Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991. Fréttir Einn fyrrum viðskiptanianna verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf.: Stef nir bankaeftirlit- inu fyrir vanrækslu - einstaklingar og fyrirtæki urðu fyrir um 500 milljóna króna tjóni Bankaeftirlit Seðlabankans hefur verið kært fyrir vanrækslu. Einstaklingur í Reykjavík hefur stefnt bankaeftirliti Seðlabankans og viðskiptaráðherra fyrir Bæjarþingi Reykjavikur fyrir að vanrækja eftir- lit meö verðbréfasjóði Ávöxtunar hf. Sjóðurinnn fór í þrot í september 1988 ásamt Ávöxtun sf. og rekstrar- sjóði Ávöxtunar. Ammundur Back- man hæstaréttarlögmaður sækir Fréttaljós Óttar Sveinsson málið fyrir hönd skjólstæðings síns. Gjaldþrotin höfðu það í for með sér að viðskiptavinir sjóðanna, mest ein- staklingar, töpuðu hundruðum millj- ónum króna. Hér er um prófmál eins viðskiptamanna verðbréfasjóðs Ávöxtunar að ræða. Ríkissaksóknari sækir um þessar mundir sakamál á hendur forsvars- mönnum Ávöxtunar sf. í Sakadómi Reykjavíkur. Þar er um annars kon- ar dómsmál að ræða. Þar er forsvars- mönnum sjóðanna géfið að sök að hafa brotiö hegningarlög með ýms- um hætti, bókhaldsbrot og fleira. Ábyrgð bankaeftirlitsins í prófmálinu fyrir Bæjarþingi Reykjavíkur verður fjallað um allt aðra hlið málsins en í sakamálinu. Hún snýr ekki að forsvarsmönnum ávöxtunarsjóðanna heldur opinber- um eftirlitsaðilum - bankaeftirhti Seölabankans. Aðaleigendur Ávöxt- unar sf., þeir Ármann Reynisson og Pétur Bjömsson, eru gjaldþrota og því ljóst að þeir geta ekki bætt fyrr- um viðskiptavinum sínum það tjón sem þeir urðu fyrir. Þama var um að ræða eitt viðamesta gjaldþrot ein- staklinga í íslandssögunni. Kröfur í þrotabúið vom um hálfur milljarður en mjög lítill hluti þeirrar upphæðar hefur fengist greiddur upp í þær. Meö prófmálinu hefur þannig sú spuming vaknað hver staða banka- eftirhtsins sé varðandi bótakröfur - þeirrar opinberu stofnunar sem átti að hafa eftirlit með því að verðbréfa- fyrirtæki, eins og verðbéfasjóður Avöxtunar sf., stæði á nægilega sterkum granni, og viðeigandi starfs- hættir væra viðhafðir til að hægt yrði að efna þau loforð sem sjóðurinn gaf viðskiptamönnum sínum. Með prófmálinu mun því væntanlega verða úr því skorið hvort bankaeftir- litið, sem opinber eftirlitsaðili, beri bótakröfu fyrir hugsanlega van- rækslu á eftirlitsskyldum sínum. Einkennilegur samningur rík- issaksóknaraembættisins Árið 1985 kærði bankaeftirhtiö Ávöxtun sf. Fyrirtækið var tahö stunda ólöglega móttöku á innlánsfé. Ákveðnum vöxtum var lofað fyrir- fram. Meö því taldi bankaeftirhtið að Ávöxtun sf. væri að brjóta á einka- rétti banka og annarra innlánsstofn- ana. Eftir meðferð Rannsóknarlög- reglu ríkisins á málinu sá ríkissak- sóknari ekki ástæðu til aö sækja Ávöxtun sf. til saka. Margir sem til þekktu töldu meðferð ríkissaksókn- ara á máhnu einkennilega. Þeir vext- ir sem Ávöxtun sf. lofaði viðskipta- mönnum sínum vora miklu hærri en hjá innlánsdeildum bankanna, nánast okurvextir. Embætti ríkissaksóknara gaf for- svarsmönnum Avöxtunar sf. fyrir- mæli og gerði eins konar samning við þá um að málið yrði látiö niður falla ef fyrirtækið breytti um vinnu- brögð. Skilyrðið var að stofnaður yrði sérstakur bakhjarlssjóður eins og hjá öörum verðbréfafyrirtækjum. Ljóst var að traustan bakhjarl á bak við stóra ávöxtunarloforin vantaði. Grundvallarmunur var á bakgranni umsvifa Ávöxtunar sf. og öðram ávöxtunarfyrirtækjum. Kaupþing hafði til að mynda sparisjóðina á bak við sig. Fjárfestingarfélagið hafði, Verslunarbankann, Eimskip og Líf- eyrissjóð verslunarmanna sem bak- hjarl og Verðbréfamarkaður Iðnað- arbankans hafði sjálfan Iðnaðar- bankann á bak við sig. Afgreiðsla ríkissaksóknara var um margt einkennileg. Einhvers konar samningur var gerður við ákveöna aðila um atriði sem bankaeftirhtið, önnur opinber stofnun, átti í raun að hafa umsjón með. „Samningurinn“ sem ekki var fylgt eftir Daginn eftir að afgreiösla ríkissak- sóknara lá fyrir var Pétri Björnssyni veitt leyfi til veðbréfamiðlunar hjá viðskiptaráðuneytinu. Tveimur áram síðar var allt komið í óefni. Málsóknin í umræddu prófmáh byggist einmitt á þessu tímabih, það er árunum 1986 og 1987, þegar við- skipti og loforð Ávöxtunar sf. „blómstruðu" en án þess að viðeig- andi bakhjarl og sjóður væri fyrir hendi til að standa undir hinum háu ávöxtunarloforðum fyrirtækisins. Veröbréfasjóðurinn tók til starfa í ársbyijun 1987 og hætti rekstri í sept- ember 1988. Einmitt á þessum tíma telur stefn- andinn í prófmálinu að bankaeftirlit- ið hafi ekki sinnt skyldum sínum og haft verulega lítil afskipti af hinum vafasömu umsvifum Ávöxtunar þrátt fyrir „samninginn" sem ríkis- saksóknari geröi. Almenningur og reyndar fyrirtæki stóðu í góðri trú um að Ávöxtun sf., og sjóðirnir, sem auglýsti tveggja stafa ávöxtunarpró- sentu umfram verðbólgu, gæti staðið við sitt. Vísitalan var nákvæmlega auglýst með fjórum aukastöfum þrátt fyrir að ekkert haldbært lægi til grundvallar þessari miklu ná- kvæmni. Þessi nákvæmu loforð gengu ekki eftir eins og kom á daginn í september 1988 þegar eigendurnir voru úrskuröaðir gjaldþrota. Tvö aðskilin dómsmál Af þessum sökum er bankaeftirht- inu stefnt fyrir Bæjarþingi Reykja- víkur - fyrir að sinna ekki eftirlits- hlutverki sínu. Þar er um einkamál að ræða vegna fjárhagslegra hags- muna. Viðskiptavinir Avöxtunar sf. voru í rauh varnarlausir í þessu máli. Þeir gátu ekki reitt sig á neitt annað en traust sitt á verðbréfafyrir- tækinu - auk þess að treysta því að bankaeftirlit Seðlabankans hefði átt að hafa umsjón með umsvifum og vinnubrögðum þess, sérstaklega út af fyrri kærum og samningi ríkissak- sóknarans. Hin hlið málsins er í Sakadómi Reykjavíkur. Þar eru Ávöxtunarmenn sóttir til saka í refsimáli. Þar er fangelsisrefsinga krafist af ríkissaksóknaraembætt- inu, meðal annars vegna hegningar- lagabrotanna. Þar er um að ræða hreint og klárt sakamál. Jón Baldvin ávarpar aUsherjarþing S.Þ. á mánudaginn: Þjóðir heims axli ábyrgð í Júgóslavíu - menn standa andspænis þvi aö viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt þjóða Hvammstangi: Bráðvantar konurí skelina ÞórtiaJhir Asmundsaon, DV, NLvestra; Skelveiöar eru hafnar á Hvammstanga. Bjarmi fór í sinn fýrsta róöur á þriöjudag. Næg vinna er einnig í rækjunni hjá Meleyri og bráðvantar nú kven- fólk í vinnu hjá fyrirtækinu. Tveir bátar stunda skelveiðar frá Hvammstanga í vetur. Auk Bjarma Siggi Sveins sem fer á veiðar innan skarams. Að sögn Guðmundar Sigurössonar, eins aöaleigenda Meleyrar, mun skel- in veita allt aö tíu manns vinnu. Rækjuvinnslunni berst mikið hráefhi frá 8 bátum. Unniö er frá kl. 4 á morgnana til 17 á daginn og veitir ekki af. Rekstrarskilyrði rækjuvinnslunnar hafa heldur lagast að undanfórnu aö sögn Guömundar. „I ræðunni mun ég fjalla um lýð- ræöisbyltinguna í Rússlandi og Aust- ur-Evrópu og þá nýju heimsmynd sem blasir við. Eg mun leggja áherslu á nýtt hlutverk Sameinuðu þjóðanna og nauðsyn þess aö staðið verði við þaö upphaflega markmiö aö fyrir- byggja stríð og halda frið. í tengslum við þetta vík ég að árangurslausum friðartilraunum EB í Júgóslavíu. Ég mun benda á að nú standi menn and- spænis þeirri grundvallarreglu að viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt þjóða og hafna án skilyröa að þjóðum sé haldiö í spennitreyju sem þær ekki una. Sú stund kann að vera runnin upp að þjóðir heims eigi ekki annarra kosta völ en að viðurkenna sjálfstæði Slóveníu og Króatíu,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson. Jón Baldvin hélt utan í gær til að ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Ræðuna flytur hann á mánudaginn. Jón Baldvin segist ekki ætla að leggja fram ákveðana tillögu um lausn mála í Júgóslavíu. Hins vegar segist hann ætla að hvetja allsheijar- þingið til aö efla Sameinuðu þjóðirn- ar þannig að þær hafi styrk og bol- magn til aðgerða í Júgóslavíu á sam- bærilegan hátt og í Persaflóastríöinu. Varðandi beinan tillöguflutning kveðst hann ætlast til aö Genscher, utanríkisráðherra Þýskalands, hafi forgöngu um það. Jón segist í ræðu sinn ætla að ræða ítarlega um hafréttarsáttmálann og nauðsyn þess að hann fái lagagildi sem alþjóðasáttmáli um vemdun á lífríki hafsins. Til þess þurfi fleiri þjóðir að staðfesta hann og það muni hann hvetja þjóðir heims til að gera á þinginu. í tengslum viö þetta ætlar hann að víkja að undirbúningi al- þjóðlegrar umhverfisráðstefnu í Ríó á næsta ári og tillöguflutningi ís- lands þar. „í ræðunni mun ég einnig ræða alþjóðaheimsviðskipti og þá sérstak- lega böl forpokaðrar verndarstefnu og nauðsyn fríverslunar. í því sam- bandi mun ég deila hart á EB fyrir framsóknarmennsku." -kaa Viðtalið dv Nafn: Kristján Guðmundsson Slarf: Skóiastjóri Skákskólans Aldur: 38 ára „Þetta leggst bara mjög vel í mig, við erum í því nuna að setja af stað fyrstu námskeiðin sem byrja í þessari viku,“ sagöi Krisfj- án Guömundsson en hann er skólastjóri Skákskóla íslands sem settur var í síðustu viku. „Við munum leggja áherslu á að koma skipulagi á skákkennslu í landinu og reyna að standa und- ir nafni, að vera Skákskóli ís- lands og sinna landsbyggðinni vel. Það gæti þó reynst erfitt fyrir litinn skóla með lítinn fjárstuðn- ing,“ sagöi Kristján. Kristján sagði að ennfremur væru þeir með bréíaskóla í gangi og að þeir hefðu í framtíöinni hug á að tengja skólann við tölvunet sem tengir yfir 50 skóla á landinu viö skákþjónustu. „Svo þurfum við að koma af stað miklum gagnabanka um skák í tölvutæku formi en tölvan getur gert skákrannsókn aö há- vísindalegu starfi." Egvarðfyrir áhrifumfrá Sókratesi Háifgerð þekkingarmella Kristján lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíö árið 1974 og hóf strax sálfræði og heímspekinám við HÍ. Þaðan út- skrifaðist hann með BA-próf áriö 1978 og skellti sér þá til Kanada þar sem hann tók doktorspróf í vísindaheimspeki frá University of Western Ontario árið 1983. „Þá fór ég að kenna í Kvenna- skólanum og hef kennt þar til dagsins í dag. Það má segja aö ég sé hálfgerð þekkingarmella því ég hef eiginlega alla tíð verið að fást við eitthvað sem ég hef ekk- ert vit haft á og ekki vitaö í hvorn fótinn ég ætti að stíga. Ætli ég haíi ekki orðið fyrir það miklum áhrifum frá Sókratesi aö ég vilji endalaust vera að læra. Mér líöur td. ekki vel nema ég sitji fyrir framan tölvuna og þaö sé kveikt á henni. Ég heflengi safhað gögnum um skák, svo hef ég gefiö út bók um auglýsingasálfræði og þijár bæk- ur um námstækni í grunnskólum ásamt öðrum höfundum, og jafn- framt sinnt kennslunni. Árið 1985 varð ég námsráðgjafi viö Kvennó og starfa nú við það í hálfu starfi. Líklega veröur starfiö við Skákskólann lika hálft starf.“ Kristjánerfædduroguppalinn í Reykjavik, sonur Guðmundar Jónatans Kristjánssonar málara og Jónu Laufeyjar Hallgrímsdótt- ur húsmóður. Hann á tvær systur og eina hálfsystur. Kona Kristjáns er Margrét Jó- hannsdóttir hárgreiöslumeistari og eiga þau þijúbörn. heimspeki og skák. Svo er ég mikill fótboltamaöur, en ég til- heyri 30 manna hópi fótbolta- manna, „Lunch United," sem all- ir heföu einhvern tímann átt að slá í gegn og era enn að reyna,“ sagöiKristján. -jngo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.