Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1991, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1991. MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1991. 17 íþróttir Iþróttir Sport- stúfar m Eftirvænting ríkir fyr- ir leik Atletico Madrid og Manchester United í 2. umferð Evrópu- keppni bikarhafa í kvöld. Bæði félögin eru taplaus í deildar- keppnum heimalanda sinna og eru í efsta sæti. „Við herum virð- ingu fyrir Manchesterliðinu og ég veit að þeír hræðast okkur einnig," sagöi Juan Vizcaino, sem skoraöi sigurmark Atletico gegn Oviedo á sunnudaginn var. Varúðarráðstafanir vegna komu Arsenal í Lássabon í Portúgal eru miklar varúðarráðstafanir vegna leiks Benfica við ensku meistarana Arsenal í Evrópukeppni meist- araliða. Um eitt þúsund stuðn- ingsmenn fylgja Arsenal og þeir verða sóttir í rútum á flugvöllinn tveimur tímum íyrir leik, skilað beint á völlinn og fluttir beint þaðan út á flugvöll að leik lokn- um. Þá eru forráðamenn Benfica áhyggjufullir vegna slakra leikja liðsins að undanfömu. George Graham, stjóri Arsenal, segir hins vegar að sér vírðist sem Benfica hafi að undanfömu veriö aö spara sig fyrir slaginn við sína menn. Papin líklega með Jean-Pierre Papin, franski markakóngurinn, verður vænt- anlega með Marseille sem mætir Sparta Prag í Evrópukeppni meistaraliða. Papin fékk bjór- flösku í höfuðið fyrir leik Mar- seille um síðustu helgi og var fluttur á sjúkrahús með vægan heilahristing. „Ég er enn með höfuðverk en vona það besta," sagði Papin í gær. Hann hefur æft meö Uði sínu en sleppt því aö skalla boltann. Micicferaustur Júgóslavneski knattspyrnumað- urinn Goran Micic hefur veriö ráðinn þjálfari 3. deildar liðs Þróttar frá Neskaupstaö og mun hann jafnframt leika meö liðinu næsta sumar. Micic hefur leikið hér á landi í þrjú ár, tvö ár með Víkingi og síðasta sumar með Þrótti úr Reykjavík. Fjórir leikir í handboita í kvöid Fjórir leikir fara fram í 1. deild karla í hand- knattleik í kvöld og með þeim lýkur 4. um- * ferðinni. Fram og Grótta mætast í Laugardalshöllinni, FH og Sel- foss í Kaplakrika, Valur og HK að Hlíðarenda og Haukar mæta BreiðabUki í Strandgötuhúsinu í Hafnarfirði. AlUr leikirair hefjast klukkan 20. Vetrardagsmót unglinga i badminton Vetrardagsmót ungl- inga í badminton verð- ur haldið i húsum TBR dagana 26.-27. október og hefst klukkan 14 á laugardag. Keppt veröur í öllum greinum og flokkum unglinga. Þátttökutil- kynningar skulu berast til TBR í síöasta lagi klukkan 18 á fimmtu- dag. Hægt er að myndsenda þær, faxnúmer TBR er 91-687622. OómaranámskeiÖ i boccia á sunnudag Dómaranámskeiö í boccia á veg- um íþróttasambands fatlaðra verður haldið sunnudaginn 27. október kl. 13-16.30 í nýja íþrótta- húsi ÍFR, Hátúni 14. Allir þeir sem áhuga hafa á að kynna sér þessa sérstöku íþrótt eru hvattir til þess áö sækja námskeiðið. Tekið er á móti skráningum á skrifstofu ÍF í síma 686301 og á skrifstofú ÍSÍ í sima 813377. Þátt- tökugjald er kr. 300. Keflvíkingar léku frábæran körfuknattleik gegn Valsmönnum í Valsheimilinu í gærkvöldi og unnu stóran sigur. Gátu Keflvíkingar leyft sér að hvíla lykilmenn sina nokkru fyrir ieikslok. Hér sjást þeir frá vinstri, Brynjar Harðarson, Birgir Guðfinnsson, Sigurður Ingimundarson, Jonathan Bow og Jón Kr. Gíslason. Bow skoraði 31 stig, Sigurður 16, og Jón Kr. 19. DV-mynd GS Stórkostlegir Keflvíkingar - gersigruðu slaka Valsmenn, 85-108, að Hlíðarenda „Þetta var góður leikur af okkar hálfu og góð nýting okkar í 3ja stiga skotum var það sem gerði gæfumun- inn,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaður ÍBK, eftir auðveldan sigur Keflvíkinga á Val í úrvalsdefid- inni (Japisdeildinni) í körfuknatt- leik, 85-108. Keflvíkingar fóru á kostum í Vals- heimilinu í gærkvöldi og lengstum var hrein unun að horfa á leik liös- ins. Frábær hittni Keflvíkinga ein- kenndi leikinn öðru fremur og ekk- ert íslenskt lið hefði staðist ÍBK snúning í gærkvöldi. Gífurlegur hraði í leik liðsins og vörnin dágóð mestan part leiksins. Keflvíkingar skoruðu 18 3ja stiga körfur gegn 6 frá Valsmönnum og skoruðu leikmenn ÍBK því nákvæmlega helming stiga sinna úr 3ja stiga körfum. Ef Jón Kr. og lærisveinar hans leika svona körfuknattleik til loka mótsins verð- ur íslandsbikarinn í varðveislu Kefl- víkinga að mótinu loknu. Bow var stórkostlegur í leiknum og Hjörtur Harðarson kom verulega á óvart með góðri hittni. Jón Kr. var einnig frá- bær og stjórnaði sínu liði af snilld. „Við vorum að leika í kvöld gegn liði sem var betra en við á öllum sviðum körfuknattleiksins. Við þessu er ekkert að gera nema að æfa betur," sagði Tómas Holton, Vals- maður, eftir leikinn. Valsliðið virkaði þungt og silalegt í leiknum og Booker á langt í land. Án hans, í mun betri æfingu, gera Valsmenn ekki rósir í vetur eins og margir bjuggust við. Booker átti ótal skottilraunir í gær- kvöldi en nýting hans var afar léleg og hefði hann mátt reyna að spila félaga sína meira uppi þegar skot hans geiguðu hvað eftir annað. -SK Valur f ór á kostum - þegar Tindastóll vann Skallagrím örugglega, 107-85 Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: „í fyrri hálfleik sýndum við okkar Valur Ingimundarson skoraði 35 stig gegn Skallagrími í gærkvöldi. rétta andlit og lékum vel. I þeim síð- ari slökuðum við á og náðum ekki að hrista af okkur slenið en sigurinn var öruggur og það var fyrir mestu," sagði Kristinn Baldvinsson, bak- vörðurinn knái í liði Tindastóls, við viö DV eftir að Tindastóll hafði borið sigurorð af Skallgrím í úrvalsdeildini í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimamenn tóku leikinn strax í sínar hendur og náðu öruggri for- ystu. Tindastólsliðið lék af miklum krafti, sérstaklega eftir miðjan hálf- leikinn og skoraði liðiö þá hverja körfuna á fætur annarri. í síðari hálfleik komu Borgnesing- ar grimmir til leiks og með mikilli baráttu náðu þeir að minnka muninn niður í 13 stig. Lengra komust leik- menn Skallagríms ekki. Tindastóll keyrði upp hraðann á lokakaflanum og öruggur sigur liðsins var innbyrt- ur á frekar auðveldan hátt. í jöfnu liði Tindastóls áttu Valur Ingimundarson, Ivan Jonas og Har- aldur Leifsson bestan leik og þá gerði Einar Einarsson góða hluti. í hði Skallagríms voru þeir Krúpa- tsjev og Birgir Mikaelsson bestir og þá komust Elvar Þórólfsson og Þórð- ur Helgason ágætlega frá sínu. „Það var sama upp á teningum í þessum leik og öðrum hjá okkur í vetur. Viö byijuðum leikinn illa og lékum illa í fyrri hálfleik. í þeim síð- ari lékum við betur en forskotið var orðið þaö mikið. Við erum samt ákveðnir í að berjast áfram og mun- um taka hressilega á móti Val í næsta leik okkar," sagði Birgir Mikaelsson, þjálfari og leikmaður Skallagríms, við DV eftir leikinn. Patrekur Jóhannesson skorar fyrir Stjörnuna i gærkvöldi. DV-mynd GS Brynjar frábær - þegar Stjaman vann KA, 29-21 „Mér fannst þetta skemmtilegur leikur og einn sá besti sem ég hef leikið í langan tíma. Við náðum okkur vel á strik og raenn gáfu sig i leíkinn. Við höfum byrjað vel en þetta er rétt að byija og við eigum erfiðan leik næst á Selfossí," sagöi Brynjar Kvaran, markvörður Stjömunnar, og besti maöur líðs síns í gærkvöldi þegar Garðbæingar unnu auðveldan sigur á KA-mönnum, 29-21. Stjörnumenn komust þar með á topp 1. deildar og verða þar alla vega þar til í kvöld en þá lýkur 4. umferð. Leikurinn i gærkvöldi var hraður og hart barist á báöa bóga eins og 11 brottvísanir í leiknum sýna fram á. Lið Stjörnunnar sýndi góðan leik og leikmenn hðsins virtust hafa gaman af hlutun- um. Brynjar var mjög góður í markinu og þeir Magnús Sigurðsson og Patrekur Jóhannesson ásamt Hafsteini Bragasyni léku allir skínandi vel. Eins var Guömund- ur Þórðarson öflugur í vörainni. KA-liðið var slakt og vantaði aha leikgleði. Stefán Kristjánsson var atkvæðamest- ur en hefur oft leikiö betur. Alfreð Gíslason náði sér engan veginn á strik og mun- ar um minna. Þetta var þriðji tapleikur hðsins í jafnmörgum leikjum og liðiö er á botninum. -RR Friðríkfer í mark ÍBV í gærkvöldi var gengið frá því að Frið- rik Friðriksson mun standa í marki Eyja- manna í knattspyrnu á næsta keppnis- tímabili. Friðrik hefur varið mark Þórs- ara frá Akureyri undanfarin tvö keppn- istímabil en flytur nú suður yfir heiðar. Eyjamenn voru með nokkur járn í eld- inum hvað markvörð varðaði. Birkir Kristinsson, markvörður Fram, var lengi vel inni í myndinni, enda Eyjamað- ur, en hann gaf Eyjamönnum afsvar í gær. Einnig kom Júgóslavinn Vukadin til greina hjá Eyjamönnum. Ingram rekinn frá Þórsurum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það varð einfaldlega ekki hjá þessu komist. Það voru allir óánægð- ir með leikmanninn, jafnt leikmenn sem áhorfendur," sagði Helgi Sig- urðsson, formaður körfuknattleiks- deildar Þórs, í samtali við DV í gær- kvöldi en þá ráku Þórsarar banda- ríska leikmanninn Michael Ingram frá félaginu. Ingram var rekinn af leikvelli í síð- asta leik Þórs gegn Val er hann rak fingur á loft og sú framkoma hans fyllti mælinn. Þórsarar reyndu að fá David Grissom, sem leikur með Breiðabliki í 1. deild, til liðs við sig en hann benti Þórsurum á leikmann sem væri honum langtum fremri. Sá er 2,06 metrar á hæð og er nýdottinn út úr leikmannahópi NBA-liðsins Indiana Pacers. Nýi leikmaðurinn er væntanlegur til landsins á fóstudag og leikur að öllum líkindum með Þór gegn KR um næstu helgi. Michael Ingram. Sigurður sagði nei - neitaði að fara með Arsenal til Portúgals sem áhorfandi Sigurður Jónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Arsenal, neitaði að fara með félaginu th Portú- gals en Arsenal leikur í kvöld gegn Benfica í Evrópukeppninni í knatt- spyrnu. „Ég var valinn í hópinn sem 17. maður sem þýðir að ég hefði þurft að fylgjast með leiknum úr áhorf- endastúkunni. Ég neitaði því að fara með hðinu enda hef ég meiri metnaö en að þvælast alla þessa vegalengd til þess eins að horfa á leikinn af pöhunum," sagði Sigurður Jónsson í samtali viö DV í gærkvöldi. Eins og komið hefur fram hefur Sigurður farið fram á sölu frá Arse- nal. Sigurður sagði í gær að hann hefði ekki enn getað rætt við George Graham framkvæmdastjóra um hugsanlegan áhuga annarra hða. -GH Hroðaleg útreið hjá Bayern Munchen Hrakfarir þýska liðsins Bayem Munchen halda áfram. í gær var svartur dagur í sögu félagsins þegar liðið fékk hroðalega útreiö gegn danska liðinu B1903 í fyrri leik liðanna í UEFA-keppninni í knattspymu í Kaupmannahöfn. Lokatölur urðu 6-2 eftiraö staðan í hálfleik varjöfn, 1-1. Þetta var þriðja tap Bayern Miinchen í röð undir stjóm Danans Sören Lerby og víst er að sæti hans er farið að hitna. Úrslit í UEFA-keppninni urðu þessi: Xamax-Celtic 5-1, B1903-Bayern Munchen 6-2, Xamax-Celtic 5-1, Gent-Frankfurt 0-0, HSV-CSKA Sofia 2-0, Cannes-Dynamo Moskva 0-1, Os- asuna-Stuttgart 0-0. í Evrópukeppni bikarhafa: Norrköping-Mónakó, 1-2. -GH Steinar. Dervic. Steinar og Dervic til Vals Steinar Ingimundarson og Izudin Dervic munu leika með bikarmeistur- um Vals í knattspyrnu á næsta keppnistímabili. Steinar, sem er 22 ára gamall, hefur leikið með Víði úr Garði síðustu tvö árin og þá hefur hann leikið með KR og Leiftri í 1. dehd. Júgóslavinn Dervic, sem er 28 ára, kemur til Vals frá FH en áður hefur hann leikið með Selfyssingum í 2. deild. Þeir Steinar og Dervic eru báðir framhnu- menn. -GH Valur (44) 85 Keflavlk (54) 108 Gangur leiksins: 2-0, 4-13, 4-16, 8-18, 13-20, 17-22, 19-27, 22-33, 27-43, 32-43, 41-49, (44-54), 44-59, 46-62, 52-64, 52-71, 58-87, 66-93, 77-101, 85-108. Stig Vals: Franc Booker 31, Magnús Matthíasson 15, Tómas Holton 11, Matthías Matthiasson 11, Ragnar Jónsson 7, Símon Ólafs- son 6, Gunnar Þorsteinsson 2, Ari Gunnarsson 2. Stig IBK: Jonathan Bow 31, Hjörtur Harðarson 19, Jón Kr. Gíslason 19, Sigurður Ingimundar- son 16, Nökkvi Már Jónsson 7, Kristinn Friðriksson 6, Brynjar Harðarson 6, Birgir Guðfinnsson 2, Júlíus Friðriksson 2. 3ja stiga körfur: Valur 6, ÍBK18. Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi Bragason, sæmilegir. Áhorfendur: Úm 200. UMFT (64)107 UMFS (38)85 Gangur leiksins: 13-4, 23-12, 29-20, 39-25, 53-34, (64-38), 72-50, 76-63, 86-68, 93-76, 107-87. Stig Tindastóls: Valur Ingimund- arson 35, Einar Einarsson 20, Ivan Jonas 19, Haraldur Leifsson 15, Kristinn Baldvinsson 8, Karl Jóns- son 8 og Hinrik Gunnarsson 2. Stig Skallagríms: Maxim Krup- atsjev 33, Birgir Mikaelsson 15, Þórður Helgason 12, Hjalti Þóris- son 7, Elvar Þórólfsson, Eggert Jónsson 4, Gunnar Jónsson 4, Guö- mundur Guðmundsson 2, Bjarki Þorsteinsson 2. Dómarar: Kristján Möller og Víglundur Sverrisson, dæmdu vel. Ahorfendur: um 370. Stjarnan (12) 29 KA (10)21 Gangur leiksins: 0-2, 3-4, 6-6, 8-8, (12-10), 17-11, 18-14, 23-15, 25-18, 29-21. Mörk Stjörnunnar: Magnús 9/4, Patrekur 6, Skúli 4, Hafsteinn 4, Hilmar 3, Einar 3/2. Varin skot: Brynjar 17/1. Út af í 10 mín. Mörk KA: Stefán 7, Alfreð 5, Sig- urpáll 4/2, Erlingur 3, Jóhann 1, Ámi 1. Yarin skot: Axel 12, Björn 1. Út af í 12 mín. Dómarar: Erlendur ísdal og Hafliði Maggason og komust þokkalega frá mjög erfiðum leik. Áhorfendur: 420. ÍR á toppnum í 2. deild Á Varmá var toppleikur í 2. deild karla þegar Afturelding tók á móti ÍR. ÍR hafði betur og sigr- aði, 15-20, og hðiö er eitt taplaust á toppi dehdarinnar. Stórsigur Víkingsstúlkna Víkingur vann stórsigur á KR í I. deild kvenna á íslandsmótinu í handknattleik í gær. Lokatölur urðu, 30-19, eftir að staðan hefði verið jöfn í leikhléi, 13-8. Mörk Víkings: Halla Helgadótt- ir 7, Heiða Erhngsdóttir 7, Svava Sigurðardóttir 5, Andrea Atla- dóttir 4, SvaVa Baldursdóttir 3, Valdís Birgisdóttir 2, Inga Lára Þórisdóttir 1 og Matthhdur Hann- esdóttir 1. Mörk KR: Sigríöur Pálsdóttir II, Sigurlaug Benediktsdóttir 2, Anna Stefánsdóttir 2, Laufey Kristjánsdóttir 2, Nehý Pálsdóttir 1 og Sara Smart 1. -GH/BÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.