Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Side 18
18,
FÖSTURAGJJR 2. ÁGýST 1391,,
Veiðivon
Svörtu (ekki björtu) hliðamar í veiðinni:
Laxastofnamir eru
byrjaðir að hrynja
Það eru ekki alltaf jólin í veiðinni
eins og veiðimenn vita. Einn daginn
veiðast fiskar en hina dagana minna.
Stundum er laxarnir alls ekki komn-
ir í ána en næsta dag eru þeir í torf-
um. Svona er í veiðinni.
En einu verður ekki breytt á þess-
ari stundu nema með mikilli hugar-
farsbreytingu því laxastofarnir eru
byrjaðir að hrynja í veiðiám við
Faxaflóann svo ekki verður um
villst. Þetta kemur berlega í ljós í
þeim skýslum sem hafa verið birtar
um málið enda sjá veiðimenn það
nær daglega að eldislaxinn er mætt-
ur á staðinn. Ekki einn og ekki tveir
heldur miklu fleiri. Þetta var reynd-
ar þróun sem margir voru búnir að
vara við og töluðu oftast fyrir dauf-
um eyrum. En sannleikurinn er að
koma í ljós.
í skýrslu, sem tveir sérfræöingar
af Veiðimálastofnun, Sigurður Guð-
jónsson og Friðjón Már Viðarsson,
hafa gert koma staðreyndirnar ber-
lega í ljós. En þeir hafa unnið þessa
skýslu úr rannsóknum á eldifiski í
fimm veiðiám við Faxaflóann. Niður-
stöðumar sýna að staðan er allt ann-
að en góð á svæðinu og í versta falli
megi búast viö hruni í ákveðnum
náttúrlegum laxastofnum vegna
blöndunar við eldisflsk. Rannsókn-
irnar ná yfn; síðustu 3 ár og sýna að
í Elliðaánum var eldisfiskur 35,8%
af afla síðasta sumars. í Úlfarsá
45,2%, í Leirvogsá 42,7%, í Laxá í
Kjós 25,7% og í Bótnsá 61,1%. Með
hugtakinu eldislax, er átt bæði viö
kvíalax og hafbeitarlax.
Þegar þessar töiur eru skoðaðar er
staðan langverst í Botnsá í Hvalfirði
þar sem árið 1988 reyndust nær sjö
Það er nóg að gera við að vikta og
taka hreistursýni af öllum löxum
sem veiðast í Elliðaánum.
af hverjum 10 veiddum löxum vera
eldislaxar.
Þessar tölur eru ljótar og með sama
áframhaldi þurrkast náttúrlegu
laxastofnarnir úr þessum veiðiám.
En eldislaxinn hefur sést í fleiri ám
Það er vei fylgst með við Elliðaárnar þegar laxinn er plastaður og mældur.
DV-myndir G.Bender og SK
og á eftir koma í enn fleiri með tíð
og tíma. Á meðan hausnum er stung-
ið í sandinn og menn segja þetta allt
í lagi er ekki von á góðu. Þetta er
bara ekki grín lengur!
Það verður að fara aö hlusta á
menn sem hafa bent á hættumar í
mörg ár án þess að tekið hafi verið
mark á því. Arinars eru bara svartir
dagar í vændum fyrir veiðimenn við
margar veiðiárnar næstu árin. Vilj-
umviðþað? -G.Bender
Þjóðar-
spaug DV
Kurteisin
Jóhannes Kjarval bauö eitt sinn
ungri stúlku á veitingahús. Þegar
þau höfðu fengið sér sæti spurði
Kjarval stúlkuna hvað mætti
bjóða henni.
„Mér er alveg sama,“ svaraði
stúlkan.
Þá kaliaði Kjarval í þjóninn og
sagði:
„Viljið þér koma með vatnsglas
handa dömunni og kaffi fyrir
mig.“
Bara noklmó vel
Þegar Benedikt Gröndal skáld
lá banaleguna kom kunningi
hans í heimsókn og spurði hvern-
ig hann hefði það. Þá svaraði
Benedikt:
„Ég get ekki gengið, ekki legið
og ekki andað en annars liður
mér bara nokkuð vel.“
Mjög kaldur
Ungur nemandi við skóla einn
á Norðurlandi stigbreytti eitt
sinn lýsingarorðiö kaldur svona:
„Kaldur - kaldari - frosinn.“
Langdregin ræða
Presti einum norðanlands lá
einhverju sinni mikið á hjarta í
messu og virtist ræða hans aldrei
ætla að taka enda. Fólk fór því
að tínast út úr kírkjunni og að
lokum reis kirkjuvörðurinn upp,
gekk til prestsíns og sagði:
„Héma era lyklarnir góði. Þú
læsir svo bara þegar þú ferð.“
Passíusálmarnir
Þegar verið var að kistuleggja
húsfreyjuna í Saurakoti voru aö-
standendur í vandræðum með
hvað syngja ætti við athöfhina.
Efiir nokkrar umræöur sagði
presturínn:
„Viljið þið ekki syngja eítthvað
gott úr Passíusálmunum."
Honum brá nokkuð í brún þeg-
ar böm hinnar látnu byrjuðu aö
syngja:
„Sjá hér hve illan endi, ótryggð
og svikin fá...“
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum Uðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
2. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
Bækurnar sem er í verðlaun
heita: Á eUeftu stundu, Flugan
á veggnum, í helgreipum hat-
urs, Lygi þagnarinnar og
Leikreglur. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðl-
un.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 116
c/o D V, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningsnafar fyrir hundruð-
ustu og íjórtándu getraun,
reyndust vera:
1. Ingveldur Gunnarsdóttir
Holtagötu 12, 600 Akureyri
2. Edda Baldursdóttir
Aðalgötu 20,550 Sauðárkróki
Vinningarnir verða sendir
heim.
.»1141 liilll »1111 tttÍMt
ftíii .(Uiunhiui iLiittííiii