Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1991, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1991.
FÖSTUDAGUR 25' OKTríÉER í'Óéí
25
íþróttir
Annar sigur
Haukanna
- sigruðu Þór, 86-66
Njarðvík A-riðill: 4 4 0 358-304 8
KR 4 2 1 385-302 6
Tindastóll... 4 2 2 347-346 4
Snæfell 4 1 3 276-340 2
Skallagr 4 0 4 294-368 0
Keflavík B-riðill: 4 4 0 404-315 8
Grindavík... 4 3 1 313-304 6
Haukar 4 2 2 345-370 4
Valur 4 1 3 342-363 2
Þór 4 0 4 284-336 0
KR (46) 105
Snæfell (27) 50
Gangur leiksins: 8-2, 20-10,
36-20, (46-27), 61-29, 73-36, 96-47,
105-50.
Stig KR: Jon Baer 21, Axel Niku-
lásson 17, Lárus Árnason 16, Óskar
Kristjánsson 14, Hermann Hauks-
son 11, Benedikt Sigurösson 8, ívar
Webster 7, Páll Kolbeinsson 6,
Matthías Einarsson 1.
Stig Snæfells: Tim Harvey 22,
Rúnar Guðjónsson 8, Bárður Ey-
þórsson 7, Þorkell Þorkelsson 5,
Karl Guðlaugsson 4, Hreinn Þor-
kelsson 2, Hjörleifur Sigurðsson 2.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson
og Bergur Steingrímsson, höfðu
góð tök á leiknum.
Áhorfendur: nálægt 200.
Haukar (37)86
Þór (33) 66
Gangur leiksins: 12-10, 20-16,
29-29, (37-33), 47-37, 57-44, 72-52,
86-66.
Stig Hauka: Mike Dizaar 22, ívar
Ásgrímsson 20, Jón A. Ingvarsson
15, Jón Ö. Guðmundsson 12, Pétur
Ingvarsson 7, Eggert Garðarsson
4, Þorvaldur Henningsson 4, Sigfús
Gissurarson 1.
Stig Þórs: Gunnar Örlygsson 22,
Sturla Örlygsson 19, Björn Sveins-
son 9, Högni Friðriksson 7, Georg
Birgisson 7, Konráð Óskarsson 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Kristinn óskarsson, dæmdu vel.
Áhorfendur: um 100.
Haukar unnu sinn annan leik í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
gærkvöldi þegar liðið vann sigur á
Þór, 86-66.
Leikurinn var í jafnvægi i fyrri
hálfleik og í leikhléi var munurinn
aðeins 4 stig. í upphafi síðari hálf-
leiks náðu Hafnfirðingarnir góðum
leikkafla og það lagði grunninn að
20 stiga sigri liðsins.
Leikurinn var illa leikinn. Mikið
var um mistök, sérstaklega hjá Þórs-
urum, og hittni leikmanna beggja
liða var frekar slök.
Bandaríkjamaðurinn Mike Dizaar
átti bestan leik Hauka, á þó að geta
gert betur, einnig var ívar Ásgríms-
son sterkur. Haukar verða að leika
betur en þeir gerðu í þessum leik
ætli liðið sér í úrslitin. Henning
Henningsson, fyrirhði Hauka, gat
ekki leikið með vegna veikinda.
Bræðurnir Gunnar og Sturla Ör-
lygssynir héldu Þórsunum hreinlega
á floti allan leiktímann. Norðanmenn
hafa byrjað keppnistímabilið Ula og
verða í fallbaráttu með sama áfram-
haldi. Það munaði miklu að liðið lék
án- Bandaríkjamanns en nýr leik-
maður er væntanlegur til liðsins í
dag.
-RR
Torino sigraði Boavista
Tveir leikir fóru fram í UEFA-keppninni í knattspyrnu í gær. Torino. ítal-
íu, vann 2-0 sigur á Boavista, Portúgal og Sporting Gijon, Spáni, og Steaua
Búkarest, Rúmeníu, skildu jöfn, 2-2. -GH
- leikmaður
5. umferðar
Jonathan Bow
Jonathan Bow, Bandaríkjamaðurinn í
liði ÍBK, er útnefndur leikmaður 5. um-
ferðar. Bow átti stórkostlegan leik með
liði sínu gegn Val á þriðjudagskvöld,
skoraði 31 stig og tók fjöldann allan af
fráköstum.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum fer
fram á skrifstofu embættisins
að Aðalstræti 92, Patreksfirði,
á neðangreindum tíma:
Brekkustígur 1, Bíldudal, þingl. eign
Ástvalds H. Jónssonar, miðvikudag-
inn 30. október 1991 kl. 16.30. Upp-
boðsbeiðendur eru Lífeyrissjóður
Vestfirðinga og Húsnæðisstofhun rík-
isins.
Dalbraut 24, Bíldudal, þingl. eign
Þóris Ágústssonar, miðvikudaginn 30.
október 1991 kl. 17.00. Uppboðsbeið-
andi er Húsnæðisstofiiun ríkisins.
Gilsbakki 1. Bíldudal, þingl. eign
Hauks Kristinssonar, miðvikudaginn
30. október 1991 kl. 17.30. Uppboðs-
beiðandi er Húsnæðisstoíhun ríkisins.
Hafiiarstræti 6, kjallari, Bíldudal,
þingl. eign Sigurbjöms Halldórssonar,
miðvikudaginn 30. október 1991 kl.»
18.00. Uppboðsbeiðandi er Lands-
banki íslands.
Langahlíð 1, Bíldudal, þingl. eign
ÞórólLs Halldórssonar, fimmtudaginn
31. október 1991 ki. 18.30. Uppboðs-
beiðandi er Húsnæðisstoínun ríkisins.
Fiskimjölsverksmiðja, Bíldudal, þingl.
eign Fiskvinnslunnar á Bíldudal,
fimmtudaginn 31. október 1991 kl.
17.30. Uppboðsbeiðandi er Byggða-
stofiiun.
Fiskþurrkunarhús á Bíldudal, þingl.
eign Fiskvinnslunnar á Bíldudal,
fimmtudaginn 31. október 1991 kl.
18.00. Uppboðsbeiðandi er Byggða-
stofiiun.
Hraðfiystihús v/Strandgötu, Bíldudal,
þingl. eign Fiskvinnslunnar á Bíldud-
al, fimmtudaginn 31. október 1991 kl.
18.30. Uppboðsbeiðandi er Byggða-
stofnun.
Sláturhús v/Strandgötu, Bíldudal,
þingl. eign Fiskvinnslunnar á Bfldud-
al, fimmtudaginn 31. október 1991 kl.
17.00. Uppboðsbeiðandi er Byggða-
stoínun.
Borg, Tálknafirði, þingl. eign Hrað-
frystihúss Tálknaíjarðar, fimmtudag-
inn 31. október 1991 kl. 16.00. Upp-
boðsbeiðandi er Ingólfur Friðjónsson
hdl. ______________________________
Ingibjörg II, BA402, skipaskmr. 1946,
Tálknafirði, fimmtudaginn 31. október
1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er
Fjárheimtan hf.
Tálknfirðingur BA-325, skipaskmr.
1534, Tálknafirði, fimmtudaginn 31.
október 1991 kl. 10.30. Uppboðsbeið-
andi er Byggðastofnun.
Aðalstræti 84, Patreksfirði, þingl. eign
Guðjóns Hannessonar, fimmtudaginn
31. október 1991 kl. 9.00. Uppboðsbeið-
andi er Sigríður Thorlacius hdl.
Veitingahús v/Eyrargötu, Patreks-
firði, þingl. eign Ambjargar Guð-
laugsdóttur, fimmtudaginn 31. októb-
er 1991 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur
em Byggðastofhun og Sigríður
Thorlacius hdl.
Frystihús á Vatnéyri, Patreksfirði,
þingl. eign Straumness hf., fimmtu-
daginn 31. október 1991 kl. 9.30. Upp-
boðsbeiðendur em Patrekshreppur,
Ingólfur Friðjónsson hdl., Hróbjartur
Jónatansson hrl., Landsbanki íslands,
íslandsbanki hf., Sigríður Thorlacius
hdl. og Andri Ámason hdl.
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum eignum fer
fram á skrifstofu embættisins að
Aðalstræti 92, Patreksfirði,
á neðangreindum tíma:
Strandgata lla, þingl. eign Haraldar
Ólafssonar, fimmtudaginn 31. október
1991 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er
Ammundur Backman hrl.
Mb. Andey, BA-125, skipaskmr. 1170,
Patreksfirði, fimmtudaginn 31. októb-
er 1991 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur
em Ingólfur Friðjónsson hdl., Reynir
Karlsson hdl., Hróbjartur Jónatans-
son hrl. og Búnaðarbanki íslands.
Miðgarður, Rauðasandshreppi, þingl.
eign Valdimars Össurarsonar,
fimmtudaginn 31. október 1991 kl.
15.30. Uppboðsbeiðandi er Byggingar-
sjóður ríkisins.
Verslunarhús v/Strandveg, Tálkna-
firði, þingl. eign Bjama Kjartansson-
ar, fimmtudaginn 31. október 1991 kl.
15.00. Uppboðsbeiðendur em Skúli J.
Pálmason hrl., Tálknafjarðarhreppur
og Jón Egilsson hdl.
Barmahlíð, dvalarheimili aldraðra,
Reykhólum, fimmtudaginn 31. októb-
er 1991 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er
Byggingarsjóður ríkisins.
Sýslumaður Baiðastrandarsýslu
: : :
■ '
■
- ■ - ■
■ . : ■ ■ ' ’:"•■ ■ ■ :■■
' 'V* ,
■'..
%%£ 'A '
■
..;'■■ ■. ■ :
7: ' ■•
(fy, £vr x\
'
§§§
: '::•■ .
... ■.■■". ■,■■■■. :■■ ■ " " :
. / ♦ .
Táknræn mynd fyrir leikinn í gær. Axel Nikulásson, KR-ingur, hefur hér betur gegn Bandaríkjamanninum Tim Harvey og skorar eina af mörgum körfum KR í gær.
DV-mynd Brynjar Gauti
KR skaut Snæfell í kaf
sigraði með 55 stiga mim í úrvalsdeildinni 1 körfuknattleik í gær
„Eftir tvo frekar slaka leiki á undan
þessum náðum við okkur vel á strik.
Við einbeittum okkur að vörninni, enda
áttum við von á kröftugri mótspyrnu
frá Snæfellingum sem voru nálægt því
að vinna Njarðvík á dögunum. Það er
góður andi yfir þessu hjá okkur og við
mætum bjartsýnir til næsta leiks gegn
Þór á Akureyri," sagði Lárus Árnason,
leikmaður KR, eftir að KR hafði gjör-
sigrað Snæfell með 55 stiga mun í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik á Sel-
tjarnarnesi í gærkvöldi.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum
um þennan leik. Yfirburðir KR-inga
voru miklir á öllum sviðum íþróttar-
innar. Vesturbæjarliðið beitti geysi-
öflugum vamarleik sem setti Hólmara
gjörsamlega út af laginu. KR-ingar náðu
fljótlega yfirburðastöðu og hreinlega
„völtuðu“ yfir afarslaka leikmenn Snæ-
fells.
Þegar 14 mínútur voru til leiksloka
brutust út slagsmál á meðal leikmanna.
Röggsamir dómarar greiddu úr flækj-
unni sem endaði með því að tveir leik-
menn voru sendir af leikvelli, Jon Ba-
er, KR-ingur, og Hjörleifur Sigurðsson
úr Snæfelli.
Eins og áður kom fram léku KR-ingar
mjög sterka vörn og þá sáust oft
skemmtilegar leikfléttur í sóknarleikn-
um. Jon Baer var góður þann tíma sem
hann var inni á og Axel Nikulásson var
öflugur í vörn sem sókn. Annars lék
allt KR-liðið vel og varamennirnir
fengu mikið að spreyta sig. Ungur ný-
hði, Óskar Kristjánsson, íék geysivel
og skoraði 14 stig.
Þetta var ekki dagur leikmanna Snæ-
fells og eins gott fyrir þá að gleyma
honum sem allra fyrst. Eftir góða
frammistöðu gegn Njarðvíkingum um
síðustu helgi áttu flestir von á jafnari
leik en annað kom á daginn. Tim Harv-
ey var skástur í liði Snæfells.
„Við vorum hreinlega á hælunum all-
an leikinn. Við hittum á KR-inga í bana-
stuði og þeir léku nánast eins og engl-
ar,“ sagði Hreinn Þorkelsson, þjálfari
og leikmaður Snæfells, við DV eftir leik-
inn. -GH
Iþróttir
FH og RÚV deila um auglýsingu á gólfinu í Kaplakrika:
Mætum ekki fyrr
en hún er farin
- segir Ingólfur Hannesson, yfirmaöur íþróttadeildar RÚV
„Við erum ekki sáttir við þá af-
stöðu Ríkissjónvarpsins að neita
að sýna frá heimaleikjum okkar
vegna þess að við erum með aug-
lýsingu á miðjum vellinum," sagði
Geir Hallsteinsson, framkvæmda-
stjóri handknattleiksdeildar FH, í
samtali við DV í gær.
Sjónvarpið hætti í fyrrakvöld við
að taka upp leik FH og Selfoss í 1.
deild karla þar sem umrædd aug-
lýsing hafði ekki verið fjarlægð af
gólfi íþróttahallarinnar í Kapla-
krika. „Það var hringt í okkur
klukkutíma fyrir leik frá Sjónvarp-
inu og spurt hvort auglýsing yrði
á vellinum. Þegar við sögðum að
svo yrði, sögðust þeir ekki koma.
Þarna er verið að vitna í aldagömul
lög og talað um aö ekki megi vera
auglýsing á milli upptökuvélar og
leiks. Samt erum við að horfa á
útsendingar frá íþróttaviðburðum
erlendis þar sem auglýsingar eru
úti um allt, eins og til dæmis á vara-
mannaskýlum. Hafnfirðingar eru
mjög reiðir í garö Sjónvarpsins,
sem sýndi engan handbolta í 11-
fréttunum á miðvikudagskvöldið,
þrátt fyrir að fjórir leikir færu þá
fram. Stöð 2 tók leikinn upp og
skipti sér ekki af auglýsingunni,"
sagði Geir.
Hann sagði ennfremur að þeir
FH-ingar hefðu mikinn áhuga á að
setja auglýsingar í vítateigana, þeir
hefðu rætt við handknattleiksdóm-
ara sem teldu að þær trufluðu leik-
inn á engan hátt.
DV ræddi við Ingólf Hannesson,
yfirmann íþróttadeildar RÚV, sem
sagði að í samningum við HSÍ hefði
þetta atriði alltaf verið tekið fram
og einnig væru skýr ákvæði í
samningum Alþjóða handknatt-
leikssambandsins við Evrópusam-
band útvarps- og sjónvarpsstöðva,
EBU, þar að lútandi.
„I þessum efnum er ekkert eitt
satt og rétt og það er misjafnt á
milli landa hvað erleyft. Við erum
með ákveðnar innanhússreglur og
tökum þá aðallega mið af því hvað
er gert á hinum Norðurlöndunum.
Ég var búinn að ræða þetta mál við
forstöðumann íþróttahússins og
Geir sjálfan í síðustu viku, og þeir
höfðu alla vikuna til að kippa þessu
í liðinn. Það er alveg á hreinu aö
RÚV mætir ekki með myndavél-
arnar á meðan auglýsingar eru á
vallargólfinu. Við höfum okkar
skyldum að gegna gagnvart okkar
áhorfendum - að þeir verði ekki
fyrir utanaðkomandi truflunum
þegar þeir horfa á útsendingar okk-
ar. Við erum ekki að banna FH að
auglýsa svona en við mætum ekki
á meðan það er gert,“ sagði Ingólfur
Hannesson.
-VS
Ýmsar tölur úr 1. deild karla í handknattleik:
Hans heldur
áf ram að skora
Hans Guðmundsson úr FH er rétt
eina ferðina kominn í slaginn um
markakóngstitil 1. deildarinnar í
handknattleik. Hann varð marka-
hæstur þegar hann lék með Breiða-
bliki fyrir þremur árum, f fyrra lék
Hans með KA og varð annar marka-
hæsti leikmaður 1. deildar - og að
loknum leikjum 4. umferðar hefur
hann skorað flest mörk allra í deild-
inni, 28 talsins.
Þessir eru nú markahæstir í 1.
deild:
Hans Guðmundsson, FH..........28/8
Halldórlngólfsson, Haukum.....27/11
Sigurður Sveinsson, Selfossi..27/14
Gústaf Bjarnason, Selfossi....25/3
Guömundur Pálmason, UBK.......25/7
Birgir Sigurðsson, Víkingi....25/11
Guðmundur Albertsson, Gróttu.. 25/14
Einar G. Sigurðsson, Selfossi.24/0
Stefán Kristjánsson, KA.......23/1
Karl Karlsson, Fram...........23/1
Magnús Sigurðsson, Stjörnunni.. 23/11
Brynjar Harðarson, Val.......22/5
Birgir með flest
mörk að meðaltali
Vegna frestana hafa liðin leikið mis-
marga leiki, Víkingur, KA, HK og
Valur 3 leiki hvert og ÍBV aðeins 2
leiki. Ef litið er á markaskor miðað
við leiki er Birgir Sigurðsson marka-
hæstur með 8,3 mörk að meðaltali í
leik. Þá hafa þessir skorað hlutfalls-
lega mest:
Birgir Sigurðsson, Víkingi 8,3
Stefán Kristjánsson, KA 7,7
Brynjar Harðarson, Val 7,3
Hans Guðmundsson, FH 7,0
Valdimar Grímsson, Val 7,0
Valdimar Grímsson er jafnasti
markaskorari deildarinnar því hann
hefur gert 7 mörk í hverjum leik Vals.
Birgir Sigurðsson hefur skoraö flest
mörk í leik, 12 gegn KA. Guðmundur
Pálmason skoraði 11 fyrir Breiðablik
gegn Haukum.
Sigurður Sveinsson, Selfossi, og
Guðmundur Albertsson, Gróttu, hafa
skorað úr flestum vítaköstum, 14 hvor.
Rúnar Einarsson, HK, kemur næstur
með 13 mörk úr vítaköstum.
Einar með flest
utan af velli
Þegar vítaköst eru ekki talin með er
Einar G. Sigurðsson frá Selfossi
markahæstur í deildinni með 24
mörk. Þessir hafa skorað mest utan
af velli:
EinarG. Sigurðsson, Selfossi......24
Stefán Kristjánsson, KA...........22
Gústaf Bjarnason, Selfossi........22
Karl Karlsson, Fram...........22
Gunnar Beinteinsson, FH.......21
Hans Guðmundsson, FH..........20
Revine hefur
varið 61 skot
Alexender Revine, Sovétmaðurinn
hjá Gróttu, hefur varið flest skot
allra markvarða í 1. deild, 61 talsins.
Þessir hafa varið flest skot:
Alexander Revine, Gróttu.........61
Bergsveinn Bergsveinsson, FH.....54
Brynjar Kvaran, Stjörnunni.......52.
Magnús I. Stefánsson, HK.........46
Guðmundur Hrafnkelsson, Val......31
Ásgeir Baldurs, UBK..............31
Magnús með flest
varin að meðaltali
Magnús Ingi Stefánsson, markvörö-
ur HK, hefur hins vegar varið flest
skot að meðaltali í leik. Hann hefur
varið 46 skot í 3 leikjum, eða 15,3
skot í leik. Þessir hafa varið flest
skot að meðaltali:
Magnús I. Stefánsson, HK......15,3
Alexander Revine, Gróttu......15,2
BergsveinnBergsveinsson, FH...13,5
BrynjarKvaran, Stjörnunni.....13,0
SigmarÞ. Óskarsson, ÍBV.......10,5
-VS
Hans Guðmundsson, FH, er marka-
hæstur í 1. deild karla með 28 mörk.
Flestir sáu Framara
Nokkur aukning átti sér stað í aösókn að ieikjum 1. deildar í knatt-
spyrnu á síðasta sumri. Fram dró að sér flesta áhorfendur í iieimaleikj-
um, KR kom þar á eftir og FH var í þriðja sæti.
Listi yfir heildartölur áhorfenda á heimaleikjum hvers liðs fyrir sig lít-
ur annars þannig út á íslandsmótinu keppnistimabilið 1991:
Fram.............. 13.326 Valur.................5.896
KR................ 10.841 Víkingur..............5.340
FH....................6.944 KA.................. 5.222
ÍBV...................6.840 Víöir.................3.710
Breiðablik........... 6.646 Stjaman...............2.858
Á heimaleikjum Fram kom að meðaltali 1.481 áhorfandi, KR 1.205, hjá
FH 772, ÍBV 760, Breiðabliki 738, Vai 655, Víkingi 593, KA 580, Víði 412,
og Stjörnunni 318.
Flestir áhorfendur komu á ieikina í 8. umferð mótsins eöa 4.893 manns
en fæstir komu á leikina í lokaumferðinni, ails 2.339.
-JKS