Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Síða 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
FOSTUDAGUR 2. AGUST 1991.
Veðrið um helgina:
Milt en hætta
á skúrum
Framan af helginni verður að öll-
um líkindum skýjað að mestu um
sunnanvert landið en bjart fyrir
norðan og norðaustan. Möguleiki
verður á skúrum um allt land, þó
einna mestur á Suðurlandi.
Á sunnudag og mánudag verður
hæg breytileg átt á öllu landinu. Þá
ætti að sjást til sólar allvíða, en einn-
ig eru talsverðar líkur á skúrum um
allt land, þó einkum síðdegis.
Alla helgina verður veðrið mjög
milt, hitinn á bilinu 12-18 stig.
-ingo
Allir vilja
íÞórsmörk
Langflestir vilja eyða verslunar-
mannahelginni í Þórsmörk, sam-
kvæmt upplýsingum sem DV fékk
hjá BSÍ í morgun, og er langmest eft-
irspurnin eftir ferðum þangað. Upp-
selt er í Húsadalinn, en þangað kom-
ast 800-900 manns. Siðan eru Útivist
og Ferðafélag íslands með ferðir í
Langadal og Bása.
Næst á vinsældalistanum er þjóð-
hátíðin í Vestmannaeyjum. Á eftir
' fylgja Galtalækur og Húnaver. Einn-
ig er talsvert spurt um ferðir í Þjórs-
árdal. -JSS
Flugfélögin:
Allt fullt til Eyja
Fullbókaö er í allar flugferðir til
Vestmannaeyja í dag, bæði hjá Flug-
leiðum og Íslandsílugi. Flugleiðir
flugu með 13 fullar vélar til Eyja í
gær og 10 vélar með 440 farþega fara
í dag. Löngu er fullbókað í allar ferð-
imar og er um 30 manna biðlisti í
hverja vél. íslandsflug fer með 250
manns til Eyja í dag í 15 ferðum og
er langur biðhsti eftir sætum. Ennþá
- er hins vegar laust með flugi á þjóð-
hátíð á morgun.
Af öðrum stöðum á landinu er full-
bókað til Húsavíkur, ísafjarðar og
Siglufjarðar og vélar austur á Egils-
staði eru við það að fyllast.
-BÓl
DV kemur næst út þriðjudaginn 6.
ágúst.
Smáauglýsingadeild DV er opin til
kl. 22 í kvöld.
Lokað laugardag, sunnudag og
mánudag.
7 Síminn er 27022.
Góða ferð og akið varlega!
LOKI
Erekki ríkiðaðdrepa
mjólkurkúna?
Velta apótekanna
hefur minnkað
um helminq
- tek þessum tölum með fyrirvara,
„Við erum búnir að fá tölur frá
einstökum apótekum svo og sam-
anburðarhópi sem samsettur er af
stærstu apótekunum, millistærð og
þeim minnstu. Þessar tölur ná yfir
júhmánuð. Samkvæmt þeim hafa
orðið feikimiklar breytingar á
veltu apótekanna. Það viröist sem
veltan hafi minnkað um helming
miöað við svipað tímabil i fyrra,
þannig að lyfjakostnaður þjóðar-'
hehdarinnar gæti i júlímánuði hafa
verið allt að hehningi lægri heldur
en á sama tíma í fyrra."
Þetta sagði Sighvatur Björgvins-
son heilbrigðisráðherra er DV
ræddi við hann í gær.
Sighvatur kvaðst vilja taka það
skýrt fram að hann teldi þessar
tölur ekki með öllu marktækar.
Búast mætti við því að fólk hefði
hamstrað lyf í júní, áður en reglu-
geröin tók gildi. „Þarna verður því
að slá marga varnagla," sagði
hann. „En það er Ijóst að þarna er
mikil breyting. Það er kannski ekki
fráleitt að horfa á það samtimis því
að skattskrárnar eru að koma út.
Þar virðist áberandi að lyfsalar eru
með hæstu skattgreiðendum mjög
víða á landinu. Það er ljóst að tekj-
ur þeirra í júlímánuði eru miklu
lægri heldur en þær hafa verið.“
Sighvatur sagði einnig fjóst að
kostnaður á hvern lyfseðh að með-
aitali hefði snarlækkað. Auðséð
væri að menn færu varlega við að
ávísa á meira magn heldur en
nauðsynlegt væri og eins að menn
ávísuðu á ódýrari iyf frekar en
dýrari ef hin fyrrnefndu gerðu
sama gagn.
„Þá er mikh lækkun á útgjöldum
sjúkratrygginga. Viö höfum dæmi
um að reikningar apóteka th
sjúkratrygginga hafi faliíð um allt
að tvo þríðju frá mánuðinum áður.
Ég vh enn ítreka að hér er um mjög
takmarkaðar upplýsingar aö ræða.
En við veröum ekki varir við það
að um sé að ræða neina þá hækkun
á lyíjakostnaði aidraðs fólks og ör-
yrkja sem þessi mikli hamagangur
og fullyrðingar í fólki hafa gefið til
kynna að gætu orðið.“
Sighvatur sagðist ekki vilja gefa
upp neinar tölur um samdrátt i
veltu apótekanna. Þaö yrði að bíða
niðurstöðu athugunarinnar í ág-
ústmánuði. -JSS
Lögreglumenn munu um verslunarmannahelgina afhenda ferðamönnum bæklinginn Ferðafélagann. Verða vegfar-
endur stöðvaðir á bílum sínum og þeim gefinn bæklingurinn - á leið upp í sveit, inni í bæjum og víðar. Lögreglu-
menn ætla með þessu að stuðla að jákvæðum samskiptum við almenning og gefst þeim með þessu tækifæri til
að ræða við fólk á þeim nótum. í Ferðafélaganum eru ýmsar upplýsingar sem koma að góðum notum á ferðalög-
um. Á myndinni afhendir Karl Gíslason, lögregluþjónn i Reykjavik, hjónum, sem voru á leið út úr bænum í gær,
bæklinginn. DV-mynd JAK
Veðrið á morgun:
Hætt við
skúrum um
allt land
Á morgun verður hæg suðaust-
læg eða austlæg átt. Skýjaö verð-
ur að mestu á Suðaustur- og Suð-
urlandi en öllu bjartara á Norð-
vestur- og Vesturlandi. Hætt við
skúrum um allt land, einkum þó
sunnan th. Hiti verður víðast
12-18 stig að deginum en 7-11 stig
að næturlagi.
Vegir yf irleitt
í góðu standi
„Vegagerðin hefur gert ráðstafanir
fyrir þessa miklu umferðarhelgi og
reynt að hefla helstu vegi. Vegir eru
yfirleitt í nokkuð góðu ástandi. Helst
má segja að þar sem verið er að
byggja nýja vegi séu kaflar sem eru
grófir og leiðinlegir. Þar verða bíl-
stjórar að haga hraðanum í samræmi
við aðstæður. Þannig er til dæmis
langur kafli á Ólafsvíkurvegi vestur
á Mýrum nokkuð grófgerður," sagði
Hjörleifur Ólafsson, forstöðumaður
Vegaeftirlits ríkisins.
„Kaflar í kringum Strákagöng á
Siglufjarðarvegi geta einnig verið
erfiðir en unnið hefur verið við fram-
kvæmdir þar undanfarið. Það má þó
lítið út af bera, eitt gott úrhelli getur
víða spiht vegum. Hálendisvegirnir
eru eins góðir og þeir geta orðið. Það
virðist ekki vera mjög mikið í ám um
þessar mundir en búast má við
vatnavöxtum í þessum hlýindum
sem nú eru. Einn hálendisvegur er
varasamur. Það er leiðin úr Fljóts-
hlíð upp í Emstrur. Þar leggst Mark-
arfljót upp að veginum og verða
menn oft að aka út í kvíslar fljótsins.
Þær eru ekki færar nema vel útbún-
um jeppum," sagði Hjörleifur. -ÍS
kynrsettirá
Seyðisf irði í gær
25 manna hópur Þjóðverja, sem
kom með Norrænu í gær, var kyrr-
settur á Seyðisfirði við komuna
þangað. Hópurinn, sem kom með
rútubíl með sér frá Þýskalandi, var
án leiðsögumanns. Skylda er aö hafa
íslenskan leiðsögumann í ferðum um
landið.
Ætlunin var að ferðast um landið
og tjalda „bara einhvers staðar“. Þó
var ákveðiö að fara á tjaldstæði í
tvær nætur. Fólkið var með mikið
af vistum með sér. Ætlunin var að
fara með rútunni um landið og enda
fórina á Keflavikurflugvelli. Þar er
talið að annar hópur Þjóðverja eigi
aö koma með flugvél og taka sömu
rútu þar og ferðast síðan um landið.
Ólöglegt er að sama erlenda rútan
fari með tvo hópa með þessum hætti.
_________________________-ÓTT
íslendingur með
íslenskur leiðsögumaður var send-
ur á eftir ferðamannahópi austur-
ríska doktorsins, Josef Mörtl, í gær.
Þetta er önnur hópferðin sem hann
fer meö um landið. í fyrri ferðinni
voru bergsýni tekin með ólöglegum
hætti. Vegna framferðis fyrri hópsins
gaf Ferðamálaráð út skipun þess efn-
is í gær th BSÍ, sem útvegaði rútu
og bílstjóra í ferðirnar, að Islending-
mrfærimeðísíðariferðina. -ÓTT
VAKTÞJÓNUSTA
Oryggisverðir um alla borg...
...allan sólarhringinn
Vönduð og viðurkenna þjonusta
@91-29399
Allan sólarhringinn
Oryggisþjónusta
lÆAlil síðan 1969
TVÖFALDUR1. vinningur