Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. Herj að á hur ðir utanríkisráðuneyt- isins í Reykjavík - kafli úr bókinni Læknir á vígvelli eftir Ólaf E. Friðriksson Á stofugangi á Mubarak Al-Kabírsjúkrahúsinu. Mér á vinstri hönd er indversk hjúkrunarkona og á hægri hönd er dr. Jussef Mathani sem var í sérnámi í skurðlækningum. Meðan Henrik Amneus sendiherra reyndi að ýta á eftir að ég kæmist úr landi eftir hefðbundnum leiðum í gegnum íraska stjómkerfið og við Nasír skipulögðum ýmsar óvenjuleg- ar flóttaleiðir, var ýmislegt reynt hér heima á íslandi til að greiða fyrir lausn minni úr gíslingu í Bagdad. Mest af því sem hér var verið að gera vissi ég lítið um meðan ég var í Bagdad og sumt frétti ég ekki fyrr en löngu eftir að ég kom heim. Utanríkisráðuneytið í Reykjavík fylgdist vel með þróun mála í Kúveit og Irak frá fyrsta degi og fékk stöðug- ar upplýsingar um okkur íslending- ana sem þama voram, í gegnum sendiráð Norðurlandanna. í skjala- möppum utanríkisráðuneytisins má sjá, að stöðugar skeytasendingar hafa verið milli ráðuneytisins og annarra ráðuneyta á Norðurlöndum, til að samræma aðgerðir. Það var strax óskað eftir að norrænu sendi- ráðin tækju að sér að greiða götu okkar úr landi, í samræmi við sam- starfssamning Norðurlandanna. Við Birna höfðum einkum samband við sænska sendiráðið í Kúveit og síðar hafði ég samband við sænska sendi- ráðið í Bagdad, eftir að sendiráðinu í Kúveit var lokað í byrjun septemb- er. Steingrímur og Arafat Þaö var svo sænski sendiherrann í Bagdad sem benti/ mér á það skömmu eftir að Bima fór heim, að til þess að eiga einhverja möguleika á að losna, þyrfti að koma formleg beiðni frá íslenskiun yfirvöldum til yfirvalda í írak. Best væri að þetta væri gert með bréfi íslenska utanrík- isráðherrans, Jóns Baldvins Hanni- balssonar, til utanríkisráðherra ír- aks, Tarik Aziz. Þessar upplýsingar fékk ég rétt áður en Kristín Kjartans- dóttir fór frá Kúveit 19. september, svo eins og áður er sagt skrifaði ég þetta í bréf til Bimu sem Kristín tók með sér til íslands. Bima kom þess- um skilaboðum strax til utanríkis- ráðuneytisins, þannig að þeim var kunnugt um nauðsyn þessa bréfs í lok september. En Bima ákvað að láta ekki þar við sitja. Hún ræddi málið við Þor- stein Geirsson ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu og þeim kom saman um að það gæti veriÓ líklegt tU árangurs, að rá Steingrím Her- mannsson forsætisráðherra til að leita liðsinnis Jassers Arafats leið- toga Frelsissamtaka Palestínu, PLO. Arafat var þá einn af örfáum stjóm- málaleiðtogum sem ekki höfðu for- dæmt innrás íraka í Kúveit og hann var í góðu sambandi við stjómvöld í Bagdad. Svo vildi til að Steingrímur hafði einmitt átt fund með Arafat í aðalstöðvum PLO í Túnis þá um sumarið. Þorsteinn ræddi þetta við Jón Sveinsson aðstoðarmann Steingríms þann 27. september og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Steingrímur var þá staddur í Bandaríkjunum og þangað hringdi Jón Sveinsson í hann daginn eftir. Steingrímur ræddi sam- dægurs við Eugene Makluf sendi- herra PLO í Stokkhólmi og baö hann að koma þessum skilaboðum á fram- færi við Arafat. Makluf fékk lika sendar allar upplýsingar er mig vörðuðu á telefaxi sama dag. Hann lagði hins vegar til, að beiðni forsæt- isráðherra íslands til Arafats yrði sett formlega fram með bréfi. En þá fór máliö að vandast. Samningaviðræður ekki vænlegar Þeir sem þekkja til hvemig ákvarð- anir um þetta mál vora teknar, segja mér að einhver togstreita hafi orðiö á milli forsætis- og utanríkisráðu- neytanna um hvernig standa bæri að málinu. Jón Baldvin mun ekki hafa viljað að Steingrímur væri að seilast of langt inn á verksvið utan- ríkismálanna og ekki verið ýkja hrif- inn af formlegum bréfaskriftum við Arafat. Bandaríkjastjórn rak harðan áróður fyrir því um þessar mundir, að vestræn ríki stæðu ekki í neinum samningaviðræðum við Saddam Hussein eða ríkisstjórn hans og fengu flest vestræn ríki til að sam- þykkja þá stefnu. Mér var sagt að þessar bréfaskriftir hafi eitt sinn ver- ið ræddar innan ríkisstjórnar íslands á óformlegum fundi og þar hafi Jón Baldvin túlkað þessa stefnu þannig, að engar bréfaskriftir kæmu til greina. Þaö virtist ekki einu sinni koma til greina aö gera einfalda kröfu þess efnis, að íslenskum þegn- um sem haldið væri í írak gegn vilja sínum yrði tafarlaust sleppt, með vísan til þess að írakar væra bundir af Genfarsáttmálanmn eins og flestar þjóðir heims. Saklaust fórnarlamb Engu að síður skrifaði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra bréf til Arafats nokkra seinna, eða 2. nóv- ember. Þar ræðir hann almennt um hvað illa horfi að varanlegur friður komist á í Mið-Austurlöndum og nauðsyn þess að íraski herinn hverfi tafarlaust frá Kúveit. Síðan segist hann vilja vekja athygli Arafats á því, að íslenskur ríkisborgari hafi saklaus orðið fómarlamb deilunnar við Persaflóa og sé enn í haldi í Kú- veit eða írak. Steingrímur segist því taka sér það bessaleyfi, aö biöja Ara- fat að beita áhrifum sínum til að mér veröi leyft að hverfa aftur til míns heimalands. Þessi formlega beiðni fór ásamt upplýsingum um mig, störf mín og hagi, til skrifstofu PLO í Stokkhólmi. Það var greinilegt að Steingrímur leit þetta mál öðram augum en ráða- menn annarra ríkja í Vestur-Evrópu. Þeir evrópsku og bandarisku stjóm- málamenn sem fóra til Bagdad til aö fá landa sína lausa, sættu ámæli rík- isstjóma sinna fyrir að ganga of langt til samninga við Saddam Hussein og ríkisstjórnimar bára af sér alla ábyrgð á þessu frumkvæði sendi- mannanna. Þessi gagnrýni var í sam- ræmi við þá stefnu sem mörkuð var innan Atiantshafsbandalagsins og fleiri samtaka vestrænna ríkja. En í viðtali við DV um miðjan nóvember, sagði Steingrímur aðspurður um hvort ekki væri vænlegast að senda sendimenn til Bagdad til að fá mig lausan: „Það er að sjálfsögðu öllum velkomið að fara og gera það sem þeir geta. Við myndum styðja við bakið á slíkum tilraunum." Varfæmi og dipló En þegar kom að bréfi utanríkis- ráðherra íslands til hins íraska starfsbróður síns, var eitthvað þyngra undir fæti. Bima fór reglu- lega í utanríkisráðuneytiö til aö spyrjast fyrir um hvort bréfið hefði verið sent. En það komu alltaf ein- hveijar vöflur á starfsmenn ráðu- neytisins. Það var alltaf verið að reyna að sjóða saman þetta bréf, en það var af einhveijum óskilgreind- um ástæðum óskaplega erfitt. Það var svo erfitt að finna rétta orðalagið á þetta bréf, sögðu starfsmenn utan- ríkisráðuneytisins við Bimu. Það mátti ekki segja of mikið, svo írakar færa ekki að fá áhuga á mér og halda mér lengur fyrir vikið. Það mátti heldur ekki segja of lítið. Þetta varð allt aö vera svo varfæmislegt og diplómatískt. Af hálfu ráðuneytisins var Finn- boga Rúti Amarsyni falið að sjá um þau mál er lutu að heimflutningi ís- lendinga frá Persaflóasvæðinu. Finnbogi Rútur sinnti þessu ötullega og lagði sig í framkróka við að fá mig lausan, en hann átti engin svör þegar spurt var hvers vegna þetta margumrædda bréf væri ekki farið til Bagdad. Bréfi til Saddams Husseinhafnað En þótt þessi bréfaskipti við Tarik Aziz vefðust fyrir utanríkisráðuneyt- inu, vora þeir snöggir að grípa til ýmissa annarra ráðstafana sem að góðu gagni komu. Strax eftir innrás- ina í byijun ágúst var ákveðið að skipa Stefaníu Reinhardsdóttur Kha- lifeh ræðismann íslands í Jórdaníu. Stefanía er gift Palestínumanni og hefur búið í Amman í Jórdaníu í áratug. Hún þekkir því hugsunarhátt Araba betur en flestir aðrir íslend- ingar, enda var hún fljótiega farin að gefa utanríkiSráðuneytinu ráð um hvemig best væri að greiða fyrir því að ég fengi brottfararleyfi. Strax um miðjan september benti hún utanrík- isráðuneytinu í Reykjavík á, að væn- legt væri til árangurs að skrifa bréf til Saddams Husseins og biðja um brottfararleyfí fyrir mig. Hún sagðist vita að þessi leið hefði verið notuð og viðkomandi fengið brottfararleyfi. Stefanía sendi utanríkisráðuneytinu meira að segja uppkast að bréfi til Saddams. Hún bauðst til að koma því til sendiherra íraka í Amman eða óska eftir að Hussein Jórdaníukon- ungur kæmi því til Saddams, ef utan- ríkisráðuneytið gæfi leyfi fyrir því. En það leyfi fékkst aldrei. í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík var mönnum þvi vel kunnugt um hvaöa gildi það hafði í augum írösku stjómarinnar, ef leitað var milliliða- laust til hennar um að veita gíslum brottfararleyfi. Finnbogi Rútur bendir Jóni Baldvini Hannibalssyni á þetta í skýrslu sem hann skrifar um málið 28. september. í þessari athyglisverðu skýrslu greinir Finn- bogi Rútur ráðherranum frá þremur leiðum til að koma þessu í kring, til viðbótar við þá leið að láta Stefaníu skrifa bréf. í fyrsta lagi geti utanrík- isráðherra skrifað stutta orðsend- ingu eða svokallað „note verbale" til starfbróður síns í írak. í öðra lagi geti utanríkisráðherra sent bréf beint til Saddams Husseins og í þessu sambandi vekur Finnbogi athygli ráðherrans á því sem ég skrifaði í bréfinu til Bimu, að í Bagdad taki menn ekki mark á bréfum sem und- irrituð era af lægra settum en ráö- herrum. í þriðja lagi bendir Finnbogi á þann möguleika að hægt sé að skipa mig fulltrúa í utanríkisþjónustunni tímabundið, með það hlutverk að fylgjast með framvindu mála í Mið- Austurlöndum. Hann segir að þá verði hægt að senda mér diplómat- ískt vegabréf með milligöngu þýska sendiráðsins, sem þá var enn starf- andi í Kúveit. Því þótt írösk stjóm- völd hafi ekki viðurkennt slík diplómatísk réttindi, þá hafi þau þó viðurkennt rétt slíkra manna til að yfirgefa landið hyenær sem væri. Ekki er að sjá, að ráðherra hafi < 1 i ( < Í i I i ( i ( i í i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.