Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Side 43
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991.
55
Veiðivon
Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi:
Þrítugasti lax sum-
arsins kominn á land
„Bleikjan tekur fluguna skemmti-
lega og þaö er mikið af bleikjum í
lækjunum en hún mætti vera
stærri," sagöi Guömundur Stefán
Maríasson á bökkum Miðár á vatna-
svæði Lýsu í fyrrdag er hann haföi
landað 25 bleikjum. Flestar tóku
bleikjurnar Tel and Black hjá Guð-
mundi. En það voru til stærri bleikj-
ur og Guðmundur setti í eina slíka.
„Þetta var um tveggja punda bleikja
sem tók fluguna en sleppti henni
strax,“ sagði Guðmundur ennfrem-
ur.
Nóg er af silungi í læknum á milli
vatnanna á vatnasvæði Lýsu en þeir
Hann Kristófer Magnússon veiddi þrítugasta laxinn á vatnasvæði Lýsu þetta sumarið og hér heldur hann á fiskin-
um stuttu eftir löndun hans.
Umsjón
Guðmundur Stefán Maríasson með
8 af 25 bleikjum sem hann veiddi á
vatnasvæði Lýsu í fyrradag, flestar
á Tel and Black.
DV-myndir G.Bender
Gunnar Bender
eru heldur smáir. Þó sást einn og
einn tveggja og þriggja punda.
Þennan dag sem við vorum við
veiðar í Lýsu kom lax númer 30 á
land og veiddi veiðiklóin Kristófer
Magnússon hann í Laxárvatni.
Það sáust laxar á svæðinu en þeir
tóku illa, flestir veiðimenn reyndu
samt viö þá en einn og einn var í sil-
ungnum. Veitt er á 10 stangir á vatna-
svæði Lýsu og kostar stöngin 3.600
krónur yfir daginn.
-G.Bender
Halláin öll að koma til
- síðasta holl veiddi 7 laxa
„Veiðin er öll að hfna við í Hallá
og síðasta holl veiddi 7 laxa, sá
stærsti var 14 pund og hann veiddi
Eggert Jónsson frá ísafirði," sagöi
Bjami Jóhannsson á ísafirði er við
spurðum um Hallá í Austur-Húna-
vatnssýslu.
„Það var hellingur af laxi að koma
á hveiju flóði svo að veiðin ætti að
batna verulega næstu dagana. í Ós-
hylnum sást mikið af nýjum fiski og
laxamir sem komnir eru á land núna
eru 30. Smálaxinn er farinn að mæta
í ríkari mæli,“ sagði Bjarni og sagð-
ist ætla að renna fyrir lax í Hallá
innan tíðar.
-G.Bender
VERSLUTMMANIWIELQiri
OPIÐ
Smáauglýsingadeild
Opiö í dag, föstudag,
til kl. 22.
Lokað laugafdag, sunnudag
og mánudag.
Næsta blaö kemur út
þriðjudaginn 6. ágúst.
Akið varlega og góða ferð!
smáauglýsingadeild
Þverholti 11 - Sími 27022
Fjölmiðlar
EFST Á BAUGI:
Sú saga er til að eitt sinn hafi
danskur maður verið hér á ferð i
viðskiptaerindum. Eins og gengur
horfði hann á sjónvarpsfréttir án
þess svo mikið sem skiija orð. Eftir
nokkra daga hafði hann orö á því
hvað þessi Ijóshærði væri góöur
fréttamaður. Sá danski var að tala
um Ólaf Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra, svo oft var Ölafur á skján-
um.
í vor var skipt um ríkisstjóm. Þá
hættu ekki aðeins ellefu ráðherrar
í stjórnarráðinu beldur var í leið-
inni skipti um ellefu fréttamenn hjá
sjónvarpsstöðvunum.
Þeir ráðherrar, sem mest hafa
haft sig í frammi að undanfómu í
íréttamennskunní, em Sighvatur
Björgvinsson tieilbrigöisráðherra
og Eiður Guðnason umhverflsráö-
herra.
Stundum kemur það fyrir að sami
ráöherrann tjáir sig um fleira en
eitt atriði í fréttatímanum. Sjón-
varpsgengið hefur þá komist í feitt,
náð að króa ráöherrann af og látið
myndavélina ganga.
Égheld að sami ráðherrann hafi
eitt sinn náð því aö vera þrísvar
sinnum í sama fréttatímanum að
tala um sitt málefniö í hvert sinnið.
Auk þess voru í sama fréttatíman-
um aðrir ráöherrar að tala um önn-
urmál.
Þegar viðtöl við ráðherra eru
uppistaðan í kannski fjórum til
fimm fréttum að jafnaði af um níu
til tíu fréttum í fréttatíma er eðlilegt
að viö fjölmiðlamenn spyrjum hver
annan hvort við séum á réttri leið.
Stöðvamar eru ekki einar um of-
notkun á ráðherrum heldur dag-
blöðinlíka.
Égbyði ekki í ef ráðherramir færu
allir í sumarfrí í einu og með þeim
þeir Þórarinn Viðar, Guðmundur
Jaki, Ögmundur, Einar Oddur,
Kristján Ragnarsson og aðrir ktmn-
ir fréttamenn á stöðvunum. Sjón-
varpsfréttir yrðu örugglega lagðar
niður því það væri ekkert aö frétta.
Svo ætla ég aö hlusta á Umferðar-
ráð og láta ráðherrana segja mér
hvernig ég á að aka um helgina.
Jón G. Hauksson
isi.i:\siv\
ALFRÆÐI
ORDABOKIX
Atlantshafsbandalaglð (e. North Atlantic
Treaty Organization, NA TO, fr. Organisation
du Traitédel’AtlantiqueNord, OTAN)\ banda-
lag, stofnað 1949 á grundvelli Norður-Atlants-
hafssamningsins af ótta við hernaðarstyrk Sov-
étr. Stofnaðilar A voru 12 riki, Bandar., Belgía,
Bretl., Danm., Frakkl., Holl., Ísl., Ítalía,
Kanada, Lúxemborg, Noregur og Portúgal.
Árið 1952 bættust Grikkl. og Tyrkl. í hópinn,
1955 V-Þýskal. og 1982 Spánn. Helstu stofnan-
ir A eru Norður-Atlantshafsráðið, með einn
fulltrúa frá hveiju aðildarríki, og Hemaðar-
nefndin þar sem vamarmálaráðh., aðildarríkja
sitja. Frakkar hættu þátttöku í Hernaðarnefnd-
inni 1966. Harðar deilur urðu á ísl. 1949 um
það hvort ganga skyldi í A og róstur urðu á
Austurvelli þegar atkvæðagreiðsja um aðildina
fór fram á Alþ. 30. mars 1949. í fyrstu var öll
áhersla lögð á hermál en frá 1956 hefur einnig
verið Ijallað um stjóm- og efnahagsmál. Árið
1957 var skipuð nefnd innan A til að örva vís-
inda- og tæknisamstarf. Aðalstöðvar A vom i
Paris til 1967 en voru þá fluttar til Bmssel og
Hemaðamefndin flutti þangað sama ár fra
Washington D.C.
[§ fáni VIII.
Veöur
Austlæg án, vlðast gola en kaldi syðst á landinu og
norðaustankaldi norðvestanlands siðdegis. Rigning
eða súld verður á Suðausturlandi, skúrir suðvestan-
lands, skýjað með köflum á Vestur- og Norðvestur-
landi en bjartviðri norðaustanlands. Hlýn verður í
veðri, einkum i innsveitum þar. A hálendinu má bú-
ast við austan eða norðaustangolu eða kalda Skýjað
og skúraleiðingar sunnan jökla en bjartara á afrénum
norðanlands.
Akureyri skýjað 11
Egilsstaðir mistur 12
Keflavikurflugvöllur mistur 12
Kirkjubæjarklaustur skúrir 13
Raufarhöfn heiðskirt 10
Reykjavik þoka 12
Vestmannaeyjar mistur 13
Helsinki skýjað 19
Kaupmannahöfn skýjað 18
Úsló skýjað 19
Stokkhólmur skýjað 22
Þórshöfn súld 12
Amsterdam þoka 16
Feneyjar þokumóða 18
Glasgow mistur 15
London þokumóða 15
LosAngeles þokumóða 17
Lúxemborg léttskýjað 15
Montreal léttskýjaö 19
Nuuk þoka 9
Paris hálfskýjað 16
Róm heiðskirt 19
Valencia reykur 20
Winnipeg alskýjað 15
Gengið
Gengisskráning nr. 145. - 2. ágúst 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 61,690 61,850 61,720
Pund 103,084 103,351 103,362
Kan. dollar 53,646 53,785 63,719
Dönsk kr. 9,0554 9,0789 9,0999
Norsk kr. 8,9744 8,9977 9,0155
Sænskkr. 9,6617 9,6868 9,7044
Fi. mark 14,5547 14,5924 14,5996
Fra. franki 10,3117 10,3385 10,3423
Belg. franki 1,7011 1,7055 1.7089
Sviss. franki 40,1366 40,2407 40,3004
Holl. gyllini 31,0898 31,1705 31,2151
Þýskt mark 35,0422 35,1331 35,1932
It. lira 0,04692 0,04704 0,04713
Aust. sch. 4,9796 4,9925 4,9998
Port. escudo 0,4085 0,4095 0,4101
Spá. peseti 0,5600 0,5615 0,5616
Jap. yen 0,44812 0,44928 0,44668
Irskt pund 93,676 93,919 94,061
SDR 82,0310 82.2438 82,1172
ECU 71,9460 72,1326 72,2463
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
Þann 1. ágúst seldust alls 83,840 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Grálúða 0,375 20,00 20,00 20,00
Karfi 0,047 37,00 37,00 37,00
Keila 0,052 20,00 20,00 20,00
Langa 0,193 20,00 20.00 38,00
Lúða 0,963 278,95 272,00 300,00
Skarkoli 0,929 69,91 65,00 85,00
Steinbitur 1,001 63,20 20,00 69,00
Þorskur.sl. 48,703 73,84' 20,00 87,00
Smáþorskur 3,108 20,00 20,00 20,00
Ufsi 27,038 29,97 5,00 34,00
Undirmálsf. 1,449 11,00 11,00 11,00
Ýsa.sl. 5,344 107,29 50,00 137,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
Þann 1. ágúst seldust alls 7,742 tonn.
Skarkoli 4,403 73,00 73,00 73,00
Sandkoli 0,197 32,00 32,00 32,00
Ufsi 0,389 21,69 10,00 30,00
Steinbítur 0,429 50,00 50,00 50,00
Skötuselur 0,036 465,00 465,00 465,00
Lúða 0,098 301,12 300,00 350,00
Blálanga 0,184 31,00 31,00 31,00
Ýsa 0,198 24,60 15,00 40,00
Undirmálsf. 0,266 65,00 65,00 65,00
Karfi 0,595 40,31 40,00 42,00
Þorskur 1,213 69,52 30,00 76,00
Fiskmarkaðurinn á 1. ágúst seldust alls 8,237 tonn. ísafirði
Þorskur 6,656 81,00 81,00 81,00
Grálúða 0,881 67,00 67,00 67,00
Ýsa 0,700 81,00 81,00 81,00
Fiskmarkaðurinn í Hafnarfiröi
1. ágúst seldust alls 23,734 tonn.
Ýsa 0,545 81,70 40,00 85,00
Ufsi 0,837 40,00 40,00 40,00
Þorskur 18,743 89,38 81,00 94.00
Steinbitur 1,535 64,66 62,00 67,00
Lúða 0,168 322,32 310,00 400,00
Langa 0,252 47,00 47,00 47,00
Koli 0,517 75,00 75,00 75,00
Karfi 1,137 48,94 48,00 51,00
✓
RAUTT LJOS
RAUTT UÓS/
llSP™
freemms
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI - 653900