Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1991, Síða 47
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991.
59
Afrnæli
Stefán Einar
Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson rafverk-
taki, Lækjarhvammi 2, Búðardal,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Stefán fæddist á Suðureyri við
Súgandafjörð en ólst upp að Fossi í
Hofsárdal viö Vopnafjörð.
Hann hefur starfað sem rafverk-
taki í Búðardal frá 1964 og rekur þar
nú verslun ásamt konu sinni.
Stefán er formaður Félags raf-
verktaka Vesturlands og hefur verið
mjög virkur í öllum félagsmálum
staðarins.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 25.12.1954 Ásu
Stefánsdóttur, f. 14.11.1935, verslun-
armanni. Hún er dóttir Stefáns Ei-
ríkssonar, d. 14.8.1978, og Guðnýjar
Guðnadóttur. Þau bjuggu lengst af
í Keskaupstað.
Stefán og Ása eiga fimm dætur.
Þær eru: Bergþóra, f. 10.11.1954,
húsmóðir, búsett í Neskaupstað, gift
Elmari Halldórssyni og eiga þau
þrjú börn; Guðný, f. 31.3.1957, hús-
móðir, búsett í Reykjavík, var gift
Per Ola Skarstad, d. 2.10.1982, og
átti með honum eina dóttur; Þuríð-
ur, f. 28.7.1960, húsmóðir, búsett í
Reykjavík, gift Birni Kristjánssyni
og eiga þau þrjár dætur; Aldís, f.
31.5.1963, húsmóðir, búsett í Nes-
kaupstað og á tvær dætur; og Þóra
Stefanía, f. 24.12.1965, húsmóðir,
búsett í Reykjavík, í sambúö með
Karli Eggertssyni og eiga þau fjögur
börn.
Bróðir Stefáns er Sigurður, f. 20.9.
1925, kvæntur Dýrleifu Kristjáns-
dóttur, búsettur í Kópavogi og á sjö
börn.
Foreldrar Stefáns voru Stefán
Ágúst Stefánsson, f. 6.8.1886, d. 6.1.
1973, kennari, og Þóra Þórðardóttir,
f. 27.8.1904, d. 15.7.1932, húsmóðir.
Foreldrar Þóru voru Þórður Þórð-
arson, f. 23.4.1874, d. 12.12.1934, frá
Skjöldólfsstöðum á Jökuldal, og
Bergljót Gestsdóttir, f. 3.10.1872, d.
Stefán Einar Stefánsson.
22.4.1968, frá Ormsstöðum í Valla-
hreppi.
Stefán Einar var sendur í fóstur
til móðurforeldra sinna að Fossi í
Vopnafirði er móðir hans lést.
Afmælisbarnið verður að heiman
á afmælisdaginn.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
VALUR
auglýsir hér með eftir knattspyrnuþjálfurum
til að þjálfa tvo af yngri flokkum félagsins.
Umsóknir óskast sendar fyrir 15. október,
merktar:
Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnudeild
Hlíðarenda v/Laufásveg
101 Reykjavík
TILBOÐ ÓSKAST
Tilboð óskast í vörubifreið, Scania 85, árgerð 1971.
Bifreiðin er tveggja hásinga, ekin ca 500 þús. km
og er til sýnis í áhaldahúsi Selfossbæjar að Austur-
vegi 52.
Nánari upplýsingar gefur verkstjóri áhaldahúss í síma
98-21388.
Tilboðin verða opnuð í tæknideild Selfossbæjar,
Austurvegi 10, fimmtudaginn 17. okt. kl. 14.00.
Áhaldahús Selfossbæjar
„Ólst upp við
sönginn heima"
- segir Móeiður Júníusdóttir, ung söngstjama á uppleið
Móeiður Júniusdóttir, ný söngstjarna sem eflaust á eftir að láta mikið að
sér kveða í framtíðinni. Ljósmynd Lárus Karl.
„Ég söng víða í sumar og þá aðal-
lega blús og djass á hinum ýmsu stöð-
um. Ætli ég hafl ekki fyrst komið
fram í söngvarakeppni framhalds-
skólanna," segir Móeiður Júníus-
dóttir, 19 ára menntaskólanemi, sem
þykir hafa slegið í gegn í nýrri sýn-
ingu á Hótel íslandi. Móeiður er ekki
vel þekkt meðal almennings en engu
að síður hefur hún sungið talsvert á
veitingahúsum bæjarins. Móeiður
hefur farið á milli þeirra með sitt
eigið prógramm og flutt slagara og
djasslög við undirieik jafnaldra síns,
píanóleikarans Karls Olgeirs 01-
geirssonar.
Móeiður segist alla tíð hafa haft
áhuga á söng enda sé mikið sungið í
fjölskyldunni. Móðir hennar, Guö-
rún Guðlaugsdóttir, blaðamaður á
Morgunblaðinu, var í söngnámi áður
fyrr og söng öll þau lög sem Móeiður
syngur á Hótel íslandi um þessar
mundir fyrir hana sem barn. „Þess
vegna þekkti ég þau svona vel,“ út-
skýrir hún. Systir Móeiðar, Ásgerð-
ur, er í Söngskólanum þar sem hún
er að læra óperusöng og bræður
hennar tveir eru í bílskúrshljóm-
sveitum. Móeiður er sjálf að læra
söng hjá Guðmundu Elíasdóttur og
hefur lært á píanó frá bamsaldri.
„Fyrir þremur árum tók ég þátt í
undankeppni söngvarakeppni fram-
haldsskóla og sigraði fyrir MR. Það
ár fór aldrei fram aðalsöngkeppni
þannig aö ég tók aftur þátt ári síðar,
sigraði aftur fyrir MR, og hafnaði í
öðm sæti keppninnar með laginu
Bláu augun þín,“ segir Móeiöur.
í þessari sömu keppni varð Páll
Hjálmtýr Hjálmtýsson í þriöja sæti
og kynntust þau Móeiður allvel. Þau
komust að því að áhugi þeirra á tón-
list fór saman og varð úr að þau
stofnuðu Jassband Reykjavíkur sem
hélt nokkra tónleika. Þar á eftir
ákvað Móeiður að fara ein af stað
með píanóleikara og syngja sín uppá-
haldslög.
Það var síðan Jón Ólafsson Bítla-
vinur sem óskaði eftir að Móeiður
yrði með í sýningunni á Hótel ís-
landi. „Ég þurfti talsverðan umhugs-
unarfrest í fyrstu en vegna þess að
mér þykir gaman að syngja ákvaö
ég að slá til. Viðtökumar hafa verið
frábærar og fólkið í salnum cdveg
æðislegt,“ segir þessa unga söng-
kona.
Móeiöur er á síðasta ári í Mennta-
skólanum í Reykjavík og hefur hug
á aö halda áfram söngnámi þó ekki
hafi hún hug á að leggja söng fyrir
sig. Hún segist hafa áhuga á öllum
tegundum tónlistar og ekki síst klas-
sík þar sem hún hafi lært á píanó.
„Það má segja að áhuginn sé allt frá
rappi upp í klassík," segir Móeiður
Júníusdóttir sem eflaust á eftir að
láta aö sér kveða í framtíðinni á sviði
tónhstar.
-ELA
KÁNTRÝ KRÁIN
BORGARVIRKINU
Laugardag: Borgarsveitin með Bjarna Ara
Sunnud: Borgarsveitin með Önnu Vilhjálms
Snyrtilegur klæðnaður
Aldurstakmark 23 ár
BORGARVIRKIÐ
Þingholtsstræti 2, sími 13737
Styrkir til háskólanáms
í Noregi og Svíþjóð
1. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram
í löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm
styrki til framhaldsnáms við háskóla í Noregi skóla-
árið 1992-93. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver
þessara styrkja muni koma í hlut íslendinga. Um-
sóknir skal senda til: Norges almennvitenskapelige
forskningsrád, Sandakerveien 99, N-0483 Oslo
4, fyrir 1. mars nk., og lætur sú stofnun í té um-
sóknareyðublöð og frekari upplýsingar.
2. Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa
erlendum námsmönnum til að stunda nám í Sví-
þjóð námsárið 1992-93. Styrkir þessir eru boðnir
fram í mörgum löndum og eru öðru fremur ætlað-
ir til náms sem eingöngu er unnt að leggja stund á
í Svíþjóð. Sérstök athygli er vakin á því að umsækj-
endur þurfa að hafa tryggt sér námsvist við sænska
stofnun áður en þeir senda inn umsókn. Styrkfjár-
hæðin er 6.440 s.kr. á mánuði námsárið, þ.e. í 9
mánuði. Til greina kemur að styrkur verði veittur
í allt að þrjú ár. Umsóknir um styrkina skulu sendar
til Svenska Institutet, Enheten för utbildnings- och
forskningsutbyte, box 7434, S-103 91 Stock-
holm,
og lætur sú stofnun í té tilskilin umsóknareyðu-
blöð fram til 1. desember nk.
Menntamálaráðuneytið
11. október 1991.