Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsinaar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Betri í bridge en pólitík Sigur íslenzkra bridgemanna í heimsmeistarakeppn- inni í Japan sýnir, hvað hægt er að gera með því að hafa viðfangsefnið í fókus. Keppnismennirnir eru ekki eðlisbetri spilamenn en þeir voru í sumar, en hafa fetað markvissa þjálfunarbraut, sem færði þeim mismuninn. Heimsmeistararnir hættu í haust að spila bridge, sem þeir kunnu fyrir. í stað þess lögðu þeir áherzlu á að byggja upp aðra hluti, svo sem líkamlegt úthald, jákvæð- an liðsanda og harðan aga af hálfu hðsstjórans. Þannig mættu þeir til leiks án hins fræga Akkillesarhæls. Hvort sem fólk spilar bridge í frístundum eða ekki, þá gleðst það yfir sigrinum. Atburðir af þessu tagi eru kærkomnir fámennri þjóð, sem er að reyna að sýna sjálfri sér og öðrum fram á, að hún hafi tilverurétt út af fyrir sig. Við fáum hreinlega meira sjálfstraust. Bridge er leikur, sem krefst gífurlegrar einbeitingar, rétt eins og skákin. Það er ánægjulegt, að einmitt þessir tveir leikir eða tvær listgreinar hafa fest rætur í hugum íslendinga. Það bendir til, að margir íslendingar geti einbeitt sér, geti sett verkefni sín í fókus. Við höfum á ýmsum öðrum sviðum séð ánægjuleg merki einbeitingar. í atvinnuhfi og tækni hefur borið á nýbreytni og uppfmningum, sem hafa skilað góðum arði. Dæmi um það eru hin fjölmörgu tölvuforrit, sem byggjast á einbeitingu og hugviti margra í greininni. Ein grein hefur setið eftir hér á landi. Það er pólitík- in, sem sjaldan er í fókus. Það er í henni, að framleidd- ar eru hvítar bækur með endemis þvaðri um ímyndaða stefnu og starfsáætlun ríkisstjórna, sem stangast fuh- komlega á við raunveruleg verk þeirra frá degi til dags. í pólitíkinni leyfa menn sér að skrifa með annarri hendi hvítar bækur um, að nú eigi að stórefla neytenda- mál, en efla með hinni hendinni einokun í flugi og skera niður fjármagn til neytendamála um tugi milljóna. Þetta er htið, einfalt og gott dæmi um íslenzka pólitík. í pólitíkinni standa menn andspænis samdrætti í sam- eiginlegri tekjuöflun landsmanna og byrja á að gefa sér sem fjárlagaforsendu, að útgjöld til landbúnaðar þurfi að aukast út yfir ahan þjófabálk, af því að lögmaður á ríkiskontór segi fáránlegan búvörusamning friðhelgan. í pólitíkinni byggist tilvera heils stjórnmálaflokks á yfirlýsingum um nýskipan veiðileyfa í sjávarútvegi, brottfah búvörusamninga og flutning umhverfisverk- efna frá landbúnaðarráðuneyti th umhverfisráðuneytis, sem svo er alls ekki fylgt eftir í ríkisstjórn. Samt er engan veginn svo, að hæfileikar íslendinga hggi svo eindregið í skák og bridge og tölvum, að ekk- ert sé afgangs fyrir pólitík. Sem dæmi má nefna, að góðir hlutir hafa verið gerðir í utanríkismálum, svo sem frumkvæði í viðurkenningu á fuUveldi Eystrasaltsríkja. Þá hefur verið haldið vel á málum íslands í viðræðum við stóra kúgunaraflið í Evrópu. í viðræðum við Evrópu- bandalagið um þátttöku íslands í evrópsku efnahags- svæði hefur ekki verið vikið frá kröfum um sjálfsfor- ræði og auðhndaforræði okkar og um gagnkvæman hag. Góðir spUamenn í pólitík mundu bæta um betur og setja í fókus, hvað við ætlumst fyrir utan evrópska efna- hagssvæðisins; hvernig hægt sé að leggja niður verð- mætabrennslu í landbúnaði og í atvinnuvegasjóðum; og hvernig íslenzkt þjóðfélag verði samkeppnishæft. Ef við værum eins góð í póhtík og við erum í bridge, mundum við ekki gefa út fókuslausar hvítbækur, fuUar af þvaðri um góð áform, sem varða veginn th vítis. Jónas Kristjánsson Menn Sharons reyna að sökkva friðarráðstefnu Um síðustu helgi létu forseti Egyptalands, utanríkisráðherra Frakklands og talsmaður forsætis- ráöherra ísraels, nær samtímis í ljós þá skoðun að horfur væru á að ráðstefna ísraels og arabaríkja um friðargerö í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs og réttindi Pal- estínumanna gæti hafist um mán- aðamótin næstu. Fregninni frá París fylgdi að Roland Dumas utan- ríkisráðherra gerði því skóna að sameiginleg boð stjórna Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna til ráð- stefnusetu yrðu send hlutaðeigend- um um miðjan mánuðinn. Fréttamenn í Washington fengu tækifæri til að bera þessi ummæli undir George Bush Bandaríkjafor- seta sem svaraði því til að hann teldi fullsnemmt að tiltaka dagsetn- ingar miðað við sína vitneskju um gang mála. En um miðja vikuna kunngerði hann enn eina för James Bakers utanríkisráðherra til ísra- els og arabaríkja til ráðstefnuund- irbúnings. Var látið í veðri vaka í Hvíta húsinu að þetta yrði væntan- lega lokayfirreið Bakers þessarra erinda. Á fundi í Algeirsborg fyrir hálf- um mánuði tókst Jasser Arafat að fá samþykkta í Palestínska þjóðar- ráðinu, útlagaþingi Palestínu- manna, stuðningsyfirlýsingu við að fyrirhuguð friðarráðstefna verði haldin en þannig orðaða að sam- tökin geta staðið að þátttöku ásamt sameiginlegri sendinefnd Jórdaníu og Palestínumanna af herteknu svæðunum. í framhaldi af þessari samþykkt er sendinefnd þriggja Palestínumanna komin til Was- hington aö ræða við Baker utanrík- isráðherra fyrir austurför hans. Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra ísraels, féllst loks á þátttöku í friðárráðstefnunni með þeim skil- málum að Frelsissamtök Palestínu, PLO, kæmu þar hvergi nærri, að Palestínumenn af hernumdu svæð- unum væru í sameiginlegri sendi- nefnd með fulltrúum Jórdaniu og meðal þeirra yrði enginn frá Aust- ur-Jerúsalem sem ísraelsmenn hertóku 1967 eins og Gazasvæðið og Vesturbakkann en ísraelsstjórn telur sig hafa innUmað endanlega í ísrael. Fyrir sitt leyti ályktaði fyndur PLÓ í Algeirsborg um rétt sinn til aö skipa sendinefnd á frið- arráöstefnu, bæði úr útlegð og af herteknu svæðunum, þar á meðal Austur-Jerúsalem, en sagöi ekkért um hve fast yrði staðið á þeim rétti. Nú er það meginverkefni James Bakers aö finna í þessu efni leið milli skers og báru, þannig að bæði ísraelsstjórn og PLO telji sig geta Erlend tídindi ■ Magnús Torfi Ólafsson við unað. Enginn vafl er á að allir málsmetandi Palestínumenn á her- teknu svæðunum myndu telja sér skylt að halda fram þeirri stefnu sem PLO hefur markað en væru þeir ekki úr samtökunum sjálfum gæti Shamir látið svo sem PLO hefði verið skákað til hliðar. Vaxandi horfur á að friðarráð- stefna komi saman hefur vakið hörð viðbrögð hægri manna í ísrael sem ekki vilja ljá máls á neinu sem orðið gæti til að hindra innlimun herteknu svæðanna smátt og smátt með landnámi ísraelsmanna og jafnvel brottrekstri allra Palestínu- manna í fyllingu tímans. Fulltrúar þessara skoöana á þingi veita stjórn Shamirs meirihluta og skipa sum ráöherraembætti. Fyrir harðlínumönnum er þó Ariel Sharon, aö nafninu til flokks- bróðir Shamirs en í raun helsti keppinautur hans um völdin. Shar- on var frumkvöðull innrásarinnar í Líbanon og er nú húsnæðismála- ráðherra. Aðfaranótt miðvikudags réðst hópur ísraelskra hægri öfgamanna inn í hús Palestínumanna í þorpi rétt við borgarmörk Gömlu borgar- innar í Jerúsalem, með búsetu- heimildir frá húsnæðismálaráðu- neyti Sharons í höndum auk vopna og gaddavírs í víggirðingar. í fylgd með hústökumönnum voru þing- menn flokka á þeirra bandi sem höföu það hlutverk að verja mál- staö þeirra fyrir lögreglu sem kvödd var á vettvang. Við lá að í bardaga slægi þegar palestínskar fjölskyldur, sem hraktar höfðu ver- iö af heimilum sínum, fengu lið- sinni nágranna. Endirinn varð að hústökumenn rýmdu heilu húsin, nema tvö, sem staðið höfðu auð. Verður búseturéttarmál fyrir dóm- stólum látið snúast um þau. Fréttamenn í ísrael eru ekki í vafa um að þessi atburður er upp- hafið að aðgerðum sem hægri menn hafa boðað til að skapa slíkt ástand í landinu að ógerlegt verði með öllu að koma saman fyrirhug- aðri friðarráðstefnu. Þykir ljóst að Sharon og hans menn muni ekki skirrast við aö leitast við aö fella stjórn Shamirs, dugi ekki annað til. Forsætisráðherrann og hans menn í Likudbandalaginu eru hins vegar að takast á um miðjufylgið í ísraelskum stjórnmálum við Verkamannailokkinn, sem vill teygja sig öllu lengra við friðargerö en forsætisráðherrann. Þess hefur gætt að undanfömu að málstaöur Verkamannaflokksins á vaxandi hljómgrunn. Einkum eru uppi efa- semdir um ágæti landnámsins á herteknu svæðunum sem Sharon hefur knúið áfram af öllum mætti síðan hann fékk yfirstjórn hús- næðismála. Það atriði varð tilefni harðrar rimmu milli stjórna ísraels og Bandaríkjanna fyrir skömmu. Bush forseti hafði óskað eftir að Shamir frestaði fram eftir vetri að bera fram ósk við Bandaríkjaþing um ríkisábyrgð á tíu milljarða doll- ara lánum á fimm ára tímabili til að byggja yfir innflytjendur frá Sovétríkjunum. ísraelski forsætis- ráðherrann haföi þessi tilmæli að engu og treysti á þrýstihópa banda- rískra gyðinga til að koma málinu fram á þingi. Bush lýsti þá yfir að hann myndi beita neitunarvaldi við þingsam- þykkt um slíka ábyrgð ísrael til handa þar sem hún gæti torveldað friðarráðstefnu. Með því að tryggja bandarískt fé í svo ríkum mæh til að byggja yfir innflytjendur væri ísraelskt fjármagn losað til að reisa landnemabyggðir á herteknum svæðum. Niðurstaðan varð samkomulag forseta og þings í Washington um aö fresta máUnu fram í febrúar. Þrýstihóparnir höfðu beðið sinn stærsta ósigur til þessa. Málið vakti feikna athygli í ísrael og eru menn þar enn að melta meö sér þýöingu úrslitanna. Það þykir til merkis um að Bandaríkjastjórn sé alvara að þrýsta af afli á um frið- argerð í löndunum fyrir botni Mið- jarðarhafs og vel geti farið svo að hún bindi endanlegan stuðning við ábyrgðarbeiöni ísraelsstjórnar þeim skilmála að stofnun landn- ámsbyggða á herteknum svæðum verði hætt meðan friðarumleitanir standa yfir. Magnús T. Ólafsson Palestínsk kona með barn sitt hrökklast undan ísraelskum landamæravörðum úti fyrir einu húsanna sem ísraelskir ofstopamenn tóku á sitt vald í palestínska þorpinu Silwan. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.