Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1991, Page 33
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991.
41
Fréttir
Eitt leikrit á ári
sett á svið fyrir
nemendur
Ernil Thorarensen, DV, Eskifirði;
Unglingadeild Leikfélags Eski-
flaröar sýndi tvívegis fyrir skömmu
leikritiö Frostblóma - alltaf sama
sagan - eftir Gunnlaug E. Ragnars-
son sem jafnframt var leiksflóri.
Leikritið gerist á vinnustað, nánar
tiltekið í frystihúsi úti á landi. Er það
alvarlegs eðlis en þó með gaman-
sömu ívafi og tekst höfundi vel að
koma efninu til áhorfenda. Það er
sótt í þjóðfélagið eins og það er í dag
og tekur á vandamálum unghnga -
þeim mörgu freistingum sem þeir
standa frammi fyrir. Umhverfið á
vinnustaðnum er mannlegt. Hinir
fullorðnu gefa unghngunum góð ráð
og skóla þá til. Leikritið er að hluta
til á ensku enda eru þau ófá frysti-
húsin hér á landi sem hafa þurft á
erlendu vinnuafli að halda.
Eskfirskir áhorfendur könnuðust
vissulega við sumar persónumar í
frystihúsinu. Þær eru að hluta til
sóttar til raunveruleikans frá því
höfundur vann sjálfur á shkum stað
fyrir 15-20 árum. Gerir það leikritið
mun áhugaverðara og skemmtUegra.
Leikendumir, 12 talsins, stunda
allir nám í Grunnskóla Eskiflarðar.
Tókst þeim undantekningarlaust vel
upp í hlutverkum sínum og var vel
tekið af áhorfendum með langvinnu
klappi í lok sýninganna. Þeir heita
Sigurður Hjaltason, Jens Garöar
Helgason, Guðmundur Einarsson,
Rebekka ÞórhaUsdóttir, Anna Stef-
ánsdóttir, EgiU Ámason, Einar
Andrésson, Ema Þorsteinsdóttir,
Guðláug Kristinsdóttir, Smári Skúla-
son, Perla Hreggviðsdóttir og Auður
Friðgeirsdóttir. Hvíslarar: Lena Sif
Björgólfsdóttir og Rebekka Þórhalls-
dóttir. Tæknimaður var Sigurður
Hjaltason en Ijósameistari Eiður
Bragason.
Að lokum er rétt að geta þess
merka og óeigingjarna starfs sem
Gunnlaugur Ragnarsson aðalbókari
hefur ámm saman innt af hendi í
þágu leikUstar á Eskifirði. Og nú síð-
ustu 4 árin sérstaklega fyrir unglinga
á Eskifirði en að jafnaði hefur hann
uppfært eitt leikrit á ári fyrir nem-
endur gagnfræðaskólans. Það er
mikils virði fyrir byggðarlagið að
eiga slíkan hugsjónamann.
Selfoss:
Fagrar skreytingar í tvítugri verslun
Regína Thoiarensen, DV, Selfoesi:
íris Bachmann stofnaði hannyrða-
verslun hér á Selfossi að Eyrarvegi
5 fyrir tæpum 20 árum. Eins og fleira
fyrirhyggjusamt fóUc og ábyggilegir
þjóðfélagsþegnar, sem hugsa fyrir
morgundeginum, byrjaði íris smátt
með sína verslun.
Hefur síðan verið að smástækka
verslunina og breytt henni um leið í
álnavöruverslun. Er íris-verslunin
nú með stærri og fuUkomnari álna-
vöruverslunum á Suðurlandi og er
þá mikið sagt.
Iris vinnur aUtaf sjálf í verslun-
inni, sem nú er orðin 200 m2 að
stærð, og hefur tvær fallegar stúlkur
sér til aðstoðar við verslunarstörfin.
Hún skreytir alltafsína verslun sjálf
og ég var heilluð af skreytingunni
og fyrirtækinu þegar ég ók um Sel-
foss í gærmorgun og leit þar inn.
Verslunin íris, InghóU og Fossnesti
- þessi fyrirtæki bera af í faUegum
jólaskreytingum hér á Selfossi nú.
Ölfusárbrúin mætti hins vegar vera
betur skreytt og minna er nú um
skreytingar á Selfossi en oftast áður.
ÓlafsQöröur:
Fyrsta útgáfa íslenskra tónbanda
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirdi:
Á næstu dögum kemur út hér á
Ólafsfirði spóla með jólasögum. Það
merkilega við þessa útgáfu er að hún
er algerlega í höndum heimamanna,
það er að segja íslenskra tónbanda
sem er nýstofnað fyrirtæki Helga
Jóhannssonar og Bjarkeyjar Gunn-
arsdóttur.
Það er Guðmundur Ólafsson, leik-
ari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og rit-
höfundur, sem les jólasögurnar en
upptaka fór fram í Stúdíó Stefi en það
er Birgir Birgisson í hljómsveitinni
Upplyftingu sem rekur stúdíóið.
Spólan er gefin út í 1000 eintökum.
NYJAR BÆKUR - SKUGGSJA - NYJAR BÆKUR - SKUGGSJA
Sögurúr týnáulandi
BEl
Ásgeirjakobsson
Asgeir Jakobsson
SÖGUR ÚR
TÝNDU LANDI
Ásgeir Jakobsson er landskunnur
fyrir œvisögur sínar um íslenska
athafnamenn. Þessi bók hefur
að geyma smásögur eftir hann,
sem skrifaðar eru á góöu og
kjarnyrtu máli. Þetta eru
bráöskemmtilegar sögur, sem
eru hvort tveggja í senn
gamansamar og með alvar-
legum undirtóni.
PÉTUR
zofH-ror-iiASSON
VIKINGS
IÆKjARÆITV
Pétur Zophoníasson
VÍKINGSLÆKJARÆTT V
Fimmta bindið af Víkingslœkjarœtt,
niðjatali Guöríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar, hreppstjóra
á Víkingslœk. í þessu bindi er fyrsti
hluti h-liðar œttarinnar, niðjar
Stefáns Bjarnasonar. Efninu fram
að Guðmundi Brynjólfssyni á
Keldum verður skipt í tvö bindi,
þetta og sjötta bindi, sem kemur
út snemma á nœsta ári (1992).
Myndir eru rúmur helmingur
þessa bindis.
KnnhiJtfi OuðmumlsMHi
Gamansemi
^norra ^tarlusonar
Nokkur valin dæmi
Skuggsjá
Pétur Eggerz
ÁSl MORÐ OG
DULRÆNIR HÆFILEIKAR
Þessi skáldsaga er sjöunda bók
Péturs Eggerz. í henni er meðal
annars sagt frá ummœlum
fluggáfaðs islensks lœknis, sem
taldi sig fara sálförum að
nœturlagi og eiga tal við fram-
liðna menn. Þetta er forvitnileg
frásögn, sem fjallar um marg-
breytilegt eðli mannsins og
tilfinningar.
M.Scott Peck
Leiðin til andlegs
þroska
Öll þurfum við að takast á við
vandamál og erfiðleika. Það er
oft sársaukafullt að vinna bug á
þessum vandamálum, og flest
okkar reyna á einhvern hátt að
forðast að horfast í augu við
þau. í þessari bók sýnir banda-
ríski geðlœknirinn M. Scott Peck
hvernig við getum mœtt erfið-
leikum og vandamálum og
öðlast betri skilning á sjálfum
okkur, og um leið öðlast rósemi
og aukna lífsfyllingu.
<
5
E
a
NÝJAR BÆKUR -
Finnbogi
Guömundsson
GAMANSEMI
SNORRA STURLUSONAR
23. september voru liðin 750 ár
síðan Árni beiskur veitti Snorra_
Sturlusyni banasár í Reykholti. í
þessari bók er minnst
gleðimannsins Snorra og rifjaðir
upp ýmsir gamanþœttir í verkum
hans. Myndir í bókina gerðu
Aðalbjörg Þórðardóttir og
Gunnar Eyþórsson.
Auöunn Bragi
Sveinsson
SITTHVAÐ KRINGUM
PRESTA
í þessari bók greinir Auðunn Bragi
frá kynnum sínum af rúmlega
sextíu íslenskum prestum, sem
hann hefur hitt á lífsleiðinni.
Prestar þeir, sem Auðunn segir
frá, eru bœði lífs og liðnir og kynni
hans af hverjum og einum mjög
mismikil; við suma löng en aðra
vart meira en einn fundur.
SKUGGSJÁ
Bókabúð Olivers Steins sf
SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ
0 <*■
°
Velkomin í verslunina
Hálft hundrað bílastæð
Það tilheyrir jólunum £
Opið virka daga frá 9 -
Laugardaga frá 10-22
Sunnudaga frá 18-22.
Sendum I póstkröfu.
l/erslunin
Hátúni 2 © 25155