Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Síða 50
66
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991.
Sviðsljós
Söngferill Önnu Vilhjálms í þrjátíu ár:
Frábær skemmtun
í K-17, Keflavík
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjurri;
Þaö var mikil stemning í veit-
ingahúsinu K-17 í Keílavík þegar
Anna Vilhjálms hélt upp á 30 ára
söngferil sinn. Hún haföi nýlokið
við aö syngja inn á sína fyrstu
hljómplötu og í tilefni af því var
sett saman söngdagskrá sem var
frumflutt 6. september síöastliðinn.
Dagskráin byrjaöi á rokkinu hjá
Connie Francis, Brendu Lee og síö-
an var farið yfir í tímabilið þegar
Anna söng með Svavari Gest og
Magnúsi Ingimars. Eftir þaö söng
hún nokkur kántrílög og lög sem
Janis Joplin gerði fræg. Þegar hún
fór a syngja lög eins og „Crazy“ og
„Stand by your man“ fóru gestirnir
aö taka viö sér. Aö síðustu söng
Anna lög af nýju plötunni „Frá mér
til þín“, sem örugglega á eftir aö
slá í gegn. Á plötunni eru meðal
annars lög frá rokktímabilinu og
kántrílög. Anna lauk dagskránni
meö uppáhaldslagi sínu „My Way“
viö gífurlegan fognuð gesta.
Anna var ekki eini skemmtikraft-
urinn á þessu skemmtilega kvöldi.
Hún söng með Einari Júlíussyni
og Berta Möller nokkur lög en síö-
an söngu þeir sín lög, einnig sungu
þeir Bjarni Arason og Stefán í
Lúdó. Dansararnir Jóhannes Bach-
mann, Guðbjörg Jakobsdóttir,
Ragnar Sverrisson og.Ólöf Björns-
dóttir sýndu og skemmtu fólki með
dansi. Hljómsveitin Lúdó spilaði
undir og kynnir kvöldsins var
Bjarni Dagur Jónsson og stóð hann
sig mjög vel og á hrós skilið.
Á þessu fyrsta skemmtikvöldi,
sem haldið er í tilefni af 30 ára söng-
ferli Önnu Vilhjálms, mættu yfir
tvö hundruð manns sem skemmtu
sér sér mjög vel og í lok sýningar-
innar risu þeir úr sætum til að
hylla hana og aðra er þátt tóku í
sýningunni. Stefnt er að því að
halda fjórar slíkar sýningar á
skemmtistaönum K-17 í Keflavík
og mun sú síðasta verða 28. sept-
ember næstkomandi.
Það var þétt setið og frábær stemmning þegar Anna Vilhjáims byrjaði á kántrisyrpunni með iögum eins og „Crazy“ og fleiri góðum lögum
Gestir kvöldsins risu úr sætum og hylltu Önnu Vilhjálms og aðra
skemmtikrafta kvöldsins ásamt þeim sem gerðu þessa sýningu að veru-
leika og vilja öruggleg fá fleiri slikar sýningar i framtiðinni.
DV-myndir Ægir Már
Hér má sjá þau sem gerðu þessa sýningu að veruleika og eiga þau
hrós skilið. Frá hægri Axel Jónsson, forstjóri og eigandi skemmtistaðar-
ins K-17, Anna Vilhjálms, Kolbrún Hjartardóttir, umboðsmaður Önnu,
en hún kom fram á sviðið og afhenti Önnu fyrsta eintakið af nýju hljóm-
plötunni þeirra en Kolbrún er höfundur margra laga og texta á plöt-
unni, og Valur Ármann Gunnarsson, framkvæmdastjóri staðarins.
Jóhann Pétur Sveinsson lögfræðingur mætti ásamt félögum sínum úr Skag-
firsku söngsveitinni til þess að taka lagið fyrir afmælisbarnið.
Haraldur á Hrafnkels-
stöðum fimmtugur
Það var glatt á hjalla þegar Harald-
ur Sveinsson, bóndi á Hrafnkelsstöð-
um og formaður Hrossaræktunar-
sambands Suðurlands, varð fimm-
tugur á dögunum.
I tilefni af afmælinu buðu þau hjón-
in Haraldur og Jóhanna Bríet Ing-
ólfsdóttir til veislu í félagsheimilinu
að Flúöum. Fjölmargir mættu til þess
að heiðra afmælisbarnið, ræður voru
fluttar, skrafað saman og glösum
lyft, eins og hæfir á góðri stundu. Þá
steig hluti Skagfirsku söngsveitar-
innar upp á svið og flutti nokkur lög
við góðar undirtektir gesta.
Afmæhsbarninu bárust margar
góðar gjaflr og heillaóskir á þessum
tímamótum.
Vafalaust hefur hesta og hestamennsku borið á góma
i þessum hópi: F.v. Ingibjörg Áskelsdóttir, eiginmaður
hennar, Kári Arnórsson, formaður Landssambands
hestamanna, Helgi Eggertsson ráðunautur, Selfossi,
Kristján Gunnlaugsson, sölustjóri hjá Sól hf., og Már
Ólafsson bóndi, Dalbæ.
Afmælisbarnið, Haraldur Sveinsson, ásamt eiginkonu
sinni, Jóhönnu B. Ingólfsdóttur.