Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Síða 44
-sáF F R ÉTT AS l< O T I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Hæstiréttur: 4 ár í fangelsi —fyrir nauðgun Hæstiréttur hefur dæmt tæplega þrítugan mann í fjögurra ára fang- elsi og til greiðslu 800 þúsund króna miskabóta með dráttarvöxtum vegna nauðgunar sem hann framdi í Kópa- vogi í nóvember 1989. Hæstiréttur staðfesti refsiákvæði Sakadóms Reykjavíkur en hækkaði miskabæt- ur. Maðurinn réðst grímuklæddur með hníf að konu og þröngvaði henni til samræðis við sig hjá viðbyggingu íþróttahúss í Kópavogi í nóvember 1989. Rannsóknarlögreglan sendi blóð úr 61 manni til útlanda til svo- kallaðrar DNA-rannsóknar vegna , málsins. Niðurstaða hennar var óyggjandi á þá leið að hinn ákærði hefði verið að verki. Maðurinn játaði verknaðinn á sig skömmu eftir að niðurstaöa rannsóknarinnar barst. Niðurstaða Hæstaréttar var á þá leið að ósannaö væri að maðurinn hefði farið á staðinn gagngert í þeim ásetningi að fremja verknaðinn. í héraði var sakborningnum gert að greiða helming kostnaöar við DNA- rannsóknina. Hæstiréttur dæmdi hann hins vegar til að greiða fimmta hluta kostnaðarins sem nam samtals ' Áhæplega 1,8 milljónum króna. Arngrímur ísberg dæmdi í Saka- dómi Reykjavíkur. í Hæstarétti kváðu upp dóminn hæstaréttardóm- ararnir Guðmundur Jónsson, Hrafn Bragason, Gunnar M. Guðmunds- son, settur hæstaréttardómari, og Auður Þorbergsdóttir borgardómari. Hjörtur Torfason hæstaréttardóm- ari skilaði sératkvæði. Hann taldi hæfilega refsingu mannsins vera þriggja ára fangelsisvist, miskabæt- ur skyldu vera 700 þúsund krónur og hæfilegt að hann greiddi tíunda hluta DNA-rannsóknarinnar. -ÓTT LOKI Maðurinn viróist ekki spennturfyrir þessu! /SMíV > f7*177 V SMIÐJUKAFFI ^ SBHDUM FRÍTT HEtM OPNUM KL. 18 VIRKA DAGA OG KL. 12 UM HELGAR Úrslitastund íraka rennur upp í kvöld Gorbatsjov reynir tillögur á síðustu stundu en með skilyrðum George Bush Bandaríkjaforseti hefur endardega ýtt tíl hliðar hug- myndum Gorbatsjovs Sovétforseta um aö ijúka Persaflóadeilunni með samningum. Bush tiikynnti í gær að írakar fengju frest til hádegis í dag að bandarískum tíma til að kalla her sinn skilyrðislaust heim frá Kúvæt Þá verður klukkan orð- in fimm að okkar tíma en komíð kvöld við Persaflóa og klukkan orö- in átta. John Major, forsætisráðherra Breta, hefur tekiö undir úrslita- kosti Bandaríkjaforseta og segir að um þennan úrslitafrest verði ekki samið, hann sé endanlegur og að honum loknum eigi bandamenn ekki aðra kosti en að hrekja íraks- her frá Kúvæt meö sókn á landi. Sýni írakr á sér íararsnið í dag fá þeir tvo sólarhringa til að skila Kúvæt af sér. Þetta eru mjög ströng timamörk því írakar hafa mörg hundruð þúsund hermenn í Kú- væt. Major sagði aö sú stund værí runnin upp að írakar færu eftir ályktunum Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. „Ef þeir gera það ekki vita þeir hverjar afleiðingarn- ar verða. Við getum ekki beðið lengur,“ sagði Major. Bandamenn kreijast þess að Saddam Hussein íraksforseti lýsi því yfir opinberlega að hann ætli að kalla heim herliðið frá Kúvæt og verður að sýna þaö í verki. Þeg- ar DV fór í prentun voru komnar fram endurskoðaðar tillögur frá Sovétmönnum meö færri skiiyrð- um en áður. írakar samþykktu en bandamenn hafa áður hafnað þess- um skiiyrðum. Reuter - sjá nánar á bls. 6 Á annað hundrað ökumenn bifreiða höfðu veriö sektaðir i Reykjavik í gær eftir að lögreglan hóf hertar aðgerðir vegna notkunar bílbelta í vikunni. Farþegar eru einnig sektaðir ef þeir spenna ekki bilbeltin. Lögreglan mun halda þessum aðgerðum áfram á næstunni. Að sögn talsmanns lögreglunnar eru ökumenn þegar farnir að sýna jákvæð- ari viðhorf gagnvart skyldunotkun bilbelta. Þegar notkun beltanna var fyrst lögleidd sýndu kannanir að um 90 prósent ökumanna spenntu beltin. í byrjun þessa árs hafði talan lækkað i tæp 60 prósent. Var þvi ákveðið að beita hertum eftirlitsaðgerðum. DV-mynd Brynjar Gauti Skattbyrði íslendinga: Hækkar sam- kvæmt nýjum útreikningum OECD Skattbyröi á íslandi, samkvæmt staðli OECD, var kynnt í fyrsta skipti í gær á ráðstefnu fjármálaráðuneyt- isins. Skattbyrðin, sem hlutfall af landsframleiðslu, er 33,8 prósent, samkvæmt staðli OECD og hækkar um 1,6 prósent frá því sem hún hefur verið kynnt áður samkvæmt ríkis- reikningi. Almannatryggingakerfið, iðgjöld af lífeyrissjóðsgreiðslum, er ekki inni í þessari tölu þar sem lífeyrissjóðir eru ekki taldir á vegum hins opin- bera. Séu iðgjöldin tekin með í út- reikningana hækkar hlutfallið um 3 til 4 prósent og veröur á milli 37 og 38 prósent. Meðaltal OECD-landanna er um 38,4 prósent og er almannatrygginga- kerfið á vegum hins opinbera í flest- um landanna. Sé almannatrygginga- kerfið sett inn hjá öllum OECD- löndunum hækkar skattbyrðin í rúmlega 40% að jafnaði. -JGH Veðrið á sunnudag og mánudag: Hlýnar eftir helgi Á sunnudag verður fremur hæg austlæg eða breytileg átt, smáél við norður- og austurströndina en annars bjart veður að mestu á landinu. Tals- vert frost verður. Um kvöldiö eða nóttina fer að þykkna upp suðvestanlands með vaxandi suðaustanátt. Á mánudag verður nokkuð hvöss suðaustan- og austanátt og hlýnandi veður, snjókoma en siðar slydda eða rigning, fyrst um landið sunnanvert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.