Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991. 71 Vísnaþáttur Var Einar Benediktsson leirskáld? Vísnaþáttur Þáttastjóri var í þeirri andrá, sem þetta er ritað, að lesa í dagblaði frásögn af atkvæðagreiðslu og um- sögnum menntamanna um nú- tímabókmenntir, rithöfunda og raunar líka um eldri skáld. Þar segir um Einar Benediktsson að hann sé „sennilega oflofaðsti leir- hnoðari allra tíma“. Nýútskrifaður bókmenntafræðingur, sem ég nefni ekki velur atkvæðisbæra menn í þessa skoðanakönnun. Ekki ætla ég að benda á snjöllustu kvæði Ein- ars. - Birti hér tvær vísur úr ís- landsljóðum skáldsins sem í okkar samtíma hlýtur ofannefndan dóm: Ég ann þínum mætti í orði þungu, ég ann þínum leik í hálfum svörum, grætandi mál á grátins tungu, gleðimál í ljúfum kjörum. Ég elska þig, máhð undurfríða, og undrandi krýp að lindum þínum. Ég hlýði á óminn bitra, blíða, brimhljóö af sálaröldum mínum. Og dómarinn bætir við: „Sá stall- ur, sem búið er að tylla Einsa upp á sýnir best að enginn nennir að ganga á hólm viö þennan „tyrfna, þurra og stirðbusalega mikil- mennskuvaðal." Einhverjir þeirra, sem þarna greiða atkvæði, hljóta að hugsa ööruvísi, þeirra vegna er varla kurteisi að biðja um kjörskrána. En ekki vii ég að óreyndu trúa því að þeir, sem gefa út félagsrit bók- menntafræðinga, birti þessa fárán- legu könnun athugasemdalaust. Þó er aldrei að vita. Lengi máttu íslenskir rithöfund- ar búa við það að dómarar þeirra væru ekki lærðari í fræðunum en þeir sjálfir, sem skrifuðu og ortu, lítt skólagengnir og höfðu flestir sitt takmarkaða bijóstvit viö að styðjast. Sumir biðu þess með óþreyju að hinir lærðu vitringar kæmu frá útlöndum eða innlend- um menntastofnunum. Nú er sú stund upprunnin. Efni í ný föt keis- arans fæst nú kannski í næstu búð? Skáldogbóksali Á borði mínu hggur bók sem ber nafnið Frá morgni til kvölds eftir Hannes Jónasson, 1877-1957, sem lengi var bóksali á Siglufirði, einn- ig ritstjóri þar um hríð. Börn hans gáfu bókina út 1957. Tveir synir hans urðu þjóðkunnir á mennta- og hstabrautum. Hér koma nokkr- ar vísur og kvæði. Haust Vindur við gluggann gnauðar genginn í norðurátt. I garðinum rósir rauðar roða sinn missa brátt. Heimreið sína nú heldur haustið og hvessir brýn. Vorfagur árdagseldur er mér sem gömul sýn. Aðeins á efstu tindum eyglóar bjarmi skín. Lagið hjá dökkum hndum lækkar og síðast dvín. Veit ég, að vetur kaldur veiklar minn kraft og þor. Skyldi mér endast aldur aftur að sjá þig, vor. Sumri heilsað 1937 Þungt er skapið, á mér er enginn gleðibragur. Mig fýsir ei að fagna þér, fyrsti sumardagur. Vetrar liggur ennþá ís yfir hjartans lindum. Ennþá sól mér engin rís yfir hugans tindum. Þar er sífelld þoka og snær, þýðir vindar fjarri, sól, er björt í heiði hlær, hvergi sýnist nærri. Ótal mörg ég átt hef vor, yndi mér sem færðu, og þung mér léttu leiðarspor, líf mitt endurnærðu. Finn ég nú í fyrsta sinn, feril þakinn hrími. Víkur ekki veturinn vors þó komi tími. Sextugum, mér segja má, sé nú tekiö að fatast, fyrst sjónir festi ég ekki á öðru en því, sem glatast. Elhn sig við sætta má svölun þeim úr brunni einum, sem að eys hún frá endurminningunni. Ófarin mín ævispor ekki skal ég kvarta. Gleð ég mig viö gengin spor og geisla þeirra bjarta. Hátttilfjalla Hátt til íjalla hægur blær hrekur burt öll drungaský. Þangað for ég flýtti í gær og fer í dag á ný. Kom þú meö mér, kæri sveinn, kom þú með mér, unga snót. Af því skaðast ekki neinn, þó ögn sé bratt við fót. Göngu loks þá lokið er, htum við af fjallsins tind íslands dali, eyjar, sker, þá undurfogru mynd. Kveðja að lokum Lífsins þegar leik ég finn hða að endamótum, hafðu þakkir, heimur minn, hjartans innst frá rótum. Mér þú hefur mikið kennt, má það síðar gagna. Yndi, sorgir, allt er sent andans þrek að magna. Hér skal ekki hermt um, hvort hefi ég þroskast látið. Lifað hef ég, lítið ort, leikið, hlegið, grátið. Bætum loks við tveimur stökum: Nú er úti og inni kalt, engar fást þess bætur, á mig stöðugt andar svalt alla daga og nætur. Er það huggun eina mín, allar kaldar stundir, sól mér aftur síðar skín, sem ei gengur undir. Þá kveðjum við að þessu sinni. Jón úr Vör, Fannborg 7, Kópavogi. Sviðsljós Naktir karlar ekkert fyrir Ameríkana Umslagið utan um breiðskífu hljómsveitar David Bowies, Tin Machine, kemur út í tveimur útgáf- um. Á umslagið hafði verið fyrir- hugað að setja mynd af fjórum grískum höggmyndum af nöktum körlum. í Bandaríkjunum þótti þetta svo djarft að tahð var að yfir helmingur plötuverslana myndi neita að selja plötuna. Það var sem sé búið til nýtt um- slag fyrir Ameríkumarkaðinn og séð til þess að ekki sæust nein kyn- færi. „Þetta er í fyrsta skipti sem bandarískum almenningi er bann- að að virða fyrir sér klassískt hsta- verk,“ er haft eftir einum úr hljóm- sveitinni: TfreeMMl£ MARGFELDI 145 PÖNTUNARSÍMI • 653900 EFSTÁBAUGI: Al is .l:\ska LFRÆ] ÐI ORDABOKLX íslenska álfélagið hf. ÍSAL: hlutafélag þar sem öll hlutabréfin eru í eigu Swiss AJuminium Ltd.; stofnað 1966 til að byggja og reka álverksmiðju á ísl. Verk- smiðjan er í Straumsvík við Hafnarf. og starfræksla hennar byggist á samningi milli ríkisstjórnar ísl. og Swiss Aluminium Ltd. og skv. honum skipar iðnaðar- ráðh. tvo stjórnarmenn fé- lagsins 0 ísland. Veður I dag verður suðaustan- eða austankaldi eða stinn- ingskaldi og rigning um mestan hluta landsins, mest þó sunnan- og austanlands. Hiti verður á bilinu 6-13 stig, hlýjast i innsveitum norðaustanlands en einna svalast á Vestfjörðum. Akureyri skýjað 7 Egilsstaðir úrkoma 10 Keflavíkurflugvöllur rigning 10 Kirkjubæjarklaustur þoka 11 Raufarhöfn rigning 7 Reykjavík rigning 11 Vestmannaeyjar súld 10 Bergen skýjað 12 Helsinki skýjað 13 Ósló léttskýjað 17 Stokkhólmur léttskýjað 16 Þórshöfn alskýjað 13 Amsterdam skýjað 17 Barcelona mistur 27 Berlín skýjað 17 Chicago léttskýjað 2 Feneyjar þokumóða 24 Frankfurt léttskýjað 20 Glasgow skýjað 15 Hamborg skýjað 16 London léttskýjað 19 LosAngeles þoka 16 Lúxemborg skýjað 18 Madrid skýjað 29 Gengið Gengisskráning nr. 179. - 20. sept. 1991 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 59,990 60,150 61,670 Pund 103,498 103,774 103,350 Kan. dollar 52,852 52,993 54,028 Dönsk kr. 9,1651 9,1895 9,1127 Norsk kr. 9,0401 9,0642 8,9944 Sænsk kr. 9,7181 9,7440 9,6889 Fi. mark 14,5766 14,6155 14,4207 Fra. franki 10,3915 10,4192 10.3473 Belg. franki 1,7177 1,7223 1,7074 Sviss. franki 40,5393 40,6474 40,3864 Holl. gyllini 31,4043 31,4880 31,1772 Þýskt mark 35,3955 35,4899 35,1126 It. líra 0,04730 0,04743 0,04711 Aust. sch. 5,0296 5,0430 4,9895 Port. escudo 0,4122 0,4133 0,4105 Spá. peseti 0,5636 0,5651 0,5646 Jap. yen 0,44521 0,44640 0,44997 írskt pund 94,643 94,896 93,893 SDR 81,2235 81,4401 82,1599 ECU 72,5309 72,7244 72,1940 Fiskmarkaðimir Faxamarkaður 20. september seldust alls 92,223 tonn. Magn í Verð í krónum tonnum Meðal Lægsta Hæsta Blandað 0,192 41,70 10,00 44,00 Gellur 0,059 315,00 315,00 315,00 Háfur 0,022 5,00 5,00 5,00 Humarhalar 0,049 795,92 600,00 1200,00 Karfi 11,235 41,43 33,00 49,00 Keila 0,129 39,00 39,00 39,00 Langa 0,385 58,88 57,00 59,00 Lax 0,322 115,42 100,00 130,00 Lúða 0,586 326,53 170,00 440,00 Lýsa 0,400 48,00 48,00 48,00 Skarkoli 0,304 84,08 84,00 85,00 Sólkoli 0,051 82,00 82,00 82,00 Steinbitur 0,524 86,00 86,00 86,00 Tindabikkja 0.032 5,00 5,00 5,00 Þorskur, sl. 14,237 98,03 76,00 114,00 Ufsi 56,473 63,59 40,00 69,00 Undirmál. 2,551 65,36 39,00 71,00 Ýsa, sl. 4,664 121,14 54,00 134,00 Fiskmarkaður Hafnarfjarðar 20. september seldust alls 18,164 tonn. Lax 0,951 156,98 100,00 330,00 Smárþorskur 0,014 30,00 30,00 30,00 Lýsa 0,090 55,00 55,00 55,00 Ufsi 1,607 72,26 32,00 75,00 Ýsa 3,791 116,00 50,00 147,00 Þorskur 5,902 91,52 76,00 112,00 Steinbítur 0,140 93,00 93,00 93,00 Lúða 0,089 400,82 350,00 415,00 Langa 0,230 62,00 62,00 62,00 Koli 0,094 51,60 35,00 87,00 Keila 0,014 31,00 31,00 31,00 Karfi 5,234 38,00 38,00 38,00 Fiskmarkaður Suðurnesja 20. september seldust alls 104,685 tonn. Lýsa 0,118 40,00 40,00 40,00 Blandað 0,125 24,36 15,00 28,00 Steinbítur 0,232 122,00 122,00 122,00 Ýsa 2,406 99,45 92,00 107,00 Skata 0,016 110,00 110,00 110,00 Ufsi 0,126 40,32 40,00 41,00 Þorskur 2,322 80,79 76,00 96,00 Keila 3,888 48,42 46,00 50,00 Blálanga 0,063 66,00 66,00 66,00 Langa 1,575 64,36 60,00 69,00 Undirmál 0,345 54,70 54,00 57,00 Ufsi 56,946 66,69 46,00 70,00 Þorskur 26,416 101,36 80,00 128,00 Steinbítur 0,317 96,84 94,00 100,00 Sólkoli 0,094 79,00 79,00 79,00 Skarkoli 0,057 71,12 71,00 72,00 Lúða 0,157 516,50 400,00 590,00 Karfi 8,590 38,27 35,00 50,00 Blálanga 0,216 60,00 60,00 60,00 Ýsa 5,709 105,71 75,00 122,00 Humar 0,050 656,50 555,00 700,00 Fiskmarkaðurinn i Þorlákshöfn 20. september seldust alls 39,944 tonn. Blandað 0,067 34,78 20,00 50,00 Háfur 0,054 2,00 2,00 2,00 Karfi 1,702 35,42 34,00 46,00 Keila 1,329 43,00 43,00 43,00 Langa 0,642 67,63 64,00 72,00 Lúða 0,013 353,86 300,00 400,00 Lýsa 0,080 16,00 16,00 16,00 Skata 0,159 105,00 105,00 105,00 Skötuselur 0,066 286,31 200,00 455,00 Steinbitur 0,704 56,91 55,00 59,00 Þorskur.sl. 15,682 85,92 80,00 .100,00 Ufsi 15,834 62,32 62,00 63,00 Ýsa,sl. 3,610 108,21 95,00 116,00 Fiskmarkaður Isafjarðar 20. september seldust alls 5,533 tonn.___ Þorskur 2,322 80.79 76,00 96,00 Ýsa 2,407 99,46 92,00 107,00 Lúða 0,441 389,18 360,00 430,00 Steinbitur 0,232 122,00 122,00 122,00 Ufsi 0,126 40,32 40,00 41,00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.