Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Side 11
BÁtjrömkö''öim^m^4é9\.
oii
Vantar breidd hjá
yngri spilurunum
Sveinn Rúnar Eiriksson meö verðlaunagripinn glæsilega sem hann fékk
fyrir bestan árangur í tvímenningi í æfingabúðum fyrir evrópska spilara.
„Mér gekk mjög vel í búðunum.
Ég fékk verðlaun fyrir besta árang-
urinn í tvímenningi og ég var einnig
í sveitinni sem vann sveitakeppn-
ina,“ sagði Sveinn Rúnar Eiríksson,
unglingalandsliðsmaður í bridge, í
samtali við DV. Hann vakti mikla
athygli fyrir stórgóðan árangur í
æfingabúðum fyrir evrópska yngri
spilara sem voru á vegum Evrópu-
sambandsins í bridge í júlímánuði.
Sveinn Rúnar hefur nú um nokk-
urt skeið verið í landsliði yngri spil-
ara í bridge en er þó aðeins 22 ára
gamall. í landshði yngri spiiara geta
spilað alhr þeir sem eru 25 ára og
yngri svo Sveinn Rúnar á enn þrjú
ár eftir í landshðinu.
Metþátttaka
á þessu ári
„Á þessu ári var alger metþátttaka
en alls mættu 168 spilarar frá 19 þjóð-
löndum Evrópu. Þessar æfingabúðir
eru annað hvert ár á vegum Evrópu-
sambandsins í bridge.
Spilarar í búðunum voru afar mis-
munandi. Inn á mihi voru hálfgerðir
byrjendiy en þama voru margir sem
eflaust eiga eftir að spha í landshðum
þjóðanna síðar meir. Ég er alveg viss
um að ungir íslenskir spilarar hefðu
mjög gott af því að mæta í þessar
æfingabúðir en ég er fyrsti íslenski
þátttakandinn frá upphafi. Það sem
háir mörgum af okkar yngri spilur-
um er að hafa ekki lært grunninn í
íþróttinni mjög vel, að spila úr spil-
unum og æfa vömina. Ég mundi
segja að spilarar fái mestu æfinguna
í úrspihnu og vamarþætti spilsins í
þessum búðum en minna mæði á
sagnkerflnu.
Eg spilaði við menn af fjórum þjóð-
ernum í tvímenningnum og náði
besta heildarárangri ailra spharanna
í búðunum. Það er farið fram á það
við spilarana að þeir spih við að
minnsta kosti þrjá aðila af öðru þjóð-
erni en sínu eigin og það gerðu allir
spharamir. Einnig fór fram sveita-
keppni í búðunum og máttu pör í
sveitinni ekki vera af sama þjóðerni.
Þar gekk mér einnig vel því sveitin,
sem ég var í, vann þá keppni. Spilafé-
lagi minn í þeirri sveit var Svh.
Þegar ég kom í Evrópubúðimar var
ég orðinn töluvert þreyttur á bridge.
Ég var búinn að vera að ahan vetur-
inn og var nýbúinn að spha bæði á
NM- og EM-móti. Ég var ef til vhl
þreyttari fyrir þá sök að það hafði
ekki gengið neitt sérstaklega vel. En
maður sá fljótt að menn voru komn-
ir þarna th þess að hafa ánægju af
spilamennskunni án þess að vera í
svo harðri keppni. Það hafði greini-
lega góð áhrif á sphamennskuna hjá
mér að geta sphað eingöngu ánægj-
unnar vegna,“ sagði Sveinn Rúnar.
3.500 skráðir
spilarar hérlendis
„Það var oft gert grín að mér fyrir
að vera eini íslendingurinn í búðun-
um en grínararnir hættu að hlæja
þegar ég sagði þeim að það væru 3.500
skráðir spharar í íslenska bridge-
sambandinu. Th samanburðar eru
aðeins 1.500 skráðir spharar í Grikk-
landi en þeir vom samt sem áður
með fjölda þátttakenda í búðunum.
Það vom reyndar margir spilarar
þarna sem vom ríkulega styrktir af
bridgesamböndum þjóða sinna. Þar
gera menn sér grein fyrir mikilvægi
þess að rækta unglingastarflð. Þar
voru Hohendingar fremstir í flokki
en þar er unghngastarf í miklum
blóma. íslendingar ættu að taka þá
sér til fyrirmyndar. Þó er ljóst að
Bridgesamband íslands hefur ekki
úr sömu fjárupphæðum að moða.
Lélegur árangur
á Norðurlandamóti
íslenska unglingaiandshðið tók
þátt í Norðurlandamóti yngri spilara
í Finnlandi í lok júní. Árangurinn
var mjög slakur í þeirri keppni þegar
tekið er thht til þess að við vorum
taldir vera með eitt af þremur bestu
liðunum í þeirri keppni. Við enduð-
um hins vegar í 6. sæti af 9 en Dan-
ir, Finnar, Norðmenn og Svíar sendu
tvö lið í keppnina en við aðeins eitt.
Við áttum að vera í sama gæðaflokki
og Svíar og Norðmenn og spharar
voru með töluverða reynslu að baki.
Með hhðsjón af þessu er óhætt að
segja að árangurinn hafi verið mjög
slakur.
Svíar mættu th leiks með tvö ung
og tiltölulega óreynd pör en eitt gam-
alreynt með tveimur mjög sterkum
sphurum. Þeir voru með mjög
sprækt hð, sem hafði sigurvhja! sem
hafði mjög gaman af því sem það var
að gera, og ég held að það hafi gert
gæfumuninn hjá þeim. Svíar unnu
mótið og ég held að atriði eins og
sphagleði og sigurviiji skipti ekki
DV-mynd JAK
minna máli heldur en geta spilar-
anna.
Við í íslenska hðinu vorum alltaf
að einhverju streði við að reyna að ‘
búa til sveiflur við sphaborðiö, sem
mistókst oftast nær. Sveiflurnar
koma af sjálfu sér við sphaborðið og
það þýðir htið að vera sífellt að reyna
að búa þær til af sjálfsdáðum. Ég
held að hver einasti maður, sem hef-
ur komið nálægt unglingabridge, sé
vonsvikinn yfir árangri landshðsins
í Finnlandi.
Strax að loknu Norðurlandamóti
yngri spilara fór ég og Steingrímur
G. Pétursson, spilafélagi minn í ungl-
ingalandshðinu, á Evrópumót yngri
spilara í tvímenningi sem haldið var
í Genf í Sviss. Þar náðum við all-
sæmhegum árangri, 26. sæti af 104
pörum. Það er engin spuming að
bestu spharamir úr flokki yngri spil-
ara á íslandi eiga að geta náð nokkuð
góðum árangri á því móti, einu af 10
efstu sætunum.
Hins vegar voru á Evrópumótinu
mörg pör, sem era ipjög góð, sem
náðu ekki góðum árangri. Það vom
pör, sem féllu í sömu gryfju og við,
að vera sífeht að rembast við að búa
th sveiflur við spilaborðið, í stað þess
að láta þær koma af sjálfu sér. Það
var austurrískt par sem vann og var
í A-hði Austurríkismanna á síðasta
Evrópumóti sem fram fór í írlandi.
Þeir unnu mótið nokkuð örugglega,
voru allan tímann í toppbaráttunni.
í öðru sæti var þýskt par og annar
spharinn var kvenmaður. Hún er
aðeins 18 ára og það sýnir hve
kvennabridge er á mikilli uppleiö um
þessar mundir í Evrópu. Svíar sýndu
samt sem áöur mestu breiddina í
þessu móti. Sænsk pör enduðu í 4.,
5. og 6. sæti á mótinu.
Breiddin er alls ekki nægilega mik-
h í íslenskum unglingabridge, sam-
anborið við hin Norðurlöndin. Á ís-
landi eru ef th vih 2-3 góð pör í einu
sem geta spilað með einhverjum ár-
angri í unghngalandsliðinu. Hin
Norðurlöndin eru með kannski 10
pör sem eru svipuð að getu og okkar
bestu pör og hafa því úr meiru að
moða við val á landshði.
Viljum fá að halda
heimsmeistaramót
íslendingar eru að sækja um það
hjá Alþjóðasambandinu í bridge að
fá að halda heimsmeistaramót í
bridge árið 1997. Ef af því verður má
búast við að það verði til þess að
mjög margir ungir spharar fái áhuga
á íþróttinni. Allir þekkja hvað gerð-
ist hér á landi þegar skákmennirnir
Fischer og Spassky kepptu hér á
landi. Ungu stórmeistararnir í skák
hér á landi fengu flestir áhugann
þegar það einvígi fór fram. Það má
benda á það að íslendingar eiga mjög
góða sphara í opnum flokki sem em
meðal þeirra bestu í heiminum. Þeir
náðu samt sem áður ekki neinum
viðlíka árangri þegar þeir voru í
flokki yngri spilara.
Þróunin í bridge í Evrópu virðist
vera þannig að þær þjóðir eru sterk-
astar þar sem unglingastarfið er
hvað öflugast. Það má segja að ísland
sé eina undantekningin. Samt sem
áður er enginn vafi að öflugt ungl-
ingastarf hér á landi myndi auka
breiddina á toppnum," sagði Sveinn
Rúnar að lokum.
-ÍS
Matthías Þorvaldsson, sém hefur spilað um árabil í landsliði Islands í yngri
flokki, er kominn í flokk bestu spilara landsins. Síðastliðið vor vann hann
það afrek með Sverri Ármannssyni að verða íslandsmeistari í tvímenningi
i opnum flokki.
Cfl
O
H
D
<o
Ö
Rafkaup
ÁRMÚLA 24 • S: 68 15 18*