Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1991, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1991, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 199L ; 3 Fréttir Fyrirhugaðar aðhalds- og spamaðaraðgerðir 1 félagsmálaráðuneytinu: Sparnaðurinn ræðst af úttekt á Byggingarsjóði verkamanna - hagræðing 1 málefnum fatlaðra og endurskoðun ríkisábyrgðar á launum um sem þú hefur nefnt? „Þaö ræðst af úttektinni sem verið er að gera á Byggingarsjóði verka- manna. Það segir sig sjálft að það er ekki hægt að ná jafnvægi í honum á einu ári. Ég tel að þar þurfi að gera áætlanir til einhverra ára. Við þurf- um til dæmis að athuga hvað það ákvæði, sem nú er í lögum um heim- ild til að hækka vexti eftir tiltekinn áraíjölda í félagslegum íbúöum, muni gefa okkur.“ Jóhanna sagðist vilja leggja áherslu á að félagsmálaráðuneytið hefði aðeins yfir að ráða 4% af út- gjöldum íjárlaga. Útgjaldafrekustu málaflokkarnir snertu hag láglauna- fólks og fatlaöra og hlyti hún að leggjaáhersluáaðverjaþá. -JSS „Ég er að láta gera úttekt á stöðu Byggingarsjóðs verkamanna með það að markmiði að athuga hvaða leiðir séu færar til að ná jafnvægi í fjárhagslegri stöðu sjóðsins. Ég er einnig að láta athuga hvernig megi ná fram hagræðingu og spamaði í úthlutun og rekstri á byggingar- sjóðnum, svo og leiðum til lækkunar á byggingarkostnaði sem er í mörg- um tilvikum mjög mikill í félagslega íbúðakerfinu. Ég er ekki í vafa um að hægt er að beita meiri aðhalds- og sparnaðaraðgerðum á félagsleg- um íbúöum." Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra er DV spurði hana um fyrirhugaðar aðhalds- og spamaðaraðgerðir í ráðuneytinu. „Hvað varðar ríkisábyrgð á laun- um þá fer verulega stór hluti þeirrar upphæðar, sem varið er til hennar, í ógreidd lífeyrissjóðsiðgjöld þegar fyrirtæki verða gjaldþrota. Það er ríkisábyrgð í 18 mánuði hvaö þetta varðar. Einnig eru dráttarvextir greiddir á ríkisábyrgö og það er spuming hvort ekki á að hafa venju- lega sparisjóðsvexti í staö þeirra. Loks er tilefni til að athuga hvort atvinnureksturinn eigi ekki að taka með einum eða öðrum hætti þátt í þessu, eins og gerist í löndunum í kringum okkur. Ég tel að þarna sé ekki hægt að ná verulegum sparnaði fyrir ríkið nema samstaða náist um að sett verði ákveðið ríkisábyrgðar- gjald á atvinnurekendur þannig að þeir standi að einhveiju eða öllu leyti undir þessu. Þessir tveir ofangreind- ir þættir em í athugun með tilliti til sparnaðar." Varöandi málaflokk fatlaöra sagði Jóhanna að í hann færi þriðjungur af útgjöldum eða um það bil hálfur milljarður. Þar væri veriö að skoða hvort hægt væri að beita einhverjum sparnaöar- eða hagræðingaraðgerð- um þar án þess að það kæmi niöur á þjónustunni. Þá væri fyrst og fremst um það að ræða að sambýlis- uppbyggingin væri mjög dýr. Spurn- ingin væri hvort ekki væri hægt að beina uppbyggingu í húsnæðismál- um fatlaðra yfir í félagslegar íbúðir. - Telurðu að hægt sé að ná 2,5-3 milljarða króna sparnaöi í þeim þátt- Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra. Voyager frá Chrysler er óneitanlega mjög áberandi bíll; sérstakur í útliti og glæsilegur á velli. Voyager kom fjTstur á markaðinn af svokölluðum „fjölnota fjölskyldu- bílum“, sem náð hafa miklum vin- sældum erlendis. Enn heldur Voyager forustunni og er leiðandi fyrir þá er eftir fylgdu. Notagildi þessara bíla er mjög fjölbreytilegt og aksturseiginleikar einstakir. Hvort sem þú þarft að standa í flutningum, ert á leið í ferðalag með stóran hóp eða hvaðeina, þá er Voyager frábær kostur sem framúrskarandi fjöl- skyldubíll, óvenju rúmgóður og þægilegur -með farþegarými fyrir allt að sjö manns og möguleika á ótrúlega stóru farangursrými. Voyager er engan veginn ein- faldur bíll, heldur eins og amerískir bíiar gerast bestir, íburðarmikill og traustur. VOYAGER ER ÚTBÚINN MEÐ: • Framhjóladrifi • Fjögurra þrepa sjálfskiptingu • V6 3.3 lítra vél • Rafdrifnum, upphituðum útispeglum • Rafdrifnum rúðum • VeltistjTÍ • Rafdrifnum ökumannsstól • Aksturstölvu o.m.fl. VERÐ KR. 2.250.000,- Nú einnig fáanlegur með sídrifi VOYAGER ALL WHEEL DRIVE auk sama útbúnaðar VERD KR. 2.626.900,- OCHRYSLER JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 • S: 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.