Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Blaðsíða 13
LMJGARDAGUR 12. OKTÓBRR 1991. . 13 Vísnaþáttur Heyri ég kaldan hausts- insóm „Þið vitið öll hvemig haustið kem- ur og þó er aldrei hægt að segja hvenær það kemur né hvaðan. Það kemur svo hljóðlega og hægt, læðist á tánum og andar á gróður jarðar. Það raular angurblítt og svæfir litlu jarðarbömin. Það breiöir yfir þau og biður svo móður mold aö gæta þeirra og varðveita á komandi vetri. Það hvíslar síðustu kveðjunni sinni að þeim áður en moldin tekur við þeim, eins og nærgætin móðir. Svo þegar allt er orðið kyrrt og hljótt hopar það á hæh þegar hinn gustm- ikh gestur kemur úr norðurvegum. - Já, haustið hvíslar aðvörunarorð- um að öllu sem lífsanda dregur: Bú þig undir veturinn. Og allir hlýða. Aht frá minnsta fræinu í moldinni og upp til auðugasta bóndans í sveit- inni. Aht haustið er mótað af þessu viðhorfi til vetrarins: Að skapa sér og sínum öryggi þegar vetur leggst að með öllum sínum þunga og mis- kunnarleysi. Þá var fárra kosta völ þeim er ekki höfðu hlýtt kalli og viðvörun haustsins." Svo lýsir Hannes J. Magnússon, skólastjóri á Akureyri, komu haustsins í bók sinni Hetjur hvers- dagslífsins. Og þótt lífsskilyrðin í sveitum landsins og aöbúnaður hafi verið með öðrum hætti og óvægnari en flestir þekkja nú gildir enn sú gamla og góða regla aö allur sé varinn góður. Hannes, ásamt þrem öðrum, lýsir horfunum á eft- irfarandi hátt: Kuldinn næðir nístingssár, nú eru gæði á fórum. Grund og flæði fella tár, frjósa kvæði á vörum. En svo eru þeir sem telja kærleik- ann geta haft sín áhrif, því miður veit ég ekki hvaða bjartsýnismaður er höfundur næstu vísu: Yfir tíma, yfir rúm, ástin leiöir finni. Um þig vefji haustsins húm hlýju og mildi sirini. Hjörtur Gíslason á Akureyri seg- ir svo í kvæði sem hann nefnir Munaðarleysingi: Þegar haustið hélugrátt heim að garði læðist, finnst mér hljóma úr ýmsri átt óður, sem ég hræðist. Vísnaþáttur Torfi Jónsson Því er haustsins hélunál, hert í kuldagjósti, meiri ógnun minni sál en móðurjarðar brjósti. Jón Jónsson Skagfirðingur hefur haft bjartsýnina að leiðarljósi þeg- ar hann kvað: Ég vil heyra hetjuraust - helst það léttir sporin - þess, sem yrkir undir haust eins og fyrst á vorin. Og Jóni Rafnssyni erindreka hef- ur verið eitthvað svipaö innan- brjósts þegar hann yrkir: Heimsinsveður, haust og kveld hrjá ei meðan eigum vorsins gleði, innri eld og við kveða megum. En það tekst ekki öllum að kveða kvíðann burt úr brjósti sér. Hörður Hjálmarsson frá Hofi: Heyri ég kaldan haustsins óm, húmið yfir gengur. Fölna strá og blikna blóm, brestur hjartans strengur. Steingrímur Thorsteinsson skáld virðist hafa haft meiri mætur á haustinu en öðrum árstíðum þegar hann kvað: Vor er indælt, eg það veit, þá ástar kveður raustin, en ekkert fegra á fold ég leit en fagurt kvöld á haustin. Fagra haust, þá fold ég kveð, faðmi vef mig þínum, bleikra laufa láttu beð aö legstað verða mínum. ' Haustkomunni lýsir Hallgrímur Jónasson, kennari og ferðamaður, þannig: Ýhr vindur upsum hjá undir komu dagsins, hann er. að kynna haustið á hörpu veðurlagsins. í siðasta Vísnaþætti sem ég tók saman og kom í DV 17. ág. sl. leit- aði ég að höfundi þess sem ég taldi vera stöku en reyndist vera upphaf þriðja erindis kvæðis sem Guö- mundur Friðjónsson orti til konu sinnar. Bestu þakkir til G.S. fyrir ábendinguna. En þar sem erindiö var ekki alls kostar rétt, eins og það birtist, finnst mér skylt að birta það eins og þaö er í raun og veru: Engi getu þinnar þreytu þunga lagt á vogarskál, engi getur andvökurnar álnað - það er vonlaust mál. í næsta vísnaþætti á undan (í muna streymir minning hlý) voru 4 stökur eftir Braga Björnsson frá Surtsstööum, nú á Egilsstöðum. Hann hefur óskað eftir leiðrétting- um á þrem villum sem í þeim voru, tvær þeirra má skrifa á minn reikning, þriðja villan prentvilla. En þær eru þessar: 1. í þriðju ljóð- línu fyrstu vísu skal standa: „út í glamurglaða önn“ (þannig í mínu handriti). 2. Fyrsta ljóðlína annarr- ar vísu er rétt svona: „Oft er um hálan æviveg" (er vantaði). 3. Og svo ekki komma eftir fyrstu ljóð- línu síðustu vísu (það þó e.t.v. umdeilanlegt og ekki saknæmt) segir Bragi Bjömsson og bætir viö: Vísurnar vora fjórar, villurnar reyndust þrjár, ekki samt allar stórar. Allt skal þó rétt sem stár. Og það verða lokaorðin að þessu sinni. Torfi Jónsson Það er peningur i Egils gleri! Allar glerflöskur frá Ölgerðinni eru margnota með 10 króna skilagjaldi. Ekki henda verðmœtum, hafðu tómt Egils gler meðferðis þegar þú endurnýjar Egils birgðirnar í næstu verslunar- eða sjoþþuferð. Þad er drjúgur peningur! A\ LAUGAVEGUR 26 FYRIR 15 ÁRUM OPNUÐUM VIÐ FYRSTU HLJÓMPLÖTUVERSLUN SKÍFUNNAR NÚ HÖFUM VIÐ OPNAÐ STÆRSTU HLJÓMPLÖTUVERSLUN LANDSINS MEIRI HÁTTAR OPNUNARTILBOÐ ALLA HELGINA ÓVÆNTAR UPPÁKOMUR OPIÐ ALLA HELGINA LAUGARDAG 10-16 SUNNUDAG 11-17 S*K* l*F*A*N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.