Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Page 25
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
25
UE$M@tiii mmm
msmiiAiiiM
LESA AFTURÁBAK
LESA FRAMAN FRÁ
BYRJAAÐ LESA
ÁKVEÐIÐ EFNI
I
lausasölukaupendum í sjoppum eða
verslunum. Nær 15 prósent kaupa
það af blaðasölum. Flestir kaupa
laugardagsblað DV í lausasölu, þá
mánudagsblaðið. Föstudagsblaðið
kemur þar á eftir en sala þriðju-
dags-, miðvikudags- og fimmtudags-
blaða er svipuð. Rúmlega 76 prósent
lausasölukaupenda lesa blaðið
heima en nær 18 prósent í vinnunni.
Nálægt 60 prósent þeirra byrja
fremst á blaðinu en tæplega 26 pró-
sent aftast. Tæplega 15 prósent byrja
á ákveðnu efni. Rúmlega 30 prósent
lausasölukaupenda lesa allt blaðið
og tæplega 30 prósent meira en helm-
ing þess. Rúmlega 33 prósent lesa
minna en helming blaðsins og rúm-
lega 7 prósent fletta því.
Tæplega 30 prósent lausasölukaup-
enda DV kaupa ekki annað dagblað
en á heimilum nær 70 prósent þeirra
er annað blað keypt. Flestir þeirra
kaupa Morgunblaðið, þá Þjóðviljann
og loks Tímann.
Kaupa ekki
en lesa samt
Karlar eru heldur fleiri en konur í
hópi þeirra sem ekki kaupa DV eða
55 prósent á móti 45 prósent. Þeir eru
dreifðir á hin ýmsu störf en flestir
eru heimavinnandi, nemar, iðnaðar-
menn og skrifstofufólk. Þótt þessi
hópur kaupi blaðið ekki lesa það fjöl-
margir engu aö síður. Þannig lesa
yfir 60 prósent þessa hóps blaðið ein-
hvern tíma vikunnar og þar- af 14
prósent fimm til sex daga vikunnar.
Af þessum hópi lesa nær 37 prósent
DV heima og 35 prósent í vinnunni.
Rúmlega 63 prósent þeirra sem
kaupa blaðið ekki en lesa þaö samt
byija lesurinn fremst. Tæplega 22
prósent byija aftast og um 15 prósent
byija á ákveðnu efni.
Nær 11 prósent hópsins sem les
blaðið en kaupir það ekki, lesa mest-
allt efni þess. Rúmlega 23 prósent
lesa meira en helming. Nær 38 pró-
sent lesa minna en helming og rúm-
lega 28 prósent fletta því. Þeir sem
kaupa dagblöð í þessum hópi kaupa
flestir Morgunblaðið en stór hópur
þessa fólks kaupir engin dagblöð og
ber meðal annars við peningaleysi
og áhugaleysi fyrir blöðum. Önnur
blöð sem þessi hópur kaupir eru
Tíminn, Þjóðviljinn, Dagur og loks
Alþýðublaðið.
-JH
sem ofaukið er tilgreina æsifréttir,
| íþróttir og auglýsingar. Ekkert vant-
ar í blaðið segja 74 prósent lausasölu-
kaupenda. Þeir sem nefna efnis-
t flokka sem vantar tilgreina fræðslu-
' efni,sjávarútvegsmál,máiefnilands-
byggðar, viðtöl við fólk, menningu,
t fréttir, íþróttir, þar á meðal kvenna-
íþróttir og íþróttir fatlaðra, umfjöll-
un um hesta og loks veiði.
Meira en helmingur lausasölu-
kaupenda les DV ýmist alltaf daglega
eða oft. Blaðið er langoftast keypt af
LESENDUR DV
—L ro ro co GO -Þ. ■Þ. Ul Ul O)
CD •r^ cp -p* cp -Þ" co ■Þ. CD
rb ró co co Á Ól Ól CD Ó)
GO 03 co 00 co oo G0 oo CO 00
MEIRI HÁTTAR TILB0Ð
Permanent og klipping frá kr. 3.200, strípur og klipp-
ing frá kr. 2.500, litur og klipping frá kr. 2.500.
Tilboðið gildir út október.
Pantið tíma í síma 31480.
HÁRSNYRTISTOFA DÓRU OG SIGGU DÓRU,
ÁRMÚLA 5
£1RARIK
BBk. ^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
VÉLSTJÓRAR
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða vélstjóra
til starfa á Siglufirði. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita rafveitustjóri á
Siglufirði og svæðisrafveitustjóri á Blönduósi.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist fyrir 19. október nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Ægisbraut 3
540 Blönduósi
------------------------------------\
ÚTBOÐ
Snjómokstur á
Norðurlandi eystra
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í snjó-
mokstur á Norðurlandi eystra veturna 1991-
1993.
1. Norður-Þingeyjarsýsla
2. Suður-Þingeyjarsýsla
3. Eyjafjarðarsýsla
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Akureyri og í Borgartúni 5, Reykjavik (aðal-
gjaldkera), frá og með 14. október nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 21. október 1991.
Vegamálastjóri
J
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Siðumúla 39 - 108 Reykjavík - simi 678500 - fax 686270
FÖRSTÖÐUMAÐUR ÚTIDEILDAR
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns útideild-
ar. Háskólamenntun á sviði félags-, uppeldis- eða
sálarfræði er áskilin og einnig reynsla af starfi með
unglingum. Æskilegt er að starf geti hafist eigi síðar
en 1. janúar nk.
Útideild er deild innan Félagsmálastofnunar Reykja-
víkursem sinnir leitar- og vettvangsstarfi meðal ungl-
inga og er markmiðið með starfinu að fyrirbyggja að
unglingar lendi í erfiðleikum og aðstoða þá ef slíkt
kemur fyrir. Starfið felur í sér auk vettvangsstarfs,
einstaklings-, hópa- og samfélagsvinnu. Starf for-
stöðumanns er fólgið í ábyrgð á daglegum rekstri,
skipulagningu á starfi deildarinnar, auk almennra
starfa í deildinni. Starfið býður upp á mikla mögu-
leika þar sem starf útideildar er í stöðugri mótun.
Nánari upplýsingar veitir Petrína Ásgeirsdóttir, for-
stöðumaður útideildar, s. 621611 og 20365, og Vilm-
ar Pétursson, deildarstjóri unglingadeildar, í s.
625500.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvemþer nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.