Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Side 21
21
FÖSTUDAGUR l'ÁGÚST' 1991.
Kvikmyndir
Leikstjórinn, framleiðandinn og handritshöfundurinn Mel Brooks.
Nú er TVOFALDUR
1. vinningur
■ draumurinn gæti orftið aft veruleika!
Iife Stinks er nýjasta kvikmynd Mel Brooks:
Ekkijafnvilltur
og oft áður
Í
©
snillingur eyddi síöan góðum tíma í
leikhúsum utan stórborga þar sem
hann safnaöi reynslu, bæði viö að
leika, skrifa og leikstýra leikritum
af öllum gerðum og lengdum. Eftir
veruna við leikhúsin fékk hann
ráðningu við að semja brandara fyrir
gamanleikarann Sid Caesar sem var
með mjög vinsælan sjónvarpsþátt.
Að nokkrum árum liðnum hætti Sid
Caesar með sjónvarpsþátt sinn og þá
tóku þeir sig saman Brooks og Carl
Reiner og gerðu nokkrar plötur und-
ir heitínu The 2000 Year Old Man.
Plötur þessar urðu mjög vinsælar og
fékk Brooks þrjár tilnefningar til
Grammy verðlaunanna. Árið 1965
tók hann saman við Buck Henry og
skrifaði Get Smart sjónvarpsmynda-
flokkinn sem var grínútgáfa af Jam-
es Bond og öðrum álíka hetjum og
gekk sá þáttur í fimm ár.
Fyrstu skref sín í kvikmyndum tók
Mel Brooks þegar hann skrifaði og
leikstýrði stuttmyndinni The Critic
og fékk hann óskarsverðlaun fyrir
þá mynd.
Mel Brooks var nú tilbúinn að gera
kvikmynd í fullri lengd og fljótlega
leit The Producers dagsins ljós og þar
með fékk heimurinn að vita af tilveru
Mel Brooks. Þessi bráðsniðuga gam-
anmynd sló í gegn alls staðar en þó
sérstaklega í Evrópu þar sem sumir
litu á Mel Brooks sem arftaka Chapl-
ins. Brooks fékk óskarsverðlaunin
fyrir handritið að The Producers sem
fjallar um mislukkaða leikhúsmenn
sem setja á svið söngleik um Hitler.
Ætlun þeirra er að láta sýninguna
kolfalla vegna allra þeirra lána sem
þeir tóku og lofuðu arði, en reyndin
varð önnur, söngleikurinn sló í gegn
og þeir lentu í fangelsi.
í The Producers lék í fyrsa sinn í
stóru hlutverki Gene Wilder sem síð-
an hefur leikið í mörgum mynda
Brooks og Wilder hefur sjálfur tekið
upp þráðinn og leikur og leikstýrir
gamanmyndum sem allar eru í anda
Mel Brooks.
Mel Brooks sýndi fljótt að hann er
ótrúlega frjór á hugmyndir. Hverjum
öðrum heföi dottið í hug að gera gam-
anmynd um Frankenstein, loft-
hræðslu og veraldarsöguna, sem
hann er að visu aðeins búinn að gera
fyrsta hlutann.
Þó má segja að hann hafl jafnvel
komið sínum höröustu aðdáendum
sínum á óvart þegar hann ákvað að
gera þögla kvikmynd sem hann kall-
aði einfaldlega The Silent Movie, en
sem fyrr vissi hann nákvæmlega
hvað hann var að gera, hann fékk
frægar stjömur til að leika í mynd-
inni og allir urðu forvitnir.
Þótt Mel Brooks sé þekktastur sem
háðfugl, þá er til önnur hlið á honum,
kvikmyndaframleiðandinn Mel
Brooks sem hefur gefið mörgum ung-
um mönnum tækifæri. Meðal
mynda, sem hann hefur framleitt,
eru The Elefant Man, sem leikstýrt
var af David Lynch, The Fly, leik-
stýrt af David Cronenberg, 84 Char-
ing Cross Road, leikstýrt af David
Jones og My Favorite Year sem var
fyrsta kvikmyndin sem leikarinn
Richard Benjamin leikstýrði.
Mel Brooks hefur í tuttugu og sex
ár verið giftur leikkonunni Anne
Bancroft og hefur hún leikið í mörg-
um mynda hans, oftast lítil hlutverk.
-HK
Peningar eru kannski ekki aöalat-
riðið í lífinu, en án þeirra er lífið
óþverri, segir Mel Brooks og vísar
þar með í nafnið á nýjustu kvikmynd
sinni, Life Stínks. Eins og oft áður
leikur hann sjálfur aðalhlutverkið,
milljarðamæringinn Goddard Bolt
sem ávarpar ókunnuga með að segja
að þeir megi kalla hann God (guð).
Brooks segir um Goddard Bolt að
hann sé maður sem á allt, en langar
samt í meira. Dag einn lætur Godd-
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Margir furðufuglar verða á vegi
milljarðamæringsins þar sem hann
dvelur meðal umrenninga. Rudy De
Luca og Mel Brooks í hlutverkum
sínum í Life Stinks.
ard plata sig í veðmál um að hann
geti lifað án peninga í þijátíu daga,
veðmál sem hann hefði betur látíö
eiga sig.
Bolt hefur aldrei lifað öðruvísi lífi
en að geta veitt sér allt. Hann fædd-
ist með silfurskeið í munninum og
hefur vanist því að hafa þjóna á
hveiju strái. Þegar hann er kominn
á götunna, peningalaus og í fatalörf-
um, er hann aðeins einn af strætis-
rónunum og rekur sig illilega á að
það er auðveldara að lifa þegar mað-
ur á peninga.
Ein manneskja meðal umrenning-
anna sem hann neyðist til að um-
gangast er kona að nafni Molly sem
verður til að hjápa honum í erfiðleik-
um hans og það er hún sem kennir
honum hvernig á að' komast af án
peninga. Það er hin kunna gaman-
leikkona Lesley Ann Warren sem
leikur hina strætísvönu Molly sem
um síðir nær aö kalla fram það besta
í fari Goddard Bolts.
Life Stinks er ekki alveg eins villt
gamanmynd og margar af þekktustu
myndum Brooks, má þar nefna Blaz-
ing Saddles, Young Frankenstein, To
Be or Not To Be og The Producers.
Mel Brooks eyddi æskuárum sín-
um í Brooklyn þar sem hann eyddi
miklum tíma í að fara 1 leikhús og
sóttist stíft eftir að fá vinnu viö slíkar
stofnanir. Og þessi sjálfmenntaði