Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1991, Page 31
31
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991.
pv_______________________________________________________________________Merming
Regnboginn - Samskipti ★★
í dularf ullum álögum
Samskipti (Communion) er um dularfulla og
óútskýranlega atburði sem engin svör fást við.
Handritið er skrifað upp úr bók sem komið hef-
ur út í íslenskri þýðingu. Þar segir að sagan sé
byggð á raunverulegum atburðum. Það hlýtur
samt að hafa verið erfitt fyrir viðkomandi sem
urðu fyrir þeirri reynslu sem sagt er frá að sann-
færa almenning um sannleiksgildi atburðarás-
arinnar og efast ég um að það takist nokkurn
tímann.
Samskipti íjallar um menn og geimverur. Góð-
ar geimverur sem komið hafa til jarðarinnar eru
að sjálfsögðu til í kvikmyndum. Oftast eru þær
kvikmyndir sveipaðar ævintýraljóma, þannig
að sannleiksgildi skiptir engu máÚ. í Samskipt-
um er aftur á móti verið að fjalla um geimverur
sem staðreynd og vandamál þeirra persóna sem
skynja þær og verða að búa við það alla ævi.
Christopher Walken leikur rithöfund nokkurn
sem verður fyrir einkennilegri reynslu í sumar-
bústað sínum. Óþekktar verur vitja hans nótt
eina. Morguninn eftir vill hann ekki kannast
við neitt þótt aðrir sem í bústaðnum dvelja þykj-
ist hafa orðið varir við dularfulla atburði. Smátt
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
og smátt sannfærist hann um að hann sé á valdi
óþekktra persóna sem vilja honum vel en jafn-
framt láta hann vita að því að hann sé á þeirra
valdi.
Því verður ekki neitað að Samskipti er að
mörgu leyti forvitnileg kvikmynd og flókin at-
burðarás heldur manni við efnið. Margt sem þar
kemur fram er áhugavert umhugsunarefni.
Sjálfsagt eru þeir sáttastir við myndina sem trúa
á að verur frá öðrum hnöttum séu til staðar á
jörðinni vegna þeirrar staðreyndar að myndin
veitir nákvæmlega engin svör við þeim dular-
fullu atburðum sem eiga sér stað.
Það hefur ekki farið mikið fyrir Christopher
Walken að undanfórnu en það er sjaldan sem
þessi ágæti leikari bregst og það gerir hann
ekki hér. Ósjálfrátt verður leikur hans til þess
að maður fær áhuga á því sem er að gerast þótt
áhrifin hverfi eins og ský fyrir sólu við snubbótt-
an endi.
SAMSKIPTI
Leikstjóri: Philippe Mora.
Handrit Wilfred Schibert eftir eigin sögu.
Kvikmyndun: Louis Irving.
Titillag samið og flutt af Eric Clapton.
Aðalleikarar: Christopher Walken, Linsay Crouse og
Frances Sternhagen.
Laugarásbíó - Leikskólalögga ★★
Leikari á krossgötum
í hvert skipti sem Amold Schwarzenegger
kemur með nýja kvikmynd fyllist ég kvíða-
blandinni tilhlökkun. Tilhlökkun, því hann er
einn af mínum uppáhaldsleikurum. Kvíða,
vegna þess að nú gæti hann verið farinn að taka
sig of hátíðlega sem leikari og þá tapar hann
sinni sérstöðu meðal hasarhetja Hollywood.
Schwarzenegger hefur ræktað feril sinn betur
en vöðvana og hver mynd er þaulútreiknuð til
þess að koma honum einu feti lengra á frama-
brautinni, annaðhvort sem alheimshasarhetju
(Total Recall, Terminator 2) eða dramatískum
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
leikara (Twins, Leikskólalögga). Eins og stendur
er hann orðinn hæst launaði og vinsælasti leik-
arinn í heiminum, en hann vantar virðinguna
sem fæst aðeins með (góðum) alvarlegum hlut-
verkum. Schwarzenegger ætlar sér einhvern
tímann að fást við slík hlutverk en hann þekkir
sín takmörk, ólíkt mörgum öðrum, og er tilbú-
inn til að vinna á þeim hægt og sígandi. Til þessa
hefur hann getað sniðið hlutverk sín þannig að
vankantar hans (hreimurinn, lítill fjöldi svip-
brigða o.fl. o.fl.) skíni ekki í gegn en ein röng
ákvörðun gæti riðið honum að fullu. Slíkt hefur
komið fyrir bestu menn á borð við Stallone,
Norris, Lundgren og fleiri vöðvabúnt.
Myndin er um það hvemig hópur leikskóla-
krakka kemst undir skrápinn á biturri og ein-
þykkri súperlöggu og breytir henni í baráttu-
mann fyrir bættum fjölskylduháttum. Schwarz-
enegger orðinn félagsráðgjafi? Onei. Hnefi í rif-
bein og kúla milli augnanna eru meðferðir sem
Arnold Schwarzenegger leikur lögreglumann
sem dulbýst sem barnakennari í Leikskóla-
löggan.
hafa reynst honum vel til þessa og hví þá að
breyta til?
í Leikskólalöggunni færir Schwarzenegger
aðeins út kvíamar og sýnir á sér nýjar hhðar.
Sem betur fer þá tekst honum vel upp, þ.e. hann
verður sér ekki til skammar. í víðara samhengi
er það enn gleðilegra því efni og úrvinnsla
myndarinnar létta honum ekki róðurinn. Þó að
Schwarzenegger sé að fara pínulítið fram í leikn-
um þá óar mig við þeirri tilhugsun hve margar
-myndir það á eftir að taka hann að verða viður-
kenndur leikari. En honum á eftir að takast það.
Ekki virðist Schwarzenegger hafa geta smitað
aðra í kringum sig með eldmóði sínum í þetta
sinn. Myndin er dæmigerð metnaðarlaus af-
þreying gerð með lágmarkskrafti. Sagan er að
mestu byggö á nokkrum einfóldum hugmynd-
um, sem hnoðað hefur verið saman eftir skipu-
lögðu kerfi, þar sem allar vísanir og atburðir
skipta máh núna eða setja upp svið fyrir annan
atburð. Dæmi: Súper-löggan á htinn sætan greif-
ingja, sem hún segir að bíti aldrei og sýnir
krökkunum. í svona handriti þá er þetta örugg-
ur undanfari atriðis þar sem dýrið bítur ein-
hvern á besta tíma. Að horfa á mynd af þessu
tagi er eins og að svindla í kapli. Myndin gengur
upp en spennuna og óvissuna vantar.
Þótt metnaðurinn sé ekki meiri þá er engin
ástæða th þess að vanda sig ekki og mestan
part myndarinnar tekst að halda athyghnni með
fyndnum persónum, Schwarzenegger að ofleika,
sætum krökkum, klikkuðum misindismönnum
og fleiru. Aukaleikararnir eru traustir, þótt per-
sónusköpunin sé öskýr, og kímnin er stórslysa-
laus, jafnvel Amie-orðaleikimir virka stundum.
En Amie getur ekki bjargað því skipbroti sem
verður undir lokin þegar myndin tekur dýfu í
einstaklega slöppum endakafla. Væmni er orð
sem á vel við hér, því það sem hefði getað verið
meinlaus tilfinningasemi fer út fyrir öh skyn-
samleg mörk. Eins og sannri hetju sæmir skríð-
ur Schwarzenegger út úr flakinu og tekur stefn-
una á gamalkunnug mið eyðileggingartóla og
ofurofbeldis. Hann kemur aftur, en vonandi með
alvæpni.
Kindergarten Cop (Band. 1990) 111 min.
Leikstjórn: Ivan Reitman (Stripes, Legal Eagles, Ghost-
busters).
Leikarar: Arnold Schwarzenegger (I let him go, Let
off some steam, If l’m not me den who de hell am I),
Pamela Reed (Cadillac Man), Penelope Ann Miller
(Freshman, Downtown), Richard Tyson (Three O'Clock
High, Two Moon Junction), Linda Hunt (She Devil,
Year of Living Dangerousely).
Fjölnúðlar
Fólkið vill Sky ogCNN
Fólkið í landinu vill Sky og CNN.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
birt var í gær, voru 80 prósent þjóð-
arinnar sammála S vavari Gestssyni
menntaraálaráðherra að loka ekki
fyrir beinar útsendingar CNN í jan-
úar heldur leyfa þær. Það varð til
þess aö Sky kom í kjölfariö hjá ríkis-
sjónvarpinu.
Það hefur vakiö nokkra undrun
að sterk öfl í landinu hafa sett sig á
móti ákvörðun Svavars Gestssonar,
jafnsjálfsögð og hún var, og beitt
fyrir sig málvernd. í raun áttu regl-
unar að vera þannig frá byrjun að
Svavar þyrfti ekki að taka þessa
ákvörðun.
íslendingar geta lesiö hvað þeir
vilja af erlendum dagblöðum og
tímaritum sem flæða inn i landið.
Að sjálfsögðu. íslenskir námsmenn,
sem stunda nám í Háskóla íslands,
lesa flestir hverjir megnið af náms-
bókum sínum á erlendum málum.
íslendingar ferðast til útlanda og
reyna eftir fremstu getu að tala er-
lend mál. Þeir sem eru bestir í is-
lensku eru lfka bestir í erlendum
málum.
Fyrír nokkr um árum var bjórmál-
um íslendinga þannig háttað að að-
eins útvahð lið fólks í flugþjónustu,
ferðamenn til útlanda og sjómenn
máttu flytja mn bjór til landsins.
Pupulinn hér heima mátti hins veg-
ar ekki drekka bjór. Bjórinn var
komiim inn í landiö fyrir útvalda.
Blessunarlega var sú heimskulega
regla afnumin og allir voru jafnir
fyrirbjórnum.
Líkja má bjórmálinu við gervi-
hnattasjónvarpið. Þeir sem geta
keyptsér gervihnattadiska, sem
kosta tugi og hundruð þúsunda,
mega horfa á gervihnattasjónvarp
samkvæmt reglunum. Þetta fólk er
íslenka bjórhðiö í dag.
íslendingar vilja fyrst af öllu sjá
og iesa um staðbundið efni - á ís-
lensku. Þess vegna ræður markað-
urínn því að íslendingar vilja fyrst
og fremst sjá textað efni frá íslandi
í sjónvarpi og lesa íslenskar fréttir
á íslensku. Þess vegna seljast dag-
blöðin þó leyfilegt sé að flytja inn
erlend dagblöð. Þess vegna munu
íslenskar sjónvarpsstöðvar lifa þótt
leyft veröi að horfa á Sky og CNN.
En íslendingar vilja geta horft á
gervihnattasjónvarp ef þeim býðst
það. Þeir vilja aö það ríki frelsi og
jafnræðL
Hún var hlægheg röksemdafærsla
þingmannsins í sjónvarpinu sem
sagðist vhja leyfa CNN vegna þess
að hann horfði alltaf á þá stöð þegar
hann væri á ferðalögum erlendis.
Jón G. Hauksson
Veður
Norðaustan- og austanátt, allhvöss eða hvöss með
éljum eða snjókomu vestan-, norðan: og austan-
lands. Mun hægari og að mestu úrkomulaust á sunn-
anverðu landinu. Sunnan- og suðaustanlands verður
hiti nálægt frostmarki en landshlutum. 2-4 stiga frost i öðrum
Akureyri snjóél -2
Egilsstaðir alskýjað -2
Hjarðarnes léttskýjað 1
Galtarviti snjókoma -A
Keflavikurflugvöllur léttskýjað -2
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -2
Raufarhöfn snjókoma -2
Reykjavik úrkoma -1
Vestmannaeyjar léttskýjað 0
Bergen alskýjað 3
Helsinki skýjað -7
Kaupmannahöfn alskýjað 0
Úsló skýjað -1
Stokkhólmur slydda 1
Þórshöfn hálfskýjað 5
Amsterdam þokumóða 0
Berlin þokumóða -2
Chicago alskýjað -1
Feneyjar þokumóða 4
Frankfurt þokumóða -4
Glasgow súld 6
Hamborg þokumóða -4
London mistur 2
LosAngeles léttskýjað 15
Lúxemborg þokumóða 0
Madrid skýjað 2
Malaga heiðskirt 10
Gengið
Gengisskráning nr. 35. - 20. febr. 1991 kl. 9.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 54,510 54,670 54,690
Pund 106,673 106,986 107,354
Kan. dollar 47,238 47,376 47,027
Dönsk kr. 9,5297 9,5577 9,5553
Norsk kr. 9,3692 9,3967 9,4034
Sænsk kr. 9,8048 9,8336 9,8416
Fi. mark 15,1207 15,1650 15,1896
Fra. franki 10,7642 10,7958 10,8260
Belg. franki 1,7799 1,7851 1,7858
Sviss. franki 42,8100 42,9357 43,4134
Holl. gyllini 32.5229 32,6184 32,6361
Þýskt mark 36,6491 36,7566 36,8023
it. líra 0,04881 0,04896 0,04896
Aust. sch. 5,2063 5,2216 5,2287
Port. escudo 0,4178 0,4190 0,4153
Spá. peseti 0,5879 0.5896 0,5855
Jap. yen 0,41609 0,41731 0,41355
irskt pund 97,505 97,791 98,073
SDR 78,2867 78,5165 78,4823
ECU 75,4173 75,6387 76,7921
T-l* 1 • •
r ísKmarKaoinur
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
19. febrúar seldust alls 60,772 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Langa, ósl. 0,077 52,00 52,00 52,00
Smáýsa 0,035 30,00 30,00 30,00
Kinnar 0,132 50,00 50,00 50,00
Koli 0,034 60,00 60,00 60,00
Keila, ósl. 0,063 26,00 26,00 26,00
Ýsa, ósl. 0,084 68,00 68,00 68,00
Þorskur, ósl. 0,229 81,00 81,00 81,00
Steinbítur, ósl. 1,345 38,00 38,00 38,00
Ýsa 4,282 83,59 81,00 87,00
Ufsi 4,316 51,36 49,00 62,00
Keila 0,016 26,00 26,00 26,00
Hrogn 0,504 230,00 230,00 230,00
Smáþorskur, ósl. 0,612 56,36 54,00 59,00
Lúða 0,231 398,30 310,00 570,00
Smáýsa, ósl. 0,211 30.00 30,00 30,00
Lýsa, ósl. 0,063 40,00 40,00 40,00
Smárþorskur 4,322 71,62 64,00 79,00
Þorskur 39,132 89,72 83,00 119,00
Karfi 3,727 44,91 43,00 45,00
Steinbítur 1,099 46,00 46,00 46,00
Langa 0,256 69,00 69,00 69,00
Faxamarkaður
19. febrúar seldust alls 114,864 tonn.
Þorskur, sl. 28,938 89,52 71,00 94,00
Þorskur, ósl. 48,635 87,57 50.00 121,00
Þorskur, smár 3,480 83.00 83,00 83,00
Ýsa, sl. 5,771 79,46 54,00 91,00
Ýsa, ósl. 3,101 65,80 50,00 75,00
Karfi 2,273 58,09 1,00 44,00
Ufsi 12,907 46,78 20,00 49,00
Steinbitur 5.374 40,84 20,00 42,00
Skötuselur 0,382 165,00 165,00 165,00
Skarkoli 0,120 71,39 69,00 75,00
Rauðmagi 0,018 75,00 60,00 90,00
Lúða 0,168 322,26 315,00 330,00
Langa 0,203 51,49 49,00 54,00
Kinnar 0,056 77,68 50,00 105,00
Keila 0,293 30,00 30,00 30,00
Hrogn 0,449 235,17 130,00 310,00
Grálúða 0,033 49,00 49,00 49,00
Gellur 0,093 287,54 170.00 310.00
Blandað 1,103 20,25 20,00 74,00
Undirmál. 1,466 69,92 20,00 74,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
19. febrúar seldust alls 106,036 tonn.
Þorskur, ósl. 56,545 100,44 70,00 120,00
Ýsa, ósl. 14,184 83,66 56,00 107,00
Ýsa,sl. 0,617 85,72 76,00 97,00
Ýsa 14,802 83,17 56,00 107.00
Lýsa 0,300 19,00 19,00 19,00
Undirmál 0,300 59,33 59,00 60,00
Hnýsa 0,100 5,00 5,00 5,00
Rauðmagi 0,020 100,00 100,00 100,00
Geirnyt 0,050 5,00 5,00 5,00
Skötuselur 0,288 335,00 335,00 335,00
Koli 0.027 64,00 64,00 64,00
Hrogn 0,108 225,00 225,00 225,00
Skata 0,217 79,90 79,00 80,00
Ufsi 14,758 39,17 30,00 41,00
Skarkoli 0,301 67,50 64,00 70,00
Lúða 0,835 365,23 300.00 455,00
Kinnar 0,068 65,00 65,00 65,00
Karfi 1,897 43,40 41,00 49,00
Kinnfiskur 0,118 105,00 105,00 105,00
Gellur 0,067 210,97 205,00 245,00
Hlýri/Steinb. 0,968 33,76 26,00 40,00
Steinbitur 4,539 23,14 20,00 33.00
Langa 3,626 51,50 37,00 62,00
Keila 6.013 24,94 20,00 30,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900