Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Page 9
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991
9
DV
Eignaðistson
92áragamali
Ástralstó eftirlaunamaðurinn
Les Colley á erfitt með að skilja
hvers vegna fjölmiðlar þar í landi
hafa skyndilega fengið mikinn
áhuga á lífi hans. Ástæðan er þó
sú að sá gamli eignaðist son 92
ára gamall. Colley segir að hér
sé ekkert undur á ferðinni enda
hafí hann langað að eignastbam.
„Mér liður nu rétt eins og mér
leið þegar ég var 22 ára,“ segir
Colley. Þá varö hann faöir í fyrsta
sinn. Snáðinn, sem nú fæddist,
heitir Oswald og er sjötta barn
Colleys.
Colley er tvíkvæntur. Síöari
kona hans er 38 ára gömul og hún
hefur sagt fréttamönnum að ald-
ur manns hennar hafi engin áhrif
á sambúð þeirra. „Maðurinn
minn er sprækari en margir
yngri menn,“ segir hún.
Sektirfyrirað
smyglafólki
til Bretlands
Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveð-
ið að hækka sektir lagöar á flug-
félög sem flyfja ólöglega innflytj-
endur til landsins. Mitóli straum-
ur innflytjenda er til Bretlands
þrátt fyrir bágborinn efnahag og
gera stjómvöld sér vonir um að
með þessu móti megi stemma
stigu við smygli á fólki til lands-
ins.
Eftirleiðis þurfa flugfélög að
greiða 2000 pund í sektir fyrir
hvern þann innflytjanda sem þau
koma með hafi viðkomandi ekki
áður fengið dvalarleyfi. Peter
Lloyd innanríkisráðherra segir
að sum flugfélög geri ailt sem þau
geti til að koma í veg fyrir að ólög-
legir innflytjendur taki sér far
með vélum þeirra en önnur hirði
ekkert um að kanna vegabréf far-
þega sinna.
Lýsteftk
klósettsetum
íHavanna
Bandaríska ólympíunefndin
hefur látiö hefja sérstaka rann-
sókn á þvi hvers vegna engar kló-
settsetur em á salemum í búðum
íþróttamanna í Havanna á Kúbu.
Þar standa nú yfir Ameríkuleik-
amir í íþróttum.
Bandarísku iþróttamennimir
eru ekki mjög hrifnir af þessu
uppátæki nefndarmanna þvi
flestir þeirra líta svo á að einu
gildi hvort setur eru á klósettum
eða ekki. Nefndarmenn telja á
hinn bóginn að setuleysið bendi
til að aðbúnaður í búðum iþrótta-
mannanna sé ektó eins og best
verður á kosið.
Rannsóknin beinist að því að
kanna hvort seturaar hafi átt að
vera á klósettunum eða hvort
þeim hafi verið stolið. En hver
sera niöurstaðan verður þá má
hún einu gilda því erfitt er aö
sýna fram á að setuleysið hafi
áhrif á gengi íþróttamannanna.
Risaeðlurnarféiluí
kjamorkuvetri
Bandaríski jarðfræðingurinn
Jack Wolfe fullyröir í nýjasta
heftir vísindaritsins Nature að
risaeölur hafi oröiö aldauða í eins
konar „kjarnorkuvetri" sem rak-
inn er til þess að stór loftsteinn
hæíði jöröina fyrír G5 milljónum
ára.
Við áreksturinn þyrlaðist upp
svo raiklð ryk að sólar gætti ekki
í langan tíraa á eftir. Hiti féll líka
líkt spáð hefur verið að gerðist
kæmi tíl kjamorkustyijaldar.
Allur gróður visnaði og rísaeðl-
urnar féllu úr hungrí og kulda.
Jarðfræðingurinn segir að loft-
steinninn hafi komið niður þar
semnúerMexíkó. Reuter
Útlönd
Litháen herðir
landamæraeftirlit
Stjórnvöld í Litháen tilkynntu í
gær að þau ætluðu að efla vörslu á
landamærum sínum í kjölfarið á
morðunum á sex landamæravörðum
í dögun á miðvikudag.
Lík mannanna voru flutt til Vil-
nius, höfuöborgar Litháens, í gær og
voru í opnum kistum í íþróttahúsi
bæjarins þar sem hundruð manna
vottuöu þeim viröingu sína.
Mennimir voru myrtir í varðstöð
sinni við landamærin að Hvíta-
Rússlandi og er ekki enn vitað hveij-
ir þar voru að verki. Böndin berast
að . svarthúfusveitum innanríkis-
ráöuneytisins en yfirmenn þeirra
neita öUu.
Útför landamæravarðanna er ráð-
gerð á laugardag frá rómversk-
kaþólsku dómtórkjunni í Vilnius og
síðan er ráðgert að ganga fylktu liði
um götur borgarinnar.
Verðimir tveir sem liföu af árásina
era enn þungt haldnir á sjúkrahúsi.
Þegar fréttin af morðunum spurð-
ist út flykktist mannfjöldi að höfuð-
stöðvum kommúnistaflokksins í Vil-
nius til að mótmæla. Reuter
GOO
BUSH
fI
Mótmælendur fyrlr utan höfuðstöóvar kommúnistaflokksins f Litháen eftir
að spurðist út um morðln á landamæravörðunum. Simamynd Reuter
HÁSKÓLABÍÓ FRUMSVNIR í DAG
BEINT Á SKÁ 2A
Lyktin af óttanum
Hver man ekki eftir fyrri myndinni? Hér kemur framhald-
ið sem er svo stórt að ekki dugði að kalla það Beint á
ská 2. Þess vegna heitir myndin Beínt á Ská 2 Yz.
Sýnd kl. 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10