Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1991, Síða 3
JMIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991.
Hyernigfá
'ogiu'
vœngi ?
Hefurðu kynnst því hvernig kjaftasögur fá vængi? Þekkirðu öll litlu
hneykslismálin sem geta komið upp innan stórrar fjölskyldu? Hún er
skemmtileg og kunnugleg, fjölskyldan sem Súsanna g|jj
Svavarsdóttir segir frá í fyrstu skáldsögu sinni,
í miðjum draumi. Persónurnar eru margar og n
ólíkar, en allar eru þær með nefið hver í annarrar
koppi. Hanna, harðdugleg og kvik, ber hitann og þungann
af daglegu amstri og lifir að mestu leyti fyrir aðra. Dag einn
verður breyting þar á. Hún fær höfuð-
högg og leggst á sjúkrahús um
stundarsakir. Eftir það verður i
ekkert eins og áður. IÐUNN
Fimmtánda fjölskyldan er spennandi skáldsaga
eftir Jón Óttar Ragnarsson. í sögunni er skyggnst
inn í ýmsa leynda afkima íslensks þjóðfélags...
íglys og veisluglaumi á gamlárskvöld horfir Kristín
á nýja jjölskyldu verða til - jimmtándu jjölskylduna
í íslenska œttarveldinu. Hvaða örlög híða hennar?
Er hún andvana fœdd og dœmd til tortímingar, eða
verður hún það óvœnta afl sem veltir hinum fjórtán
úr valdasessi? Hvað erþað sem knýr snillinginn
Óskar Hvammdal áfram - út á ystu nöf? Hverjir eru
óvinir og hverjum er hœgt að treysta?
Fimmtánda fjölskyldan er djörf og æsi-
leg saga um afbrot og valdabaráttu,
ástir og ástríður, svik og tryggð.
IÐUNN