Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Side 31
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991.
43
Afmæli
Skúli Jónsson
Skúli Jónsson, fv. bóndi og versl-
unarmaður, Grænumörk 3, Selfossi,
verður níræður á morgun.
Starfsferill
Skúli fæddist í Þórormstungu í
Vatnsdal, A-Hún„ og ólst þar upp til
6 ára aldurs. Þá fluttist hann með
foreldrum sínum að Undirfelli í
sama dal og bjó þar næstu 20 árin -
en fluttist síðan aftur að Þórormst-
ungu.
Þegar Skúli kvæntist árið 1939
settist hann að á Tindum í Svína-
vatnshreppi og bjó þar á parti á
móti tengdafóður sínum til ársins
1943. Þá fór hann aftur að Þórormst-
ungu og tók þar við búi foreldra
sinna.
Skúli gegndi margvíslegum trún-
arðarstörfum fyrir Áshrepp í
Vatnsdal. Hann sat í hreppsnefnd í
12 ár, í sáttanefnd í áratug og var
formaður lestrarfélags sveitarinn-
ar.
Árið 1959 brá Skúli búi og fluttist
til Selfoss. Þar var hann við verslun-
störf hjá Kaupfélagi Árnesinga til
1974. Eftir það vann hann um tíma
hjá Sláturfélagi Suðurlands og við
fisksölu hjá Straumnesi hf. Síðast
starfaði hann í 8 sumur sem um-
sjónarmaður ijómabúsins að
Baugsstöðum.
Fjölskylda
Skúli kvæntist 17.1.1939 Ástríði
Helgu Sigurjónsdóttur, f. 10.71909.
Foreldrar hennar voru Sigurjón
Þorláksson, bóndi og húsasmiður, á
Tindum í Svínavatnshreppi og kona
hans, Guðrún Erlendsdóttir.
Skúli og Ásta eiga einn son, Sigur-
jón, f. 16.5.1940, skrifstofustjóra
Heilsuhæhsins í Hveragerði,
kvæntur Arnþrúði Kristínu Ingva-
dóttur, verslunarmanni, þau eiga
þrjú börn: Bryndís, f. 5.1.1963, fóstra
í Kópavogi, gift Eðvarði Ingólfssyni
rithöfundi, eiga tvö börn; Skúli
Heimir, f. 24.11.1966, á eittbarn;
Ingvi Arnar, f. 10.3.1974.
Sytskini Skúla eru öll látin. Þau
voru Guðrún, húsfreyja í Chicago,
gift Páh Einarssyni byggingarmeist-
ara; Bjarni, fisksah í Boston í
Bandaríkjunum, var ókvæntur;
Hannes, alþingismaöur og kaupfé-
lagsstjóri, kvæntur Hólmfríði Jóns-
dóttur frá Húsavík; Snæbjöm, bóndi
á Snæringsstöðum, kvæntur Her-
dísi Guðmundsdóttur; Hólmfríður
Steinunn, húsfreyja á Undirfelli, gift
Hannesi Pálssyni bónda, þau skildu.
Ætt og frændgarður
Skúh var sonur Jóns, bónda á
Undirfelli, Hannessonar, bónda í
Forsæludal, Þorvarðarsonar, prests
á Breiðabólstað, Jónssonar, bróður
Friðriks, langafa Ólafs Ragnars
Grímssonar alþingismanns. Móðir
Jóns var Hólmfríður Jónsdóttir
stjarnfróða, bónda í Þórormstungu,
Bjarnasonar bónda á sama stað,
Steindórssonar, bróður Þorsteins,
föður Jón Thorstensens landlæknis.
Móðir Skúla var Ásta M. Bjarna-
dóttir, bónda í Þórormstungu, bróð-
ur Kolfmnu, móður Bríetar Bjam-
héðinsdóttur. Bjarni var sonur
Snæbjarnar, bónda í Forsæludal,
bróður Margrétar, móður Amljóts
Ólafssonar, prests á Bægisá. Önnur
systir Snæbjarnar var Helga, lan-
gamma Sigvalda Kaldalóns. Snæ-
björn var sonur Snæbjarnar, prests
í Grímstungu, Halldórssonar, bróð-
Skúli Jónsson.
ur Vilborgar, langömmu Guðna,
langafa Vigdísar Finnbogadóttur
forseta.
Hannes, bróðir Skúla, var móður-
afi Hólmfríðar Karlsdóttur fegurð-
ardrottningar, en Hólmfríður Stein-
unn systir þeirra var móðuramma
Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar lektors ístjórnmálafræöi.
Skúli og Ásta, kona hans, verða
stödd hjá vinum sínum í Húnaþingi
á afmælisdaginn.
Páll Guðbjartsson
Páll Guðbjartsson framkvæmda-
stjóri, Þórólfsgötu 20, Borgarnesi,
verður sextugur á sunnudaginn.
Starfsferill
Páll er fæddur á Láganúpi í V-
Barðastrandarsýslu og ólst þar upp.
Hann fékkst við almenn sveitastörf
sem barn og unglingur og sótti far-
skóla sem boðið var upp á í sveit-
inni. Páll lauk landsprófi frá Núps-
skóla 1950 og stundaði nám í aðal-
og framhaldsdeild Samvinnuskól-
ans í Reykjavík 1951-53. Að loknu
námi þar hélt Páll til ársdvalar í
Svíþjóð þar sem hann lagði stund á
verklegt nám sem lauk með versl-
unarstjóranámskeiði.
Páll starfaði hjá samvinnuhreyf-
ingunni til haustsins 1958 og vann
m.a. við bókhald útibús Kaupfélags
Stykkishólms í Grundarfirði í 3 ár.
Páll var starfsmaður Borgarnes-
hrepps í 4 ár og kennari í Samvinnu-
skólanum á Bifröst í 3 ár. Hann var
aðalbókari hjá Kaupfélagi Borgfirð-
inga í 7 ár og hefur verið fram-
kvæmdastjóri hjá Vímeti hf. í Borg-
arnesifrál972.
Páll hefur unnið endurskoðunar-
störf fyrir ýmsa aðOa. Hann var
prófdómari í Samvinnuskólanum og
í landsprófsdeild Grunnskólans í
Borgarfirði. Páll var formaður Ung-
mennafélags Grundarfjarðar og
Skallagríms í Borgamesi og hefur
auk þess tekið þátt í starfi ýmissa
félaga í Borgarnesi.
Fjölskylda
Páll kvæntist 15.7.1959 Herdísi
Guðmundsdóttur, f. 11.12.1930, fyrr-
um húsmæðrakennara á Varma-
landi, er nú rekur Múlakot, efna-
laug og þvottahús, í Borgarnesi.
Foreldrar hennar voru Guðmundur
Vilhjálmsson, bóndi á Syðra-Lóni
og kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi
Langnesinga á Þórshöfn, og Her-
borg Friðriksdóttir.
Páll og Herdís eiga þrjú börn og
hafa ennfremur alið upp dótturson
sinn, Snorra Pál. Þau eru Gréta
Þuríður, f. 19.1.1952, sérkennari, í
sambúð með Ægi Ellertssyni lög-
regluþjóni og eiga þau þrjú börn,
Atla Tý, Hjalta Snæ og Gunnhildi.
Gréta átti áður Snorra Pál Davíðs-
son; Herborg, f. 21.1.1960, hjúkrun-
arfræðingur, gift Sigurgrími Vern-
harðssyni, er rekur ílutningafyrir-
tæki, og eiga þau tvær dætur, Her-
dísi og Hildi; Einar Guðbjartur, f.
15.8.1965, vélvirki og nemi, kvæntur
Guðrúnu Jónsdóttur skrifstofu-
manni og eiga þau tvær dætur,
Nönnu og Grétu Sigríði.
Páll er yngstur tíu systkina en
fimm eru látin. Þau em Fríða, látin;
Einar, kaupfélagsstjóri, látinn;
Magnús, matsveinn, látinn; Halldór,
vélstjóri, látinn; Jón, látinn; Guð-
rún, húsmóðir; Ingvar, bóndi og
borstjóri; Össur, bóndi; Fríða, hús-
móðir.
Foreldrar Páls voru Guðbjartur
Guðbjartsson bóndi og Hildur
Magnúsdóttir, en þau bjuggu lengst
af á Láganúpi í V-Barðastrandar-
sýslu.
Páll tekur á móti gestum á heimili
sínu á afmælisdaginn.
Bjamey Þuríður
Runólfsdóttir
Bjamey Þuríður Runólfsdóttir,
starfsm. Skattstofu Reykjavíkur,
Fiskakvísl 1, Reykjavík, verður fer-
tugásunnudaginn.
Fjölskylda
Bjarney giftist 2.12.1979 Braga
Ágnarssyni, f. 3.7.1955, matreiðslu-
meistara. Foreldrar hans: Agnar
Símonarson, látinn, var starfsm. hjá
Kassagerð Reykjavíkur, og Freyja
Jóhannsdóttir.
Bjarney og Bragi eiga tvo börn.
Þau eru Sigríður Drífa, f. 13.8.1972,
og Agnar Bragi, f. 18.12.1977.
Bjarney á tvö systkini. Þau eru
Ragnheiður, f. 8.12.1944, gift Snorra
Björnssyni, bónda á Kálfafelli í V-
Skaftafellssýslu, en þau eiga 3 böm;
Jón Skúli, f. 7.1.1947, starfsm. hjá
útgáfufyrirtæki, búsettur á Akur-
eyri.
Foreldrar Bjarneyjar eru Runólf-
ur Jónsson, f. 13.3.1913, var starfsm.
hjá Pósti og síma, og Arnþóra Sigf-
úsdóttir, f. 25.8.1906, en þau bjuggu
lengst af í Gnoðarvogi 22, Reykjavík.
Bjarney tekur á móti gestum á
heimili sínu á afmælisdaginn eftir
kl. 17.
Bjarney Þuriður Runólisdóttir.
Klara J. Hall.
Klara J. Hall
Klara J. Hall, Hátúni lOa, Reykja-
vík, verður áttræð 5. ágúst næst-
komandi.
Starfsferill
Klara er fædd að Blönduósi og ólst
þar upp. Hún flutti til Reykjavíkur
1939. Eftir lát manns síns, 1945, fór
hún að starfa utan heimilis, lengst
af í Þvottahúsinu A. Smith.
Fjölskylda
Klara giftist 1934 Karli Theodóri
Hall, f. 3.6.1911, en hann lést 1945.
Klara og Karl áttu tvö börn sem
em: Kristján, f. 2.41935, skrifstofu-
maður í Reykjavík, kvæntur Eddu
Konráðsdóttur og eiga þau sex börn
og þrjú bamaböm; Jakobína, f. 19.6.
1936, húsmóðir á Flórída, gift An-
tony Iagnessa og eiga þau þrjú börn
ogtvö bamaböm.
Klara átti tíu systkini.
Foreldrar hennar vom Jakob Lár-
usson trésmiður og Guðný Hjartar-
dóttir. Þau bjuggu lengst af á
Blönduósi.
Klara tekur á móti gestum í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58, á afmælisdaginn klukkan 19.00-
22.00.
Ágústa Tómasdóttir,
Lögbergsgötu 7, Akureyri,
Hofteigi22, Reykjavík.
Gísli Jónsson,
Efstaleiti 14, Reykjavík.
Helgi Victorsson,
Drápuhlíð 37, Reykjavík.
80ára
Soffía Sigurðardóttir,
Hrauntungu 65, Kópavogi.
Klara Guðlaugsdóttir,
Kleppi við Kleppsveg, Reykjavík.
Böðvar Guðmundsson,
Bröttukinn6, Haöiarfirði.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Skólavegi 15, Fáskrúðsfirði.
Haiidór Ásgrimsson,
Minniborg, Miklaholtshreppi.
Þórarinn Guðlaugsson,
Greniteigi ll.Keflavík.
Gisela Guðmundsdóttir,
Silfurbraut 12, Höfn í Hornaílrði.
Guðmundur Guðlaugsson,
Elín Ebba Skaftadóttir,
Fellsmúla 7, Reykjavík.
Sigrún Sigfúsdóttir,
Múlavegi 12, Seyðisfirði.
Sigríður Helgadóttir,
Jörundarholti 164, Akranesi.
Díana Sjöfn Helgadóttir,
Tungusíðu 15, Akranesi.
Björn L. Einarsson,
Hjaltabakka22, Reykjavík.
Guðrún Katrín Konráðsdóttir,
Böggvisbraut 11, Dalvik.
Bjarki Tryggvason,
Furuhlið 8, Sauðárkróki.
Magný Jóhannesdóttir,
Dalseli 1, Reykjavík.
Guðriður Gyða Halldórsdóttir,
Lynghrauni 8, Mývatnssveit.
Axel Björnsson,
Lindarhvammi 2, Hafnarfirði.
Pétur Símonarson
Pétur Símonarson rafvélavirki,
Austurbrún 31, Reykjavík, verður
áttræður þann 4. ágúst næstkom-
andi.
Starfsferill
Pétur fæddist að Þingvöllum og
ólst upp í foreldrahúsum í Vatns-
koti í Þingvallasveit. Hann fluttist
þaðan 1936 er hann heldur til náms
í Kaupmannahöfn. Hann fór í nám
í rafvélasmíði á Títan í Kaupmanna-
höfn. Pétur bjó í Danmörku í átta
ár en hélt þá heim og fór að vinna
við rafvélavirkjun hjá Rönning hf.
Pétur setti upp eigið verkstæði
1960 og árið 1972 setti hann á stofn
fyrirtækið Plastiðn - Pétur Símon-
arson - og vinnur hann við það enn.
Pétur hefur verið mikill áhuga-
maður um íþróttir. Hann hefur ver-
ið mikið á skíðum og hefur einnig
flogið mikið.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 6.6.1942 Fríðu Ólaf-
dóttur ljósmyndasmið. Hún vann í
mörg ár hjá Kódak í Kaupmanna-
Pétur Simonarson.
höfn.Húnerlátin.
Péturáenginbörn.
Systkini hans eru: Katrín, Helga,
Sveinborg og Aðalsteinn.
Foreldrar Péturs voru Símon Pét-
ursson, f. 2.2.1882, d. 1966, bóndi og
húsasmiður, og Jónína Sveinsdóttir,
f. 7.12.1887, d. 1957. Þau bjuggu
lengst af í Vatnskoti í Þingvallasveit.
Pétur verður að heiman á afmæl-
isdaginn.