Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111,105 RVlK, SlMI (91J27022- FAX: Auglýsingar: (91 )626684 - aðrar deildir: (91 )27079 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Makalaus fjárlög Ofbeldishneigður heilbrigðisráðherra hefnir sín á nunnum Landakots með því að skera fjárveitingatillög- ur sínar til spítalans niður við trog milli annarrar og þriðju umræðu um fjárlög, þannig að fyrirsjáanlegt er, að loka verði spítalanum að verulegu leyti á næsta ári. Nunnurnar höfðu brugðið fæti fyrir snöggt frum- hlaup ráðherrans um að leggja út í milljarðs kostnað við að sameina tvo spítala, þótt sterk rök hafi verið leidd að því, að slíkt sé óráðlegt. Þetta minnir á ofsafengnar aðgerðir ráðherrans gegn heilsuhæli í Hveragerði. Snögg kyrking eins spítala milli annarrar og þriðju umræðu er gróft dæmi um handahlaupin við smíði íjár- laga, sem eru meiri en verið hafa á heilum mannsaldri. Tillögur um álögur og niðurskurð rjúka inn og út úr íjárlagafrumvarpi eins og um vængjahurð á hóteh. Einn daginn á að láta sveitarfélögin taka við málefn- um fatlaðra. Næsta daga eiga þau ekki að gera það, heldur taka þátt í kostnaði við löggæzlu. Þriðja daginn á ekki að taka þennan kostnað af útsvarinu, heldur með sérstökum nefskatti á kjósendur. Þetta eru skrípalæti. Fundir eru haldnir kvöld- og næturlangt á Alþingi og í nefndum þess. Minni tími en nokkru sinni fyrr er gef- inn til að þingmenn geti lesið hin síbreytilegu gögn, sem þeim er ætlað að afgreiða á færibandi. Aldrei hefur ís- lenzk ríkisstjórn sýnt Alþingi aðra eins fyrirlitningu. Rifrildið milli stjómarsinna og stjómarandstæðinga hverfur stundum í skugga rifrildis milli sljómarsinna, því að ríkisstjómin hefur ekki gefið sér tíma til að afla sér stuðnings einstakra stjómarþingmanna við mikil- vægar tillögur um afdrifaríkar breytingar á fjárlögum. Stjórnarsinnar deila um skattafrádrátt af arðgreiðsl- um hlutafélaga, um sjómannaafslátt, um skólagjöld, um framlengingu jöfnunargjalds, um niðurskurð í jarð- gangagerð, um ríkisbyggingar í Homafirði og um skatt á hafnargjöld, svo að nokkur þekkt dæmi séu nefnd. Margt fer saman í því hneyksli, sem afgreiðsla íjár- laga er orðin. í fyrsta lagi var fj árlagafrumvarpið illa unnið af hálfu ríkisstjómarinnar. Þar vom umdeilanleg nýmæh, sem ríkisstjórnin átti að vita, að hún þyrfti að ræða við uppreisnarhneigða þingmenn stjómarhðsins. í öðm lagi virðist ríkisstjómin og hðsstjórar hennar á Alþingi, svo sem forsetar og þingflokksformenn, ekki átta sig á, að hefðir vinnubragða em aðrar þar heldur en í borgarstjórn Reykjavíkur, þar sem án nokkurra mannasiða er valtað kerfisbundið yfir minnihlutann. í þriðja lagi em meginstoðir tekjuhhðar fjárlagafrum- varpsins marklausar með öhu. Með einu pennastriki er áætlun um tekjuskatt hækkuð um rúman mihjarð milh umræðna, þótt á sama tíma hafi komið í ljós, að áætlanir ríkisins um skattstofninn fara lækkandi. Sama er að segja um áætlanir um innflutningstekjur. Ljóst er, að innflutningur mun dragast saman á næsta ári í enn meiri mæh en tekjur fólks. Fjárlagafrumvarp- ið ætti að endurspegla þessar breyttu forsendur, en ger- ir það ahs ekki. Forsendur þess em marklausar. Ríkisstjórnin undirbýr mál sín illa og keyrir áfram vanhugsaðar ráðagerðir með offorsi. Hún skiptir dag- lega um skoðun og ætlast til að þingmenn hlaupi í hring á eftir sér. Hún lætur þingið starfa nótt og dag til að afgreiða fjárlög, sem byggjast á pennastrikum út í loft. Um langan aldur hefur engin ríkisstjóm farið um með slíkum rassaköstum og mghngi, ofbeldi og undir- búningsleysi og sú, sem nú niðurlægir þing og þjóð. Jónas Kristjánsson Kröggur General Motors magna vanda Bush Frá því snemma á öldinni hafa Bandaríkjamenn litið á bílaiðnað- inn sem tákn og undirstöðu iðveld- is síns. Og í þessari iðngrein hefur fyrirtækið General Motors jafnan borið höfuð og herðar yfir keppi- nautana. Fregnir af rekstri þess, hagstæðum eða erfiðum, hafa því mikil áhrif um allt bandaríska efnahagsumhverfið. Á miðvikudag gekk stjómar- formaöur General Motors, Robert C; Stempel fram fyrir fréttamenn í Detroit og hafði slæmar fréttir að færa. Sú deild fyrirtækisins, sem annast framleiðslu og sölu öku- tækja í Bandaríkjunum, hefur á líð- andi ári verið rekin með slíkum ógnarhalla að í óefni stefnir fyrir samsteypuna alla verði ekki að gert. Taliö er að tapið stefni í sjö og hálfan milljarð dollara. Stempel skýrði frá ákvörðunum stjómar til að vinna bug á tap- rekstrinum. Vinnustöðum verður lokað unnvörpum og starfsliði sagt upp í tugþúsundatali. Á síðasta ári lokaði General Motors fjórum verksmiðjum í Bandaríkjunum en það em smámunir hjá þvi sem nú er framundan. Loka á fjórum verk- smiðjum sem sjá um samsetningu ökutækja og 15 sem annast fram- leiðslu einstakra hluta í þau. Ekki er ljóst hversu mörgum úr starfsliðinu í niðurlögðum verk- smiðjum verður unnt að bjóða störf á öðmm vinnustöðum en beinar uppsagnir verða bersýnilega fjöl- margar. Þær bætast við fækkun sem áður var ákveðin í skrifstofu- störfum og við stjómunarstörf, um 20.000 manns. Fregnin um afleita stöðu og yfir- vofandi niðurskurð hjá General Motors gat varla komið á verri tíma fyrir bandarískt efnahagsástand í heild og George Bush forseta sér í lagi sem ábyrgðarmann þess gagn- vart kjósendum. Hagtölur sýna að jólakauptíð lætur vart á sér kræla og störfum fækkaði í nóvember svo hundmðum þúsunda skiptir. Póh- tískt vægi þessarar atburðarásar eykst við uppsagnirnar og atvinnu- leysið teygir sig í vaxandi mæli inn í raðir miðstéttarfólks. Óánægja með efnahagsþróun og kvíði vex því óðfluga í þeim hópi kjósenda sem Bush á undir endurkjör að tæpu ári liðnu. . ./ Sú var tíöin að forráðamenn tölvurisans bandaríska, IBM, gum- uðu af því á alþjóðlegum fundum stjómenda stórfyrirtækja að þar á bæ hefði vöxturinn verið svo ör og jafn að aldrei hefði þurft að segja upp starfsmanni vegna samdrátt- ar. í siðasta mánuði tilkynnti stjóm IBM aö fyrirtækið hefði ákveðið að losa sig við 20.000 manns af launa- skrá á næsta ári. Hjá IBM er mest- an part um hálaunavinnu að ræða. Ánnað tölvufyrirtæki, Digital Equipment Corp., er að segja upp 10.000 manns. Xerox Corp. vill Erlendtíðindi Magnús torfi Ólafsson fækka þjá sér um 2.500, Eastman Kodak segir upp 6.000 og Westing- house Electric rekur 4.000. Þannig mætti lengi telja. Niðurstaðan er að í nóvember fækkaði störfum í bandarísku at- vinnulífi um íjóröung milljónar, eöa ámóta fjölda og í mánuðunum febrúar og mars þegar talið var að ríkjandi samdráttur í hagkerfinu hefði náð hámarki. í þetta skipti fækkaði um 110.000 störf hjá smá- söluversluninni af þvi að vaxandi eftirspurn neytenda í aðdraganda jóla lét á sér standa. Heildartölur leiða í ljós að á þessu ári hafa 25 milljónir Bandaríkja- manna á vinnumarkaði verið at- vinnulausar lengur eða skemur. Sambærileg tala á síöasta ári var 16 milljónir. Á ráðstefnu borgarstjóra banda- rískra stórborga var frá þvi skýrt að fólki sem hvergi á öruggt húsa- skjól hefði fjölgaö verulega og væri áætlað sjö milljónir talsins. Fé hrekkur hvergi nærri til að sjá þessum íjölda fyrir neyðarathvarfi. Svipuð íjölgun hefur orðið hlut- fallslega á fjölskyldum sem eru svo illa staddar að þær eiga rétt á ávís- unum á ókeypis matvæh, svo- nefndum matarmerkjum. Þar verður einnig að vísa mörgum frá af því fjárveiting af almannafé hrekkur ekki. Þegar svona er komið finna þing og stjórn fyrir að fast er þrýst á um úrbætur en úrræði láta á sér standa. Gífurlegur ríkissjóöshalh hindrar skjót viðbrögð. Skamm- góður vermir er að ávísa kostnaði af neyðarúrræðum á framtíðina, og þar að auki er stjórnin í Was- hington bundin í báða skó af því að hún má ekkert aðhafast sem torveldi henni aö fjármagna ríkis- sjóðshahann á alþjóðlegum fjár- magnsmarkaði, fyrst og fremst hjá fjáðum Japönum. Bush forseti hefur sýnt ht með því að fyrirskipa að hraöa sem mest áður ákveðnum framkvæmd- um fyrir 9,8 mihjarða dollara. Auk þess undirritaði hann á miðviku- dag lagasetningu um framkvæmdir við vegagerð og önnur samgöngu- mannvirki fyrir 151 mihjarð á nokkrum næstu árum. Við þá at- höfn kvað hann unnt að fela í þrem orðum um hvað málið snerist: „Störf, störf, störf.“ Samdægurs kom Alan Green- span, formaöur bankastjórnar Seðlabanka Bandaríkjanna, fram og kvað efnahagshorfur mun dekkri en menn hefðu gert sér von- ir um í haust. Jafnframt varaði hann við úrræðum sem hefðu í for með sér að torveldara reyndist en áður aö fjármagna hallann á ríkis- rekstri. Undir forustu Greenspan hefur seðlabankastjórn á einu ári lækkað grunnvexti á fé í bankakerfið um nær helming, niður í 4,5%, án þess að það hafi haft merkjanleg áhrif til að ýta undir fjárfestingu og auka þar með atvinnustarfsemi. Gott dæmi um þaö sem verið hef- ur að gerast í bandarískum neyslu- vöruiðnaði til lengri tíma litið er þróunin hjá General Motors. Ráð- stafanirnar sem Stempel stjómar- formaður kynnti fréttamönnum í Detroit verða komnar til fuhra framkvæmda um miðjan þennan áratug og þá hefur störfum viö ökutækjasmíði á vegum fyrirtæk- isins í Bandaríkjunum fækkaö um helming áratuginn frá 1985. Jafn- framt verður í vaxandi mséh um að ræða sameiginleg verkefni ásamt erlendum samstarfsaðilum, svo sem Volkswagen og Nissan. Allt þetta vísar á ákafa leit Bush forseta annars vegar og þingmeiri- hluta demókrata hins vegar að úr- ræðum á kosningaári. Hagfræðing- ar lýsa á hinn bóginn áhyggjum sínum af að við ríkjandi aðstæður kunni opinberar aðgerðir að gera hlt verra, vegna þess í hvílíkt óefni ríkisíjármál hafa verið látin kom- ast áratuginn frá því Reagan tók að framkvæma það sem Bush hafði í framboðsbaráttu viö hann kahað „kuklhagfræði." Magnús Torfi Ólafsson Robert C. Stempel, stjómarformaður General Motors, hugsar sig um á fréttamannafundinum I aðalstöövum fyrlrtæktsins I Detrolt:--- --------------------------------- ------------—....... Slmamynd Reirter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.