Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1991, Síða 56
f
ETT
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- Ieyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Ásk .rift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991.
LOKI
Gæti Inga Jóna ekki orðið
fastafulltrúi hjá SÞ?
TVÖFALDUR1. vinningur
til samsetningar á tölvum og dreiímgar á Evrópumarkað
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráöherra mun um helgina
hitta að máli fUlltrúa bandarísks
stórfyrirtækis i tölvuviöskiptum
sem hefur lýst áhuga sínum á þvi
að fá aöstöðu til starfsemi sinnar á
Keflavíkurflugvelli.
„Þeir hafa óskað eftir að fá til
umráða fríiönaðarsvæði til sam-
setningar á tölvum og dreifingar á
EB- og EETA-markaði á tölvum.
Þetta stórfyrirtæki hefur verið í
viðrseðum við íslenska aðila all-
lengi. Beiðni um formlegar samn-
ingaviðræður barst okkur hins
vegar fyrir hálfum mánuði.“
Jón Baldvin segist að svo stöddu
ekki geta greint frá því um hvaða
fyrirtæki sé að ræða. Hann segir
að samkvæmt íslenskum lögum sé
ekki til neitt sem heiti fríiðnaðar-
svæði. Hins vegar hafi Alþingi
samþykkt þingsályktunartillögu
frá Karh Steinari Guðnasyni og
fleirum um myndun slíks svæðis.
„Miöað við þeirra áform yrði um
umtalsverðan rekstur að ræða. í
þessu tilfelli yrði um eins konar
tilraun að ræða sem draga mætti
lærdóma af,“ segir Jón Baldvin en
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið.
Karl Steinar Guðnason, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur, segist fagna því ef tii
þessa kæmi.
„Ég fékk á sínum tíma sam-
þykkta tillögu á Alþingi um fríiðn-
aðarsvæði á Keflavíkurflugvelli og
að sá möguleiki yrði kannaður ítar-
lega. Ég veit að menn eru i þeim
farvegi en hvað þessu máli líður
þessa stundina veit ég ekki þótt ég
viti um ákveðinn áhuga. En ég
myndi taka því mjög fagnandi ef
af þessu yrði vegna þess að at-
vinnutækifærum hefur fækkaö
mjög verulega á svæðinu og viö
þurfum ný og fleiri tækifæri," sagði
Karl Steinar.
Um hversu mörg atvinnutæki-
færi myndu skapast, ef af þessum
áformum yrði, vildi Karl Steinar
ekki segja og vildí heldur ekki tjá
sig frekar þar sem málið væri á
viðkvæmu stigi. -kaa/ns
FastafuUtrúi hjá SÞ:
Stjórnmála-
maður á þar
vel heima
- segir Jón Baldvin
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra segir enga ákvörðun hafa
verið tekna um hver verði skipaður
fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum í stað Benedikts Gröndals
sem lét af þeim starfa ; 1. vor. Fram
á vor mun Helgi Gíslason varafasta-
fulltrúi gegna starfi fastafulltrúa.
„Menn með stjórnmálareynslu
eiga vel heima í salarkynnum Sam-
einuðu þjóðanna. Það sem þar fer
fram er pólitík," segir Jón Baldvin
Hannibalsson. kaa
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Skúrir víða um land
Á morgun verður norðaustanátt á Vestíjörðum og Norðurlandi, vestlæg átt sunnanlands en breytileg átt
á Austurlandi. Rigning um mestallt land og fremur hlýtt.
Á mánudag verður austlæg eða breytileg átt og lítið eitt kaldara. Skúrir víða um land.
Það verður ekki hjá þvi komist að trén fari senn að skipta um lit og skrýðast haustlitunum. Sumarið var með
eindæmum gott og berjaspretta víðast hvar aldrei meiri. Enn má sjá fullþroska reyniber víða á höfuðborgarsvæð-
inu því að fuglarnir virðast vera þeir einu sem kunna að meta þau. DV-mynd GVA
Seyðisijörður:
Hreindýr úr
nánast
friðaðri
hjörð skotin
Inga Jóna
segirafsér
Inga Jóna Þórðardóttir hefur sagt
af sér formennsku í útvarpsráði. Inga
Jóna sagði í viötali við Ríkisútvarpið
í gærkvöldi að ákvörðun hennar
væri tilkomin vegna trúnaðarbrests
í samskiptum hennar við mennta-
málaráðherra vegna ráðningar í
__(stöðu útvarpsstjóra. Guöni Guð-
mundsson rektor mun gegna for-
mennsku í ráðinu þar til ráðherra
skiparannanformann. -ÓTT
Gíslisinnir
ieikhúsmálum
Veiðimenn frá Fljótsdalshéraði
hafa verið kærðir til lögreglunnar á
Seyðisfirði fyrir veiðiþjófnað á hrein-
dýrum. Grunur leikur á að mennirn-
ir hafi fellt hreindýr úr staðbundinni
hjörð í Austdal í sunnanverðum
Seyðisfirði. Stór hluti af um það bil
tíu hreindýra hópi, sem þar heldur
reglulega til, hefur ekki fundist.
Hjörðin, sem leitar gjarnan til Seyð-
isfjarðar á veturna, hefur verið álitin
nánast friðuð.
Hin ólöglega veiði uppgötvaðist í
vikunni þegar komið var að haus-
lausum dýrum í víðavangi. Talið er
að dráttarvél hafi átt að nota til að
flytja dýrin yfir í Fljótsdalshérað um
Fjarðarheiðina. Hvorki veiðieftirlits-
maður á Seyðisfirði né sveitarstjóm
hefur heimilað öðrum veiðimönnum
að fella dýr á þeirra svæði. -ÓTT
Gísli Alfreðsson, fráfarandi þjóð-
leikhússtjóri, hefur verið ráðinn til
starfa í menntamálaráðuneytinu.
Ráðningin er tímabundin, gildir til
áramóta. Gísla er ætlað að sinna sér-
stökum verkefnum sem tengjast leik-
húsmálum. -hlh
ÁL^ ÞJÓFAVARNIR
FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI
Vönduð og viðurkennd þjónusta
91-29399
Allan sólarhringinn
_____ Öryggisþjónustc.
wÆRI síðan 1 9Ó9