Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991.
7
Athuganir á vegasambandi um Hvalfjörð
Hnausaskersleið, langsnið
r°
-50
. -100
-150 .180
Norður
Súluritið hér að neðan sýnir
styttingu vegalengda til
Borgarness og Akraness
með hliðsjón af mismun-
andi valkostum.
Leiðin Reykjavík - Borgarnes:
H 5 km
Núverandi vegur endurbyggður
Kiðafellsleið án Akranesvegar
Kiðafellsleið með Akranesvegi
Hnausaskersleið án vegar yfir Grunnafjörð
Hnausaskersleið með vegi yfir Grunnafjörð
Leiðin Reykjavík - Akranes:
JJ 5 km
Núverandi vegur endurbyggður
Kiðafellsleið án Akrafjallsvegar
Kiðafellsleið með Akranesvegi
Hnausaskersleið
DVJRJ
Kiðafellsleið, langsnið
Jarðvegsrannsóknum vegna Hvalij arðarganga að ljuka:
Fréttir
A IrmnAíw fiiwjii
Oll ■ jf ■ !■
að þiggja
mútur
Tólf embættismenn frá Skáni í
Svíþjóö hafa verið ákærðir fyrir að
þiggja mútur þar sem þeir þágu
fimm daga boðsferö tfi íslands fyrir
tveimur árum. Um málið má lesa
í sænskum dagblööum þessa dag-
ana.
Stóð feröin í fimm daga. Ferð og
uppihald greiddu fimm skánsk
byggingarfyrirtæki en alls fóru 33
í ferðina, yfirmenn fyrirtækjanna
og háttsettir menn innan sveitar-
stjóma og i heilbrigðiskerfinu á
Skáni. Niu yfirmenn og eigendur
fyrirtækjanna hafa verið ákærðir
fyrir mútustarfsemi. Kostnaður
varð alls 260 þúsund sænskar krón-
ur eða um 2,6 milijónir króna.
Ferðinni var heitið á ráöstefnu
en hún stóð aðeins einn dag. Ferða-
langarnir höfðu því íjóra daga til
að njóta lífsins á íslandi á kostnað
fyrirtækjanna. Saksóknarinn segir
ferðina hreina skemmtiferð, fama
í þeim tilgangi að gera embættis-
mennina meðfærilegri. -hlh
TANNLÆKNIR
Hef hafið störf á tannlæknastofunni, Há-
teigsvegi 1, 3. hæð (Austurbæjarapóteki),
Reykjavík. Viðtalstími er mánudaga-föstu-
daga kl. 8-17 og laugardaga kl. 10-12 í síma
62 60 35.
Ragnar Kr. Árnason
tannlæknir
Allt bendir til að
Hnausaskers-
leiðin verði valin
Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi:
Allt bendir nú til þess aö ytri leið-
in, Hnausaskersleiðin svokallaða,
verði fyrir valinu við ákvörðun um
staðsetningu jarðganga yfir Hval-
fiörð. Við rannsóknir í sumar hefur
komið í ljós að innri leiðin, svokölluð
Kiðafellsleið, hentar ekki eins vel
fyrir jarðgöng og vænst var. Dýpra
er þar niður á heUt bergþak en vonir
stóðu til.
Gísli Gíslason, varaformaður í
stjóm Spalar hf., hlutafélags um
jarðgangagerð í Hvalfirði, sagði í
samtcdi við DV að von væri á frum-
skýrslu um rannsóknirnar á næstu
dögum. Ljóst væri hins vegar af þeim
að innri leiðin hentaði ekki eins vel
til jarðgangagerðar og sú ytri.
Það að dýpra er niður á heilt berg-
þak á Kiðafellsleiðinni en búist var
viö hefði það í fór með sér að göngin
þyrftu að vera lengri en ráð var fyrir
gert. Það myndi svo aftur hleypa upp
kostnaði. Því er það sem ytri leiðin
verður væntanlega fyrir valinu.
Gísli sagði að á næstu dögum yrðu
tekin jarðvegssýni með kjamabor
við sunnanverðan fiörðinn með
Hnausaskersleið í huga. Ekki þyrfti
að bora við hann norðanverðan þar
sem menn vissu hvað þar væri und-
ir. Endanlegrar skýrslu um niður-
stöðu rannsóknanna i sumar er að
vænta á næstu vikum. Upphaflega
var stefnt að því að hún lægi fyrir
um mánaðamótin september/októb-
er.
Þorsteinn Pálsson:
Guðjón fær starf ið
sitt ekki af tur
- leggja á Bifreiðaprófm niður
„Það er búið að taka ákvörðun um
að leggja þetta starf niður. Bifreiða-
próf ríkisins verða lögð niður og
verður það eitt af fyrstu verkum Al-
þingis að gera það. Ákörðun um að
leggja stofnunina niður var tekin í
strax í sumar,“ sagði Þorsteinn Páls-
son dómsmálaráðherra við DV. Þor-
steinn var spurður hvort Guðjón
Andrésson fengi starf sitt sem for-
stöðumaður Bifreiðaprófa ríkisins
aftur.
Guðjóni var sagt upp störfum tíma-
bundið í maí síðastiiönum meðan
meint misferli hans í starfi var til
athugunar hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins. Með vísan í bréf rannsókn-
arlögreglunnar og lögreglurannsókir
og bréf dómsmálaráðuneytisins hef-
ur ríkissaksóknari ákveöið að aðhaf-
ast ekkert frekar í málum Guðjóns.
Þannig eru engar sakargiftir á hend-
ur honum sem forstöðumanni Bif-
reiðaprófanna.
- Það tekur því þá ekki að fá Guð-
jóni starfið aftur?
„Nei,“ sagði Þorsteinn.
-hlh
•••*»•••:•:•.
Laugavegi 118
Simi 28980
//
OUt
Kringlunni 8-12
Sími 679290