Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1991, Blaðsíða 44
44
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991.
Meiming_______________
Góðir tónleikar
í gærkvöldi voru tónleikar í Seltjarnarneskirkju á
vegum íslandsdeildar Evrópusambands strengjakenn-
ara. Þessir tónleikar voru lokaatriöi námskeiðs sem
staöið hefur undanfama daga undir handleiöslu hjón-
anna Almita og Roland Vamos frá Bandaríkjunum.
Leikin voru verk eftir Gustav Holst, Felix Mendelsohn
og António Vivaldi. Guöný Guðmundsdóttir, Sigrún
Eðvaldsdóttir, Almita Vamos og Auður Hafsteinsdóttir
léku einleik á fiðlu en stjórnandi var Roland Vamos.
Nýlega voru orð látin faUa um tónlist Vivaldis í þá
veru að hún væri stundum fullrýr til að ástæða væri
til að hampa henni. Þessi gagnrýni á ekki við fiðlukon-
sertana fióra sem nefndir eru Árstíðirnar. Þeir eru
glæsileg verk og undurfogur og góð dæmi um há-
marksvirki einfaldleika. Vivaldi mun hafa unnið leng-
ur að þessum verkum en vandi hans var og snurfus-
aði þau og pússaði með þessum góða árangri.
Tónleikamir hófust á St. Pauls svítu Holst. Þetta er
litríkt verk, létt og áheyrilegt en ekki meira um það.
Oktett Mendelsohns býr yfir meiri metnaði og er margt
gott í því verki, enda þótt stundum sé það í sætara
lagi. Strengjaoktett er ekki að öllu leyti heppileg hljóð-
færaskipan. Samspil verður aldrei eins náið og í
smærri hóp, eins og t.d. kvartett, og erfiðara verður
að leika hreint. Þetta síðastnefnda var nokkuö vanda-
mál í oktettinum og dró úr áhrifum flutningsins sem
að öðru leyti var góður. Auður Hafsteinsdóttir lék
fyrstu fiðlu með prýði en það er hálfgert einleikshlut-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
verk.
Holst hljómaði mjög faUega í flutningi strengjasveit-
arinnar og var leikin af töluverðri snerpu og með fall-
egum styrkbreytingum. Var greinilegt að Vamos
hljómsveitarstjóri hafði undirbúið hljómsveitina vel.
Áhrifamestur var flutningurinn á Árstíðunum, bæði
hjá hljómsveitinni og einleikumnum. Mátti varla á
milli sjá hver þeirra stæði sig best, enda var túlkun
þeirra hver með sínum hætti. Þess má geta að Vamos-
hjónin kenndu bæði Sigrúnu Eðvaldsdóttur og Auði
Hafsteinsdóttur fiðlúleik. Er greinilegt að þau hafa
ýmislegt fram að færa þar sem strengjaleikur er ann-
ars vegar og em þau góðir gestir.
Andlát
Kristín Daníelsdóttir, Hlégerði 29,
Kópavogi, lést í Landakotsspítala 16.
desember.
Björgvin Ketill Björgvinsson, Aust-
urtúni 15, Bessastaðahreppi,. lést af
slysfómm 16. desember.
Jarðarfarir
Jóhann Marel Jónasson stórkaup-
maður, Laugavegi 55, Von, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Foss-
'vogskirkju fóstudaginn 20. desember
kl. 15.
Stefán Júlíus ísaksson, sem andaðist
15. desember, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 19.
desember kl. 15.
Elín Salina Grímsdóttir, Sundabúð,
Vopnafirði, er látin. Útfórin fer fram
frá Vopnafiarðarkirkju laugardag-
inn 21. desember kl. 14.
Guðrún Margrét Þorbergsdóttir,
Skipasundi 25, Reykjavík, andaðist í
Landspítalanum aðfaranótt 10. des-
ember. Útforin verður gerð frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 19. des-
ember kl. 10.30 árdegis.
Jóhann Sigurgeir Einarsson vél-
stjóri, Brautarholti 22, Reykjavík, er
látinn. Jarðarforin fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju föstudaginn 20. des-
ember kl. 13.30.
Arnbjörg Tómasdóttir Kjaran andað-
ist á Hrafnistu, Hafnarfirði, 13. des-
ember. Útfórin fer fram frá litlu kap-
ellunni í Fossvogi fimmtudaginn 19.
desember kl. 13.30.
Kristján H. Jónatansson, sem lést 10.
desember, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu fóstudaginn 20. des-
ember kl. 13.30.
Járnbrá Friðriksdóttir, frá Bakka í
Bakkafirði, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 19.
desember kl. 13.30.
Edith Clausen verður jarðsungin frá
Fossvogskapellu föstudaginn 20. des-
ember kl. 10.30.
Guðrún Helga Theodórsdóttir,
Þykkvabæ 17, verður jarðsungin frá
Árbæjarkirkju fimmtudaginn 19.
desember kl. 15.
Útför Jóns Bergsteinssonar múrara-
meistara, Vesturgötu 52, fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, miðvikudaginn
18. desember, kl. 15.
Tilkynriingar
Aðventustund í Hafnarborg
Fimmtudaginn 19. desember kl. 20.30
standa Kór og Bamakór Hafnarfjarðar-
kirkju, Tónlistarskóli Hafnarfjaröar og
Hafnarborg fyrir aðventustimd í Hafhar-
borg. Fram koma: Inga Backman sópran-
söngkona, Einar Jónsson trompetleikari,
Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari,
Grnmar Gunnarsson flautuleikari, Guð-
rún Guðmundsdóttir orgelleikari, Ric-
hard Kom kontrabassaleikari, Bamakór
Hafnarfj arðarkirkj u og Kór Hafnarfjarð-
arkirkju. Stjómendur: Brynhildur Auð-
bjargardóttir og Helgi Bragason. Á efnis-
skrá em aðventu- og jólatónlist.
Jólasveinar heimsækja
Þjóðminjasafnið
Á morgun kl. 11 kemur Skyrgámur í
heimsókn á Þjóðminjasafnið.
Ákeyrsla á Sogavegi
í byrjun desember um kl. 8 að morgni
keyrði kona á hvítum bíl aftan á Mitsu-
bishi Lancer fyrir utan Garðsapótek á
Sogavegi. Er konan eða einhverjir sem
hafa orðið varir við þetta vinsamlegast
beðnir að hafa samband við Dóm í vs.
29433 eöa hs. 678499.
Nýtt gallerí
Nýlega var opnuö verslun/gallerí „Jörð
9“ að Skólavörðustíg 17. Þar em tíl sölu
ýmsar handunnar leðurvörur sem allar
em unnar á staðnum. Eigandi staðarins
er Öm Ingólfsson sem hefur starfað við
leðurhönnun í fjöldamörg ár. Opið er frá
kl. 13-18 alla virka daga. En afgreiðslu-
timinn mun þó verða eitthvað lengri
þessa síðustu daga fyrir jól.
Jólatrésskemmtun
Ljósmæðrafélagsins
verður haldin sunnudaginn 29. desember
kl. 16 í Fóstbræðraheimilinu við Lang-
holtsveg.
Nýtt í Naustinu
Naustið við Vesturgötu er að venju með
jólahlaðborð i desember. Meðal kræsinga
má nefna átta síldarrétti, auk ýmissa fisk-
og kjötrétta. Hlaðborðið byggist á hefð-
bundnu dönskujólahlaðborði með sterku
íslensku ívafi. Aður en gestir gæða sér á
krásunum, og eftir á, geta þeir sest niður
og notið veitinga í koníaksstofu sem ný-
lega var innréttuð í austurenda hússins
(áður Geirsbúð). Þar er gamalt og nota-
legt andrúmsloft með gamaldags hús-
gögnum eins og Chesterfield.
Til að gestir átti sig á fjölbreyttum krás-
unum er Rúnar Guðmundsson yfirkokk-
ur til aðstoðar. Hinn góðkunni söngvari
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á fasteigninni Suðurlandsbraut 16,
hluta, þingl. eigandi B.K. Verktakar,
fer fram á eigninni sjálfri föstud. 20.
des. ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur
eru íslandsbanki hf. og Guðmundur
Kristjánsson hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
Þingmenn Suðurlandskjördæmis
Sjómannafélagið Jötunn, Vestmannaeyjum, hafnar
öllum hugmyndum ríkisstjórnarinnar um skerðingu á
sjómannaafslætti til þeirra manna sem hafa atvinnu-
tekju sínar af sjómennsku.
Þingmenn Suðurlandskjördæmis, við skorum á ykkur
að koma í veg fyrir að tillögurnar um skerðingu á
sjómannaafslætti nái fram að ganga! Við mótmælum
allir.
Sjómannafélagiö Jötunn, Vestmannaeyjum
Myndgáta
Haukur Morthens sér um jólastemning-
una öfi kvöld.
Tónleikar
Þungarokk á Púlsinum
í kvöld, miðvikudagskvöld, heldur
þungarokkssveitin Bleeding Vulcano
sína siðustu tónleika þessa árs á Púlsin-
um, en hljómsveitin er talin í fremstu röð
þungarokkssveita hérlendis. Hljómsveit-
ina skipa: Guðmundur Þ. Sigurðsson,
bassi, Hallgrímur Ingólfsson, trommur,
Vilhjálmur Goði Friðriksson söngur og
nýr meðlimur Hrjóbjartin- Róbertsson,
gítarleikari sem leilnn- í fyrsta sinn opin-
berlega með sveitinni þetta kvöld. Ailt
efni sveitarinnar er frumsamið.
Tapaðfundið
Eyrnalokkur tapaðist
Sifrureymalokkur með gullhjarta tapað-
ist annaðhvort á Laugavegi eða fyrir utan
Fjarðarkaup eða Bónus í Hafnarfirði.
Fiimandi vinsamlegast hringi í síma
92-14516.
Leikhús
as
ÞJÓÐLEIKHÓSIÐ
Sími 11200
RÓMEÓ OGJÚLÍA
eftir William Shakespeare
Frumsýning 2. jóladag kl. 20.00. Upp-
selt.
2. sýn. föstud. 27. des. kl. 20.00.
3. sýn. laugard. 28. des. kl. 20.00.
4. sýn. sunnud. 29. des. kl. 20.00.
5. sýn. laugard. 4. jan. kl. 20.00.
6. sýn. sunnud. 5. jan. kl. 20.00.
7. sýn. fimmtud. 9. jan. kl. 20.00.
eftir Paul Osborn
Föstud. 3. jan. kl. 20.00.
Laugard. 11. jan. kl. 20.00.
Flmmtud. 16. jan. kl. 20.00.
Sunnud. 19. jan. kl. 20.00.
M.BUTTERFLY
eftir David Henry Hwang
F0stud.10.jan.kl. 20.00.
Miðvikud. 15. jan. kl. 20.00.
Laugard. 18. jan. kl. 20.00.
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razuumovskaju
Fimmtud. 2. jan. kl. 20.30.
Miðvlkud. 8. jan. kl. 20.30.
Föstud. 10. jan.kl. 20.30.
Laugard. 11. jan. kl. 20.30.
Miðvlkud. 15. jan.kl. 20.30.
Fimmtud. 16. jan. kl. 20.30.
Laugard. 18. jan. kl. 20.30.
Sunnud. 19. jan. kl. 20.30.
BÚKOLLA
bamaleikrit
eftir Svein Einarsson
Laugard. 28. des. kl. 14.00.
Sunnud. 29. des. kl. 14.00.
Sunnud. 5. jan.kl. 14.00.
Laugard. 11. jan. kl. 14.00.
Fáar sýningar eftir.
GJAFAKORT
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
-ÓDÝR
OG FALLEG GJÖF
ATHUGIÐ AÐ EKKIER UNNT AÐ
HLEYPA GESTUM INN í SALINN
EFTIR AÐ SÝNING HEFST.
Mlðasalan er opin frá kl. 13-18
alla daga nema mánudaga og
fram að sýningum sýningar-
dagana. Auk þess er tekið ð
móti pöntunum I sima frá kl. 10
alla virka daga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
GRÆNA LÍNAN 99-6160.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
föstudags- og laugardagskvöld.
Leikhúsveisla: Leikhúsmiði og
þriréttuð máltið öll sýningar-
kvöld á stóra sviðinu.
Boröapantanir í
miðasölu.
Leikhúskjallarinn.