Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Side 6
6 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. Útlönd þorskfyrir Grænlendinga Grænlenska stórútgeröarfyrir- tækið Royal Greenland hefur samið við togaraútgerð í Múr- mansk í Rússlandi nm að leggja upp afla í grænslensk frystihús. Frá áramótum og fram til mai ætla Rússamir að landa 4000 tonnum af þorski. Þorskurinn verður veiddur úr kvóta Grænlendinga og til þess notaðirþrírtogarar. Siöarerætl- unin að fá Russa til að veíða rækju til löndunar á Grænlandi. Miklaroiíulindir áþrætusvæðií Barentshafi Rússlenskir olíuleitarmenn hafa fundiö miklar gas- og olíu- lindir á svæði sem bæði Norð- menn og Rússar vilja eigna sór í Barentshaii. Talið er líkiegt aö Rússar haii lengi vitað um lind- irnar en Norðmenn hafa nú fyrst séð kort þar sem hugsanleg vinnslusvæði eru merkt inn. Fyrir áratug söradu Norðmenn við Sovétmenn um að leita ekki oiíu á svæðinu fyrr en búið væri að semja um skiptingu þess milli ríkjanna. Nú þykir sýnt að Sovét- menn hafl ekki staðið við samn- inginn þótt ekki hafi orðið upp- skátt um það íyrr en með hruni Sovétríkjanna og Rússar tóku við eignunum, Sveik útþúsund mánaðariauní gegnumeinka- máladálka Kínverskri konu aö nafni Wang Ke tókst að hafa um þusund mán- aðarlaun út úr karlkyns löndum sínum með þvi að svara auglýs- ingum í einkamáladálkum dag- blaða í landinu. Wang var rekin úr starki en tók það til bragös að senda mönnum sem auglýstu eftir eiginkonum mynd af dáfríðri konu. Myndinni hafði hún stolið á ljósmynda- stofu. Með svömnum sagðist hún þurfa farareyri til að komast á fund væntanlegs eíginmanns. Alls svaraöi Wang um 2000 þús- und auglýsingum og fékk til baka ríflega þúsund svör ásamt far- gjaldi, oftast 100 yuan sem svara til mánaðarlauna i Kina. Tuttugu þúsund þrælarffrelsaðir íKína Á þessu ári hafa lögreglumenn í Kína náð að frelsa um 20 þúsund þræla. Búist er við aö þessar tölur hækki að mun þegar alrek ársins í baráttunni við þrælasalana verða gerð upp. Algengast er að konum og ung- um stúlkum sé rænt og þær ýmist seldar nýjum eiginmönnum eða í hóruhús. Yfirvöld hafa hvatt við „alþýðustríðs" gegn þessum glæpum. Þrælasala varðar 10 ára fangelsi í Kína. Algengt var aö selja konur mansali íyrir bylting- una og nú breiðist þessi siöur út. fundinn ítalska lögreglan hefur fundiö kjálka úr heilögum Antoníusi. Kjálkanum var stoiiö af þremur grimuklæddum . mönnum fyrir tveimur mánuðum. Hann er met- inn á 100 milljón Jírur eöa 50 miiljónir íslenskra króna. Bitzau, NTB og Reuter Rússar leggja stofnanir gömlu Sovétríkjanna undir sig: Óttií Úkraínu við yf irgang Jeltsíns - áhugi á vamarbandalagi lýðveldanna að fyrirmynd Nato Leoníd Kravtsjúk, forseti Ukraínu, sagði að stjórn sín hefði alla fyrir- vara á að ganga til samstarfs við önnur lýðveldi, sem áður mynduðu Sovétríkin, ef Rússar ætluðu að halda uppteknum hætti og leggja all- ar stofnanir gamla ríkisins undir sig. Borís Jeltsín Rússlandsforseti bætti um betur í sókn sinni til valda í gær þegar hann lagði starfsemi sov- ésku leyniþjónustunnar á erlendri grund undir rússnesku stjórnina. Áður hafði hann tekið einhliða yfir öll helstu ráðuneyti Sovétríkjanna og meira að segja lagt hald á eignir forsetaembættisins. Það eru einkum Úkraínumenn sem vilja takmarka áhrif Rússa í nýja samveldinu sem á að taka við af Sov- étríkjunum. Leiðtogar ellefu lýð- velda eru nú á fundi í Alma-Ata í Kazakhstan þar sem lagður verður grunnur að samveldinu. Anatolíj Sobjak, borgarstjóri Pét- ursborgar, hefur einnig varað við of mikilli bjartsýni með árangur af stofnun samveldis. Hann sagði í gær að það væri vissulega spor í rétta átt ef lýðveldin kæmu á samvinnu í efnahags- og utanríkismálum. Ekki mætti þó gleyma að miklir erfiðleik- ar væru framundan. Aðrir leiðtogar austur þar eru bjartsýnir á að nýja samveldið eigi eftir- að reynast giftudrjúgt. Mest áhersla verður lögð á samvinnu í efnahagsmálum en myndast þar mikið tómarúm meö falli Sovétríkj- anna. Jeltsín kemur til fundar í Alma-Ata í dag. Hann vakti undrun Nato-leið- toga í gær með því að lýsa yfir áhuga á að ganga í bandalagið. Hjá Nato var þessari yfirlýsingu tekið með varúð. Meðal leiðtoga lýðveldanna í nýja samveldinu er hins vegar áhugi á vamarsamstarfi líku því sem ríki Nato hafa með sér. í Bandaríkjunum spá hagfræðingar því að efnahagin- Rússlands og ann- arra gamalla Sovétiýðvelda hrynji til grunna á næsta ári vegna óðaverð- bólgu. Sovétfræðingurinn David Roc- he spáir 700% verðbólgu. Reuter DV Naja Jeltsín feimin við hlutverk Raísu Borís Jeltsín hefur rutt Gorbat- sjov úr vegi og vill nú taka við hlutverki hans sem ástmögur Vesturlandabúa. En Naja, eigin- kona Jeltsíns, er feimín við að taka við hlutverki Raísu. Naja, sem heitir Anastasia fullu nafni, fór þó með eiginmanni sín- um til Ítaiíu nú í vikulokin en hún lét þó eins iítð á sér bera og kost- ur var. Hún stóðst þó ekki frelst- inguna að kaupa inn til jólanna en fór í stórmarkað og enginn þekkti hana. Þegar Raísa kom með manni sínum tiJ Ítalíu árið 1988 lá. víð vandræðum vegna ákafa fólks til að sjá hana og Raísa fór í fínustu tískuhúsin og keypti allt það dýr- asj:a. ítaiir eru lítið hrifnir af Naju og blöð þar hafa skrifað heldur illa um hana og segja að konuna, sem á að taka við hlutverki Ra- ísu, vanti allan stíl. Naja er bygg- ingaverkfræðingur og hefur búið með Borís sínum í 35 ár. Reuter Serbneskur skæruliði kyssir sprengju sem ætluð var Króötum i baráttunni um þorpið Mirkovci. Þar var barist af hörku í gær. Símamynd Reuter Loftárásir heQast að nýju á Króatíu: Aðgerðir Nato eff átökin breiðast út - forsætisráðherra Júgóslavlu segir af sér Manfred Wömer, framkvæmda- stjóri Nato, hefur lýst því yfir að bandalagið muni grípa til aðgerða breiðist átökin Júgóslavíu meira út en orðið er. Mikil spenna hefur verið í landinu síðasta sólarhringinn og í gær hófust loftárásir að nýju á Króa- tíu. Varliðar Króata hafa verið í sókn síðustu daga en sambandsherinn og Serbar mæta þeim nú af meiri hörku en áður. Afsögn Ante Marcovic, for- sætiráðherra Júgóslavíu í gær, varð síst til að auka vonir manna um frið. Marcovic hefur reynt að bera klæði á vopnin og þótt árangurinn hafi verið lítill til þessa þá er síðasti von- ameistinn um að Júgóslövum takist að ráða fram úr málum sínum end- anlega slokknaður. Hann er Króati, fæddur í Bosníu, og leiddi ríkisstjóm þar sem Serbar hafa öll ráð. Ríkisstjórn Bosníu Hersegovínu ákvað í gær að leita eftir alþjóðlegri viðurkenningu á sjálfstæði sínu. Þaö er fjórða lýðveldi Júgóslavíu sem stefnir að sjálfstæði. Stjómin lagði þó áherslu á að allt yrði gert til að forðast átök í líkingu við þar sem verið hefur í Króatíu undanfama mánuði. Enn hafa íslendingar einir viður- kennt Króatíu og Slóveníu en Þjóð- verjar em nú ráðnir í að viðurkenna lýöveldin tvö fyrir jól. Hik hefur ver- ið á þýsku ríkisstjórninni í málinu eftir að ákveðið var að hafa samflot með öðmm ríkjum Evrópubanda- lagsinsímálinu. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLAN óverðtryqqð Sparisjóðsbækur óbundnar 2,5-3 Landsbanki Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 2,25-5 Sparisjóðirnir 6 mánaða uppsögn 3,25-6 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 2,5-3 Landsbanki VlSrröLUBUNONIR REIKNINGAR 6 mánaða uppsögn 3 Allir 1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,25-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsb., Búnaðarb. QBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-3,5 Búnb., Landsb. Överðtryggð kjör, hreyfðir 3,25-3,5 Búnb.,Landsb. SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan tlmabíls) Vísitölubundnir reikningar 2,5-6 Búnaðarbanki Gengisbundir reikningar 2,5-6 Búnaðarbanki BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki Óverötryggð kjör 7-8,25 Sparisjóðir INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 3,25-3,75 Islandsbanki Sterlingspund 8,5-9 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,5-8 Sparisjóðirnir Danskar krónur 7,25-7,8 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst ÚTLAN óverðtryggð Almennir víxlar (forvextir) 1 5-1 5,5 Búnaðarbanki Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf 15,75-16,5 Búnaðarbanki Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 17,75-;18,75 íslandsbanki útlAn verðtryggð Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki afurðalAn islenskar krónur 15,25-16,5 Allir nema Lb SDR 8,5-9,25 Landsbanki Bandaríkjadalir 6,75-7,5 Landsbanki Sterlingspund 1 2,4-1 2,75 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 11-11,5 Búnaðarbanki Húsnæöislán 4.9 Ufeyrissjóöslán 6-9 Dráttarwextir 25.0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf desember 17,9 Verðtryggð lán september 10,0 VlSITÖLUR Lánskjaravísitala janúar 31 96 stig Lánskjaravísitala desember 31 98stig Byggingavísitala desember 599 stig Byggingavísitala desember 187,4 stig V Framfærsluvísitala desember 1 59,8 stig Húsaleiguvísitala 1,1% lækkun 1. janúar VEROBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF Gengl bréfa veröbréfosjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 6,037 Sjóvá-Almennar hf. 5,05 5,15 Einingabréf 2 3,209 Ármannsfell hf. 2,15 2,40 Einingabréf 3 3.968 Eimskip 5,53 5,95 Skammtímabréf 2,012 Flugleiðir 2,03 2,20 Kjarabréf 5,672 Hampiðjan 1,72 1,90 Markbréf 3,047 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10 Tekjubréf 2,149 Hlutabréfasjóður ViB 1,04 1,10 Skyndibréf 1,762 Hlutabréfasjóðurinn 1,63 1,73 Sjóðsbréf 1 2,895 islandsbanki hf. 1,61 1.74 Sjóðsbréf 2 1,931 Eignfél. Alþýðub. 1,58 1>1 Sjóösbréf 3 2,002 Eignfél. Iðnaðarb. 2,12 2,29 Sjóösbréf 4 1,748 Eignfél. Verslb. 1,41 1,53 Sjóðsbréf 5 1,200 Grandi hf. 2,60 2,80 Vaxtarbréf 2,0400 Olíufélagið hf. 4,50 5,05 Valbréf 1,91 20 Olís 2,10 2,28 Islandsbréf 1,264 Skeljungur hf. 4,87 5,45 Fjórðungsbréf 1,147 Skagstrendingur hf. 4,65 5,05 Þingbréf 1,260 Sæplast 7,28 7,60 öndvegisbréf 1,244 Tollvörugeymslan hf. 1,07 1,12 Sýslubréf 1,284 Útgerðarfélag Ak. 4,50 4,85 Reiðubréf 1,227 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42 Launabréf 1,014 Almenni hlutabréfasj. 1,10 1,15 Heimsbréf 1,073 Auðlindarbréf 1,03 1,08 Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,30 3,50

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.