Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991.
11
I>V
Útlönd
I
I
I
I
»
I
i
i
Ibúar í Dubrovnik búa við mjög þröngan kost vegna umsáturs júgóslavneska hersins. Allar vistir eru af skornum
skammti og menn verða að sækja sér vatn í sérstaka tankbila. Simamynd Reuter
Friðarf lotinn til
Dubrovnik
Friðarfloti lítilla króatískra báta lá
við akkeri skammt frá Dubrovnik á
Adríahafsströnd Króatíu í nótt af
ótta við árásir hersins ef reynt yrði
að sigla til hafnar. Vonast er til að
bátarnir sigli inn til borgarinnar í
dag.
Stipe Mesic, forseti júgóslavneska
sambandsríkisins, sigldi með flotan-
um sem í eru 29 bátar milli herskip-
anna sem loka siglingaleiðum til
Dubrovnik. Markmiðið er að vekja
athygli á bágum aðbúnaði fimmtíu
þúsund manna sem komast ekki frá
borginni vegna umsáturs hersins.
Um borö í bátunum eru einnig vistir
og lyf fyrir íbúana.
Mesic og að minnsta kosti 340
manns með honum eru um borð í
ferju sem varpaði akkerum undan
Mljeteyju sem er 30 kílómetra fyrir
norðan Dubrovnik.
„Litlu bátarnir eru í hættu. Annað
hvort kasta litlu bátarnir akkerum
sínum hér eða þeir binda sig við okk-
ur,“ sagði skipstjóri ferjunnar við
áhöfn lóðsbáts.
Júgóslavneski sjóherinn hafði
stöðvað flotann við Mljet og leitað
aö vopnum um borð í bátunum. Sjón-
varpið í Belgrad sagði að nokkrum
bátum hefði verið snúið við vegna
þess að vopn fundust um borð en
ekki var hægt að fá þá frétt staðfesta.
Sambandsherinn sem Serbar
stjórna hefur setið um Dubrovnik í
ídag
fjórar vikur. Vopnahlé er í gildi um-
hverfis borgina en herinn er aðeins
í eins kílómetra fjarlægð frá borg-
armúrunum. Á leið sinni til borgar-
innar hefur hann skilið eftir sig slóð
eyðileggingar í nærliggjandi þorp-
um.
Barist var annars staðar í Króatíu
í gær og voru m.a. gerðar loftárásir
á bæinn Vukovar í norðausturhluta
lýðveldisins. Einnig var ráðist á bæi
í miðhluta Króatíu. Talið er að milli
eitt og fimm þúsund manns hafi fall-
ið í bardögunum í Króatíu frá því
lýðveldið lýsti yfir sjálfstæði í júní.
Reuter
I
D
Atkvæði talin aftur í pólsku þingkosmngunum:
Tölvurnar biluðu við talninguna
Úrslit eru enn ekki að fullu ljós í
pólsku þingkosningunum vegna þess
að tölvurnar biluðu við talninguna.
„Við þurfum að telja allt aftur,“ sagði
Andrzej Zoll, formaður yfirkjör-
stjórnar. Hann sagði að tölvur hefðu
brugðist við úthlutun á þingsætum
af svokölluöum landslista. Um er að
ræöa 69 sæti.
Það er í fyrsta lagi síðar í dag sem
hægt veröur að gefa út endanlegar
niðurstöður. Nokkrar breytingar
geta orðið á þingstyrk stærstu flokk-
anna því sætum af landslista er út-
hlutað eftir kjörfylgi yfir landið allt.
En hver sem niðurstaðan verður er
ljóst að stjórnarkreppa er í landinu.
Flokkar, sem tengdir eru verkalýðs-
hreyfmgunni Samstöðu, taka dræm-
lega í hugmyndir Walesa forseta um
aðhannleiðinýjastjórn. Reuter
Nauðungaruppboð
lausafé
Eftir kröfu Árna Halldórssonar hrl. fer fram nauðungaruppboð á vörubifreið-
inni U-2800, Mercedes Benz, árg. 1975, og festivagninum G.T. 0018, árg.
1984, fast nr. TB-047, eign Vökvavéla hf., að Miðási 18-20, Egilsstöðum,
fimmtudaginn 7. nóvember 1991 kl. 16.00.
Ofangreint verður selt I því ástandi sem það er þegar hamar fellur og ber
kaupandi ábyrgð á hinu selda frá þeim tíma.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshald-
ara. Greiðsla við hamarshögg.
Eskifirði 21. október 1991
Uppboðshaldarinn í Suður-Múlasýslu
Sigurður Eiríksson
GOODfYEAR
VETRARHJÓLBARÐAR
GOODfYEAR
60 ÁR Á ÍSLANDI
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
m
HEKLA
F0SSHÁLSI 27
SÍMI 695560 674363
I
I
I
Sýknaðuraf
nauðgunará-
kærueftirtíu ár
Skotinn John McGranaghan
hefur verið látinn laus úr fangelsi
eftir að hafa setíð þar í tiu ár fyr-
ir fjölda af grófum nauögunum
og líkamsárásum. Mál hans var
tekið upp að ný fyrir skömmu og
þá sýndi réttarlæknir fram á aö
John var ekki ofbeldismaðurinn.
Hann er því sýkn saka.
John var dáemdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir nauðganimar sem
þóttu óvenju hrottafengnar. Þeg-
ar gögn i málinu voru skoðuö
aftur kom í Ijós að hann gat ekki
veríð sá seki því að nauðgarinn
var af öðrum blóðflokki.
Mál þetta er enn eitt áfallið fyr-
ir breskt réttarkerfi. Frægasta
málið er dóraurinn yfir hinum
svokölluðu Birmingliam-sex-
menningum sem var sleppt úr
haldi fyrr á þessu ári eftir að
hafa setið á annan áratug i fang-
elsi.
Reuter
Danska
kóngafólkið
lokaðist inni í
lyftunni
Nokkrir úr dönsku konungsfjöl-
skyldunni fengu að finna fyrir því á
þriðjudagskvöld að Konunglega leik-
húsið í Kaupmannahöfn er gömul og
duttlungafull bygging.
Þegar Friðrik krónprins, Ingiríður
drottning, Benedikta prinsessa og
Ríkharöur prins ætluðu aö taka lyft-
una niður af stúkuhæðinni eftir há-
tíðarsýningu vildi ekki betur til en
svo að hin konunglega lyfta festist
mfili hæöa.
Ekki þurfti kóngafólkið þó að bíða
lengi. Fimm mínútum eftir að ýtt var
á neyðarbjölluhnappinn voru menn
frá slökkviliðinu komnir á staðinn
og drógu lyftuna niður með handafl-
inu einu saman þar sem rafkerfi
hennar var bilað.
Engumvarðmeintaf. Ritzau
15-50% afsláttur
Opið laugardag frá kl. 10.00
tsölunni lýkur
á laugardag
Lítil útborgun
Lán til allt að 24 mánaða
Bílaumboðið hf
Krókhálsl 1,110 Reykjavík Sími 686633 og 676833