Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1991, Side 11
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991.
11
Udönd
flotílamasessi
Sovéska ríkisflugfélagiö Aero-
flot hefttr orðið að leggja nærri
helmingi flugvélaflota síns vegna
bilana. Illa gengur að reka þær
sem þó eru flugltæfar vegna
skorts á eldsneyti.
Mitóll skortur er á varahlutum
og verður að leggja farþegaþotum
daglega vegna þess að ektó er
unnt að gera við þær. Aeroflot er
stærsta flugfélag í heimi en er nú
að mestu lamað. Dæmi eru þess
að farþegar hafi ráðist inn í flug-
véiar og krafist þess að vera flutt-
ir á áfangastað.
Móðirogþrjú
ung börn myrt
Rúmensk kona fannst myrt
ásamt þremur unguxn bömum
sínum í flóttaraannabúðum
nærri Bonn í Þýskalandi. Eigin-
maður konunnar fann lítón. Lög-
reglan segir að hin myrtu hafi
verið barin til bana með jám-
stöng.
Engar vísbendingar hafa komið
fram sem skýrt gætu morðin. Þau
era þó ekki talin eiga sér pólitíska
ástæðu. Hjónin áttu fjögur böm
en eitt þeirra liíði.
Tókunærþrjú
tonnafkókaíni
Bandaríska tollgæslan Jagði
hald á 2,7 tonn af kókaíni þegar
hún komst á slóð eiturlyfjasmygl-
ara í New Jersey. Verðmæti
farmsins er talið vera um 1,65
milijarðar Bandaríkjadala.
Eitrinu var smyglað frá
Kólombíu og kom með skipum i
þremur sendingum nú í haust.
• Fjórir menn voru handteknir en
þeir eru þó ekki taldir höfuðpaur-
ar í smyglinu.
Reuter
Eftirleikur nauðgunarmálsins gegn Kennedy Smith:
Ég veit best sjálf að
ég sagði sannleikann
- sagði Patricia Bowman, grátandi, í beinni útsendingu
„Lögreglan trúöi mér. Saksóknar-
inn trúði mér. Miiljónir manna trúðu
mér og ég veit sjálf að ég sagði sann-
leikann," sagði Patricia Bowman,
konan sem kærði William Kennedy
Smith fyrir nauðgum. Hún kom í
fyrsta sinn fram opinberlega í sjón-
varpsþætti í Bandaríkjunum í gær.
Ektó þarf að taka fram að Bowman
gat hvað eftir annað ektó tára bund-
ist meðan hún sagði sögu sína í
beinni útsendingu. Hún féllst á að
koma fram opinberlega til að bera
af sér þrálátan orðróm um að hún
væri ektó heil á geðsmunum.
í sjónvarpsviðtalinu, sem sent var
út á besta tíma á ABC sjónvarpsstöð-
inni, hélt Bowman enn fast við þá
sögu sína að William hefði nauðgað
sér þótt ektó væri það sannað fyrir
rétti. William var sýknaður eftir að
lögmanni hans tókst að hrekja mál-
flutning konunnar.
Bowman sagði að hún hefði verið
misnotuð kynferðislega í æsku og að
hún hefði notað eiturlyf en það þýddi
ektóaðhúnværilygari. Reuter
m
1
Átta manns fórust og tuttugu
slösuðust þegar sprengja sprakk
í versianamiðstðö i borginni Me-
dellin í Kólumbíu í gær.
Sprengjan var gerð úr 80 kfló-
um af dínamíti og var hún full
af brotajámi og skrúfum.
„Þetta var fjöldamorð," sagöi
talsmaöur lögreglunnar.
Sprengjunni var beint gegn
kaupsýslumönnum sem hafa
komist upp á kant við ffkniefha-
barónaborgarinnar. Reuter
Patricia Bowman ákvað að koma
fram opinberlega til að kveða niður
kjaftasögur. Simamynd Reuter
rIÐ BJOÐUM UPP A ÞRJAR GERÐIR
NÆRFATA ÚR NÁTTÚRUEFNUM Á
ALLA FJÖLSKYLDUNA. Á UNGBÖRN,
BÖRN, UNGLINGA, KONUR OG KARLA.
100% silkinærföt, mjög einangrandi, sem gæla við húðina. Finnsk gæðavara frá
Ruskovilla.
100% ullarnærföt af Merinófé - sllkimjúk og hlý. Finnsk gæðavara frá Ruskovilla.
Nærföt úr blöndu af kanínuull og lambsull, styrkt með nælonþræði. Vestur-þýsk
gæðavara frá Medima.
Allar þessar þrjár gerðir eru til í barna- og fullorðinsstærðum.
\~ftM verö
HAGKAUP