Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 12..0KTÓBER 1991. Lesendakönnun Önnu Maríu Urbancic viðskiptafræðings: DVþjónar lesendum sínum vel - nær helmingur áskrifenda kaupir ekki annað blað Innlendar fréttir og helgarblaö DV eru það efni sem mestrar hylli nýtur hjá lesendum DV. í kjölfarið fylgir síðan umfjöllun um dagskrár út- varps og sjónvarps, sakamál og er- lendar fréttir, spurning dagsins,.veð- urkort, ýmis aukablöð, sandkom og smáauglýsingar. Loki nýtur og mik- illa vinsælda þar sem þrír fjórðu les- enda kíkja á athugasemdir hans dag- legá. Þetta kemur fram í lesendakönnun sem Anna María Urbancic viðskipta- fræðingur hefur gert fyrir Frjálsa íjölmiðlun á lesvenjum neytenda DV. í könnuninni var leitað til 1400 manna á aldrinum 18 til 75 ára af landinu öllu. Úrtakið var slembiúr- tak úr þjóðskrá. Svarendum var skipt í þrjá hópa, þ.e. þeirra sem eru áskrifendur DV, þeirra sem kaupa blaðið í lausasölu og loks þeirra sem ekki kaupa blaðið. Gottblað í könnun Önnu Maríu kemur fram að nær 70 prósent lesenda telja DV gott blað. Um 28 prósent lesenda telja blaðið sæmilegt og um 3 prósent segja það iélegt. Innlendar fréttir eru með yfir 90 prósent lestur og helgarblað DV vei yfir 80 prósent lestur og þeir efnis- þættir sem nefndir vom að auki í upphafi greinar eru allir lesnir af meirihluta lesenda á degi hverjum. Þeir þættir sem næstir koma í vin- sældaröðinni eru lesendabréfin, blaðauki um útvarp og sjónvarp, DV-bílar, auglýsingar, laugardags- pistill, sviösljós, viðtalið, neytenda- síða, kynning á helgaratburðum, Dagfari, kjallaragreinar, íþróttir, teiknimyndasögur, ættfræði og kvik- myndir. Helmingur kaupir aðeins DV Ef fyrst er litið á áskrifendur DV kemur í ljós að kynferði áskrifenda er nokkuð jafnt. Karlar í hópi þeirra eru 54 prósent á móti 46 prósent kvenna. Búseta áskrifenda endur- speglar búsetudreifmgu landsins. DV er þannig í jafnri sölu um land allt. í könnuninni sést að á heimilum. tæpra 48 prósent áskrifenda eru ekki önnur dagblöð en DV keypt. Jafntmilli starfsstétta Til samanburðar við könnun Önnu Mariu er Gallupkönnum frá því í mars sl. þar sem lesendum er skipt eftir starfsstéttum. Þar kemur fram hlutfall þeirra sem einhvern tíma á tímabilinu frá 15.-28. mars lásu DV. í þessari Gallupkönnum kemur fram að um þaö bil þrír íjórðu allra starfs- stétta hafa lesið DV á þessum tíma að undanskildum bændum en tæp- lega helmingur þeirra las blaðið. Flestir úr hópi sjómanna lásu blaðið á þessu tímabih eða 85 prósent. Afstaða áskrifenda Áskrifendur eru upp tii hópa ánægðir með blaðið. Þannig telja rúmlega 84 prósent áskrifenda að engu sé ofaukið í DV. Þeir sem nefna efnisþætti sem ofaukið er tilgreina íþróttir, æsifréttir og viðkvæm mál, auglýsingar, póhtík, árásir á lands- byggð, fréttaskot, teiknimyndir og erlent efni. Á sama hátt telja rúmlega 74 prósent áskrifenda að ekkert vanti í DV. Þeir sem tiigreina efnisþætti sem vantar nefna sjávarútvegsmál, málefni landsbyggðar, fræðsluefni, framhaldssögu, fleiri viðtöl við fólk, hannyrðir og uppskriftir, menningu, íþróttir og umfjöllun um hesta. Aldursskipting áskrifenda er nokk- uð jöfn en þó eru aldurshópamir 19 til 48 ára mest áberandi. Þetta á raun- ar einnig við um lausasölukaupend- ur. Nær 94 prósent áskrifenda lesa blaðið heima en tæp 6 prósent í vinn- unni. Rúmlega 61 prósent áskrifenda byija fremst á blaðinu, tæplega 26 prósent aftast og um 8 prósent byija á ákveðnu efni blaðsins. Tæplega 30 prósent lesa aUt blaðið, rúmlega 30 prósent lesa meira en helming þess, tæplega 35 prósent lesa minna en helming blaðsins og tæplega 6 pró- sent fletta því. Eins og fram hefur komið kaupir nær helmingur áskrif- enda DV ekki annað blað. Þeir sem kaupa annað biað kaupa flestir Morgunblaðið, þá Dag, Þjóðviljann og loks Tímann. Afstaða lausasölu- kaupenda Lausasölukaupendur DV eru í meirihluta konur eða um 54 prósent. Langflestir lausasölukaupendur eru í Reykjavík og á Reykjanesi. Stærsti hluti þeirra sem kaupa DV í lausa- sölu er heimavinnandi fólk. Þá koma iðnaðarmenn og næst á eftir verslun- arfólk, verkafólk og skrifstofufólk. Lausasölukaupendur eru flestir ánægðir með DV likt og áskrifendur. Þannig teija 83 prósent þeirra engu ofaukið í biaðinu. Þeir sem nefna efni LfÍflfSt' §§$Jmy§§-t§iM§M 11% 28% 25% 36% St ALDREI STUNDUM OFT ALLTAF IS FLETT MINNAEN HELMINGUR MEIRAEN HELMINGUR MESTALLT LESIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.