Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1991, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1991.
Útlönd
Sendiherra neit-
aðum áritun
Sendiherra Noregs í Singapore,
Jens Kjell Otterheeh, hefur veriö
neitaö uxn vegabréfsáritun til
Burma. Hann fékk munnleg
skilaboö þess efnis i gœr.
Otterbech er einnig sendiherra
Noregs í Burma og sem slikur á
hann rétt á því, samkvæmt Vín-
arsáttmálanum, aö heimsækja
landið.
Norska utanrikisráöuneytið
haföi gefið sendiherranum fyrir-
mæli um aö sækja um vega-
bréfsáritun til Burma eftir að
leiðtoga stjórnarandstöðunnar
þar í landi, Aung San Suu Kyi,
voru veitt friðarverðlaun Nóbels
fyrir árið 1991.
Fjöldagrafir
munkaí
Mongólíu
Fjöldagröf með líkum þúsund-
um búddamunka, sem drepnir
voru að skipun Jósefs Stalíns,
fannst nýlega í vesturhluta
Mongólíu.
Breska sjónvarpið, BBC, sagði
frá því í gær að munkarnir heffiu
verið drepnir þegar koramúnista-
stjórnin í Mongóliu gekk hart
fram í aö uppræta lamabúddisma
í landinu.
Opinberar tölur sýna að um 700
klaustur hafi verið eyðilögð og
um 17 þúsund munkar drepnir á
stjórnartíma kommúnista.
Maður á níræðisaldri, sem talað
var við í frétt BBC, sagöi aö hann
heffii farið fyrir sveit manna sem
tók munkana af lífi í umboöi
mongólskra kommúnista og Stal-
íns. Hann sagði munkana hafa
veriö skotna í höfuðið.
Núverandi stjórnvöld Mongólíu
eru aö rannsaka málið.
Lamdiríklessu
viðrannsóknir
Ástralskir vísindamenn, sem
voru að rannsaka ofheldi á
bjórkrám, uröu tvisvar fyrir
barðinu á slagsmálahundum áö-
ur en þeir komust að þeirri niöur-
stöðu aö fómarlömb slagsmála
ættu sjaldnast upptökin.
Hópurinn, sem naut leiðsagnar
atferlisfræðings, eyddi meira en
300 klukkustundum á sex mán-
aða tímabili í nokkrum illræmd-
ustu bjórkrám Sydney.
Vísindamennirnir uröu vitni aö
30 líkamsárásum og kenndu m.a.
um leiðinlegu andrúmslofti, til-
boðsverði á drykkjarvörum og
ósanngjömum útkösturum.
Árásimar á visindamennina
voru ekki alvarlegs eðlis og stað-
festu aðeins niðurstöður þeirra.
Niðurstööurnar eru þær að þeir
sem eru fullir, ungir, pervisnir
og aleinir veröa oftar en aðrir
fyrir áreitni.
Norðmennæstir
ídönskfðt
Danskir fataframleiöendur
hafa aftur náð fótfestu sem
stærsti útflytjandinn á norskan
markað. Portúgölum haffii tekist
að skjótast upp í fyrsta sætið í
eitt ár.
Nú liggur fyrir að á fyrri helm-
ingi þessa árs vom 14,2 prósent
fatnaðar í norskum verslunum
með dönsk vörumerki. Hlutur
portúgalskra framleiðenda var 13
prósent.
Danskir fataframleiðendur em
ákaflegá ánægðir með aö hafa
aftur unniö hylli norskra neyt-
enda. Ekki einasta tókst þeím aö
selja fleiri flíkur, heldur jókst
markaðshlutdeild þeirra einnig.
Norömenn fluttu inn 0,9 pró-
sent minna af fatnaöi á fyrri
helmingi ársins en á sama tima i
fyrra.
NTB, Reuter og Ritzau
Kominn tími til
úrslitaaðgerða
- segir vamarmálaráðherra Júgóslavíu
Júgóslavneski herinn hefur veitt
friöaráætlunum Evrópubandalags-
ins haröar ákúmr og sagt aö hún
muni aðeins leiða til blóðbaðs. Veljko
Kadijevic varnarmálaráðherra sagði
að hann ætlaði að kveðja út fleiri
hersveitir til aö herða sóknina gegn
Króötum. „Það er kominn tími til
úrslitaaðgeröa," sagði hann.
Sambandsherinn og sveitir Serba
vörpuðu meira en eitt þúsund
sprengjum á borgina Vukovar þar
sem umsátursástand hefur ríkt und-
anfamar vikur. Herinn beitti einnig
stórskotaliði og skriðdrekum gegn
feröamannabænum Dubrovnik viö
strönd Adríahafsins og eru hersveit-
ir nú komnar í um fimm kílómetra
fiarlægð frá gamla miðaldabænum.
Meira en sextíu þúsund menn, kon-
ur og börn komast hvorki lönd né
strönd frá Dubrovnik. Vatnsbirgðir
eru af skornum skammti, svo og raf-
magn. Þá eru nær engin fiarskipti
viö borgina.
Útvarpið í Króatíu skýrði frá því í
gær að rúmlega eitt þúsund konum,
börnum og gámalmennum hefði tek-
ist að flýja borgina með ferju.
Vestrænir stjórnarerindrekar
lýstu áhyggjum sínum yfir hörkuleg-
um ummælum varnarmálaráðherr-
ans og töldu þau benda til þess að í
uppsiglingu væru stórárásir á
Dubrovnik, Vukovar og aðra króa-
tíska bæi áður en harður vetur geng-
ur í garð og gert verður hlé á bardög-
um til vors.
Ummælin munu sannarlega varpa
skugga á friðarráðstefnu EB sem
verður í Haag á föstudag þar sem
ræða á tillögu um að Júgóslavía verði
laustengt lýðveldabandalag.
Kadijevic sagði að slíkar hugmyndir
mundu ekki leysa deiluna heldur
Króatískir bændur verða að sinna bústörfum sínum þrátt fyrir bardagana þvert á móti leiða til áframhaldandi
og til þess njóta þeir verndar króatiskra hermanna. Símamynd Reuter bardagaogblóðbaðs. Reuter
Líklegir eftirmenn framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna:
Norðmenn eiga tvo
í úrslitakeppninni
-fimm kunnir stjómmálamenn keppa um embættið
„Valið stendur milli fimm aðila sem
öryggisráöið hefur valið sem líklegra
eftirmanna de Cuellars," hefur
norska fréttastofan NTB eftir heim-
ildarmönnum úr röðum embættis-
manna hjá Sameinuðu þjóðunum.
Aðrir sem nefndir eru til sögunnar
eru Brian Mulroney, forsætisráð-
herra Kanada, Hans van der Broek,
utanríkisráðherra Hollands, og Sad-
ruddin Aga Khan prins og sérlegur
fulltrúi de Cuellars í málefnum Mið-
Austurlanda.
Talið er að skammur tími líði áður
en úrslitin verða kynnt. Nýr fram-
kvæmdasjóri tekur þó ekki við emb-
ætti fyrr en með nýju ári. Norðmenn
eru að vonum spenntir að bíða eftir
niðurstöðunni. Norðmaðurinn
Tryggve Lie var fyrsti framkvæmda-
stjóri SÞ og nú þykir frændum vor-
um sem röðin sé komin að þeim aft-
ur.
í reynd ráða stórveldin fimm, sem
skipa fastafulltrúa öryggisráðsins,
hver fær embættið. Þar hefur jafnan
náðst samkomulag um málið án
verulegra átaka og líklegt þyki að svo
fari enn.
NTB
Norömenn eru stoltir af því að eiga
tvo fulltrúa í undanúrslitum fyrir val
á arftaka Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Gro Harlem Brundtland forsætisráð-
herra.
Bæði Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra og Thorvald Stolten-
berg utanríkisráðherra þykja manna
líkegust í embættið.
Thorvald Stoltenberg utanríkisráð-
herra.
DV
Reaganvissi
um Íran-Kontra
Oliver North, einn helsti höf-
uðpaurinn í Íran-Kontrahneyksl-
inu í tíð Ronalds Reagans í Hvíta
húsinu, segist vera sannfærður
um að forsetinn hafi vitað allt um
máliö, þrátt fyrir fullyrðingar um
hið gagnstæða.
Þetta kemur fram í bók sem
North hefur skrifað um íran-
Kontra og er nú komin í bókabúð-
irvestra.
í sjónvarpsviðtali á mánudags-
kvöld þar sem North ræddi bók
sina hélt harin þvi fram að Reag-
an og hans menn hefðu gert sig
að blóraböggli til að vemda for-
setann. Hann sagði að það heffiu
verið samantekin ráð manna for-
setans að eyðileggja „að eyði-
leggja mig í orðsins fyUstu merk-
ingu“.
Pakistanmeð
kjarnavopn
Helsti kjarnorkuvisindamaður
Pakistans sagði á mánudagskvöld
að landið væri orðið kjarnorku-
veldi og að hann og starfsbræður
hans væru að smíða háþróuð
kjarnavopn.
Stjómvöld í Pakistan hafa híng-
að til vísað á bug grunsemdum
Vesturlanda um að þau væra að
koma sér upp kjarnavopnabúri
og að kjarnorkuáætlun landsins
miðaði aðeins að orkuframleiðslu
fyrir framtíðina.
Kjamorkuvísindamaðurinn
skýröi frá þessu á fundi með 200
kaupsýslumönnum og iðnrek-
endum og var gerður góður róm-
ur að máli hans.
Jólasveinninn
færforstjóra
Skipaður hefur verið fram-
kvæmdastjóri jólasveinasjóðs
Grænlendinga og á hann m.a. að
sjá um að selja jólasveininn á al-
þjóðlegum mörkuðum.
Að sögn útvarpsins á Græn-
landi hefur Santa Claus of Green-
land Foundation ráðið hinn 48
ára gamla Preben Larsen til
verksins. Larsen starfaði áður að
ferða- og markaðsmálum á Jót-
landi.
Kaj Kleist, formaður sjóðs-
stjórnar, segir að nú eigi fyrir
alvöru að reyna að vinna græn-
lenska jólasveininum alþjóðlegan
sess fyrir árið 1992. Hann ábyrg-
ist einnig að þau börn sem skrifi
jólasveinínum i ár fái svar og
jólasveinakveðju.
Tígrisdýrdrepur
veiðiþjófa
Sjaldgæft tígrisdýr á Sumatra í
Indónesíu tók lögin i sínar hend-
ur fyrir stuttu með því aö drepa
tvo veiðiþjófa á indónesísku frið-
landi.
Tígrisdýrið sló til annars
mannsins þegar hann var að
renna fyrir fisk á laugardag og
tveimur dögum síðar drap það
hinn þar sem hann var að höggva
niður tré.
Fiskveiðar og skógarhögg eru
með öllu bönnuð í þjóðgarðinum
þar sem tígrisdýrið sýnir sig
sjaldan. Talið er að ættingi tíg-
ursins á Java sé með öllu útdauð-
ur.
Þríburarí
fjórðasinn
Kona nokkur í Afríkuríkinu
Kamerún hefur fætt þribura í
fiórða sinn, að sögn opinbers dag-
blaðs þar í landi.
Hin 30 ára gamla Falmata Abba
hefur eignast 14 börn, þar af eina
tvíbura, írá því hún giftist tíu ára
gömul. Eitt bamanna lést en hin-
um líöur öllum vel.
Reuter og Kitzau