Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Side 24
34 Hátíðahöld í Akraborg: Hundrað ár frá fyrstu flóaferðinni Sigurður Svenisson, DV, Akranesi: Eitt hundraö ár eru um þessar mundir liðin frá því fyrstu skipulegu siglingar á milli Akraness og Reykja- víkur hófust. Hf. Skallagrímur, út- gerðaraðih Akraborgarinnar, minn- ist þessara tímamóta um helgina. Svo vih til að aðstaöa Akraborgar í Reykjavíkurhöfn verður á sunnudag flutt frá Grófarbryggju, þar sem hún hefur verið um áratugaskeiö, að Faxagarði. Þar er aðkoma öh mun auðveldari en við Grófarbryggju, þannig að aukið hagræði ætti að af skapast fyrir þá sem ferðast með skipinu. Það var árið 1891 að Sigfús Ey- mundsson ljósmyndari keypti 20 tonna skip til siglinga um Faxaflóa í samvinnu við fleiri aðila. Svo virðist sem mikU vakning um úrbætur í samgöngumálum haii átt sér stað með þjóðinni á þessum tíma. Þetta sama ár voru vígðar brýr yfir Ölfusá og Barnafossa í Borgarfirði svo dæmi séu tekin. Þrjár vikur á leiðinni Skip Sigfúsar, Faxi, var keypt frá Skotlandi. Sighng þess til íslands tók 3 vikur og var til þess tekið hversu vel það hefði reynst. Skipsins var beðiö með mikiUi óþreyju en fólk var ekkert yfir sig hrifið þegar það birt- ist í Reykjavíkurhöfn. I bókinni „Á ströndinni í hálfa öld“ þar sem ævi- minningar Þórðar Guðmundssonar skipstjóra eru raktar segir m.a. að farkosturinn hafi þótt fremur óglæsi- legur á að líta; „svartur og sótugur, lítiU og ljótur". Eigendum skipsins varð það ljóst að úr þyrfti að bæta. Þeir máluðu skipið, settu á það skjólborð og buðu að svo búnu alþingismönnum í skemmtisiglingu upp á Akranes. Ferðin tókst vel og varð þess vald- andi að Alþingi ákvað að veita 3000 króna styrk tU flóaferðanna. Lífdagar Faxa á íslandi urðu aftur á móti skemmri en efni stóðu tíl. Skipulegar siglingar frá Reykjavík, m.a. tU Akraness og á Brákarpoll, hófust að vorlagi 1891. Örlög skipsins réðust í aftakaveðri í nóvember sama ár þar sem skipið sökk í Reykjavík- urhöfn. Við tilraunir tU þess að lyfta því úr sjó brotnaði það. Neistinn kveiktur Þótt Faxi væri aUur hafði neistinn að því sem síðar urðu skipulegar sigl- ingar á miUi Reykjavíkur og Akra- ness þegar verið kveiktur. Vorið 1893 keypti Valdimar Fischer, kaupmaður í Reykjavík, 50 rúmlesta gufuskip frá Danmörku. Skipið hét upphaflega Einigkeit en nafni þess var breytt í EUn í höfuðið á nýju landshöfðingja- frúnni. Rekstur þess gekk vel og fyrsta árið sem skipið var í ferðum tóku 2716 manns sér far með því. Siglt var jafnt tU Suðumesja og til Akraness, Borgamess og vestur á Mýrar. Skipið hélt uppi áætlunarferðum allt fram á haustið 1895 er örlög þess réðust í vondu veðri þann'20. september. Það shtnaði þá upp frá festum og sökk síðan djúpt í leir í Straumfjarðar- vogi, þaðan sem það átti ekki aftur- kvæmt. Engar skipulagðar ferðir vom um flóann árið 1896 en vorið eftir kom þriðja skipið til sögunnar. Það var norskt og hlaut nafnið Reykjavík. Sú nýjung gerðist þetta sumar að Dala- menn höfðu sérstakan sendimann í feröum vikulega tU Borgarness sem flutti póst. Reykjavík hélt uppi ferð- um til 1907 er það slitnaði upp frá festum í Reykjavíkurhöfn þegar kolaskip rak á það. Reykjavíkina rak upp í kletta og lauk ævi sinni þar. Annað skip með sama nafni var feng- ið í þess stað. „Tuddinn" Þetta sama sumar, 1907, var annað skip einnig í Faxaflóaferðum, Hjálm- ar. Þetta skip var hægfara og hlaut viðumefnið „tuddinn“ sbr. Hjálmar tudda. Skipið þótti hins vegar mjög stöðugt og var vinsælt á meöal þeirra sem alla jafna voru veikir á sjó. Sigl- ing í Borgames tók oft 8-9 tíma. Arið 1908 var tekinn á leigu gufu- báturinn Geraldina. Skipstjóri þess og einn eigenda var Akumesingur- inn Jón Arnason frá Heimaskaga, alkunnur sægarpur. Þetta skip ann- aðist flóaferðir fram í maí er Breið- firðingar misstu sinn flóabát. Var Geraldína þá leigð þangað. Skipið hvarf í hafið í aftakveðri um haustið. Þar fómst þrír menn. Tímamót Tímamót í flóasiglingum urðu vor- ið 1908 er Ingólfur kom til sögunnar. Þetta var fyrsta skipið sem íslending- ar létu smiða og ekki var ætlað til fiskveiða. Ingólfur var smíðaður í Björgvin í Noregi og kostaði-66 þús- und krónur. Eigandi skipsins var Gufuskipafélag Faxaflóa. Ingólfur var fyrsta vélknúna farþega- og flutningaskipið sem hafði bæði ís- lenskan skipstjóra og áhöfn. Með Ingólfí jukust mjög allir flutningar á milli Borgarness og Reykjavíkur. Vélarbilun varð í skipinu veturinn 1918 og í framhaldi af því var það selt til Noregs og Gufuskipafélagi Faxaflóa formlega slitið. í kjölfarið var sighngum um Faxa- flóa haldið uppi með ýmsum bátum sem sumir vom lítt eða illa til þess fallnir að annast umtalsverða fólks- flutninga. Árið 1919 keypti Eimskipafélag Suðurlands 217 lesta danskt gufuskip sem hlaut nafnið Suðurland. Því var ætlað að sigla víða en endirinn varð sá að skipið var nær einvörðungu í siglingum á milli Reykjavíkur og Borgarness. Skipið reyndist farsælt að mörgu leyti þótt það þætti ekki henta vel til mikilla fólksflutninga. Stofnun Hf. Skallagríms Eimskipafélag Suðurlands var svo lagt niður 1931 og Suðurlandið selt Borgarneshreppi á 63 þúsund krónur árið eftir í tengslum við stofnun nýs hlutafélags, Hf. Skallagríms. Skipið hélt nafni sínu og hóf þegar áætlun- arferðir. Rekstur þess gekk ágætlega en þar sem það var komið til ára sinna, smíðað 1891, var farið að huga að kaupum á nýju skipi. Suðurland var þó í ferðum á vegum Hf. Skalla- gríms allt fram til ársins 1935 er það var selt. Haustið 1934 var samþykkt að semja við skipasmíðastöð í Álaborg í Danmörku um smíði nýs skips. Verð þess var 290 þúsund krónur danskar. Hlutafé Hf. Skallagríms var stóraukið og m.a. gerðist ríkið hlut- hafi auk þess að leggja fram ábyrgð- ir. Það var þó bundið þeim skilyrðum að hlutafé úr heimabyggð næmi 100 þúsundum króna. Það gekk eftir. Laxfoss til landsins Nýja skipið hlaut nafnið Laxfoss og kom til Reykjavíkur aðfaranótt 11. júlí 1935. Fjöldi ipanns beið komu skipsins. Laxfoss var 278 rúmlesta skip. Þar var boðið upp á 1. og 2. far- rými og m.a. einkaklefa. Á þilfari var rúm fyrir flmm bifreiðar. Skipið gat tekið alls 180 farþega í hverri ferð. Ganghraði þess var 12 sjómílur. Laxfoss hóf þegar áætlunarferðir á milli Reykjavíkur og Borgarness með viðkomu á Akranesi. Ekki voru þó allir sáttir víð að farþegarými væri skipt í 1. og 2. farrými. Var því ákveðið að leggja þessa skiptingu af. Við komu skipsins var gefln út föst ferðaáætlun. Siglt var alla daga vik- unnar nema mánudaga. Samhliða Laxfossi hélt Fagranesið, 80 lesta skip í eigu nokkurra Akurnesinga, úti föstum feröum á milli Akraness og Reykjavikur. Fyrir dómstóla Alvarlegar vélarbilanir tóku að gera vart við sig í Laxfossi strax á fyrsta ári. Stóð í stappi við skipa- smíðastöðina vegna þessa um langa hríð án þess að samningar tækjust um úrbætur. Að endingu fór málið fyrir dómstóla í Kaupmannahöfn ár- ið 1939. Þar var kröfum Hf. Skalla- gríms hafnað. Þrátt fyrir vélarbilanir gekk rekst- ur Laxfoss allvel. Flutningar á fólki og varningi jukust ár frá ári. M.a. var siglt vikulega til Vestmannaeyja í fyrsta sinn árið 1940. Frátafir vegna þeirra ferða sköpuðu hins vegar óánægju í Borgarnesi. Fagranesið var selt frá Akranesi 1942 og í fram- haldi af því var Akumesingum boðin hlutdeild í Hf. Skallagrími. Ekkert varð þó úr því þá. Örlagarík ferð Laxfoss fór örlagaríka ferð þann 10. janúar 1944. Lagt var upp frá Borgarnesi með viðkomu á Ákra- nesi. Er skammt var til hafnar í Reykjavík tók skipió niðri við Ör- firisey. Öllum farþegum var að end- ingu bjargað en erfitt var um vik, m.a. vegna veðurs og myrkurs. í kjölfar þessa óhapps spunnust miklar umræður um framtið rekst- urs skipsins og sýndist sitt hverjum. Eftir nokkrar tilraunir tókst loks að ná Laxfossi af strandstað og var ákveðið að láta gera við skipið. Það var aðeins tryggt fyrir 240 þúsund krónur en viðgerð kostaði hálfa aðra milljón króna. Jafnframt var skipið lengt. Hlutafé var stóraukið, m.a. til þess að standa undir viðgerðarkostn- aði. Eftir strand Laxfoss og á meðan á viðgerð stóð var notast við ýmis skip við flóasiglingar en um miðjan júlí 1945 var Laxfoss klár í slaginn að nýju. Reksturinn gekk áfallalaust næstu árin allt þar til 1952, að skipið strandaði öðru sinni, nú við Kjalar- nes. Mannbjörg varð. Versta veður var þegar óhappið átti sér stað og svo voru vegir snjóþungir að fá varð snjóbíl til þess að flytja farþega til Reykjavíkur. Við tilraunir til þess að bjarga skipinu brotnaði það í tvennt. Stjórn Hf. Skallagríms hóf þegar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.