Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1991, Blaðsíða 11
MIDYIKCDAGUK 2.3.OfCfÓHÍ'ÍH 1991.
11
Sviðsljós
Þær stöllur Steinvör Jónsdóttir og Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir voru í banastuði, enda ekki ástæða til annars.
DV-myndir Hanna
Leikstjórinn margrómaði, Ste-
ven Spíelberg, gekk í það heilaga
fyrr í þessum mánuði og ruglaði
þannig saman reytum við leikkon-
una Kate Capshaw.
Brúðkaup þeirra skötuhjúa var
hefðbundið gyðingabrúðkaup,
haldið aö heimili Spielbergs á Long
Island.
Á meðal þeirra hundrað gesta,
sem boðnir voru til vígslunnar,
voru þeir Harrison Ford og Dustin
Hoffman.
Þetta er í annað sinn sem Spiel-
berg kvænist og Capshaw er ekki
með öllu óreynd heldur, hún hefur
gift sig tvisvar sinnum áður. Þau
ættu því að vita hvað þau eru að
gera.
Saman eiga þau tvö börn, soninn
Theo, 3 ára, sem þau ættleiddu á
sínum tíma, og dótturina Sasha, 16
mánaða. Einnig er von á fjölgun í
fjölskyldunni í febrúar.
Náttfataball í
Þróttheimum
Félagsmiðstöðin Þróttheimar stóð
fyrir nokkru fyrir náttfataballi þar
sem hátt í hundrað unglingar á aldr-
inum 13-16 ára dönsuðu og skemmtu
sér í hinum ýmsu múnderingum.
Stemningin var gífurleg, eins og sjá
má á myndunum, en unglingahljóm-
sveitirnar Leprous og Earth, Soul,
RocknÞ roll léku fyrir dansi.
Einnig fóru krakkarnir í leiki og
sungu fjöldasöng og þegar líða tók á
kvöldið var boðið upp á kakó og kex
og þeir sem vildu gátu horft á videó
og jafnvel gist í félagsmiðstöðinni.
Hátt í sjötíu manns tóku þann kost-
inn að gista og eins og menn geta
ímyndað sér var lítið soflð.
Morgunleikfimin, sem skipulögð
haföi verið daginn eftir, lagðist niður
sökum þess hve alhr voru þreyttir
og flestir höfðu ekki einu sinni lyst
á morgunmatnum sínum!
„Skógardísimar" voru á meðal þeirra sem komu fram og sungu, f.v.: Eva
Björg Einarsdóttir, Margrét Jóna Jónsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
AFMÆLIS-
KAFFI
Á morgun, fimmtudaginn 24. október, á SÍBS
afmæli. Af því tilefni býður SÍBS-deildin í Reykja-
vík, Berklavörn, félögum í SÍBS og velunnurum
sambandsins í afmæliskaffi í Lauga-ási, Hótel Esju,
kl. 20.30 á afmælisdaginn.
Gestur fundarins verður dr. Þorsteinn Blöndal
berklayfirlæknir ogmun hann spjalla um nikotín-
meðferð við reykingum og svara fyrirspurnum.
Allir velunnarar SIBS eru velkomnir.
SÍBS-deildin í Reykjavik
ÖLL FIMMTUDAGS- OG SUNNUDAGSKVÖLD
• •
HVER VERÐURISLANDSMEISTARI?
Nú fara fram í Ölveri í Glæsibæ
undanrásir í Islandsmeistarakepp-
ninni í KARAOKE, þar sem leitað
er að KARAOKEMEISTARANUM 1991. Á hverju
kvöldi undankeppninnar verður valinn einn söngvari
sem fær viðurkenningarskjal, óvænt verðlaun og
kemst í undanúrslit keppninnar sem verða
simnudaginn 5. janúar 1992. Þar verða síðan valdir
tíu keppendur sem ásamt Karaokemeisturum
Akureyrar og Vestmannaeyja taka þátt í úrslita-
keppninni sem haldin verður 10. janúar 1992. Vakin
er sérstök athygli á því að keppnin er einungis opin
"amatörum". Aldurstakmark 18 ára.
Skráningargjald 500 kr. Nánari upplýsingar og
skráning í Ölveri eftir
kl.l 8.00 ogísíma 686220
á áðurnefndum tíma.
Á Bylgjunni fjallar Bjarnl
Dagur um keppnina.
keppendur, stíllnn og
stællnn í þætti sínum
milll kl. 9-12 virka daga.
Tökum þátt í spennandi landskeppni um Karaoke-
meistarann 1991. Mætum öll og njótum kvöldsins.
OLVER
G L Æ S I B Æ
ÞAR SEM HVER SYNGUR MEÐ SÍNU NEFI
[Miaiaima
FERÐASKfllFSTOFA
mwm
TIL ÞJÓNUSTU ALLAW SÓLARHRIWGIWN