Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Síða 34
;uM .s sraaAgurgö'í
JÐAGUR -2.-AGUST-1991.
íl
• 46
Helgarpopp
- stórtjón á hljóðfærum og sviðsbúnaði og fjöldi manns slasaðist
Sextíu manns slösuðust á hljóm-
leikum rokksveitarinnar Guns N’
Roses í hljómleikahöll skammt frá
St. Louis í Bandaríkjunum. Skemmd-
ir á húsinu eru metnar á sem nemur
um þrettán milljónum íslenskra
króna. Talsmenn hljómsveitarinnar
skella alfarið skuldinni á lélega ör-
yggisgæslu og slaka frammistöðu
tónleikahaldarans og undirverktaka
hans. Hinir segja að Axl Rose, söngv-
ari Guns N’ Roses, hafi æst til óláta
og því hafi farið sem fór.
Hljómleikarnir voru haldnir 2. júlí
síðastliðinn. Þegar um níutíu mínút-
ur voru liðnar af hljómleikunum
krafðist Rose þess af öryggisvörðum
að þeir tækju myndavél af einum
tónleikagestanna. Þegar þeir urðu
-
ekki við því nógu fljótt tók söngvar-
inn það að sér sjálfur. Við það tryllt-
ist mannskapurinn viö sviðið. Er
öryggisverðimir höfðu bjargað Rose
úr manngrúanum og komið honum
upp á svið slengdi hann hljóðnema
sínum í sviðið og gekk út.
Við það virðist sem öllum árum
vítís hafi verið hleypt lausum. Æstur
múgurinn réðst á öryggisgirðingar,
ljósaturna og tvo videoskjái. Fjöldi
manns tróðst upp á svið og skemmdi
magnara og annan útbúnað. Vegna
skemmdanna varð Guns N’ Roses að
aflýsa hljómleikum í Chicago 4. júlí
og í Kansas tveimur dögum síðar.
Það var ekki fyrr en í Dallas þann
Umsjón
Ásgeir Tómasson
Guns N’ Roses. - Nóg af erfiðleikum í nýhafinni hljómleikaferð um Bandaríkin.
níunda að búið var að koma búnaðin-
um í samt lag að nýju.
Lögregla er enn að rannsaka þetta
atvik. Enn hefur ekki verið ákveðið
hvort hljómsveitin verður kærð
vegna þessa. Talsmenn sveitarinnar
bera af sér allar sakir og segja að
allt hafi verið í ólestri við fram-
kvæmd hljómleikanna. Ölvun hafi
verið allt of mikil og fólk hafi sloppið
inn með flöskur, dósir, hnífa og
myndavélar. Þá hafi mótorhjóla-
gengi gert usla í áhorfendahópnum.
DuffMcKagan bassaleikari mun tví-
vegis hafa orðið fyrir því að flösku
var kastað í hann.
Guns N’ Roses er nú á hljómleika-
ferð tíl að kynna plötur sínar sem
báðar nefnast Use Your Illusion. Þær
áttu að koma útí júlí. Útgáfunni hef-
ur hins vegar verið frestað um óá-
kveðinn tíma vegna ágreinings um
samningsatriði. Axl Rose hefur látið
hafa það eftir sér að jafnvel geti svo
farið að plöturnar komi aldrei út.
Allt tryllt á Guns 'N
Roses tónleikum
Aldrei aftur dr. Hook
- Dennis Lacorriere söngvari er kominn fram á sjónarsviðið að nýju
Dennis Lacorriere var farinn að sakna þess að eiga hvergi heima og fá
aldrei póst eins og annað fólk.
Skýringin á því hvers vegna söng-
urinn hjá hljómsveitinni Dr. Hook
var ekki alveg í lagi er sveitin kom
hingað til lands í fyrra er einföld.
Gamh söngvarinn var ekki með.
Margir héldu að karlinn með lepp-
inn, Ray Sawyer, hafi verið aðal-
söngvari Dr. Hook. Sá rétti heitir
Dennis Lacorriere og hann er kom-
inn fram á sjónarsviðið að nýju.
Lacorriere sagði nýlega í blaðavið-
tali að hann hefði alveg hvílt sig á
tónlist í sex ár eftir að hann hætti í
Dr. Hook. „Sonur minn hringdi og
spurði hvort hann mættí búa hjá mér
og ég gat auðvitað ekki neitað honum
um það,“ segir hann. „Ég þurfti því
að hugsa meira um það hvort til
væri ostur í ísskápnum en hvort ég
ættí að berja saman lag og reyna að
verða mér úti um hljómplötusamn-
ing. Það var vissulega gaman að fá
loksins að kynnast því að lifa lífmu
eins og venjulegur maður.“
Dennis Lacorriere gekk í Dr. Hook
er hann var nítján ára og fram til 35
ára aldurs var hann með hljómsveit-
inni á ferðalögum í yfir þrjú hundruð
daga á ári. Flestir hinir dagamir fóru
í að taka upp hljómplötur. Hann seg-
ist hafa verið farinn að sakna þess
verulega undir það síðasta að eiga
hvergi heima og hann langaði ekkert
tíl að enda sem fimmtugur raupari
sem héngi við barinn og segði frægð-
arsögur af sér frá „gömlu, góðu“ dög-
unum.
En eigi að síður er Dennis Lacorri-
ere kominn frám á sjónarsviðið að
nýju. Nú er hann einn síns liðs með
kassagítarinn og segir það gott að
vera einn.
„Ef ég slæ vitlausan hljóm þá geri
ég það bara aftur fjórum töktum síð-
ar og þá er komin ný útsetning," seg-
ir hann. Á efnisskránni eru ný lög
og gömul. Þau gömlu eru að sjálf-
sögðu frá Dr. Hook tímanum en ekki
endilega þau vinsælu. Sum bestu lög-
in okkar fóru fram hjá þeim sem
völdu hvað áttí að verða vinsæl og
hvað ekki og eru því svotil alveg
óþekkt."
Dennis Lacorriere hefur ekki
plötusamning, segist ekki hafa leitað
eftir honum og þykist ekki hafa hug-
mynd um hvort einhver tilboð hafi
borist. Hann söng dúett með Crystal
Gayle fyrir nokkru og hefur einnig
samið lög fyrir nokkra kántríhsta-
menn, meðal þeirra Randy Travis.
„Ég hugleiddi um tíma að fást ein-
göngu við lagasmíðar en svo fannst
mér svo gaman að syngja þau inn á
spólur fyrir útgáfurétthafana að ég
ákvaö að draga fram kassagítarinn
og byria að spila og syngja á ný,“
segir Lacorriere.
Hann ætlar ekki að taka þátt í að
endurreisa gömlu Dr. Hook hljóm-
sveitína. Segir alla hafa skilið í mesta
bróðemi og þorir ekki að hætta þeim
vinskap með því að standa fyrir því
að hljómsveitin komi saman á ný.
„Við hefðum í raun og veru átt að
hætta árið 1983 í staðinn fyrir ’84,“
segir Lacorriere. „Ég var orðinn
dauðleiður á ferðalögum en þorði
ekki að segja hinum að ég vildi
hætta. Svo loksins þegar ég gat stun-
ið því upp brugðust allir vel við og
virtust dauðfegnir að einhver stingi
upp á að við hættum. Þannig eyddum
við í raun og veru heilu ári til einsk-
is!“
33 V
Steely Dan-
menn sam-
anáný
Man nokkur lengur eftir tveim-
ur náungum sem heita Donald
Fagen og Walter Becker? Jú, þeir
héldu úti hljómsveitinni Steely
Dan hér í gamla daga og þóttu
nokkuð góöir. Þeír Fagen og
Backer eru nú farnir að vinna
saman á ný eftir margra ára hlé.
Hins vegar stendur ekki til að
endurreisa Steely Dan sem var
lögð niður fyrir tíu árum.
Walter Becker segist nú ein-
ungis vera upptökustjóri hjá
Donald Fagen. Sá síðarnefndi
sendi frá sér plötuna Nightfly
árið 1982, Platan hlaut afar góða
dóma víðast hvar. Þykir vafa-
laust ýmsum tími kominn til að
henni veröi fylgt eftir. Walter
Becker vegnaði hins vegar afleit-
lega á tónlistarsviðinu eftír að
samstarö þeirra tveggja lauk.
Það verður því forvitnilegt að
heyra hvað kemur út úr sam-
starfi fornvinanna. Hins vegar
hefur ekkert verið tílkynnt um
hvenær platan komi út.
Natalie Cole sannar það með
plötunni Unforgettable að lög
föður hennar eru ekki gieymd.
NatKing
Cole lögin
slá í gegn
aðnýju
Það er ekkert nýmeti sem mest
selda stóra platan í Bandarikjun-
um hefur að geyma. Þetta eru
gamalkunnir sígrænir smellir
sem Nat King Cole gerði vinsæla
á funmta og sjötta áratugnum.
Hann er hins vegar ekki flytjand-
inn heldur dóttir hans, Natalie
Cole.
Unforgettable heitir plata þessi
sem hefur slegið svo rækilega í
gegn. Titillag plötunnar er að
auki á hraðferö upp lista lítilla
platna. Þar hefur gömlu og nýju
verið blandað saman á listilegan
hátt þannig að feðginin syngja
lagið saman rétt eins og þau hafi
verið stödd í hljóðveri saman.
Reyndin er hins vegar sú aö Nat
King Cole lést árið 1965 er dóttir
hans var nýorðin flmmtán ára.
Með plötunni Unforgettable
segir Natahe Cole að hún vilji
votta föður sínum viröingu og
sína honum þakklæti fyrir allt
gamalt og gott. Þessi virðingar-
vottur virðist falla fólki vel í geð
því að engin hljómplatna Natalie
hefur oröið jafnvinsæl og Unfor-
gettable. Og lög Nat King Cole
hafa ekki verið jafnofarlega á vin-
sældalista síðan 1957 er platan
Love Is The Thing fór í efsta sæt-
iö.