Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991.
Fréttir
Konu bjargað í Bláa lóninu:
Var blóðug og rænu-
laus á grúf u í vatninu
- fóraðandaeftirhjartahnoðhjúkrunarkonuúrvaraliðinu
„Við vorum á gangi á reglubundnu
eftirliti þegar við sáum konuna á floti
úti á lóninu um 10 metra frá landi.
Andlitið sneri niður. Við fórum strax
út á björgunarbát og náðum í hana.
Blóð lak úr neíinu á henni. Við kom-
um konunni í land með aðstoð bað-
gesta. Þegar þangað var komið and-
aði hún ekki og enginn hjartsláttur
fannst. Hún var blá í framan. Með
hjartahnoði Lesliear, bandarísku
hjúkrunarkonunnar, tókst okkur
síðan að fá konuna til að anda,“ sagði
Kristjón Grétarsson, baðvörður í
Bláa lóninu, í samtali við DV.
Fjörutíu og fjögura ára konu var
bjargað við lónið um kvöldmatar-
leytið á miðvikudag. Konan var að
baða sig í lóninu og er talið að lík-
amsástand hennar hafi ekki þolað
hitann í vatninu. Vatnið var hins
vegar ekki talið hafa verið óvenju-
lega heitt í þetta skiptið. Ekki er vit-
að nákvæmlega hve lengi hún hafði
verið meðvitundarlaus í vatninu.
Bandarísk hjúkrunarkona í vara-
liði landhers Bandaríkjanna, Leslie
Filopello frá New York, var baðgest-
ur á staðnum. Hún er stödd hér á
landi vegna æfinga varaliðsins. Eftir
hjartahnoð og blástursaðgerðir
Lesliear fór konan að anda á ný. Hún
var þó enn meðvitundarlaus þegar
sjúkrabíll kom á staðinn. Guðmund-
ur Guðbjörnsson, forstöðumaður í
Bláa lóninu, aðstoðaði Leslie við
hjartahnoðið og Kristjón kom síðan
með súrefnistæki. Nokkrúm mínút-
um eftir að kallað var á hjálp kom
sjúkrabíll úr Grindavík:
„Þegar við komum á staðinn var
konan ennþá meðvitundarlaus,"
sagði Halldór Halldórsson sjúkra-
flutningamaður við DV. Sjúkrabíll
frá Keflavík kom um mínútu síðar
og fór einn maður úr þeim bíl til
aðstoðar Halldóri á leiðinni á sjúkra-
húsið í Keflavík.
„í bílnum var konan farin að anda
en hún var blá í framan. Við héldum
áfram að gefa henni súrefni og dæld-
um upp úr henni. Þegar við áttum
skammt ófarið til Keflavíkur urðum
við varir við fyrstu .merkin um að
hún væri að koma til meðvitundar
og hún gat kreist á okkur höndina,"
sagði Halldór.
Eftir klukkustundar viðdvöl á
sjúkrahúsinu í Keflavík var konan
flutt á Borgarspítalann í Reykjavík.
Þar fór hún á gjörgæsludeild en var
útskrifuð þaðan í gær. Konan er á
góðum batavegi.
-ÓTT
Leslie Filopello, hjúkrunarkona úr
varaliði bandaríska landhersins,
bjargaði konu í Bláa lóninu í fyrra-
kvöld. Hjartahnoð hennar og blást-
ursaðgerðir urðu til þess að koma
hjartslætti og öndun islensku kon-
unnar af stað. DV-mynd Ægir Már
Skoskt par giftir sig 1 Árbæjarsafni:
Fannst kirkjan
svo rómantísk
- fyrsta utanlandsferö beggja
„Okkur hefur lengi langað til aö
gifta okkur á íslandi og á endanum
ákváðum við aö láta verða af því.
Við erum ofsalega ánægð með dvö-
lina hér, fólkið er búiö að vera svo
indælt við okkur, sagði Susan Delia
Bowers í samtali við DV.“
Susan og Andrew David, nýbakað-
ur eiginmaður hennar, komu alla
leið frá Skotlandi til þess að láta gefa
sig saman í gömlu Árbæjarkirkj-
unni. Brúðkaupið fór fram seinni
partinn í gær og það var Guðmundur
Þorsteinsson dómprófastur sem gaf
þau saman. Svaramenn voru starfs-
menn Árbæjarsafns.
Ástæðuna fyrir því að gamla Ár-
bæjarkirkjan varð fyrir valinu segja
þau vera þá að þeim hafi báðum
fundist hún svo rómantísk.
Hvorugt þeirra hefur ferðast út fyr-
ir heimaland sitt fyrr en núna. Þau
kynntust íslandi af myndum og af
fræðsluþáttum í sjónvarpinu og segj-
ast hafa heillast af landinu.
í þetta sinn ætla þau einungis að
vera hér átta daga en voru þess full-
viss að þau kæmu hingað einhvern
tímaaftur. -ingo
Susan og Andrew Davids ganga í
gegnum sáluhlið Árbæjarkirkju að
lokinni giftingarathöfninni i gær.
DV-mynd JAK
Bíltækjaþjóf ar á ferð
Jóhannes Siguijónsson, DV, Húsavílc
í síðustu viku var útvarpstæki stol-
ið úr bíl við Húsavíkurhöfn, nánar
tiltekið úr bíl hafnarvaröar, senni-
lega um hábjartan dag.
Að sögn Sigurðar Brynjólfssonar
hjá Húsavíkurlögreglunni hafa verið
töluverð brögð að því að tæki væru
fjarlægð ófijálsri hendi úr bifreiðum
að undaníornu og frá því í vetur er
búið að kæra 5-6 bíltækjaþjófnaði.
Þessi mál eru öll í rannsókn.
Dæmdur fyrir að nauðga
dóttur á unglingsaldri
- fer 1 tæplega þriggja ára óskilorðsbundna fangelsisvist
45 ára karlmaður hefur verið gæsluvarðhald og fluttur til ára og 10 mánaða fangelsisvist.
dæmdur í tæplega 3 ára fangelsi Reykjavíkur. Að rannsókn lokinni Verknaöur hans og ógnun með
fyrir að hafa nauögað dóttur sinni var ákæra gefin út hjá ríkissak- skotvopni þótti sannaður. Þegar
á unglingsaldri í apríl síöastliðn- sóknaraembættinu. Manninum dómurinn var birtur sakborningn-
um. Atburðurinn átti sér stað í var þrátt fyrir það ekki sleppt úr um í Reykjavík í gær varð niður-
sjávarplássi á Norðurlandi. haldi, enda gaf ákæruefnið tilefni staðan sú að hann mun ekki áfrýja
Lögreglan fékk málið til rann- til að sakborningurinn fengi tilHæstaréttarogundihannniður-
sóknar fljótlega eftir atburðinn. strangan refsidóm. Málínu hefur stöðunni. Ákæruvaldiö mun held-
Maöurinn var mjög ölvaður er verið hraðað í dómskerflnu. ur ekki áíVýja til refsiþyngingar.
hann framdi verknaðinn og ógnaði Ólafur Ólafsson, settur héraðs- Maðurinn var fluttur i afplánun í
liann dótturinni meö byssu og hnif. dómari á Noröurlandi, dæmdi í fangelsið að Litla-Hrauni i gær.
Fljótlega eftir handtöku var ódæð- máli mannsins. í dómsorði segir -ÓTT
Ssmaöurinn síðan úrskurðaður í að sakbomingurinn skuli sæta 2
Sala á hlut Akureyrar í Landsvirkjun:
Gerbreytir öllu hér
ákveðna upphæð. Þeir hluthafar
myndu ekki sætta sig við að fá ein-
ungis kaupverð hlutabréfanna greitt
ef fyrirtækið væri gott. Það er ekki
sanngjarnt að við fáum það út úr
þessu sem Laxárvirkjun var metin á
þegar hún kom þarna inn, fram-
reiknað að vísu, en ekki neina hlut-
deild í þeirri eiginfjármyndun sem
átt hefur sér stað síðan. Þessi sala
myndi gjörbreyta stöðu Akureyrar-
bæjar. Við myndum nota þessa fjár-
muni til að laga erfiöa íjárhagsstöðu
á ýmsum svið,“ sagði Heimir.
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyii:
„Við munum vinna að því, ekki
síst með tilliti til þeirra áfalla sem
bæjarsjóður hefur orðið fyrir vegna
gjaldþrota fyrirtækja í bænum, að
sala á hlut Ákureyrarbæjar í Lands-
virkjun komist á umræðustig sem
allra fyrst,“ segir Heimir Ingimars-
son, forseti bæjarráðs Akureyrar.
„Því fyrr sem þessi sala kemst í
gegn þvi betra og þó ekki væri nema
að frá því yrði gengið að salan færi
í gegn í nánustu framtíð, þá yrðum
við með pálmann í höndunum."
- Hvað er verið að tala um mikla
peninga í þessu sambandi?
„Við erum að tala um einn og hálf-
an milljarð skilst mér. Þarna er ekki
um hlutabréf að ræða heldur er ver-
ið aö tala um hlutdeild okkar í eig-
infjárstöðu fyrirtækisins. Við teljum
okkur eiga 5,45% í eiginfé Lands-
virkjunar. Ráðuneytismenn hafa
hins vegar sagt að málið sé ekki svo
einfalt, það þurfi að koma fram öðru-
vísi reikningsaðferðir.
Þetta er mjög einfalt mál og auð-
skilið í okkar huga. Engum manni
dytti í hug að einhver annar en hlut-
hafi ætti að njóta þess ef fyrirtæki
hans væri selt fyrir einhveija
LiósmvndasamkeDDni DV oeTannlæknafélass íslands:
1 A mki i kgAiAselo hnACÍnn
LCIlðO aC DV og Tannlæknafélag íslands hafa ákveðið að halda ljósmynda- samkeppni sem hlotið hefur naftiið Breiðasta brosið. Leitað er aö ein- hverri fallegri sumarmynd af breiöu og fallegu brosi eða brosum. 9 oreioasia orosinu fallegsbrosssemlifgaruppátilver- fangi og sima þátttakanda skal una. senda í umslagi til DV, Þverholti í fyrstu verðlaun er stórglæsileg 5, 105 Reykjavík, merkta „Breið- Canon Eos 1000 myndavél frá Hans asta brosið". Skilafrestur er til 6. Petersen aö verðmæti 35 þúsund september. krónur. Önnur og þriðju verölaun Þá er bara að muna eftir mynda- nr ic; no Vv'Amíj xrAtnilít. VÓllYiní í 1 PTÍllVPÍftlima
góða mynd af skemmtilegu brosi. Ekki skiptir máli hvort myndin er af fólki eða dýrum, svart-hvít eða tekt í einhverri af sjö verslunum og í bíltúrinn því það er aldrei að Hans Petersen. vita hvenær verðlaunabrosið læð- Hverjum þátttakanda er frjálst ist fram á munnvikin.
í lit. Eina skilyrðið er aö myndin sé glaðleg og minni á raikilvægi að senda inn fleiri en eina mynd. Myndina ásamt nafni, heimilis-
Olíubrák á Elliðaánum
- tálin berast af götunum
Nokkuð hefur borið á því að fólk
hefur séð olíubrák í Elliðaánum, í
litlu ánni svokölluðu, sem er vestan
við aöalána.
Guöbjartur Sigfússon, yfirverk-
fræðingur rekstrardeildar hjá gatna-
málastjóra, telur líklegt að olían
komi frá malbiki á götum.
„Það eru niðurfallslagnir í götun-
um þama í kring, t.d. á Reykjanes-
brautinni og á götunum þar fyrir of-
an, sem hleypt er út í ána einhvers-
staðar á þessu svæði. Þessi olíubrák
kemur væntanlega þaöan,“ sagði
Guðbjartuh
Hann taldi það hugsanlegt að hit-
inn í sumar hefði haft einhver áhrif
á malbikið, ef það væri mjög feitt þá
gæti það hugsanlega smitað.
„Nema einhver hafi misst eitthvað
niður sem ég veit ekki um. Það eru
alla vega engar klóaklagnir eða neitt
slíkt þama. Það á ekkert að fara í
regnvatnslagnirnar nema bara af yf-
irborði götunnar," sagði Guðbjartur.
-ingo