Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991.
Hannibal Lecter (Anthony Hopkins) og Ciarisse Starling (Jodie Foster
ræðast við.
ine siiono
Hjwitwl Udti
t-wiís
hítWie.
Clínct $lKli«? t»
Kut
ifc.'fl Haí 1»» ;t iís; te-t t»tr.
mxt :fc* * .'*<#r *w*f:«
ingi sem hafður er í sérklefa. Hann
lætur Clarisse vita að hann viti
hver morðinginn er, en gefur að-
eins ábendingar, segir aö hún verði
að hafa fyrir þvi að finna hann.
Jonathan Demme sýndi það með
Something Wilde og Married to the
Mob að það er mikið spunnið í
hann en ef eitthvað hefur vantað
upp á að fyrmefndar myndir hafi
fullnægt öllum kröfum þá hefur
Demme með Silence o'f the Lambs
nánast gert hina fuilkomnu saka-
máiamynd og setur sig um leið í
röð bestu leikstjóra vestanhafs.
Myndin er ótrúlega spennandi og
vel gerð og þótt ekki sé beint um
að ræða atriði sem koma á óvart
þá situr maður límdur við sjón-
varpið meðan á sýningu stendur.
-HK
~gn
Vandræði á öllum vígstöðvum
L.A. Story (er úr fjórða sæti í þaö fyrsta þessa vikuna en fast á
hæia hennar er úrvalsmyndln Silence of the Lambs sem sjálfsagt
mun gera tilkali tll toppsins I næstu vlcu. Á myndinnl eru Steve
Martin og Vlctoria Tennant I hlutverkum sinum í L.A. Story. 15 (15) Boyiliend ffOm Hell
1 (4) LA. Story
2 (-) Silence of the Lambs
3(1) Problem Child
4 (-) TakingCareofBusines
5 (2) Christmas Vacation
6(3)
7(9)
6 (■)
9(6)
10(5)
11(8)
12 (11) Misery
13 (10) Rightof the Black Angel
14 (7) Zandaiee
Nothing but Trouble
Ski School
Kindergarten Cop
Mr. Destiny
True Colors
Myndbönd
•• i
Jólafríið
NATIONAL LAMPOON’S CHRISTMAS
VACATION
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Jeremiah S. Chechik.
Aðalhlutverk: Chevy Chase, Beverly
D'Angelo og Randy Quaid.
Ðandarisk, 1989 - snúningartími 93 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
í National Lampoon’s Christmas
Vacation fer Chevy Chase í þriöja
skiptið í frí með fjölskyldu sinni en
ekki fer fjölskyldan mjög langt í í
jólafríinu heldur er farið í friðsælt
umhverfi og nægan snjór.
Ekki er þó fjölskyldan ein í fríinu
heldur eru afar og ömmur með í
ferðinni. Óvænt bætist svo bróðir
hans ásamt konu og barni í hópinn
svo í stað rólegheita verður fríið
vægast sagt annasamt fyrir Chase,
sérstaklega fer í taugarnar á hon-
um þegar tekst ilia að halda jólaser-
íu, sem hann hefur klætt húsið
með, gangandi.
Christmas Vacation er hin sæmi-
legasta gamanmynd. Nokkrar per-
sónur myndarinnar eru spaugileg-
ar og það er aldrei langt í hlátur-
inn. Chevy Chase er hinn dæmi-
gerði fjölskyldufaðir sem alhr
leggja traust sitt á - til að byrja
með. Ágæt skemmtun yfir jólin.
★★X/2
|V|R. DCSTIIMy
Uppfyllt ósk
MR. DESTINY
Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjóri: James Orr.
Aðalhlutverk: James Belushi, Linda
Hamilton og Michael Caine.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi 106 mín.
Leyfö öllum aldurshópum.
Sjálfsagt dreymir alla um að fá ein-
hvem tíma ósk sína uppfyljta, sér-
staklega þegar allt er á niðurleið.
Þannig er ástandið hjá Larry
Burrows (James Belushi), aðalper-
sónunni í Mr. Destiny, þegar hann
hittir fyrir barþjón nokkurn sem
Michael Caine leikur. Burrows er
nýbúinn að missa vinnuna og er
einstakur hrakfallabálkur. Hann
þylur raunir sínar fyrir Caine sem
segir honum að hafa engar áhyggj-
ur. Það reynist rétt því þegar hann
ætlar heim til sín búa aðrar mann-
eskjur í húsinu hans og þegar hann
fer aö grennslast fyrir um hvar
hann eigi heima kemur í ljós að
hann á heima í lúxusvillu og er
forstjóri fyrirtækisins sem nýbúið
var að reka hann frá. En ekki er
allt gull sem glóir. Það er ýmislegt
sem Burrows saknar úr íýrri til-
vem meðal annars eiginkonunnar.
Mr. Destiny er smellin mynd,
byggð á skemmtilegri hugmynd.
Þaö er vel hægt að fyrirgefa nokkar
hnökra í handriti enda er hér um
nútímaævintýrasögu að ræða þar
sem raunveruleikinn er víös fjarri.
Mikil spenna og frábær leikur
DV-myndbandalfStmn
Einusinnivar...
THE LITTLE MERMAID
Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjóri: John Musker.
Raddir: Jodi Benson, Kenneth Mars og
Buddy Hackett.
Bandarisk, 1989-sýningartími 79 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Hans Cristian Andersen er einn
mesti ævintýrahöfundur sem uppi
hefur verið og er Litla hafmeyjan
meöal hans þekktustu verka. Þetta
hugljúfa ævintýri er klassíska saga
um baráttu góös gegn hinu illa.
Engir hafa náð eins langt og Disn-
ey fyrirtækið í gerð teiknimynda
fyrir böm og því vom betur til þess
fallnir að koma þessu fallega ævin-
týri á filmu enda er árangurinn
nánast fullkomin teiknimynd,
ótrúlega vel gerð og skemmtileg.
Aðalpersónan er ung hafmey sem
verður hrifin af mennskum prinsi
þegar hún bjargar honum úr sjáv-
arháska. Sænorn ein gefur henni
kost á að vera mennsk kona í þrjá
daga. Ef hún fær prinsinn til að
játa ást sína á henni fær hún að
vera mennsk áfram, en ef henni
mistekst fær sænornin að eiga
hana. Til að gera henni þetta sem
erfiðast tekur nornin af litlu haf-
meyjunni röddina...
Nokkur sönglög em í myndinni
sem em sérlega vel gerð og hreppti
eitt þeirra óskarsverðlaunin. í
heild er Litla hafmeyjan góð og
skemmtileg kvikmynd og þótt hún
sé gerð fyrir börn hafa fullorönir
einnig gaman af. -HK
SILENCE OF THE LAMBS
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Jonathan Demme.
Aðalhlutverk: Jodie Foster, Anthony
Hopkins og Scott Glenn.
Bandar isk, 1990 - sýningartiml 114 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Það er margt sem gerir Silence
of the Lambs að eftirminnilegri
kvikmynd. Sagan er mjög sterk og
uppbygging leikstjórans Jonathans
Demme er hreint frábær, þá er leik-
ur Jodie Foster og Anthony Hopk-
ins mjög góður og skapar Hopkins
shka persónu úr íjöldamorðingjan-
um Hannibal Lecter að áhorfand-
inn gleymir honum ekki í bráð.
Jodie Foster leikur Clarence
Starling sem er komin að því að
útskrifast úr lögregluskólanum.
Hún þykir afburðanemandi og í
henni sér lögregluforinginn Jack
Crawford (Scott Glenn) þá persónu
sem getur hjálpaö honum að hafa
uppi á fjöldamorðingjanum Ví-
sunda-Bill sem meðal annars íláir
húðina af fómarlömbum sínum
sem allt eru frekar þybbnar stúlk-
ur.
Til að komast inn í huga fjölda-
morðingjans sendir Crawford Clar-
isse í heimsókn til Hannibals Lect-
ér sem kallaður er Hannibal mann-
æta og ekki að ástæðulausu. Mynd-
ast sérstakt samband á milli þeirra
þar sem Hannibal ræður yfirleitt
feröinni, en Hannibal þessi er sál-
fræðingur og meintur íjöldamorð-
★★★
O.AS5ICS :
jVjU’SjVi
NOTHING BUT TROUBLE
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Dan Aykroyd.
Aðalhlutverk: Chevy Chase, Dan Aykro-
yd, John Candy og Demi Moore.
Bandarísk, 1991 -sýnlngartimi 89 min.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Einstaka kvikmyndir, sem mikið
hefur verið lagt í og þekktar stjörn-
ur prýða, ná þeim árangri að kom-
ast aldrei á hvíta tjaldiö, eru þær
settar beint á myndbandamarkað-
inn og er Nothing But Trouble ein
slík.
Vestanhafs var reynt að koma
Nothing But Trouble á markaðinn
út á leikarana vinsælu sem leika í
myndinni, en eftir aðeins nokkra
daga var hún tekin úr umferð. Hér
á landi fór hún aldrei í kvikmynda-
hús.
Og eftir að hafa séö myndina er
þessi ákvörðun skiljanleg. Nothing
But Trouble er slík endemis vit-
leysa að það er með ólíkindum að
Dan Aykroyd skyldi fá að gera
þessa mynd en hann er bæði leik-
stjóri, handritshöfundur og leikur
tvö hlutverk. Sjálfsagt hafa fram-
leiöendur myndarinnar látið allt
eftir honum vegna þess að þeir
hafa treyst á að hið vinsæla leikar-
alið myndi hala inn peninga út á
nöfn sín, en með aðalhlutverkin
, fara fjórir af vinsælustu leikurun-
um í Hollywood í dag, fyrmefndur
Dan Aykroyd, John Candy, Chevy
Chase og Demi Moore. Mynd þessi
sannar aftur á móti að það er ekki
nóg að vera með stóra nöfnin, eitt-
hvað annað bitastætt verður að
fylgja með, til dæmis boölegt hand-
rit.
Ekki ætla ég að fara út í að segja
frá söguþræðinum, hann er hvort
eö er illskiljanlegur. Einu ber þó
að hrósa en það er sviðsmynd sem
öll er hin skemmtilegasta. Nothing
But Trouble er frumraun Dan
Aykroyds sem leikstjóra og verður
sjálfsagt bið á aö hann endurtaki
þannleik. -HK