Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST .1091.
Fréttir
________DV
Eftir aflasamdráttinn:
Landsframleiðslan minnkar
um hálft prósent næsta ár
Þjóðhagsstofnun spáir nú, að fram-
leiðslan í landinu dragist saman um
hálft prósent á næsta ári, 1992. Þetta
er útkoman eftir ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um aflasamdrátt. Þetta
verður dýrt spil, þótt óhjákvæmilegt
sé. Heimildir DV herma, að gert sé
ráð fyrir, að kaupmáttur launa vaxi
um eitt prósent í ár, en minnki um
eitt og hálft prósent árið 1992 í kjölfar
aflasamdráttarins.
Þetta sýnir, að krónutöluhækkanir
launa munu einungis keyra upp
verðbólgu og valda gengisfellingu á
næsta ári, með öðrum orðum brenna
á báli verðbólgunnar. Samkvæmt
heimildum DV mun halla mjög á
okkur í viðskiptum við önnur lönd,
þannig að viðskiptahallinn verði 13
milljarðar í ár og 17 milljarðar á
næsta ári.
Gert er ráð fyrir, að þjóöartekjur
dragist saman um tvö próent á næsta
Brúttó landsframleiðsla 1945-1996
20%
1992 lýkur, að mati hagfræðinga
Þjóðhagsstofnunar. Landsfram-
leiðslan ætti þannig aö vaxa um 5
Sjónarhom
Haukur Helgason
prósent 1993, þegar undirbúnings-
framkvæmdir vegna álvers ættu að
koma til sögunnar. Síðan gæti lands-
framleiðslan vaxið um 7 prósent
1994. En eftir það minnkar fram-
leiðslan um fjögur og hálft prósent
1995 samkvæmt spám og vex svo um
tvö og hálft prósent 1996, eftir því sem
DV kemst næst.
ári. Þar bætast versnandi viöskipta- verður þá fimmta árið í röð, sem un sé að ræða.
kjör við samdráttinn í afla. Árið 1992 segja má, að um efnahagslega stöðn- Staðan mun heldur skána, eftir að
Bogi Melsted segir Sogn fullnægja kröfum um réttargeðlækningar:
Þarf ekki réttar-
geðlækni að Sogni
- starfsemin getur haíist 1. nóvember
„Með þeim breytingartillögum sem
arkitektinn hefur komið með ætti
hiklaust að vera hægt að stunda rétt-
argeðlækningar á Sogni á viðunandi
hátt,“ sagði Bogi Melsted í samtali
við DV. Bogi Melsted hefur verið yf-
irlæknir á réttargeðdeild í Sviþjóð í
20 ár.
- Er það frumskilyrði að yfirlækn-
ir hafi menntun í réttargeðlækning-
um?
„Nei, erlendis er það þannig að rétt-
argeðlæknar gera bara rannsóknir
en sjá ekki um meðferðina. Almenn-
ir geðlæknar sjá síðan um meðferö
og meðhöndlun á sjúklingunum.“
- Lára Halla Maack hefur sagt að
teikningarnar sýni fangelsi en ekki
geðdeild. Ertu sammála því?
„Nei, ég er það nú ekki. Ég hef
skoðað húsið og þetta eru bara
þokkalegustu herbergi þarna, ekki
minnir það mig neitt á fangelsi."
- Hún hefur einnig sagt aö stigarnir
séu fyrirstaða og það þurfi 27 starfs-
menn til að vakta þá.
„Ég er nú ekki sammála henni um
það, ég hef reynslu af svona stigum
og það er til ákaflega einfóld lausn á
Bogi Melsted sagði að erlendis
væru yfirlæknar ekki réttargeðlækn-
ar, þeir sæju aðeins um rannsóknar-
þáttinn.
DV-mynd JAK
því, nefnilega að setja hurðir í báða
enda stigans."
- Hve marga og hvemig starfsmenn
þarf að Sogni?
„Á daginn ætti að vera nóg að hafa
7-8, þar af einn hjúkrunarfræðing. Á
kvöldin 5 ogá næturnar 3. Sú mennt-
un, sem við höfum, er greinilega ekki
til á íslandi og ég hef boðist til að
taka fólk, lækna og sjúkraliða, út til
þjálfunar."
Bogi sagði að þarna væri verið að
leysa miðlungsgæslustigið en ekki
það hæsta. Þeir þrír íslendingar, sem
hann hefði til meðferðar erlendis,
gætu allir vistast að Sogni en hann
gæti ekki fullyrt um þá sem hann
hefði ekki skoðaö.
Á blaðamannafundi í gær kom
fram að meðferðarheimilið að Sogni
ætti aö geta tekið til starfa 1. nóvemb-
er og kostnaðaráætlun hljóðar upp á
25-30 milljónir. Landlæknir sagði að
hver sjúklingur mundi kosta ríkið
um 10 milljónir á ári, en það er svip-
að og greitt er með þeim sjúklingum
sem fara utan. Á síðustu 23 árum
hafa 17 verið dæmdir til öryggis-
gæslu.
-pj
Árleg umferðarkönnun Umferðarráðs:
Notkun bflbelta í aftur-
sætum minni en í fyrra
Færri fullorönir spenna bíibelti í
aftursæti bifreiða í ár heldur en í
fyrra, þrátt fyrir að þaö hafi verið
lögbundið í október. Beltanotkun
ökumanna er þó svipuð og í fyrra.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Umferðarráðs eftir árlega umferðar-
könnun meö aðstoð lögreglunnar.
Sú áhersla sem lögð hefur verið á
að spenna bömin í aftursætinu eða
setja þau í bílstól virðist hafa haft
áhrif því í rúmlega 90% tilvika voru
bömin spennt. Sjö börn voru laus í
framsæti sem er lægsta talan til
þessa.
í könnuninni kom einnig fram að
Karlar nota bílbeltin síður en konur
og ungir ökumenn á aldrinum 17-25
ára nota bílbeltin minnst.
Athygli vakti að aldursdreifing
ökumannanna var nokkuð jöfn og
að mikill meirihluti ökumanna voru
karlar eða 69,5% þeirra sem stöðvað-
ir voru.
Undanfarið hefur Umferðarráð
staðið fyrir umferðarátaki undir
nafninu Komum heil heim og er í því
sambandi lögð mikil áhersla á jafnan
ökuhraða.
Ökumenn eru einnig hvattir til að
sýna sérstaka tillitsemi í umferðinni
um verslunarmannahelgina, velja
sér Bakkus ekki sem ferðafélaga og
fara vel útbúnir af stað.
Umferðarráð og lögregla um allt
land starfrækja upplýsingamiðstöð á
skrifstofu Umferðarráðs um helgina
þar sem hægt verður að fá upplýs-
ingar um umferö, ástand vega og
fleira gagnlegt. Síminn þar er
91-27666.
-ingo
Lögreglan í Reykjavík kemur til Vesturlandi og Vestfjörðum.
með að herða til muna eftirlit með Mótorhjól og bílar munu fylgjast
hraöaksfi'i um helgina, ásamt því með umferð á Suöur- og Vestur-
að fylgjast náið með ástandi bíla landsveginum og þyrlur verða not-
og ökumanna. aöar til að fylgjast með helstu veg-
Sérstakt eftirlit verður á leiðinni um á hálendinu.
frá Reykjavík og upp í Hvalfjarðar- Menn eru heðnir að gæta sérs-
botn en einnig verður lögreglan takrarvarúðaríumferðinnienslys
með bíla úti á landsbyggðinni, á í sumar hafa verið verið óvenju
Austurlandi og á Austfjörðum og á mörg. -ingo
FÍB með vegaþjónustu
um helgina
Félag íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, verður með sérstaka vegaþjón-
ustu í gangi fyrir bifreiðaeigendur
um verslunarmannahelgina.
Þjónustan felst fyrst og fremst í því
að aðstoða menn við að koma bílum
sínum á verkstæði en einnig hefur
félagið samið við nokkur verkstæði,
bifreiðaumboð og varahlutasala um
að útvega ökumönnum þá varahluti
sem vantar.
Skrifstofa FÍB, sem hefur milli-
göngu um að útvega mönnum þessa
aðstoð, er opin frá fóstudegi til mánu-
dags á milli klukkan 10 og 18. Síminn
er 91-629999.
Ef hringt er utan þess tíma gefur
símsvari upp númer bakvaktar sem
tekur við aðstoðarbeiðnum.
-ingo
Útgerðarfélag Akureyringa hf:
Góð aflabrögð og
nægur kvóti eftir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Aflabrögð togara Útgerðarfélags
Akureyringa hf. hafa verið góð að
undanfömu. Sem dæmi má nefna
löndun Harðbaks á 186 tonnum í
síðustu viku eftir 11 daga veiðiferð
og löndun Svalbaks á 172 tonnum
eftir 7 daga ferð.
Kaldbakur hefur verið í slipp hjá
SUppstöðinni síðan í byijun júní
en á skipinu er unnið aö miklum
endurbótum á þilförum og á
vinnslulínu. Áætlað er að þessum
endurbótum ljúki um miöjan ág-
úst. Til að vinna upp aflamissi
vegna þessa hefur ÚA selt togaran-
um Baldi frá Dalvík kvóta en Bald-
ur hefur landað þeim afla hjá ÚA
til vinnslu.
Afli ísfisktogara ÚA fyrstu 6 mán-
uði ársins var um 8100 tonn og
frystitogararnir tveir lönduðu á
þessum tíma um 3000 tonnum. ÚA
fékk úthlutað fyrstu 8 mánuði árs-
ins 15000 tonnum en með kvóta-
kaupum hefur félagi.ð á þessum
tíma yfir að ráða um 16800 tonnum.
Er þvi sýnt að kvótaleysi mun ekki
há togurum ÚA á þessum tíma. í
sumar hefur ekki verið gripið til
þess ráðs að senda allt starfsfólk
félagsins í sumarleyfi á sama tíma
en það hefur verið gert undanfarin
ár og skipum félagsins þá verið lagt
og vinnslusölunum í landi lokað.