Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991.
Skák
Knattspyrnu-
hetj an hélt velli
Þeir eru ekki margir sem háð
hafa einvígi við Anatoly Karpov og
sloppið frá því með ráði og rænu.
Garrí Kasparov hefur einum tekist
að halda sínu og gott betur gegn
heimsmeistaranUm fyrrverandi,
þar til á dögunum, að norskur
knattspyrnumaður kom til sög-
unnar. Hætt er viö að Karpov hefði
htið haft í Norðmanninn að gera í
vítaspymukeppni en á skákborð-
inu hefði mátt búast við hinu gagn-
stæöa. Norðmaöurinn lét Karpov
hins vegar ekki komast upp með
neinn moðreyk. Fjögurra skáka
æfingaeinvígi þeirra í Gjövík lauk
2 - 2 og er óhætt að bæta við:
„Norömanninum í vil“.
Skák
Jón L. Árnason
Umrædd knattspyrnuhetja er
vitaskuld enginn annar en Simen
Agdestein, eini stórmeistari Norð-
manna. Það er vissulega eftirtekt-
arvert að hann skyldi eiga í fullu
tré við Karpov, ekki síst vegna þess
að hann hefur ekkert teflt síðan á
ólympíuskákmótinu í fyrravetur!
Knattspyrnan hefur setið í fyrir-
rúrni en Agdestein leikur með
norska 1. deildar liðinu Lyn, ásamt
íslendingnum Ólafi Þórðarsyni.
Teitur Þórðarson er þjálfari félags-
ins og svo vel hefur hann byggt upp
þrek liðsmanna að nægir gegn
sjálfum Karpov!
Agdestein hefur orðið að sitja á
varamannabekknum nokkum
tíma vegna meiðsla í hné og þá er
kjörið að grípa í skák. Hann fékk
óvænt boð um að taka þátt í heims-
bikarkeppninni sem hefst á Hótel
Loftleiðum 21. september og því
hefur hann ærna ástæðu til að
dusta rykið af taflinu og setja skóna
á hilluna í staöinn.
Agdestein er um margt einkenni-
legur skákmaður og á stundum er
eins og hann sé að tefla fótbolta!
Hann er laginn við að flækja stöð-
una og kemst langt á hörkunni og
úthaldinu. í tímahraki blæs hann
frá sér og þindarlausir taflmenn-
imir þjóta fram og aftur um borðið.
Fyrsta skákin’ í einvíginu við
Karpov var á margan hátt dæmi-
gerð fyrir taflmennsku Agdesteins.
Hann fékk lakari stöðu en tókst að
rugla Karpov í ríminu og ná
óvæntri gagnsókn. Karpov tókst að
ráða fram úr vandanum og var
kominn langt með að vinna skák-
ina en sterkur frelsingi Agdesteins
sá um að halda stöðunni saman.
Þá gerði Karpov sig sekan um ótrú-
leg mistök - hálfgert sjálfsmark -
og eins og hendi væri veifað var
sigur Agdesteins í höfn.
Karpov náði að jafna í 2. skák-
inni, sem var vel tefld af hans hálfu,
og síðan urðu tvö jafntefli. Þriðja
skákin var ekki beint til þess fallin
að glæða áhuga á skák: Jafntefli
eftir 88 leikja þóf, þar sem peði var
ekki leikið í fimmtíu leiki! Það var
Karpov sem hélt taflinu gangandi
svo lengi en komst að því full-
reyndu að Agdestein verður ekki
tekinn á úthaldinu. í fjörðu skák-
inni vom nokkrar sviptingar. Ag-
destein fómaði manni, sem Karpov
skilaði aftur tafarlaust, og hafði þá
peð til góða. Vinningsmöguleikar
voru hans megin en Norðmannin-
um tókst aö stýra skákinni í enda-
Simen Agdestein á æfingu með DV.
42. Dd6 He8? 43. He2! Hg8 44. Dxd5
h6 45. Kg2 b3 46. h4 Hb8 47. Dd6 Dc8
48. Hb2 Db7+ 49. Kh2 He8 50. d4 Df3
51. Db4 He2 52. Hxe2 Dxe2 53. Df8+
Kh7 54. Df5+ K8
55.d5??
Ótrúleg yfirsjón Karpovs! Eftir
55. Dd5+ Kh7 56. Dxb3 Dxf2+ blas-
ir jafnteflið við - meira var ekki
að hafa.
55. - Dc2!
Nú rennur b-peðið upp í borð og
hvítur er glataður.
56. Df3 b2 57. d6 bl=D 58. d7 Dbdl
59. Da8+ Kh7
Og Karpov gafst upp.
2. einvígisskákin
Hvítt: Simen Agdestein
Svart: Anatoly Karpov
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3
Ba6 5. b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7
Karpov heldur enn tryggð við
þetta trausta afbrigði drottningar-
indversku vamarinnar. Agdestein
velur nú skörpustu leiðina.
7. Rc3 0-0 8. e4 d5 9. cxd5 Bxfl 10.
Kxfl exd5 11. e5 Re4 12. Kg2 Dd7 13.
De2 Rxc3 14. Bxc3 c5 15. Hhel De6
16. Rgl?!
Eftir 16. Bb2 Rc6 17. Hacl Hac8
er taflið í jafnvægi.
16. - Rc6 17. dxc5 d4! 18. Bd2 Bxc5
19. De4 Hfe8 20. f4 Had8 21. Rf3 d3
Frelsinginn á d-hnunni gefur
svörtum betri færi.
22. Rg5 Dd5 23. Hacl
Hér var 23. Hadl e.t.v. betri til-
raun.
23. - Rd4 24. b4 Be7 25. Dxd5 Hxd5
26. Rf3 Rc2 27. He4 b5 28. Rel
tafl með mislitum biskupum og
jafntefli varð niðurstaðan eftir 64
leiki.
1. einvigisskákin
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Simen Agdestein
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rc6
Þessi óvenjulegi leikmáti hefur
ekki átt upp á pahborðið síðan í
einvígi Fischers og Petrosjans í
Buenos Aires 1971. Fischer lék 4.
Rf3 Rf6 5. exd5 exd5 6. Bb5 og náði
htlu en öruggu frumkvæði.
4. Rf3
í 3. skákinni í Gjövík lék Karpov
4. e5 og áfram tefldist 4. - b6 5. f4
Bb7 6. Rf3 Dd7 7. a3 Rh6 8. Bb5 f5
9. Bd2 Be7 10. h3 a6 11. Bd3 a5 12.
Be3 Ba6 og Agdestein náði að jafna
tafhð.
' 4. - Rf6 5. Bd3!?
í stað 5. Bg5, 5. e5, eða 5. exd5
bryddar Karpov upp á fjórða mögu-
leikanum.
5. - Rb4 6. Bg5 Be7 7. e5 Rd7 8. Bxe7
Dxe7 9. 0-0 0-0 10. Hel c5 11. dxc5
Rxc5 12. a3 Rc6
Eftir 12. - Rxd3 13. cxd3 á hvítur
óumdeilt betri stöðu. Svartur nær
heldur ekki að jafna taflið fyhilega
eftir textaleikinn.
Agdestein hélt jöfnu gegn Karpov
enda i góðri æfingu hjá Teiti Þórð-
arsyni, þjálfara norska 1. deildar
liðsins Lyn.
13. Dd2 a5 14. De3 b6 15. Bb5 Ra7 16.
Bfl Rc6 17. Bb5 Ra7 18. Hadl Bd7
19. Bfl Hac8 20. Hd4!?
Tilfærsla hróks eftir 4. reitaröð
er stef sem gjarnan heyrist í skák-
um Karpovs. Hrókurinn býst til
sóknar á kóngsvæng og nánast
þvingar fram næsta leik svarts. En
20. Rd4 var annar kostur.
20. — f5 21. exfB frhl. Dxf6 22. b4 axb4
23. axb4 Rb7 24. Ba6?!
Lítur vissulega vel út en Agde-
stein lumar hér á mótbragöi. Eftir
24. Re4 De7 er taflið ekki ljóst en
24. Re5 ásamt f2—f4 virðist sterkt -
ef 24. - Hxc3 þá 25. Rxd7, eða 24. -
Rc6 25. Rxd7 Dxd4 26. Dxe6+ Hf7
27. Rf6+ Dxf6 28. Dxc8+ HÍ8 29.
De6+ o.s.frv.
24. - Rc6!
Nú er taflið orðið býsna flókið,
því að ekki gengur 25. Bxb7? Rxd4
og áfram 26. Bxc8,Rxf3+ og næst
fehur á c8, eða 26. Rxd4 Hxc3! og
f2 hangir.
25. Re4! De7 26. Reg5! Rxd4 27. Rxd4
Hb8 28. Rgxe6 Bxe6!?
Eftir 28. - Hfe8 29. De5 fær hvítur
annað peð og hefur góö færi. Næstu
leikir eru þvingaðir á báða bóga.
29. Rc6 Dd6 30. Rxb8 Rd8! 31. De5
Dxb4 32. Rc6! Rxc6 33. Dxe6+ Kh8
34. Bd3
Drottningin verður að valda
hrókinn á el og riddarinn var því
friðhelgur.
34. - Dc5 35. De2 Rb4 36. Hdl Hc8
37. Hd2 Dc3 38. g3 Rxd3 39. cxd3 b5
40. Hb2 b4 41. De6! Hf8?
Eftir 41. - Hg8 42. Hbl er iíklegt
aö taflið leysist upp í jafntefh. Ag-
destein sést yfir 43. leik Karpovs
og verður að hafa meira fyrir hlut-
unum.
I för
A 41 * *
k lá A H A
1 A
A sá? A
H
ABCDEFGH
28. - Bxb4! 29. Bxb4 d2 30. Bxd2
Hxd2+ 31. Kh3?
Fellur í lymskulega ghdru en eft-
ir 31. Kfl Rxel og næst 32. - Hxa2
er hvítur svo sem ekki öfundsverð-
ur af stöðunni.
31. - f5!
Fangar hrókinn!
32. Rf3 Hf2 33. Hd4 Rxd4 34. Rxd4
g6 35. Rxb5 Hb8 36. a4 h6 37. Hc6
Hb6 38. Hc8+ Kg7 39. Hc7+ Kf8 40.
Hc8+ Ke741.Hc7+ Kd842.Hxa7g5!
Hótar máti í 2. leik.
43. Ha8 + Ke7 44. Ha7 + Kf8 45. Ha8+
Kg7 46. Ha7+ Kg6 47. g4 fxg4+ 48.
Kxg4 Hxf4+ 49. Kg3 He4
- Agdestein gafst upp.
-JLÁ