Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1991, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1991,
Fréttir
Jón Baldvin svartsýnn á árangur á fundinum í Lúxemborg:
Egtelaðþað
náist ekki lausn
- Evrópubandalagið enn ekki með útspil í sjávarútvegsmálum
Jón G. Hauksson, DV, Lúxemborg:
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra er svarstýnn á að viðræð-
ur utanríkisráðherra EFTA og Evr-
ópubandalagsins, sem hefjast í Lúx-
emborg í dag, skili okkur árangri.
Mikil óvissa er því um hvort íslend-
ingar verði með í evrópska efnahags-
svæðinu, EES, eða ekki.
„Ég er ekki bjartsýnn á að það fá-
ist lausn varðandi sjávarútvegsmál
okkar hér á fundinum," sagði Jón
Baldvin við DV í Lúxemborg í gær-
kvöld, áöur en óformlegur ráðherra
EFTA hófst þar.
Jón sagði ennfremur: „Raunar tel
ég á þessari stundu líklegra að það
takist alls ekki að finna lausn. Evr-
ópubandalagið hefur ekki sýnt nein
ný viðbrögð við kröfu okkar íslend-
inga. Bandalagið hefur ekki komið
með neitt formlegt tilboð varðandi
sjávarútvegsmáhn þrátt fyrir ítrek-
aðar óskir okkar. Ég tel að það sýni
fyrst og fremst að EB-löndin koma
sér ekki saman í þessu máli, ná ekki
samstöðu.“
Hnífurinn sem stendur í kúnni
varðandi sjávarútvegsmál íslend-
inga er sá að EB gerir kröfu um veiði-
heimildir við ísland gegn því að veita
tollaívilnanir fyrir hluta af íslensk-
um sjávarafurðum, fyrst og fremst
saltfiskinn. Þegar njóta unnin fryst
fiskflök algers tollfrelsis samkvæmt
fríverslunarsamningi okkar við EB
sem gerður var 1972 og varð virkur
1977.
Jón Baldvin hefur margoft ítrekað
að einhliða veiöiheimildir fái EB eng-
ar. Hann hefur jafnfrarnt sagt að
krafan um fiskveiðiheimildir sé frá-
gangssök fyrir íslendinga og sagt aö
útiliokað sé að fallast á slíkar kröfur.
Ráðherrafundurinn hér í Lúxem-
borg var hugsaður til að reka smiðs-
höggið á samninga EFTA og EB um
evrópska efnahagssvæðið. Til stend-
ur að skrifa formlega undir 24. og 25.
júní en sú undirskrift er nú í óvissu.
Þegar síðasta ráðherrafundi lauk í
Brussel 14. maí sagði Jón Baldvin að
náðst heföi góður árangur en að erf-
iðasti hjallinn væri eftir. Sá hjalli var
sjávarútvegsmál okkar og Norð-
manna, landbúnaðarmál Suður-
Evrópuþjóðanna og stofnun sjóðs til
styrktar fátækum Evrópubandalags-
þjóðum.
Stóra spurningin nú er hvort lausn
fáist í sjávarútvegsmálum okkar á
síðustu stundu með tilstuðlan póli-
tísks stuðnings en margir þjóðarleið-
togar EB hafa lýst yfir stuðningi við
sérstöðu íslendinga. En það er hins
vegar framkvæmdastjórn EB sem
hefur hið raunverulega samnings-
umboð.
Húsdýragaröurinn:
Hundur
beit níu
ára telpu
w ■■ ■
i vorina
Hundur í eigu eins starfsmanna
Husdýragarðsins í Laugardal beit
níu ára telpu illa í vörina þar sem
hún var í heimsókn í garöinum á
fimmtudag. Þurfti að sauma sex
spor í vör telpunnar á slysadeild
Borgarspltalans og var hún að
vonum mjög óttaslegin.
Telpan var ásamt vinkonu sinni
og móöur hennar í garðinum.
Gengu þær inn í girðingu þar sem
hundurinn var að naga bein.
Klöppuöu stúlkumar hundinum
en við það rauk hann skyndilega
upp, réðst að annarri stúlkunni
og beit hana í vörina. Hundurinn
er íslenskur og mun vera um
fimm mánaða gamall.
Siguijón Bláfeld hjá Húsdýra-
garðinum sagði hundiim vera í
garðinum á meðan starfsmaöur-
inn_væri þar 1 vinnu.
„Ég veit ekki betur en að hund-
urinn verði hér áfram. Atvikið
átti sér stað eftir lokun og það var
búið aö opna hliðið inn á svæðiö
þar sem hundurinn var. Hann
var með bein þegar stelpurnar
komu til hans og rauk þá upp og
glefsaði titl annarrar þeirra,"
sagði Sigutjón.
Hann segir aö engin ákvörðun
hafi veriö tekin um hvað verði
gert varðandi hundinn en starfs-
maðurinn, sera á hann, er farinn
í sumarleyfi. Verður málið skoð-
að í sámráöi við aöila eins og
Hundaræktarfélagið og fleiri.
í samtali viö ákafan hunda-
áhugamann og meölim í Hunda-
ræktarfélaginu kom fram að
hundar, sem bíta fólk, væru
venjulega aflífaðir.
„Það verður náttúrlega talað
við hundasálfræðing út af þessu,“
sagði Siguijón.
Húsdýragarðurinn hefur boðið
telpunni að koma í garöinn í viku,
hjálpa til og kynnast dýrunum f
von um að geta bætt hemii þessa
óþægilegu lífsreynslu að ein-
hverju leyti.
-pj/hlh
Friöarhlaupinu, sem hófst á Þingvöllum, lauk í Hljómskálagaröinum um tvöleytið i gær. Þegar hlauparar voru
komnir á móts við Hljómskálann tók Halldór Blöndal samgönguráðherra við kyndlinum, hljóp með hann siðustu
metrana og tendraði eld að hlaupinu loknu. DV-mynd Brynjar Gauti
Menntaskólinn á Akureyri:
111 stúdentar útskrifaðir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
111 nýstúdentar voru útskrifaðir
frá Menntaskólanum á Akureyri í
gær. Fór athöfnin fram í íþrótta-
höllinni. Það er hefð að útskrifa
stúdenta frá MA 17. júní og setja
nýstúdentar og gamlir nemendur
skólans, sem jafnan flykkjast til
bæjarins, mikinn svip á bæinn og
hátíðahöld dagsins.
Mikil veisluhöld nýrra og gam-
alla nemenda hafa staðið yfir alla
helgina á Akureyri. 25 ára stúdent-
ar hittust í Golfskálanum á laugar-
dagskvöld og á sunnudagskvöld
var um 900 manna veisla gamalla
nemenda skólans í íþróttahöllinni.
Nýstúdentar héldu síðan um 600
manna veislu í íþróttahöllinni í
gærkvöld.
Nýstúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri fagna eftir útskriftarathöfn-
ina í íþróttahöllinni i gær. DV-mynd gk
DV
Lögreglan á Akureyri:
Ryskingar
og rúðubrot
Mikið annríki var hjá lögregl-
unni á Akureyri aðfaranótt
mánudagsins vegna ölvunar í
miöbænum. Þrír voru teknir
vegna meintrar ölvunar við akst-
ur.
Þá þurfti lögreglan að hafa af-
skipti af mönnum vegna slags-
mála á götum úti. Gistu fjórir
fangageymslur af þeim sökum.
Engin slys urðu þó á mönnum í
þessum ryskingum.
Einnig var eittlivað um rúðu-
brot og sagði lögreglan að sú helgi
liði varla nú orðið að ekki væru
brotnar rúður í bænum.
Tvö minni háttar umferðaró-
höpp urðu um helgina en engin
slys á fólki í þeim.
-JSS
Kópavogur:
Brotíst inn í
varahluta-
verslun
Brotist var inn í Baader-þjón-
ustuna í Kópavogi um helgina.
Sá eöa þeir sem þama voru að
verki höfðu eitthvað smávegis á
brott með sér en að sögn RLR
mun það ekki hafa veriö mikið.
Ekki er vitað fyrir víst hvenær
innbrotið átti sér stað en lögregl-
unni var tilkynnt um það rétt
fyrir hádegi í gær.
-JSS
Talsverö ölvun var í Kópavogi
um helgina. Að sögn lögreglunn-
ar voru margir á ferli á mánu-
dagsmorguninn og voru sjö út-
köll vegna ölvunar. i einu tilviki
þurfti að setja mann í fanga-
geymslur en þar hafði heimilisó-
friður komiö við sögu.
-JSS
Vestmannaeyjar:
■ o
rúntinum
Einn var tekinn grunaður um
ölvun undir stýri á rúntinum í
Vestmannaeyjum í fyrrakvöld.
Lögreglunni þótti akstursmátinn
óvenjulegur og stöðvaöi ökuþór-
inn sem reyndist hafa fengið sér
neðan í því.
Fjölmargir unglingar héldu upp
á land til þess að fara á tónleikana
í Hafnarfirði og var bæjarlifiö því
enn rólegra en ella.
-JSS
Harðurárekstur:
Einná
sjúkrahús
Umferöaróhapp varð í Kölduk-
inn í Ljósavatnshreppi aðfaranótt
laugardags. Það atvikaðist þann-
ig að ökumaður bifreiöar hugðist
aka fram úr bifreið á beinum veg-
arkafla. Rétt í þann mund sem
hann ætlaði fram úr beygði öku-
maöur hinnar bifreiðarinnar til
vinstri inn á afleggjara. Skullu
bflarnir harkalega saman meö
þeim afleiðingum að flytja varð
einn á sjúkrahús. Meiösl hans
reyndust ekki vera alvarleg og
fékk hann að fara heim daginn
eftir. Ökutækin eru mikið
skemmd.
-JSS