Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 37
49
FÖSTÚöXdOR 2? ÍgÚST 1991.
Heilsubót gegn her
Þegar Samtök herstöðvaand-
stæðinga ákváðu í vor að fara af
stað með Keflavíkurgöngu sögðu
ýmsir við okkur: „Hvað eruð þið
að æsa ykkur yfir þessum her,
hann er hvort sem er að fara og
engin ástæða fyrir friðarsinna til
að hafa áhyggjur af honum leng-
ur.“
Þróun mála síðustu vikur hefur
staðfest að það er vissulega þörf á
andófi gegn hemum og Nató. Stöð
2 hefur skýrt frá gögnum sem
benda til þess að Natóskip með
kjamorkuvopn hafi komið hingað
á áttunda áratugnum og að engan
veginn sé tryggt að stefna íslands
um kjarnorkuvopnaleysi sé virt.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins hefur reyndar gengið svo langt
að segja að það hafi ekki verið fyrr
en 1985 með yfirlýsingu Geirs Hall-
grímssonar, þáverandi utanríkis-
ráðherra, sem Natórókjunum varð
ljóst að hingað mætti alls ekki
koma með kjamorkuvopn á skip-
um. Manni er því spum: „Er búið
að gera hernum grein fyrir að sama
bann gildir um flugvélar sem koma
í herstöðina í Keflavík?"
Heræfingin Norður-
víkingur 91
Um miðjan júlí sl. kom síðan til-
kynning um heræfingamar sem nú
fara fram. Þær staðfesta að þrátt
fyrir samdrátt í herafla stórveld-
anna í Evrópu og slökun spennu
er ekki ætlunin aö draga saman
seglin hér svo neinu nemi. Æfing-
amar eru vítækari en verið hefur
undanfarin ár, hingað eru komnir
1000 hermenn og láta þeir sér ekki
nægja að æfa við herstöðina heldur
eru þyrluæfingar og liðsflutningar
um allt land.
Hér er mjög nauðsynlegt að
spyrna við fótum. Heræfingar eru
hvergi vinsælar og því víða mikill
þrýstingur á stjómvöld að banna
þær. Ef hemum er réttur litli fing-
urinn í þessum efnum er nær ör-
uggt að hann verður búinn að
gleypa alla höndina áður en varir.
Herinn umhverfisvæni
í tengslum við heræfingamar
hefur verið reynt að fegra herinn
mjög í augum almennings, m.a.
KjáUarinn
Ingibjörg Haraldsdóttir
formaður Miðnefndar SHA
með þvi að setja af stað mikla fjölm-
iðlasýningu á hreinsunarátaki á
Straumnesfjalli. Reyndar er það
átak greitt af íslenskum skattgreið-
endum, þótt herinn hafi léð þyrlm-
og mannskap til aðstoðar. - Tveir
ráðherrar Alþýðuflokksins voru í
aukahlutverkum á fjallinu þótt lítt
sæist í þá fyrir þoku.
En þessi tilraun hersins til að
sýnast umhverfisvænn hefur ein-
ungis beint sjónum fólks enn frek-
ar að þeirri mengun hérlendis sem
má rekja beint til hans. Nægir þar
að nefna mengunina á Heiðarfjalli
og ónýt vatnsból á Suðurnesjum.
Hreinsun á yfirborðsrusli frá rat-
sjárstöð 30 árum eftir að hætt er
að nota hana bendir ekki til að
skjótra viðbragða sé að vænta úr
þeirri átt ef alvarleg slys verða á
umhverfi vegna hernaðartóla á
landi eða við strendur landsins.
Komum í Keflavíkurgöngu
Með Keflavíkurgöngunni 10. á-
gúst gefst fólki tækifæri til aö lýsa
yfir andúð sinni á heræfingunum
og á öllu brölti hersins. Gangan er
farin undir kjörorðinu: „í átt til
afvopnunar" og er ætlað að vera
hvatning tfi íslendinga til að senda
bandaríska herinn héðan, hætta
þátttöku í hernaðarbandalaginu
Nató, banna heræfingar á landinu
og beita sér í alvöru fyrir afvopnun
á höfunum.
Margir halda að það sé erfitt að
ganga alla leiðina frá hhði her-
stöðvarinnar í Keflavík og niður á
Lækjartorg og aðeins á færi þaul-
vanra göngugarpa en það er alger
misskUningur. Keflavíkurganga er
fyrir alla. Aðalatriðið er að vera á
góöum skóm. Rúta fylgir göngunni
svo hægt er að láta Uða úr þreyttum
fótum áður en haldið er áfram.
Læknir og sjúkraþjálfari verða
með í ferð og gefa góð ráð til göngu-
manna.
Sérstök hjóladeUd verður fyrir
þá sem það kjósa. Nokkrir áningar-
staðir eru á leiðinni þar sem boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá.
Það verður því líf og fjör allan dag-
inn og mikið sungið. Þeir sem eru
bundir við vinnu fyrri hluta dags
geta tekið þátt í Keflavíkur-
göngunni með því að koma tfl móts
við hana og verða rútuferðir aug-
lýstar síöar. Göngunni lýkur síðan
með fundi á Lækjartorgi um dukk-
an 22 um kvöldið. Ég vil hvetja alla
sem vilja leggja lið kröfunni um
herlaust, hlutlaust ísland að koma
með og hjálpa þannig til að opna
augu íslenskra ráðamanna sem
virðast vera alveg frosnir í viðjum
kalda stríðsins.
Ingibjörg Haraldsdóttir
„í tengslum við heræfingarnar hefur
verið reynt að fegra herinn mjög í aug-
um almennings, m.a. með því að setja
af stað mikla fjölmiðlasýningu á
hreinsunarátaki á Straumnesfjalli.“
Andlát
Valgerður Þorbergsdóttir, Króka-
túni 11, Akranesi, er látin.
Ragnheiður Sigurðardóttir, Hring-
braut 36, Hafnarfirði, er látin.
Ingólfur Nikódemusson, Freyjugötu
3, Sauðárkróki, er látinn.
Margrét ívarsdóttir lést þann 31. júlí
sl.
Jarðarfarir
Margrét Kristín Hermannsen, frá
Ásbyrgi, Vestmannaeyjum, sem lést
30. júlí sl., verður jarðsungin í West
Sussex, Englandi, 4. ágúst nk.
Ragnar Skagfjörð Jónsson, Mainz,
Þýskalandi, lést 14. júlí sl. Útfórin fer
fram frá Áskirkju þriðjudaginn 6.
ágúst kl. 13.30.
Stefán Kristjánsson, Ysta-Koti í V-
Landeyjum, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju laugardaginn 3.
ágúst kl.14.
Magnús Sigurður Markússon, Blá-
hömrum 4, verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju fimmtudaginn 8.
ágúst kl. 15.
Guðleifur Sigurðsson múrarameist-
ari lést 24. júlí sl. Guöleifur fæddist
á Akranesi 9. júlí 1918, elstur sjö syst-
kyna frá Lundi, Akranesi. Guðleifur
kvæntist eftirlifandi konu sinni,
Margréti Einarsdóttur, árið 1944 og
eignuöust þau þrjú börn. Guðleifur
lauk námi í múraraiðn en hafði áður
stundaö nám í Sjómannaskólanum.
Hann starfaði í Sementsverksmiðj-
unni frá þvi hún var byggð allt til
ársins 1989 að hann hætti fyrir ald-
urs sakir. Útfor Guðleifs fer fram í
dag, fóstudag, frá Akraneskirkju kl.
11.
Oddrún Ólafsdóttir, Helena J. Jens-
dóttir og Helen Dögg Karlsdóttir heita
þessar broshýru stúlkur sem söfnuðu
1.000 kr. með blómasölu og gáfu til Rauða
Kross íslands.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Á laugardagsmorgun leggja Göngu-
Hrólfar af stað frá Hverfisgötu 105 kl. 10.
Safnaðarstarf
Hallgrimskirkja. Fyrirbænaguðsþjón-
usta þriðjudag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Tapaðfimdið
Köttur tapaðist frá Nátthaga í Ölfus-
hreppi sl. fimmtudag. Síamsblanda með
svartbröndótt skott, svart á fótum og
trýni, stór með Ijósblá augu. Upplýsingar
í s. 98-33509.
Tilhamingju
Þann 6. júlí voru gefm saman í hj onaband
brúðhjónin Margrét Gylfadóttir og
Ólafur Sveinsson til heimilis að Hlíðar-
hjalfa 61.
Myndgáta
■V—wv
© 099
Myndgátan hér að ofan
lýsir orðatiltæki.
Lausn gátu nr. 93:
Spottakom
Þessar hressu dömur héldu þlutaveltu rún Andrea Vilhelmsdothr. Einnig var
og söfnuðu 2.221 kr. Þær heita frá vinstri: bróðir Sigrúnar, Páll Þór, með en kom
Hildur og Valný Aðalsteinsdætur og Sig- ekki í myndatökuna.
Þessar duglegu
styrktar Rauða krossi íslands vegna flóð-
anna í Kína. Þær heita, tahð frá vinstri:
Vilborg Hallgrímsdóttir. Alls söfnuðust
kr. 3.172,00.
Rauði Kross íslands hefur móttekið kr. mundsdóttir, Ragnheiður Haraldsdóttir
638 frá þessum myndarlegu stúlkum, þær og Nancy Rut Helgadóttir.
heita talið frá vinstri: Siguriaug Guð-