Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Síða 12
12
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991.
Spumingin
Hefur þú fylgst með
árangri Einars Vilhjálms-
sonar spjótkastara?
Björgvin Jónsson, vinnur á Reiknist.
bankana: Nei, ég hef nú ekki gert þaö
undanfarið.
Brynjólfur Þór Guðmundsson bréf-
beri: Já, ég les ailt sem fjölmiðlar
skrifa um hann.
Hermann Jónasson skrifstofumaður:
Nei, ég get nú ekki sagt það. Ég hlusta
þó alltaf þegar verið er að fjalla um
hann í fjölmiðlum.
Þóranna Vestmann afgreiðslumað-
ur: Nei, ekki neitt. •
Kristín Högnadóttir húsmóðir: Nei,
ég hef ekki gert það.
Þórður Gunnarsson: Já, ég hef nú
gert það í gegnum árin.
Lesendur
Feginn vildi ég
eiga þig að, vinur
„Skattar eru lagðir jafnt á yfirvinnu sem dagvinnu", segir m.a. í bréfi guð-
mundar.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, skrifar:
Þann 26. júlí skrifar Jóhannes
Guðnason, fyrrv. formannsefni
Dagsbrúnar, harðorða en nokkuð
þokukennda grein í DV. Ekki skal
ég þræða grein hans lið fyrir hð en
drep á örfá atriði.
Tekur hann m.a. fyrir ábendingar
mínar frá aðalfundi Dagsbrúnar 1.
mars sl. um hækkun persónuafslátt-
ar. Hún komi 100 þús. króna mannin-
um betur en t.d. 400 þús. króna
manninum því hækkunin er þá jöfn
í krónutölu. - Svo spyr Jóhannes:
„Ég veit ekki hvar þessi 100 þús. kr.
taxti finnst?“ Hann fmnst með því,
Jóhannes, að taka yfirvinnuna með
dagvinnunni hjá ýmsu verkafólki en
skattar eru lagðir jafnt á yfirvinnu
sem dagvinnu. Þegar talað er um 100
þús. kr. í þessu sambandi þá mætti
alveg eins tala um 70 þús. krónur.
Síðan kemur löng talnarolla, þar
sem vitnað er í hinar ýmsu ríkis-
stofnanir, Þjóðhagsstofnun og fleira
þess háttar. - Síðan spyr hann mig:
„Hvemig væri nú að standa viö kosn-
ingaloforðin?" Ég verð að minna Jó-
hannes á að ég hef engin kosningalof-
orð gefið um skattalækkanir. Þessi
ummæli mín eru frá aðaifundi Dags-
brúnar í marslok, þar sem ég hvatti
Dagsbrúnarmenn til að berjast fyrir
skattalækkunum hjá einstaklingum,
öðru fremur hjá lágtekjufólki.
Þar sem ég er óflokksbundinn mað-
ur og hvergi í framboði nema hjá
Dagsbrún þá gaf ég engin kosninga-
loforð fyrir síðustu alþingiskosning-
ar. En ef ég man rétt, vinur, þá hótað-
ir þú þínum flokki, Alþýðuflokknum,
illu, ef hann stofnaði ekki verkalýðs-
málaráð og ég man ekki betur en að
þú hrósaðir þér á síðum Alþýðu-
blaðsins fyrir að verkalýðsmálaráð
væri stofnað með þig sem formann
og valinn mann í hveiju sæti. Gæti
nú ekki þetta títtnefnda verkalýðs-
málaráð Alþýðfuflokksins gert sam-
þykkt þar sem það tekur undir kröfu
Gunnar í. Guðjónsson skrifar:
Svo háttaði til á bæ einum fyrir
nokkrum árum að vinnukraftur var
heldur rýr, húsbóndinn slappur af
veikindum en kúabú stórt var rekið
á bænum. Vinnan við kýmar lenti
því á herðum ungs pilts sem heima
var. Aðstaða við hirðingu kúnna var
þannig háttað að keyra varð út forina
í híólbörum en aldrei var hirt um að
þrífa frá húsum. - Lengi keyrði
stráksi forina út um dymar en þar
kom að honum fannst þægilegra að
moka. beint út um gluggana. Þetta
endaði meö því að byggja þurfti nýtt
Móðir skrifar:
Verslunarmannahelgin er fram-
undan, aðal feröahelgi landsmanna.
Ég á tvö böm á unglingsaldri. Strák-
urinn minn hefur farið nokkrum
sinnum í útilegu um þessa helgi og
hefur þá ýmist farið á skipulagðar
útihátíðir eða eitthvað annað. í fyrra
b'ættist svo dóttirin í hóp þeirra ungl-
inga sem getur ómögulega setiö
heima um verslunarmannahelgina
og „misst af öllu stuöinu" auk þess
sem allir „hinir“ fá að fara - eins og
krakkar segja.
Mér var alltaf illa við að hleypa
syni mínum á útihátíð. Sat þó frekar
róleg heima ef hann fór í vinahópi,
t.d. í Húsafell, Þórsmörk eða á Laug-
arvatn. Þar að auki var það ódýrara.
Nú er svo komið að hugur minn hef-
þína úr DV frá 26. júlí sl. um lækk-
aða skatta? - Sér í lagi vegna þess
að Alþýðuflokkur ásamt öðrum
flokkum lofaði skattalækkunum fyr-
ir kosningar. Það væri óneitanlega
dýrmætt að fá slíka yfirlýsingu.
Ég veit að þú bregst vel við þessum
fjós því að hið fyrra var sokkið í for.
Heldur óhrjálegt þætti ef fólk í slát-
urhúsunum færi eins að, fleygði öll-
um innyflum og beinum út um
gluggann og léti sér fátt um finnast.
Það kæmist aldrei lengi upp með
það. - En lengi tekur sjórinn við. Eða
hvað?
- Á meðan tala haffræðingar um
rauðátudauða sem ef til vill og
kannski. Getgátur vitna í sextán
hundruð og súrkál á meðan verið er
að moka í sjóinn hundruðum tonna
af slori og fiskbeinum af yfir hundraö
togurum við íslandsstrendur. Reikn-
ur gjörsamlega snúist og ég hef meira
að segja boðist til að borga fyrir ungl-
ingana mína inn á skipulagða útihá-
tíð að þessu sinni.
Sonur minn fór í Vaglaskóg um síð-
ustu verslunarmannahelgi. Eftir þá
helgi bar svo við aö einn vina hans
kom lemstraður og illa útleikinn úr
þeirri ferð. Mér skildist á syni mín-
um að hann hefði lent i slagsmálum
og var víst ekki sá eini sem slíka
útreið fékk. Þegar huga átti að
meiðslum kom í ljós að fátt var um
sjúkragæslumenn eöa aðstöðu til
hjúkrunar. Hvorki var skipulögð
sjúkra- eða löggæsla á staðnum.
Staðreyndin er að staðir eins og
Vaglaskógur og fleiri eru ekki í stakk
búnir til að taka á móti fjölda ung-
menna. - Á sama tíma og sonur minn
tilmælum mínum, Jóhannes. Það
verður hátíðleg stund þegar slík yfir-
lýsing kemur frá verkalýðsmálaráði
Álþýðuflokksins og feginn vildi ég
eiga þig að, vinur, að hún komi sem
fyrst!
að er með að rotnunarbakterían éti
þetta umyrðalaust, hvort sem hún
er svöng eða ekki. Svo spyrja menn;
Hvaðan kemur grúturinn?
Þegar að því kemur að skipin okkar
koma með í land allan afla sem þau
fiska vinnst margt í senn. Sóknar-
þunginn í fiskinn myndi minnka
stórlega. Svo mikið að kvótakerfið
yrði óþarft og mjölverksmiðjurnar
myndu blómstra að nýju. í reynd
hvetur kvótakerfið til að henda
dauðum fiski í hafið því að ekki má
koma með í land þær tegundir sem
ekki er til kvóti fyrir. Þetta vita allir.
og vinir hans ráfuðu um í reiðileysi
og höfðu ekkert við að vera í skógin-
um þá var dóttir mín með sínum vin-
um á útihátíð í Húnaveri. Þar var
aðstaðan sögð til fyrirmyndar og lög-
og sjúkragæsla til staðar.
Ég veit að unglingar fara oft illa
búnir af stað í svona ferðir. Þá er
skárra að vita af því að á útihátíðum
geta þeir fengið heitt að drekka og
boröa og fengið inni hjá gæslumönn-
um ef illa fer.’Persónulega finnst mér
því betra að vita af börnunum mín-
um þar sem ég veit að fylgst er með
þeim og haft ofan af fyrir þeim með
skemmtiatriðum og dansi. - Sendum
ekki bömin eitthvað út í óvissuna.
Sorgleg slys í sumar ættu að styrkja
okkur í þeirri ákvöröun.
Sexmilljarðarinn
-fimmútaftur
Skattborgari skrifur:
Undarlegar fi’éttir berast lands-
mönnum þessa dagana. Þetta eru
skattafréttir. Tæpiega 200 þús.
landsmenn eru sagðir þátttak-
endur. Þetta er hinn árlegi
skattaleikur. Aldrei fyrr hefur þó
fáránleikinn verið annar eins.
Um 193 þúsund manns fá eitthvaö
i aðra hönd frá ríkinu, aðeins
þrjú þúsund manns fá tílkynn-
ingu um að þeir eigi að greiða
meira!
Hvað er hér á eiginlega á ferð-
inni? Það er verið að innheimta
skatta upp á rúmlega sex millj-
arða en út eru aftur greiddir rúm-
lega fimm milljarðar króna!
Hvert skyldi eini milljarðurinn
fara? Kannski í bréfsefni og send-
ingarkostnað? Hefði ekki mátt
nota bara eina bréfasendingu í
stað tveggja? Senda skattseðla og
ávísanir til hinna tæplega 200
þúsund landsmanna í sama póst-
inum.
Happdrætftinkom-
inákreikáný
Sigurður Björnsson skrifar:
Það var mikill léttir fyrir marga
er hlé var gert á heimsendingu
happdrættismiða nú um hásum-
arið, Nálega engin gluggaumslög,
utan kannski frá greiðslukortum,
rafmagni og hitaveitu, steyptust
inn um bréfalúguna. Það mátti
nú líka llnna ósköpunum.
En nú eru happdrættin komin
á kreik. - Við fengum senda þrjá
miða í morgun frá einni góðgerð-
arstofnuninni. Þetta fór nú að
sjálfsögðu beint í ruslatunnuna.
Eg vona að happdrættin og aðrar
stofnanir, sem eru í hugleiðing-
um um að senda fólki miða og
annað slíkt, e.t.v. vegna þess að
menn eru aö fá greiddar innstæð-
ur frá rikinu þessa dagana, hætti
við að senda frá sér beiðnir,
áskoranir eða íjárkröfur og ann-
að í þeim dúr.
Snæfellsásmótið-
ekkiftrúarháftíð
Ragnhildur skrifar:
Ætlar þú að fara á þetta trúar-
rugl? spyr fólk þegar ég segist
ætla að eyða verslunarmanna-
helginni við SnæfellsjökuL - En
þar er nú fimmta mótið sem ber
yfrrskriftina „Mannrækt undir
jökli". Þetta er í fjóröa sinn sera
ég fer með fjölskyldu minni á
mótið. - Mér leiðist þessi trúar-
stimpill sem mótið hefur fengið á
sig. Það er ástæöa min fyrir þess-
um skrífum hér. Hverrar trúar
eru þeir sem sækja hin mótin -
er það ekki kristið fólk?
Flest mót, sem haldin eru viða
um land, eru meö sölutjöld,
skemmtiatriði og dansleiki. Snæ-
fellsásmótið er byggt upp á fyrir-
lestrum og fróöleik. Hver dagur
endar á kvöldvöku. Margir fyrir-
lesarar koma til landins í boði
mótshaldara og allir eru þeir að
miðla þekkingu sinni. Einnig er
fjöldinn allm- af íslendingum,
sem halda fyrirlestra um störf sín
sem flest eru fólgin í því að vinna
með fólk, svo að þvi líöi betur.
Rætt er m.a. um rétt fæðuval,
hollar hreyfingar, gönguferðir,
draumaráðningar, slökun, nudd,
stjörnuspeki og margt sem stuðl-
ar að betri líöan fólks, skilningi
á lífinu og tilverunni.
Ég vil koma á frarafæri þakk-
læti til þeirra sem að þessum
mótum standa. Það gefur fólki
með svipuð áhugamál tækifæri
tO að hittastog skiptast á skoðun-
um.
Geturnálgasft
bókina
ÉHi skrifar:
Þetta er sent til að minna Helgu
Soffra (Parísarpíuna) á að hún
getur nálgast dagbókína sína hjá
mér. Símanúmeriö er 46368.
Að hengja rauðátu fyrir slor
Sendum börnin ekki út í óvissuna