekki vera í hringiðu stríðsins þar sem
það situr á ströndinni í Tel Aviv. Þó
tala öskjurnar, sem þau hafa tekið
með sér niður á strönd, sínu máli. í
þcim eru hinar daglegu nauðsynjar
Israelsmanna um þessar mundir,
gasgrímurnar.
Skokkari fylgist með ástföngnu pari á sólríkum vetrardegi á ströndinni í Tel Aviv. Simamynd Reuter.
Kirk óðum að hressast
Fréttir herma að kvikmyndaleik-
arinn Kirk Douglas hafi útskrifast
af sjúkrahúsi í gær, mánudag, aðeins
fimm dögmn eftir að hann lenti í al-
varlegu þyrluslysi þar sem tveir
menn létu hfið.
Hinn 72 ára gamli Kirk fékk skurð
á höfuðið og nokkrar skrámur en
virtist að öðru leyti ekki verða meint
af. Hinsvegar hggur þyrluflugmað-
urinn alvarlega slasaöur á sjúkra-
húsi. Þykir ganga kraftaverki næst
að nokkur lifði slysið af en leikarinn
frægi mun vera hinn hressasti eins
og fyrr segir.
Hann tók hraustlega á með kúbeinið, lögregluþjónninn, er losa þurfti
um dekk á þessum bíl er lenti í óhappi nýlega. Félagarnir fylgjast grannt
með aðförunum. DV-mynd S
Blúsað á Púlsinum
Um síðastliðna helgi var blúsað
£if miklum móð á Púlsinum. Þar
léku bandaríski blúslistamaðurinn
L. McGraw, Beauchamp, „Chicago
Beau“ og Vinir Dóra. Hinn erlendi
gestur vakti mikla ánægju hjá
áheyrendum með blússöng sínum
og munnhörpuleik.
Blúsarinn góði og Andrea Gylfadóttir söngkona tóku góðar syrpur sam-
an. DV-mynd RaSi,