Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1991, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991. Fréttir Greiðabílstjórar kæra meinta manndrápshótun til RLR: Leigubflstjórinn hótaði að skera okkur á háls - fólk veit ekki hvað er að gerast hér um helgar, segir formaður Frama „Við vorum þrír bílstjórar hjá staurnum við Snorrabraut þegar bílstjóri frá BSR kom að okkur og sagði að ef við sæjumst með fólk í bílunum hjá okkur yrðum við skomir á háls,“ sagði Stefán EgUl Þorvarðarson greiðabílstjóri í sam- tah við DV. Rannsóknarlögregla ríkisins er með mál til meðferðar eftir að þrír greiðabílstjórar kærðu meintar hótanir af hálfu leigubílstjóra síð- astliðið laugardagskvöld. í gær höfðu skýrslur verið teknar af málsaðilum en ekki var ljóst hvaða leigubílstjóri þama átti í hlut. Er honum lýst sem grönnum manni, dökkum yfirlitum, á grárri leigu- bifreið frá BSR. Þeir þrír bílstjórar, sem segjast hafa orðiö fyrir hótun- inni, telja sig hafa náð skrásetning- arnúmeri bílsins: „Við sem vorum þama við staur- inn vomm bara með eitt farþega- sæti þegar leigubfistjórinn kom. En það er ekki neitt kannski með þetta mál. Við vorum þrír bUstjórar á staðnum sem heyrðum þetta,“ sagði Stefán. „Ég held að fólk átti sig ekki á hvaö hér er um að vera um helg- ar,“ sagði Sigfús Bjarnason, form- aður leigubUstjórafélagsins Frama, við DV. Sigfús hafði heyrt um meinta manndrápshótun en sagðist ekki þekkja gjörla tU málsins. Hann sagði hins vegar að Frama- menn væm mjög óhressir með umrædda greiðabfia: „Merktir sendibUar em með gjaldmæli sem sendibUar, með innifóldum virðiskaukaskatti, en þeir eru skráöir fólksbUar. Þeir em með sæti í bUunum þannig að þeir geta varla flutt vömr. Þeir em að aka fólki og telja aUt löglegt við þetta. Það hefur ekki verið tekið á þessu og þetta stöðvað í eitt skipti fyrir öU. Þaö er óþarfi að vera að setja einhver lög þegar sumir menn úti í bæ þurfa ekkert að fara eftir þeim.“ - Hverjir eiga að grípa inn í? „Lögreglan. Þetta er ólöglegt og það viðurkenna það alUr. Vanda- máUð er hins vegar að lögreglan hefur tekiö skýrslur og Utið hefur orðið úr málunum í dómskerfinu. Við leigubUstjórar vUjum að alUr framfylgi þeim reglum sem settar em. Eg vU hins vegar taka fram að þetta er ekki deUa miUi félags leigubílstjóra og félags sendibíl- stjóra. Það er skylda að alUr sendi- bílstjórar séu í þeirra félagi. En mennimir á greiðabílunum eru ekki í því félagi heldur nýstofnuðu sérfélagi sem nefnist Afl. Það er ljóst að ef fólksflutningar verða gefnir fijálsir, eins og í Svíþjóð, mun allt fara úr böndunum. Þá geta hvaða menn sem er komist í þetta og það þarf ekki marga tU að koma óorði á leigubílstjóra," sagði Sigfús. -ÓTT Akureyri: Krækir Skretting í þrotabú ístess? - býður heluiingi meira en Lax hf Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: Norska fyrirtækið Skretting hefur gert tilboð í þrotabú fóðurvörufyrir- tækisins ístess hf. á Akureyri og er það mun hærra en Laxá hf„ sem er með rekstur ístess á leigu, hefur boð- ið í þrotabúiö. TUboð Laxár hljóðaði upp á 30 milljónir króna en hið nýja tilboð Skretting er upp á eina milljón doU- ara eða um 60 milljónir króna „Okkur líst að sjálfsögöu ekki vel á þá stöðu sem upp er komin," segir Magnús Gauti Gautason, stjórnar- formaður Laxár hf. „Við munum leggja áherslu á að þessi verksmiðja verði áfram starfrækt hér í bænum. Ef Skretting kaupir verksmiðjuna verður hún áreiðanlega rifin niður og flutt út. Þetta er því hagsmuna- mál bæði fyrir atvinnulifið í bænum og fyrir fiskeldið að það séu fleiri en einn aðUi hér í landinu sem fram- leiða fóður,“ sagði Magnús Gauti. „Já, vertu blessuð, elskan mín og gleðileg jól og haföu það gott.“ Það er mikið af fólki í jólainnkaupum þessa daga og oftar en ekki hittast gamlir kunningjar og gamlar vinkonur í erlinum. Fólk gefur sér smátima til að skrafa saman en svo er ætt áfram og meðal annars kvatt á fyrrnefndan hátt. DV-mynd GVA í dag mælir Dagfari____________ Nunnurnar ráða Sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík hefur lengi verið á dag- skrá. Svo lengi sem elstu menn muna. Þar hafa menn ýmist talað um að sameina Landspítala og Borgarspítala, Landakot og Borg- arspítala, Landakot eða Landspít- ala. AUt hefur þetta verið rætt í spamaöarskyni, enda liggur kostn- aður við heUbrigðismálin ekki í sjúklingunum heldur í hjúkmnar- og læknaliðinu sem tekur á móti sjúkUngunum. Verður þessi lærða umræða ekki skilin ööravísi en svo að með því að fækka sjúkrahúsun- um og sameina sjúkrarúmin megi fækka sjúkUngunum þannig að hjúkrunarUöiö dragist saman og kostnaðurinn komist þá niður í það sem ríkissjóður ræður við. Margir heUbrigðisráðherrar hafa glímt við úrlausn á þessu máU. Tugir nefnda hafa verið skipaðir tíl að sameina sjúkrahúsin og leitað hefúr verið til erlendra ráðgjafa og má segja að allar þessar áUtsgerðir eigi það sameiginlegt aö ekki hefur verið fariö eftir þeim. Nú síðast hefur Sighvatur Björgvinsson und- ir höndum skýrslu frá Moret Emst and Young, sem ku vera virt fyrir- tæki bæði austan hafs og vestan. TU þessa fyrirtækis var leitað þeg- ar sýnt þótti að íslenskir sérfræð- ingar, læknar og sljómmálamenn vora orðnir ráðþrota í tUlögugerð. Það fór eins með skýrsluna frá Moret Emst og Young aö ekki var tekið mark á henni. HeUbrigðisráöherra hefur hins vegar upp á sitt eindæmi lagt tíl að sameina skyldi Landakot og Borgarspítala og styðst þar við skýrslu frá nefnd sem gerir það að tUlögu sinni að spara fyrir ríkissjóð með þessari sameiningu með því að leggja til að einum mUljarði króna verði varið til aö sameina spítalana. Ráðherrann varð svo hrifinn af þessari spamaðartUlögu að hann gerði hana samstundis að sinni og hefur verið á fiUlri ferð með að ná fram þessum spamaði sem kostar ekki nema einn millj- arö. Þegar sameiningin var komin á beinu brautina og fjárlagafram- varpið geröi ráð fyrir aö fjárveit- ingar drægjust saman við spamaö- inn af þvi að leggja fram mUljarð- inn í spamaðinn varð einhveijum ácað spyija um álit nunnanna, sem á sínum tíma seldu Landakot. Nunnumar blessaðar era fyrir mörgum árum fluttar í Amamesið og hafa ekki afskipti af spítala- rekstrinum á Landakoti frekar en hver annar, en einhveijum datt sem sagt í hug að spyrja þær áUts og þá kom í Ijós að nunnumar era á móti sameiningu, af því að ein- hver starfsmaður hefur sagt þeim aö sameining væri slæm fyrir Landakot. Þessi yfirlýsing frá nunnunum kom mönnum í opna skjöldu og ráðherrann hefúr sagt að ef nunn- umar séu móti sameiningu muni hann ekki sameina. Nefndarstörfin era unnin fyrir gýg, álitið frá Mor- et Emst og Young er ekki notað, álit sérfræðinga og ráögjafa era að engu höfð. Spamaðurinn ógurlegi, sem felur í sér að leggja þarf út einn mUljarð króna til að spara hjá ríkinu, er fyrir bí. Nunnumar hafa sagt sitt síðasta orö, Nú kann einhver að spyrja: Hvers vegna vora nunnumar ekki spurð- ar strax í upphafi svo ríkið gæti sparað sér alla fyrirhöfnina og til hvers var verið að leita álits hjá erlendum og innlendum sérfræð- ingum ef málið stóð aUan tímann og féll með því hvað nunnurnar sögðu? Til hvers era menn að ræöa um spamað í heUbrigðiskerfinu og sameiningu spítala og fækkun á hjúkrunarfólld ef það era einhveij- ar nunnur í Garðabænum sem eiga síðasta orðið í heUbrigðismálum íslendinga? Af hveiju era ekki þessar nunnur settar í nefnd til að ákveða hvemig sjúkrahúsmálum íslendinga skuU hagað? Með því mundi ríkið spara sér vesenið af því aö skipa ráðherra eða nefndir eða falast eftir ráðgjöf frá útlöndum. Og með því mundi ríkið spara sér miUjarð á því að spara og Landakot yrði friðheUagt meðan kaþólska kirkjan er við lýði og aUir gætu andað rólega. Mikið lán er að ekki skyldi gleymast að tala við nunnumar. Annars hefðu menn farið asnast til að sameina spítala sem nunnumar í Landakoti era á móti af því að þeim var sagt að þær ættu að vera á móti sameiningunni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.