Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1991, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1991, Page 14
14 MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 1991. Útgáfufélag: F.RJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri ög útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91J27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr. Eystrasaltsríkin Það er fagnaðarefni að íslendingar skuli verða fyrstir til að taka upp formlegt stjórnmálasamband við Eystra- saltsríkin þrjú. Yfirlýsing um stjórnmálasamband er gífurlega mikilvæg fyrir ríkin þrjú og jafnframt heims- sögulegur atburður þegar í ljós kemur að aðrar þjóðir ætla að fylgja í kjölfarið. Frumkvæði íslendinga hefur ekki farið framhjá nein- um við Eystrasaltið. Það mátti sjá og heyra á útifundi í Vilníus fyrir helgina þar sem tveir íslenskir alþingis- menn voru viðstaddir yfirlýsingar um stjórnmálasam- bandið. Það er sömuleiðis engin tilviljun að utanríkis- ráðherrar Eistlands, Lettlands og Litháen skulu allir hafa lagt leið sína hingað til lands af þessu tilefni. Ástandið í Sovétríkjunum er enn mjög óljóst. At- burðarásin er hröð. Nú síðast hefur Gorbatsjov sagt af sér sem aðalritari Kommúnistaflokksins og Jeltsín hefur látið loka flokksskrifstofum. Það sama er að gerast í Eystrasaltsríkjunum. Kommúnistaflokkurinn í Sovét- ríkjunum er búinn að vera. Á föstudaginn gerðu fulltrú- ar Kremlarstjórnar lítið úr sjálfstæðisyfirlýsingum Eystrasaltsríkjanna. Gorbatsjov lýsti þá yfir hollustu við flokkinn. Á laugardag segir Gorbatsjov hins vegar af sér sem aðalritari og á sunnudag segir Hvíta-Rússland sig úr ríkjasambandinu. Sama kvöld berast þær fréttir að fleiri vestrænar þjóðir vilji taka upp formlegt stjórn- málasamband við Eystrasaltsríkin og nú heyrist ekki lengur hljóð úr horni Kommúnistaflokksins eða Kreml- arstjórnar. Þetta er dramatísk atburðarás. Það er allsendis óvíst hvað við tekur í Sovétríkjunum. Þegar herinn, flokkurinn og valdið geta ekki lengur haldið sambandsríkinu við munu einstök ríki ganga á lagið og engan þarf að undra þótt Eystrasaltsríkin séu þar í fararbroddi. Þau eiga öll sína sögu sem sjálfstæðar þjóðir og það var aðeins fyrir tilverknað heimsstyijald- ar og yfirgangs Stalíns og Hitlers sem þær glötuðu sjálf- stæði sínu. Eystrasaltsþjóðirnar tilheyra ekki gamla Rússlandi og eiga í rauninni fátt sameiginlegt með Moskvu, menningu eða miðaldarlífsháttum þeirra þjóð- arbrota sem byggja austurhluta Sovétríkjanna. Það er auðvitað ekkert markmið í sjálfu sér fyrir ís- lendinga að stuðla að sundurlimun Sovétríkjanna. Enda fáum við engu um það ráðið. íslendingar eru fyrst og fremst að lýsa yfir stuðningi gagnvart þeim þjóðum sem okkur eru næstar austur þar og sjálfar vilja endur- heimta sitt fyrra sjálfstæði. Við styðjum þá viðleitni í verki. Það frumkvæði virðist falla í góðan jarðveg. Eystrasaltsríkin eru ekki fjölmenn í samanburði við ymis önnur ríki Sovétríkjanna eða Evrópu. Það erum við íslendingar ekki heldur. En við þekkjum þá lífs- reynslu að vera nýlenda annarra og við skiljum þá sjálf- stæðisþörf sem rekur Eystrasaltsþjóðimar áfram. Við vitum af eigin reynslu að smáar þjóðir eiga sinn tilveru- rétt og hafa sínu hlutverki að gegna í samfélagi þjóð- anna. Af þeim sökum eigum við samleið með Eistlending- um, Lettum og Litháum og hikum ekki við að taka upp stjórnmálasamband við þá. Á alþjóðavettvangi höfum við barist fyrir rétti þeirra og málstað og það þrátt fyr- ir að ýmsar stórþjóðir, sem telja sig í forystu fyrir frelsi og lýðræði, hafi skellt skolleyrum við hjálparbeiðnum frá Eystrasaltinu. Nú hafa þær snúið blaðinu við en forysta íslendinga og einarður málflutningur frá upp- hafi verður ekki minni fyrir það. Söguleg sjálfstæðisyfir- lýsing er undirrituð í dag. Ellert B. Schram Menn hafa rætt um aö láta gengi krónunnar fylgja sjálfvirkt „gjald- eyrisvog". Þaö mundi gjörbreyta forsendum verðtryggingar. Inn- lendar fjárhæðir munu þá fylgja breytingum á gengi gjaldmiðla á borð við þýskt mark, enskt pund, danska krónu og Bandaríkjadal. Hagur sparifjáreigenda verður vel tryggður og enginn grundvöllur fyrir verðtryggingu. Eyða má sjálf- virkni sem nú flytur verðhækkanir frá einni atvinnugrein til annarrar og viðheldur verðbólgu. Sjáifvirkni I efnahagslífinu er sjálfvirkt kerfi verðtryggingar og verðhækkana sem flytur verðhækkanir frá einni atvinnugrein til annarrar. Víxl- áhrif koma frr n þegar verðhækk- un á einni vörutegund leiðir sjálf- „Oll lán, sem tekin eru i erlendum gjaldmiðlum, eru gengistryggð.“ Ný gengisskráning afnemur verðtryggingu krafa til hækkunar á verði ann- arrar. Hið margfalda verðtrygging- arkerfi leiðir verðhækkanir sjálf- virkt út í óskyldustu þætti efna- hagslífsins. Sífellt eru mörg hundr- uð hækkanir samtímis á leiö í gegn- um veitukerfi verðtryggingarinn- ar. Þegar grannt er skoðað kemur í ljós að verðlag á mörgum vöru- flokkum og þjónustu breytist sjálf- virkt samkvæmt settum reglum. íslenska efnahagslífið er meö inn- byggða sjálfvirkni sem margfaldar upp minnstu verðhækkanir. Verð- trygging er ekki eingöngu fólgin í notkun helstu vísitalna. Hún felst einnig í því aö verð margra vöru- tgegunda er ákveðið sjálfvirkt með viðmiðun við einhvers konar verð- lagsgrundvöll. Sama gildir um að- ila sem hafa samráð um verðlagn- ingu á þjónustu sinni. Ákvarðanir þeirra fylgja meira eða minna sjálf- virkum reglum sem virka eins og verðtrygging. Uppskerubrestur á kaffi hækkar verö á eggjum Til þess aö skýra hvemig verð- hækkanir leiðast um efnahagslífið má taka dæmi af afleiöingum upp- skerubrests á kaffi í Suður-Amer- íku. Við það dregur úr framboði og heimsmarkaðsverð hækkar. Verð hækkar einnig hér á landi. Kaffið er í verðlagsgrundvelli vísi- tölu framfærslukostnaðar sem hækkar af þeim sökum. Vísitala framfærslukostnaðar er ein þriggja vísitalna sem lánskjaravísitalan samanstendur af. Verðhækkun á kaffi veldur því einnig hækkun á lánskjaravísitölunni. Hækkun lánskjaravísitölunnar hefur víðtæk áhrif. Hún veldur því til dæmis að skuldir þeirra sem tekið hafa verötryggö lán hækka og greiðsubyrði þyngist. Hækkun lánskjaravísitölunnar hefur áhrif á verðlagningu landbúnaðarafurða þvi í verðlagsgrundvelli þeirra eru hðir sem lýsa fjármagnskostnaði. Verðlagsgrundvöliur landbúnaö- arvara, sem lúta framleiðslustjóm, hækkar af þessum sökum. Þannig veldur uppskerubresturinn hækk- un á eggjaverði þó hænurnar drekki ekki kaffi. Hvað er verðtrygging? Verðtrygging felst í því að verð á vöru, þjónustu eöa skuldbinding- um er hækkað eftir fyrirfrajn ákveðnum reglum, oftast vísitölum reiknuðum af viðurkenndum aðil- um. Allmargar ólíkar vísitölur em reiknaðar út hér á landi. í riti Seölabankans, Hagtölum mánað- arins, eru birtar sjö vísitölur. Fleiri vísitölur eru reiknaðar út reglu- lega. - Einnig eru notaðar aðferðir við verðtryggingu sem taka mið af mörgum vísitölum. 1960-1961, 1968-1969 Og 1975-1976. Nýja vísitaian hefði valdið helm- ingi minna misgengi en hin og er að þvi leyti hagstæðari launafólki. Gengistrygging Mikiar skuldbindingar em bundnar gengi erlendra gjald- miðla. Það er í raun ein tegund verðtryggingar. Gengistrygging er þó að því leyti frábrugðin annarri verðtryggingu að hún fylgir ekki hreytingum á innlendum kostnaði. Öh lán, sem tekin eru í erlendum gjaldmiðlum, em gengistryggð. Á það hefur veriö bent aö gengis- trygging sé óheppileg fyrir ein- stakhnga. Það hefur oft gerst að gengi krónunnar væri breytt fyrir varalaust. Þegar það gerist hækka skuldir einstakhnga samstundis „Hagur spariQáreigenda í þessum lönd- um er vel tryggður án verðtryggingar og sama ætti að gilda um íslenska sparifjáreigendur. - Enginn grundvöll- ur verður lengur fyrir verðtryggingu.“ Kjallarinn Stefán Ingólfsson verkfræðingur Th dæmis er algengt að miða verð á viðhaldsþjónustu hátæknibúnað- ar við gengi erlendra gjaldmiöla og launavísitölu. Önnur tegund verð- tryggingar hefur lengi þekkst í landbúnaði. Leiguverð sumarbú- staðalanda hefur til dæmis miöast við verðmæti sauðfjárafurða. Ein tegund verðtryggingar er að miöa verðhækkanir við svonefndan „verðlagsgrundvöll" eða að aöilar hafi formlegt eða óformlegt samráð um verðhækkanir. Lánskjaravísitölur Undanfarin ár hefur mikið áunn- ist við að draga úr sjálfvirkum verðhækkunum. Verðtrygging á fjárskuidbindingum heldur þó enn velli og byggist á lánskjaravísi- tölunni. Vísitalan var upphaflega sett saman úr tveimur gmnnvísi- tölum, framfærsluvísitölu og bygg- ingarvísitölu en launavísitölu síð- an bætt við. Menn hefur frá upp- hafi greint á um samsetningu visi- tölunnar. Þær „lánskjaravísitölur" sem stungiö hefur verið upp á þróast reyndar flestar svipað yfir langt tímabil. Frá 1960 hefðu til dæmis gamla lánskjaravísitalan, nýja lánskjaravísitalan og byggingar- vísitala hækkað svo til jafnmikið. Vísitölurnar em hins vegar ólíkar sé htið á skemmri tímabil. Sérstak- lega á það við um misgengi gömlu lánskjaravísitölunnar og launa. Alvarlegt misgengi varð á milli lánskjara og launa 1983-1984. Mis- gengis hefði einnig gætt 1950-1951, um nokkur prósent allt eftir því hversu mikið genginu er breytt. Á síðustu fjórum ámm hefur meðal- gengi erlendra gjaldmiðla th dæmis tvisvar hækkað yfir 5% í einum mánuöi. Slíkt gæti haft óheppileg áhrif fyrir launþega og fyrirtæki. Niðurfelling verð- tryggingar með breyttri gengisskráningu Menn hafa rætt um að breyta gengisskráningunni. Gengi krón- unnar fylgi sjálfvirkt gengi gjaid- miðla helstu viðskiptalanda okkar. Verði gengi krónunnar látið fylgja „gjaldeýrisvog" heldur hún betur verðmæti sínu. Þetta nýja form gengisskráningar mundi gjör- breyta forsendum verðtryggingar. Fjárhæðir í íslenskum krónum munu þá fylgja breytingum á gengi helstu gjaidmiðla. Það má orða svo að ahar fjár- skuldbindingar verði gengis- tryggðar og íslensk fyrirtæki og einstakhngar taki lán á sömu for- sendum og erlendir. Krónan mun fylgja náið gengi gjaldmiðla í lönd- um á borð við Þýskaland, England og Bandaríkin. Hagur sparifjáreig- enda í þessum löndum er vel tryggður án verðtryggingar og sama ætti að ghda um íslenska sparifjáreigendur. Enginn grund- vöhur verður lengur fyrir verö- tryggingu. Stefán Ingólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.