Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Page 19
I
i
i
>
>
I
I
>
>
>
>
>
I
I
I
jrjge |
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991.
19
Vísnaþáttur
í muna streymir minning hlý
„Ó, minning, minning. / Líkt og ómur
fjarlægra söngva, / líkt og ilmur deyj-
andi blóma / berast orö þín að hlust-
andi eyrum mínum. / Eins og lifandi
verur / birtast litir og hljómar / hinna
hðnu daga, / sem hurfu sinn dular-
fulla veg / út í dimmbláan fjarskann
/ og komu aldrei aftur. /... Ó, æska,
æska. Þegar dagarnir komu / eins og
undarlegt, heillandi ævintýri, / og
þeir báru allan fógnuð óg fegurð lífs-
ins / í faðmi sínum.“
Þannig hljóðar upphaf ljóðs eftir
Stein Steinarr skáld og ber heitið
Minning. Þegar ég las bók Steins:
Rauður loginn brann, endur fyrir
löngu, staldraði ég við þetta kvæði.
Það ýtti við mér þá og gerir það ekki
síður í dag, þegar svo langt er um
hðið frá æskuárunum. En það hafa
fleiri en Steinn litið til baka og lýst
tilfmningum sínum í ljóðum og stök-
um, misvel að sönnu, en margt er
þó athyglisvert sem þar kemur fram.
Það er gamall bóndi, sem sennilega
er fluttur á möhna, sem kveður svo:
Dahnn þrái eg ljóst og leynt,
lögum breyttum háður.
Gamlar rætur gróa seint
í grynnri mold en áður.
Björn Jónsson frá Haukagili í Hvít-
ársíðu, lögregluþjónn í Reykjavík,
beinir huganum til heimahaganna:
Mörg þó gleymist mannleg þrá
minja geymast sjóðir.
Leitar dreyminn andi á
æsku- og heimaslóðir.
En „tímarnir breytast og mennirn-
ir með“. Það sem einu sinni var er
hðið og kemur aldrei aftur, með nýj-
um mönnum koma nýir siðir, sem
henta ekki þeim sem voru eitt sinn
ungir, en eru það ekki lengur. Bragi
Björnsson frá Surtsstöðum í N-Múl.
lýsir viðhorfi sínu á þessa leið:
Á mér hamast tímans tönn,
tápið lamað þekki,
út í glaumurglaða önn
geng ég framar ekki.
Oft um hálan æviveg
örðugt leið að finna.
Það hafa meiri menn en ég
misst þar fóta sinna.
Hvað sem augað leit og las
lét sig hugur dreyma.
Mýksta jörð og grænast gras
geymdi landið heima.
Þegar magnast þráin brýn,
þá fer mig að dreyma,
að blómum skrýddar biði mín
brekkumar mínar heima.
Vísnaþáttur
En draumarnir geta aðeins stjakað
raunveruleikanum til hliðar um
stundarsakir. Þormóður Pálsson frá
Njálsstöðum:
Út á tímans ólgustraum
æskan burt er flotin.
Liggja bak við gamlan glaum
glösin tæmd og brotin.
En mörgu er gott að gleyma, þótt
aðeins um stundarsakir sé, og þá fer
hugurinn á örskotsstund áratugi aft-
ur í tímann. Gústav Halldórsson á
Hvammstanga:
Stefnir allt að einum stað,
ár er lögð í hömlu.
Ég leik mér við að leita að
leggjunum mínum gömlu.
Og Sigríður Þórðardóttir, hús-
freyja á Lindarbakka í Breiðdal, er á
sömu bylgjulengd:
Við aringlóðir æskunnar
örast blóðið streymir.
Margar góðar minningar
muni hljóður geymir.
Einar Einarsson, sem var um skeið
djákni í Grímsey, tekur undir:
í muna streymir minning hlý,
mig þá dreymir vorin,
því að heimahögum í
hulin geymast sporin.
Haraldur Lífgjarnsson, skósmiður
í Reykjavík, bendir okkur á leið til
að draga úr lífsþreytunni:
Þegar lúin lítið þið
leiðir yfir famar,
þá er gott að gleðjast við-
gömlu minningarnar.
En ekki eru ahar minningar jafn
eftirsóknarverðar. Stefán frá Hvíta-
dal:
Liðnum tíma er létt um vik,
leiðin kunn í göngum.
Afturgengin augnabhk
að mér sækja löngum.
Eymundur Jónsson, bóndi í Dilks-
nesi í Nesjahreppi í A-Skaft., fluttist
til Vesturheims 1902 og heim aftur 5
árum síðar. Hann undi ekki hag sín-
um vestra og heimþráin sótti á hann,
sem glöggt má sjá af vísu sem hann
sendi dóttur sinni heima í bréfi:
Berðu kveðju bölum öllum,
báru hverri á lygnum sæ,
hálum jökli, hamrastöllum,
hverju strái á þínum bæ.
Guðmundur E. Geirdal, kennari og
skáld, ólst upp í Gilsfjarðarmúla í
Geiradal í A-Barð. Þegar hann kom
á heimaslóöir eftir langa fjarveru
orti hann:
Kvikar hjartað, kippir æð
kvölds í röðulskini,
þegar sérhver hóll og hæð
heilsar fornum vini.
Torfi Jónsson
IRÐISAUKASKATTUR
Gjalddagi
virðisaukaskatts er
5. þessa mánaðar
Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur,
og núllskýrslum má skila til banka,
sparisjóða eða pósthúsa. Einnig
má gera skil hjá innheimtumönnum
ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn
í Reykjavík, bæjarfógetar og sýslu-
menn úti á landi og lögreglustjór-
inn á Keflavíkurflugvelli.
Bent skal á að bankar, sparisjóðir
og pósthús taka aðeins við skýrsl-
um sem eru fyrirfram áritaðar af
skattyfirvöldum. Ef aðili áritar
skýrsluna sjálfur eða breytir áritun
verður að gera skil hjá innheimtu-
manni ríkissjóðs.
Inneignarskýrslum, þ.e. þegar .
innskattur er hærri en útskattur,
skal skilað til viðkomandi skatt-
stjóra.
Til að komast hjá álagi þarf
greiðsla að hafa borist á gjald-
daga. Athygli skal vakin á því að
ekki er nægilegt að póstleggja
greiðslu á gjalddaga.
Vel merkt einkastæði
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Nú býður Bifreiðaskoðun íslands upp á
merkingar fyrir einkabílastæði úr sama efni og bíl-
númerin. Einstaklingar og fyrirtæki geta pantað
áletrun, bílnúmer eða stutt nafn á spjöldin.
Verð númeraplatnanna er kr. 1500 og
afgreiðslufrestur er 3 dagar. Hægt er að panta þær
hjá öllum skoðunarstöðvum Bifreiðaskoðunar,
í eftirtöldum símanúmerum:
Reykjavík - 673700
Keflavík - 15303
Akranes - 12480
Borgarnes - 71335
ísafjörður - 3374
Blönduós - 24343 Eskifjörður - 61240
Sauðárkrókur - 36720 HvolsvöUur - 78106
Akureyri - 23570 Selfoss - 21315
Húsavík - 41370
Fellabær - 11661
r