Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1991, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991.
Undirakstursvöm
- Hvað næst?
„Getið þið imyndað ykkur bílstjóra á 50-60 manna rútu halda uppi lúg-
unni með annarri hendi?“
„Hugmyndirnar eru sjálfsagt bæöi aö-
fengnar erlendis frá og svo hugarsmíð
manna sem lítið annaö hafa aö gera en
aö upphugsa aðferðir til aö gera öörum
lífiö leitt og erfitt... “
Við lestur 28. gr. nýrra umferðar-
laga um yfirbyggingar og undir-
akstursvörn vakna ýmsar spurn-
ingar hjá okkur langferðabílstjór-
um.
Þessi stórfurðulegi samsetningur
hefur enn eina ferðina orðið til að
vekja upp efasemdir okkar um
þekkingu þeirra aðila sem um þessi
mál fjalla. Þekkingu á þeim eigin-
leikum sem langferðabíll þarf að
hafa til að teljast góður hálendis-
bíll. Greinilegt er að þessir menn
vita t.d. harla lítið um aðstööu til
afgreiðslu farangurs.
Úrgreinargerð
Strax í fyrstu grein segir: „Ef á
hliðum ökutækis eru hurðir (hler-
ar) sem opnast út má ekki vera
hægt að festa þær í útstæðri stöðu.“
Getiö þið ímyndað ykkur bílstjóra
á 50-60 manna rútu halda lúgunum
uppi með annarri hendi, meðan
hann aíhendir farþegunum u.þ.b.
100 töskur með hinni?
Önnur grein hljóðar svo: „Undir-
akstursvörn: Á ökutæki sem er
meira en 3500 kg aö leyfðri há-
marksþyngd skal, ef gerð þess gef-
ur tilefni til, komið fyrir undirakst-
ursvörn, sem komi eins og unnt er
í veg fyrir að ekið sé undir útstæða
hluta ökutækisins." Og 2. gr. annar
liöur: „Undirakstursvörn er lárétt-
ur biti sem festur er undir ökutæki
þversum að aftan og nær yfir alla
breidd ökutækis eða hluta þess.
Vörnin skal fest við burðarvirki
ökutækis." Og enn í annarri gr.
þriðji hður: „Neðri brún undirakst-
ursvarnar skal hvergi vera meira
en 550 m/m yfir akbraut. - Bifreiðin
skal vera án farms þegar mælt er.“
Hver verður ábyrgur?
Hver halda menn svo að hæðin
veröi eftir að bíllinn hefur verið
hlaðinn? Og hver verður ábyrgur
þegar eitt til tvö hundruð kílóa ís-
klumpar-fara að hrynja af þessum
óskapnaði á götur bæjarins á vet-
urna, beint í veg fyrir óviðbúna
bílstjóra smærri bíla?
Hvað kemur næst? Hvaöa „ruglu-
gerðir" ryðjast næst fram úr þoku-
kenndum heilum blýantsnagar-
anna? Hvaðan í ósköpunum koma
þessar hugmyndir, og hverjir eru
það sem um þær íjalla og sam-
þykkja? Og hverj u eiga þær að
þjóna?
Spurningunni um þaö, hvað kem-
ur næst, er erfitt að svara. Það fer
sjálfsagt eftir því hvaða erlendar
reglur berast næst inn á borðin hjá
hvítflibbunum, og þá hvort þeir
yfirleitt skilja viðkomandi tungu-
mál.
Hugmyndirnar eru sjálfsagt bæði
aðfengnar erlendis frá og svo hug-
arsmíð manna sem lítið annað hafá
að gera en að upphugsa aðferðir til
að gera öðrum lífið leitt og erfitt,
og telja sig með því móti geta rétt-
lætt launatöku sína hjá því opin-
bera.
Þessi ósköp eru svo samþykkt á
Alþingi, af þingmönnum sem vita
sennilega ekki betur en að óskapn-
aðurinn sé saminn af mönnum með
þekkingu og reynslu á málunum.
Svo er þetta hvort eð er ekki svo
merkilegt að það er sjálfsagt að
hespa því í gegn svo hægt sé að
halda áfram að rífast um dagpen-
inga ráðuneyta og kjólakaup þing-
forseta.
Hverju þetta á að þjóna í reynd,
er okkur huhn ráögáta.
Nema þetta sé hluti þeirra að-
ferða sem beita á til að vernda
landið okkar? Því það er næsta víst
að með þennan óskapnað undir bíl-
unum munu ferðir um hálendið að
mestu leggjast af, svo ekki sé nú
minnst á sjálfa Þórsmörkina.
Nægilegur vandi
Hugleiðum nokkur atriði nánar:
- Slys af völdum ákeyrslu undir
afturenda langferða- og vörubif-
reiða hér á landi eru afar fátíð og
nánast óþekkt. Gaman væri ef viö-
komandi aðilar gætu upplýst nánar
um það atriði, t.d. hvað mörg % og
hversu alvarleg slys.
Á yfirbyggingum, sem unnar eru
hér á landi, - og eru yfirleitt mjög
vandaðar, - hafa menn reynt að
taka snið upp á við fyrir aftan aft-
urhjól m.a. til að forðast skemmdir
þegar ekið er yfir ójafnt land, og
ekki síst yfir ár. Á leiðinni frá
Markarfljótsbrú í Þórsmörk eru
milli 20 og 30 lækir sem allir geta
grafið sig þannig að þeir verði erf-
iðir yfirferðar.
Þá eru ótaldar Gígjökulskvíslin,
Steinholtsá og Hvanná, að
ógleymdri sjálfri Krossánni. Með
þennan óskapnað undir bílunum
má segja að þessari leið sé lokað
fyrir okkur. Sama má reyndar
segja um flestar hálendisleiðirnar,
svo sem Sprengisand, Kverkfjalla-
leið o.s.frv. Geri menn nú eigi að
síður tilraun til að fara þessar leið-
ir eru fyrirsjáanlegar skemmdir á
bílum og farangri.
Nægilegur vandi steðjar að í
rekstri langferðabíla þó ekki sé vís-
vitandi reynt að torvelda umferð
þeirra um þau svæöi landsins sem
einna vinsælust eru hjá ferða-
mönnum sem óneitanlega eru að
verða stærri og stærri þáttur í
tekjulindum þjóðarinnar.
Við frábiðjum okkur afskipti
þessara kerfiskarla af útbúnaði bíl-
anna sem við þurfum að aka
óskemmdum um landið, og án þess
að skemma það.
Það hefur hingað til gengið bæri-
lega án þeirra hjálpar, en hins veg-
ar hefur aðlögun og lagfæringar í
yfirbyggingum hingaö til byggst á
reynslu þeirra manna sem átt hafa
og ekið bílunum - og gefist bara
býsna vel.
Bifreiðastjórar hjá Guðmundi Jón-
assyni hf.:
Hafsteinn Snæland, Benedikt
Brynjólfsson, Guðmundur Gunn-
arsson, Snorri Einarsson, Oddur
Valur Gunnlaugsson, Daniel
Óskarsson, Jón Þór Guðmundsson,
Guðmundur Sæmundsson, Arn-
grímur Sveinsson, Karl Grant,
Þórður Skúlason, Sigurður Sig-
urðsson, Guðjón Rögnvaldsson,
Rósmundur Bernódusson, Þórar-
inn Sigurðsson
Andlát
Ragnhildur Jónsdóttir, Njálsgötu 75,
andaðist í Landspítalanum 19. febrú-
ar.
Ólína Marta Þormar, Sólheimum 23,
Reykjavík, lést á heimili sínu að
morgni 19. febrúar.
Valdimar Björnsson frá Gafh, til
heimilis að Eskihlíð 10, lést í Borgar-
spítalanum 19. febrúar.
Sigríður Jenný Skagan andaðist að-
faranótt 19. febrúar á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli.
Jarðarfarir
Guðríður Guðlaugsdóttir, Hátúni 10,
Reykjavík, er lést 13. febrúar, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 21. febrúar
kl. 13.30. ' ......
Guðmundur Aðalsteinn Knudsen,
Ölduslóð 12, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Hafnaríjarðarkirkju
fimmtudaginn 21. febrúar kl. 15.
Friðgeir Gíslason verður jarðsung-
inn frá Feha- og Hólakirkju fimmtu-
daginn 21. febrúar kl. 13.30.
Sigríður J. Kjerúlf sjúkrahði, Sam-
túni 18, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 21. febrúar
kl. 15.
Gottskálk Þ. Gíslason húsgagna-
smíðameistari verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn20. febrúar, kl. 13.30.
Samúel Björnsson bifreiðarstjóri,
Dalbraut 21, verður jarðsunginn frá
Áskirkju fimmtudaginn 21. febrúar
kl. 13.30.
Fella- og Hólakirkja: Samverustund fyr-
ir aldraða í Gerðubergi fimmtudag kl.
10-12. Helgistund. Umsjón hefur Ragn-
hildur Hjaltadóttir. Starf fyrir 12 ára böm
í Fella- og Hólakirkju fimmtudaga kl.
17-18.
Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir í dag kl. 18.
Kársnessókn: Fyrirlestur dr. Einars Sig-
urbjömssonar prófessors um nokkur
kjamaatriði kristinnar trúar verður í
safnaðarheimilinu Borgum í kvöld kl.
20.30. Fyrirspumir og umræður að loknu
inngangserindi.
Neskirkja: Æfing kórs aldraðra kl. 16.45.
Öldrunarstarf: Hár- og fótsnyrting í dag
kl. 13-18.
Seljakirkja: Fundur KFUM, unglinga-
deild, í dag kl. 19.30.
Seltjarnarneskirkja: Samkoma í kvöld
kl. 20.30. Sönghópurinn „Án skilyrða",
stjórnandi Þorvaldur Halldórsson.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur hjá Geðhjáip
Fyrirlestur verður haldinn á vegum Geð-
hjálpar, félags fólks með geðræn vanda-
mál, aðstandenda þeirra og velunnara, í
kennslustofu á 3. hæð geðdeildar Land-
spítalans fimmtudaginn 21. febrúar kl.
20.30. Efni: heimahlynning, heildræn
umönnun og fjölskylduaðhlynning. Fyr-
irlesarar em starfsfólk heimahlynningar
Krabbameinsfélags íslands. Allir vel-
komnir. Aðgangur ókeypis.
Fundir
ITC deildin Björkin
heldur fund í kvöld kl. 20 að Síðumúla
17. Fundurinn er öllum opinn. Nánari
upplýsingar gefa Ólafía, s. 39562, og Guð-
mundína, s. 54760.
Kvenfélag Kópavogs
heldur félagsfund fimmtudaginn 21. fe-
brúar kl. 20.30 í félagsheimilinu. Spilað
verður bingó.
Tapað fundið
Kisan Hera er týnd
Hvít, svört og gulbrún læða týndist úr
Grafarvogi á laugardaginn sl. Hún er meö
bleika ól með blárri slaufu. Ef einhver
veit um ferðir hennar eða hvar hún er
niðurkomin er hann vinsamlegast beðinn
að láta vita í síma 675179.
Messur
Föstumessur:
Miðvikudagur:
Áskirkja: Föstumessa í kvöld kl. 20.30.
Elliheimilið Grund: Föstuguösþjónusta
kl. 18.30 í umsjón Egils Hallgrímssonar.
Fella- og Hólakirkja: Föstuguðsþjónusta
í kvöld kl. 20.30. Prestur sr. Hreinn Hjart-
arson.
Hallgrímskirkja: Föstumessa í kvöld kl.
20.30. Eftir messu mun dr. Sigurbjörn
Einarsson biskup flytja erindi um trúar-
líf. Umræöur og kaffi.
Neskirkja: Föstuguösþjónusta í kvöld kl.
20. Prestur Sr. Frank M. Halldórsson.
Safnaðarstarf
Árbæjarkirkja: Starf með 10-12 ára
börnum í dag kl. 17. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 16.30.
Áskirkja: Starf með 10 ára börnum og
eldri í safnaðarheimilinu í dag kl. 17.
Breiðholtskirkja: Unglingakórinn (Ten-
sing) hefur æfmgu í kirkjunni í kvöld kl.
20. Allir unglingar 13 ára og eldri vel-
komnir.
Bústaðakirkja: Félagsstarf aldraðra:
Opið hús í dag kl. 13-17. Fótsnyrting fyr-
ir aldraða er á fimmtudögum fyrir hádegi
og hársnyrting á fóstudögum fyrir há-
degi. Mömmumorgunn í fyrramáliö kl.
10.30.
Dómkirkjan: Hádegisbænir í dag kl.
12.15. Æskulýðshópur í safnaðarheimil-
inu í kvöld kl. 20. Allir unglingar vel-
komnir.
Tilkynrdngar
Seyðfirðingafélagið
Muniö sólarkaffið okkar föstudaginn 22.
febrúar nk. í Hreyfilshúsinu kl. 20.30.
Miðar seldir frá kl. 17-19 á fimmtudag í
Hreyfilshúsinu.
Hvassaleiti 56-58
Félags- og þjónustumiðstöð
Nk. fostudagskvöld kl. 19.30 verður góu-
fagnaður með austurlensku ívafi. Tví-
réttaður matur, kaffi og konfekt,
skemmtiatriði og dans undir stjórn Sig-
valda Þorgilssonar og Karls Jónatans-
sonar. Opið öllum 67 ára og eldri. Skrán-
ing þátttakenda í síma 679335.
Félag eldri borgara
Opið hús í dag, miðvikudag, í Risinu frá
kl. 13-17. Fijáls spilamennska. í tilefni
af degi leiðsögumanna býðst félagsmönn-
um ferð um Reykjavík ásamt leiðsögu-
manni laugardaginn 23. febrúar nk. Farið
verðin frá Hlemmtorgi kl. 14. Uppl. í síma
28812. Göngu-Hrólfar fara að Gullfossi nk.
laugardag. Farið verður kl. 10 frá Hverf-
isgötu 105. Námskeið í skartgripagerð
hefst 27. febrúar nk. að Hverfisgötu 105.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félags-
ins.
Argentísk vika dagana
20.-26. febrúar
í tilefni argentískrar viku sem Argentína
steikhús og Púlsinn - tónlistarbar standa
að dagana 20.-26. febrúar er kominn til
landsins argentíski píanóleikarinn og
tónskáldiö Hernám Lugano ásamt hljóm-
sveiti til tónleikahalds á Púlsinum dag-
ana 20., 22., 23. og 24. febrúar (á Hótel
Borg), 25. og 26. febrúar. Matargestir
Argentínu nefnd kvöld fá boðsmiða á tón-
leikana sama kvöld. Með argentískri viku
hefja Púlsinn og Argentína samstarf sem
m.a. felur í sér að matargestum Argent-
ínu gefst framvegis kostur á boðsmiðum
á tónleika Púlsins að loknum kvöldverði
á Argentínu en Argentína steikhús sér
um framleiðslu smárétta ætluðum gest-
um Púlsins og verða þeir í boði nú við
upphaf argentínskrar viku.
Flóamarkaður FEF
Flóamarkaður félags einstæðra foreldra
verður tvo næstu laugardaga í Skelja-
helli, Skeljanesi 6. Opið kl. 14-17. Margt
góðra muna á spottprís.
Stíll í Bankastræti 8
Verslunin Stíll, sem verið hefur til húsa
á Hverfisgötu 39 í nokkur ár, er nú flutt
í nýtt og betra húsnæði í Bankastræti 8.
Verslunin hefur sem áöur á boðstólum
tiskufatnað frá Sonia Rykiel, Georges
Rech, Claudia Strater og fleiri þekktum
framleiðendum ásamt nátt- og undirfatn-
aði frá La Perla.