Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Blaðsíða 18
% Veiðivon dv Makalaus fengur í Eyrarvatni: Bóndinn landaði laxi sem eiginkonan missti tveimur dögum áður - einhver ótrúlegasta veiðisaga seinni tíma Þaö átti ekki fyrir sex punda laxi í Eyrarvatni í Svínadal aö liggja aö sleppa frá hjónunum Brynju Jó- hannsdóttur og Magnúsi Ebeneser- syni frá Akranesi. Brynja setti í lax- inn sl. föstudag en missti síðan. Tveimur sólarhringum síðar krækti eiginmaöur hennar í sama fisk og landaði honum þrátt fyrir að tugir annarra veiðimanna væru við veiðar við vatnið. Brynja beitti maðki við veiðina og notaði bæði sökku og flotholt. Laxinn sleit hins vegar línuna ofan við flot- holtið og hvarf á braut með hvort tveggja í sér eftir stutta rimmu. Hjónin voru aftur við veiðar á laug- ardeginum en urðu ekki vör frekar en fjölmargir aðrir veiðimenn. Það var svo á sunnudaginn að hjónin fóru enn til veiða við vatnið. Þar sem fyrri veiöistaður var þétt- skipaður áhugasömum veiðimönn- um rölti Magnús á annan veiðistað og viti menn! Öngullinn hjá honum kræktist í sökkuna, sem enn var fóst í fiskinum ásamt flotholtinu, og á land fór laxinn. Sennilega gerast þær ekki öllu ótrúlegri veiðisögurnar þetta sumar- ið! Sigurður Sverrisson, Akra- nesi/G.Bender Bent á laxa í Birgishyl i Leirvogsá sem lágu þar nokkrir en tóku illa. 1............... Guðmundur Stefán Maríasson kastar flugu fyrir lax á Vatnasvæði Lýsu um helgina sem ekki tók. LALGAjlDAGUE 10. ÁGÚST 1991. Þjóðar- spaug DV Áferðalagi íslenskur ferðamaður í Madríd hugðist panta sér steik og sveppi á veitingahúsi einu þar í borg. Hann talaöi ekki spænsku og þjónninn skildi hvorki íslensku né ensku svo okkar maður brá á það ráð að teikna mynd af kú og, sveppi þannig að hann fengi ör- ugglega draumamáltíðma. Skömmu eftir að þjómiinn hafði móttekiö myndina kom hann aft- ur skælbrosandi til mannsins með regnhlif og aðgöngumiða að nautaati. Kallað á konu Maður nokkur sem ferðast hafði víða um heiminn hélt einu sinni boð heima hjá sér. Vitan- lega sagði hann gestum sínum feröasögur og greindi þeim einnig frá dýrum sem hann hafði séö á flakki sínu erlendis. „í Kongó," sagði hann, „ rakst ég á órangútan sem um fengitím- ann rekur upp ferlegt öskur þeg- ar hann þarfnast kvendýrs. Öskrið er eitthvað í likingu við þetta.“ Því næst rak maðurinn upp fer- legt öskur svo að viðstaddir hrukku í kút. Þegar öskrunura linnti kom kona mannsins hlaup- andi úr eldhúsinu, stillti sér upp fyrir framan hann og sagði: „Varstu nokkuð að kalla á mig, Sæmundur minn?“ Ágætlög, en... Lítil stúlka í Reykjavík fór í fyrsta sinn til kirkju fyrir stuttu. Þegar hún kom heim spurði móð- ir hennar hvernig hefði verið í kirkjunni. „Lögin voru ágæt,“ sagði sú stutta, „en auglýsingarnar voru allt of langar.“ Aðeinsböm Vestmannaeyingur átti eitt sinn erindi til Húsavíkur. Þegar hann var búinn að koma sér fyrir á hótelinu rölti hann niður í bæ og spurði þar fyrsta mann sem hann hitti: „Hafa einhver mikilmenni fæöst hér?“ „Nei, bara kornaböm," svaraði Húsvíkingurinn og gekk í burtu. Finnur þú fimm breytingai? 116 Er það hér sem er herbergi til leigu fyrir hljóðlátan og reglusaman Nafn:............. mann...? Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaítu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. 2. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. Bækurnar sem er í verðlaun heita: Á elleftu stundu, Flugan á veggnum, í helgreipum hat- urs, Lygi þagnarinnar og Leikreglur. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðl- un. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 116 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundruð- ustu og fjórtándu getraun reýndust vera: 1. Jóhanna Pálsdóttir Hofteigi 22,105 Reykjavík. 2. Haukur Kristófersson Spóarima 15, 800, Selfossi. Vinningarnir verða sendir heim

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.