Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
Vona að göng á Vestfjörð-
um geti eflt byggðina þar
- en vitanlega á ekki að ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir að óathuguðu máli
„Vitanlega á ekki gera jarögöng ef
þau verða ekki til aö styrkja byggð
og það á við um öll jarðgöng. Ég er
hins vegar þeirrar skoðunar að þessi
jarðgangagerð fyrir vestan sé mikil-
vægasta tilraunin sem gerð hefur
verið fyrir byggðina á norðurhluta
Vestfjarða. Það er von mín aö með
þeim skapist möguleikar til að nýta
sameiginlega þá þjónustu sem veitt
er á ísafirði og efla atvinnulífið þar,“
segir Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra.
Mikil umræða hefur orðið í kjölfar
frétta í DV um fyrirhugaða sölu
Hlutaljársjóðs, sem rekinn er af
Byggðastofnun, á eina togaranum á
Suðureyri, Elínu Þorbjarnardóttur.
Meðal stjórnmálamanna og innan
Byggðastofnunar hefur komið til tals
að jafnvel væri rétt að hætta við þann
hluta jarðganga á Vestfjörðum sem
tengja myndi Suðureyri við aðrar
byggöir þar sem hætt sé viö að byggð
leggist þar af á næstu árum. Enn
hefur þó engin slík ákvörðun verið
tekin. Þess má geta að afleggjarinn
til Suðureyrar myndi kosta ríflega
milljarð, sem samsvarar á fjórðu
milljón á hvern íbúa.
Boðað var til skyndifundar í
hreppsnefnd Suöureyrar á fimmtu-
daginn til að ræða þá óvissu sem rík-
ir um framtíð Suðureyrar. Sam-
kvæmt heimildum DV ríkti mikil
reiði meðal hreppsnefndarmanna í
garö forsætisráðherra vegna um-
mæla sem hann lét falla á blaða-
mannafundi um byggðamál í vikunni
og DV hafði eftir honum. Þar sagði
hann að það væri ekkert vit í að bora
ónauðsynleg göt á fjöll ef síðasti íbú-
inn myndi flytja í kjölfarið. Enginn
af þeim hreppsnefndarmönnum, sem
DV ræddi við í gær, vildi þó tjá sig
um þetta mál. Opinberrar yfirlýsing-
ar væri að vænta á næstunni.
í samtali, sem DV átti við Steingrím
í gær, sagðist hann engin gögn hafa
fengið frá Byggðastofnun sem bentu
til þess að byggð við Suðureyri
myndi leggjast af né að hætta ætti
við göngin. Hins vegar hefði hann
heyrt að til stæði að selja togarann
og því hlyti Byggðastofnun að meta
það hvernig fiskvinnslunni á staðn-
um yrði tryggður afli. „Slík úttekt
hlýtur að verða gerð hvort sem ég
bið um hana eða ekki,“ segir Stein-
grímur.
Steingrímur segir að það hafi verið
fyrst í tíð sinni sem samgönguráö-
herra aö byrjað var að kanna mögu-
leikann á jarðgangagerö á Vestfjörð-
um. Hann segist ætíð hafa verið
þeirrar skoðunar að slík göng væru
arðsöm í víðtækum skilningi og að
þau gætu eflt byggðina þar.
Aðspurður hvað hann heföi átt
nákvæmlega viö þegar hann sagði
að ekki væri vit í að bora ónáuðsyn-
leg göng, sagði Steingrímur að um-
mæli þessi hefðu verið almenns eðl-
is. Þannig segði til dæmis sagan að á
Austfjörðum heföi einhvern tímann
verið borað gat í klett sem síðarrsíð-
asti bóndinn hefði farið í gegnum
þegar hann flutti á brott.
„Ég veit ekki hvort sagan er sönn
eða tilbúin en vitanlega á ekki að
leggja í mjög kostnaðarsamar fram-
kvæmdir nema að vel athuguðu máli.
Þessi spurning á ekkert síður við um
Hvalfjarðargöngin heldur en þessi
göng á Vestfjörðum. Ég vona að það
mál sé mjög vel athugað án þess aö
ég ætli að segja eitthvað um það."
-kaa
Ibúar Stokkseyrar og Eyrarbakka ættu að geta andað léttar eftir að gerð sjóvarnargarða lýkur. DV-mynd GVA
Sj ó vamargarðar við Stokkseyri og Eyrarbakka:
Vestfirðingar illa settlr 1 kennaramálum:
Fleiri leiðbeinendur en
kennarar á Vestfjörðum
- eina fræösluumdæmið sem svo er ástatt um
Vestfirðir eru verst settir allra
fræðsluumdæma landsins hvað
varðar kennara við grunnskófa. í
svari menntapiálaráðherra við fyrir-
s^urn Danfríðar Skarphéðinsdóttur,
þingkonu Kvennalistans, um grunn-
skólakennara og leiðbeinendur í
grunnskólum landsins kom fram að
leiðbeinendur eru fleiri en kennarar
á Vestfjörðum. Leiðbeinendur nefn-
ast réttindalausir kennarar við
grunnskólana.
Á Vestfjöröum eru grunnskóla-
kennarar 80 en leiðbeinendur 83.
í Reykjavík eru grunnskólakenn-
arar 912 en 34 leiðbeinendur.
í Reykjanesi eru grunnskólakenn-
arar 668 en leiðbeinendur 100.
í Norðurlandskjördæmi vestra eru
grunnskólakennarar 114 en leiðbein-
endur 86.
í Norðurlandskjördæmi eystra eru
grunnskóiakennarar 305 en leiðbein-
endur 136.
í Aust.urlandskjördæmi eru grunn-
skólakeþnarar 152 et; leiðbeinendur
í
I Suðurlandskjördæmi eru grunn-
skólakennarar 270 en leiðbeinendur
96.
Á landinu öllu eru 2.688 grunn-
skólakennarar en 681 leiðbeinandi.
Varðandi framhaldsskólakennara
standa málin þannig að á landinu
öllu eru kennarar 703 en leiðbeinend-
ur 519. Þar skera Vestfirðir sig líka
úr með 4 framhaldsskólakennara en
15 leiðbeinendur. i Norðurlandskjör-
dæmi vestra eru framhaldsskóla-
kennarar 7 en leiðbeinendur 15. í
Austurlandskjördæmi eru fram-
haldsskólakennarar 10 en leiöbein-
endur 21. Annars staðar eru kennar-
arfleirienleiðbeinendur. -S.dór
Hlutfall grunnskólakennara og
Ieiðbeinenda í fræðsluumdæmum*
Verkinu lokið í sumar
„Sjóvamargarðamir verða klárað-
ir í sumar. Nú er verið að ljúka við
annan áfanga verksins og í sumar
verður lokið viö gerö garðanna," seg-
ir Jón Hilmarsson hjá Vita- og hafna-
málastofnun.
Eftir stórbrim við Stokkseyri og
Eyrarbakka þann 9. janúar á síðasta
ári flæddi sjór inn í mörg hús þar
og olli mikilli eyðileggingu á þeim
og görðum þorpsbúa. I kjölfar þessa
atburðar var ákveðið aö reisa öfluga
sjóvamargarða til að veija þorpin
áhlaupum af þessu tagi og var Hafna-
málastofnun falið að annast fram-
kvæmdir.
Verkið var boðið út í apríl og maí
á síðasta ári og hefur veriö unnið að
gerö garðanna síðan. Lengd þeirra
verður alls 2.300 metrar og í þá full-
kláraða munu fara 75 þúsund rúm-
metrar af grjóti. Heildarkostnaður
við gerð garöanna mun nema 77
milljónum króna.
„Eftir aö byggingu garðanna verð-
ur lokið eiga þorpin að vera varin
fyrir ágangi sjávar. Þó er möguleiki
á að það geti orðið flóð ef vatn kemst
inn með endum garðanna en á því
em þó frekar litlar líkur,“ segir Jón.
-J.Mar
Norðurland eystra:
Listi Þjóðarflokksins lagður fram
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Listi Þjóðarflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra við kosning-
amar til Alþingis í vor hefur verið
lagður fram. Þar meö liggur ljóst fyr-
ir að Þjóðarflokkurinn verður ekki
aðili að sameiginlegu framboði
nyrðra eins og sumir hafa gefið í
skyn áðundanfómu.Tíu efstu á lista
flokksins era þessir:
1. Árni Steinar Jóhannsson
umhverfisstjóri, Akureyri.
2. Anna Helgadóttir
kennari, Kópaskeri.
3. Björgvin Leifsson
lífefnafræðingur, Húsavík.
4. Oktavía Jóhannesdóttir
húsmóðir, Akureyri.
5. Gunnlaugur Sigvaldason
bóndi, Svarfaðardal.
6. Karl Steingrímsson
sjómaður, Akureyri.
7. Klara Geirsdóttir nemi, Akureyri.
8. Helga Björnsdóttir
húsmóðir, Húsavík.
9. Sigurpáll Jónsson bóndi,
Hálshreppi.
10. Gíslína Gísladóttir
fulltrúi, Dalvík.
vEsfmom
NOfíOlJRLAW
VESTBA NOHDUnLAND
^ _ EYSTRA
wmwmo
SKÝRINGAR
I Grunnskóla-
™ kennarar
□ Leiðbeinendur
* Grunnskólakennarar og leHbelnendur via héraösskóla eru ekkl taUk meó
Skildi illa lyktandi frakka eftir
Mikið hefur borið á því í vikunni
að frökkum og öðrum yfirhöfnum
hafi verið stolið á ýmsum stöðum í
austanverðum miðbæ Reykjavíkur.
Yfirhöfnum hefur verið stolið úr
tveimur skólum og í eitt skiptið hvarf
dýr mokkafrakki í fatahengi á Hótel
Óðinsvé. í síðastnefnda tilvikinu
hafði þjófurinn greinilega verið illa
til fara þegar hann kom inn. Tók
hann mokkafrakkann með sér en
skildi illa lyktandi og snjáðan frakka
eftir í staðinn.
Lögreglan beinir þeim tilmælum til
almennings að hafa gætur á flíkum
sínum og skilja ekki eftir verðmæti
í þeim.
-ÓTT